Vísir - 27.02.1962, Qupperneq 4
4
V í S I R
Þriðjudagur 27. febrúar 1962
Frönsk menningarkynn
á íslandi í 50 ár
Kynni íslands og Frakk-
lands standa á gömlum
merg og eiga bæði löndin
hvort öðru allmikið upp að
unna þegar að er gáð. Þó
nokkrir landar gengu í
Svartaskóla, menntuðust þar
vel og urðu sumir frægir af.
Og tíðum voru franskar
duggur hér við land. Það
var lengi helzti frönskuskóli
íslendinga á öllum aldri og
af ýmsum stéttum að ræða
við sjómenn þessa, þegar
þeir stigu á land, ýmist að
fala hér vettlinga, peysur og
fleira prjónles gegn biskví
og sætindum, eða þá rak hér-
á land af brotnum skipum
sínum. Þeir sem þannig
komust af við illan leik,
þóttust standa í mikilli þakk-
arskuld við fsland upp frá
því og þá aðstandendur
þeirra ekki síður. Oft strönd-
uðu skip þeirra á söndunum
fyrir Suðurlandi, og til þess
á rót að rekja, að á frönsk
landabréf af íslandi hafa
komizt staðanöfn, sem sum-
ir íslendingar kannast lítið
eða ekki við. Eg minnist
þess, sem eg las í ritgerð
eftir meistarann Kiljan fyr-
ir mörgum árum, að hann
segir frá því, er hann var
staddur í FrakklanlÉli og
rakst þar á landabréf á sýn-
ingu einni og gáði, eins og
oft hendir landa, að upp-
drættinum af íslandi, En í
stað þess að sjá þar merkta
hina frægu staði Reykjavík,
Þingvelli, Gullfoss og Geysi,
voru þar nöfn eins og
Kálfafellsstaður, Höfða-
brekka, Fagurhólsmýri og
Kvískerjum (svo!). Þeir
voru sem sé ótal margir
Fransmenn, sem kunnu
miklu fleira að segja frá
þessum síðastnefndu stöðum
en hinum fornfrægu sögu-
stöðum, sem áður voru tald-
ir. (Þess má geta, að einmitt
á þeim hérlendu slóðum,
sem franskir sjómenn gistu
lengur. eða skemur, bar
meira á brúneygum, hrokk-
inhærðum og þeldökkum fs-
lendingum en annars staðar).
Fyrsta félag sinnar teg-
undar hérlendis, Frakklands-
vinafélagið Alliance Fran-
caise, er að halda upp á
hálfrar aldar afmæli sitt
þessa dagana, og í tilefni
þess hefir fréttamaður
Vísis hitt að máli ^þann
eina af stofnendum, sem
enn 'er á lífi, Guðmund Kr.
Guðmundsson fyrrv. kaup-
mann og hóteleiganda !(Hót-
el Heklu) og núverandi for-
mann félagsins, Albert Guð-
mundsson stórkaupmann
(fyrrum knattspyrnukappa).
— Hver voru tildrög þess,
að þið stofnuðuð þetta félag?
tungu og bókmenntum.
Seinast á árinu komu nokkr-
ir menn saman hér í bænum
og ákváðu að stofna félag
áhugamanna um útbreiðslu
á frönsku og franskri menn-
ingu, og stofnfundur þess
var haldinn 12. janúar 1912,
en félagið nefnt sama nafni
og slík félög heita víðast
hvar, Alliance Francaise,
sem eru raunar greinar eins
allsherjarfélags, er hefir að-
setur í París. Forseti þess var
seinustu æviár sín franska
— Þegar Háskóli íslands
tók til starfa 1911, varð
Frakkland fyrst til þess allra
landa að senda hingað
sendikennara í franskri
skáldið heimsfræga Paul
Claudel, er áratugum saman
hafði verið ræðismaður og
sendiherra lands síns í mörg-
um löndum Ameríku, Asíu
og Evrópu, m. a. í Kaup-
mannahöfn. Fyrsti formað-
ur félags okkar hér var kos-
inn Magnús Stephensen
landshöfðiiigi og aðrir í
stjórn Guðmundur Finn-
bogason landsbókavörður,
Brynjólfur Björnsson tann-
læknir, Pétur Þ. J. Gunnars-
son stórkpupmaður og Páll
Þorkelsson gullsmiður.
Endurskoðendur vorum við
kosnir Friðrik Gunnarsson
kaupmaður í Ásgarði og eg.
Það var mikill áhugi
nokkurra manna hér í bæn-
um að stofna franskt bóka-
safn og ræddu málið við
franska ræðismanninn hér,
Alfred Blanche. Hann var
hrifinn af fyrirætlaninni og
vakti athygli á því, að til
væri félag í París, Alliance
Francaise, sem hefði deildir
starfandi víða um lönd og
hefði það verkefni að kynna
franska menningu út um
heim. Væri gott, ef slík
deild kæ'mist á fót hér.
—, Hvernig var starfi fé-
lagsins háttar fyrst í stað?
— Fundir félagisns hafa
Framhald á bls. 10.
er ætíð bezta hressmgin
í afmælishófi Alliance
Francaise, í Þjóðleikhúsinu
sl. sunnudag, voru þrír gerð-
ir heiðursfélagar: Eini eftir-
lifandi stofnandinn, Guð-
mundur Kr. Guðmundsson,
kaupmaður, Henry Voillery,
fyrrv. sendiherra og Magnús
Jónsson, menntaskolakenn-
ari. Þessa mynd tók ljós-
myndari Vísis, I. M., þegar
Guðmundur hafði tekið við
sínu heiðursfélagaskírteini er
Albert Guðmundsson af-
henti, en hann stendur til
hægri.
Allir þarfnast Kvíldar við störfin. Þá er gott að fá sér Coca-Cola,
' ljúffengt og svalt, sem léttir skapið og gerir vinnuna ánægjulegri.