Vísir - 27.02.1962, Síða 6

Vísir - 27.02.1962, Síða 6
6 V t S I B Þriðjudagur 27. febrúar 1962 Fjársöfnn vegna sjó- slysanna. Miklir mannskaðar hafa orðið hér við land á undan- fömum vikum Er þess skemmst að minnast, er vél- skipið Stuðlaberg frá Seyðis- firði fórst með allri áhöfn, ellefu mönnum. Þar var stórt skarð höggvið í sveit ís- lenzkra sjómanna og þungur harmur kveðinn að mörgum heimilum í senn. önnur áföll og manntjón eru einnig í fersku minni. Slíkir atburðir minna alþióð á það, hve sam- eiginleg lífsbarátta þjóðarinn ar kemur þungt niður á þeim, sem stöðugt hætta lífi sínu við störf í allra bágu. Þeir eiga vandamenn, skyldulið og ástvini, sem deila kjörum með þeim og lifa marga á- hyggjustund, sem öðrum er hlíft við. Þeirra raun er þung bær, þegar hafið þeimtar sín gjöld. öll þjóðin hugsar í samúð til þeirra mörgu heim- ila, sem nú hafa verið svipt forsjá sinni og eru í sárum vegna umræddra sióslysa. Nær þrjátíu börn hafa orðið föðurlaus á tæpum mánuði. Þegar slík tíðindi hafa gerzt, hefur þjóðin jafnan sýnt það, að hana skortir ekki samhug né hjálþarvilja. I trausti þess að svo muni einnig reynast nú, viljum vér undirritaðir heita á almenning um sam- skot til styrktar bágstöddum skjólstæðingum beirra manna er drukknað hafa af Særúnu, Elliða og Stuðlabergi. Heiðr- um þá, sem horfnir eru, með samúð í verki við þá, sem þeir unnu, með liðsinni við þá, er lifa. Gjöfum í þessu skyni veita viðtöku: Biskupsstofa, Arn- arhváli, Reykjavík. sóknar- prestar, skrifstofa Lands- sambands íslenzkra útvegs- manna, Hafnarhváli, Reykja vík, skrifstofa Eggerts Krist- jánssonar, Hafnarstræti 5, Reykjavík, og dagblöðin. Sigurbjörn Einarsson, bisk up, Reykjavík. Sr Bjöm Jóns son, sóknarprestur, Keflavík. Sr. Erlendur Sigmundsson, prófastur, Seyðisfirði. Eggert Gíslason, skipstjóri, Gerðum. Eggert Kristjánsson, stór- kaupmaður, Rvík. Jón Axel Pétursson, bankastjóri, Rvík, Sigurður H. Egilsson, fram- kvæmdastjóri, Rvík, Jóhann- es Elíasson, bankastj., Rvík, Bjöm Dúason, sveitarstjóri, Sandgerði, Falur Guðmunds- son, útgerðarmaður, Kefla- vík, Jón Ásgeirsson, sveitar- stjóri, Ytri-Njarðvík, Jónas B. Jónsson, skátahöfðingi, Rvík, Sr. Garðar Þorsteins- son, prófastur, Hafnarfirði. Frétt frá Skrifstofu verðlagsstjóra. Verðlag helztu nauðsynja. 3. febrúar 1962. Til þess að almenningur eigi auðveldara með að fylgj- ast með vöruverði, birtir skrifstofan eftirfarandi skrá yfir útsöluverð nokkurra vörutegunda í Reykjavík, eins og það reyndist vera 1. þ. m. Verðmunurinn sem fram kemur á nokkrum tegund- anna stafar af mismunandi innkaupsverði og/eða mis- munandi tegundum. Nánari upplýsingar um vömverð eru gefnar á skrif- stofunni eftir því sem tök eru á, og er fólk hvatt til þess að spyrjast fyrir er því þykir ástæða til. Upplýs- ingasími skrifstofunnar er 18336. Matvörur og nýlenduvörur Lægst Hæst Rúgmjöl pr. kg. kr. 5.40 5.45 Hveiti pr. kg. — 6.85 7.10 Hveiti 5 lbs. pk. — 18.95 20.20 Hrísgrjón pr. kg. — 9.60 12.05 Hrísgrjón 450 gr. pk. — 6.20 6.65 Haframjöl pr. kg. — 6.35 7.95 Ota Sólgrjón 1000 gr. pk. — 11.75 11.95 Ota Sólgrjón 500 gr. pk. — 6.05 Super Sól 500 gr. pk. — 5.55 6.15 Super Sól 1000 gr. pk. — 10.85 12.15 Bio Foska 475 gr. pk. —r 5.60 6.20 Bio Foska 950 gr. pk. — 10.90 12.10 Sagógrjón pr. kg. — 9.95 Sagógrjón 400 gr. pk. — 5.10 8.25 Kartöflumjöl pr. kg. — 11.20 Kartöflumjöl 1000 gr. pk. — 12.35 12.45 Te 100 gr. pk. ' - — 17.05 21.85 Kakó y2 lbs. dósir — 18.60 22.90 Suðusúkkulaði pr. kg. — 132.00 Kaffibætir pr. kg. — 26.50 Kaffi br. malað pr. kg. — 49.80 Molasykur pr. kg. — 9.40 12.00 Molasykur 1000 gr. pk. — 10.90 12.30 Strásykur pr. kg. — 6.20 6.90 Strásykur 5 lbs. pk. — 16.55 16.70 Mjólkurkex pr. kg. — 19.40 Mjólkurkex 500 gr. pk. — 11.55 Mjólkurkex 600 gr. pk. — 13.85 Matarkex kringlótt pr. kg. — 20.05 Matarkex 500 gr. pk. — 12.00 Kremkex pr. kg. — 32.90 Kremkex 500 gr. pk. — 20.05 Rúsínur steinl. pr. kg. — 28.00 40.00 Sveskjur 40/50 60/70 70/80 pr. kg. — 40.00 55.20 Smjörlíki pr. kg. — 18.00 Fiskbollur 1/1 dós — 17.55 Rinso pr. pk. — 13.75 15.70 Sparr pr. pk. — 8.30 Perla pr. pk. — 8.55 Gæðasmjör 1. fl. pr. kg. — 69.00 Mjólkurbússmjör 2. fl. pr. kg. — 62.30 Heimasmjör pr. kg. — 57.00 Egg pr. kg. — 50.00 56.65 Þorskur, nýr, hausaður, pr. kg. — 3.50 Ýsa, ný, hausuð, pr. kg. — 5.00 Smálúða pr. kg . — 11.00 Stórlúða pr. kg. — 18.00 Saltfiskur pr. kg. — 9.20 Fiskfars pr. kg. — 11.50 Nýir ávextir. Epli Delicious amerísk pr. I kg- — 26.00 27.00 Appelsínur Spáni pr. kg. — 23.00 25.00 Appelsínur Jaffa pr. kg. — 21.00 Bananar 1. fl. pr. kg. — 29.50 Olía til húskyndingar pr. líter — 1.55 Kol pr. tonn — 1200.00 — ef selt minna en 250 kg. pr. 100 — 121.00

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.