Vísir - 27.02.1962, Síða 11
V í S I R
Þriðjudagur 27. febrúar 1962
li
„Tappagja
og iðnaöurinn.
Eins og þegar hefur verið
getið hér í blaðinu hefur ver-
ið lagt til í frv., sem liggur
fyrir Alþingi, að hækka
tappagjaldið svonefnda úr
10 aurum upp í 30 aura af
hverri seldri flösku. Ölgerð-
in Egill Skallagrímsson h.f.,
Sanitas h.f. og Verksmiðjan
Vífilfell h.f., hafa gert grein
fyrir viðhorfi sínu í bréfi til
heilbrigðis- og félagsmála-
nefndar efri deildar Alþing-
is, og er þar m. a. tekið fram,
auli þess sem áður hefur ver-
ið getið:
Auk hins óvenjulega háa
framleiðslutolls, greiðir þessi
iðngrein háa innflutnings-
tolla af hráefnum og umbúð-
um til framleiðslunnar. Þess-
ir tollar eru mismunandi eft-
ir vörutegundum 26—83 af
hundraði, en meðaltal inn-
flutningstollanna er 46 af
hundraði.
Þessi iðngrein hefur sjald-
an kvartað undan því, hvern-
ig að henni hefur verið búið
af hálfu hins opinbera, vegna
tolla og skatta, en nú þvkir
oss langt gengið í tillitsleys-
inu, ef með lagaboði á nú að
hækka útsöluverð á öllum
tegundum öls og gosdrykkja
á sama tíma, sem þessum
iðnaði er af hálfu hins opin-
bera synjað um að taka inn
i verðlagið bær verðhækkan-
ir, sem orðið hafa á rekstr-
inum, vegna almennra kaup-
hækkana og gengislækkunar.
Ö1 og gosdrykkja-iðnaður-
inn er einn af viðurkenndum
tekjustofnun ríkissjóðs og er
ekkert við því að segja, svo
lengi sem gætt er hófs í álög-
um til hins opinbera. En hitt
| mun óþekkt fyrirbrigði, þar
■ sem opinber f jármál eru ekki
algerlega komin úr reipunum
að tekjustofnar ríkissjóðs
séu gerðir að féþúfu fyrir fé-
lög einstaklinga, þótt þörf
séu, eftir að ríkissjóður hef-
ur tekið þann toll af tekju-
stofnunum, sem fært þykir.
Sú leið, sem hér hefur ver-
ið valin til tekjuöflunar fyr-
ir styrktarfélög einstaklinga,
hlýtur að verða ríkisstjóm
og Alþingi óþægur ljár i
þúfu, er fram líða stundir.
Er þegar farið að brydda á
því, að styrktarfélög leita nú
inn á þessa sömu leið, með
því að heimta til sín skatt
af ýmsum neyzluvörum al-
mennings.
Vér mótmælum mjög ein-
dregið, að öl og gosdrykkir
verði hækkaðir í verði með
þeirri gjaldahækkun, sem að
er stefnt í áðurgreindu frum-
varpi. Ef Alþingi telur þjóð-
félaginu nauðsynlegt að
styrkja það málefni, sem hér
er um að ræða, liggur beint
við, að það sé gert á hefð-
bundinn hátt, með fjárveit-
ingu í fjárlögum, en ekki
með ráðstöfunum, sem hljóta
að draga dilk á eftir sér, með-
al annars vegna ranglætis
gagnvart öðram styrktarfé-
lögum, er ekki fá að njóta
svo stórkostlegra fríðinda.
Mætti þá svo fara að ýmsar
iðngreinar yrðu gerðar að fé
þúfu fyrir margháttaða
styrktarstarfsemi einstakl-
inga. Með því væri iðnaðar-
framleiðslu í landinu stefnt
í beina hættu og mundi á-
byrgðin af slíkum ráðstöfun-
um hvíla á Alþingi.
Franskar bifreiðir eru
effirsóttar.
Eftirspurn að frönskum
bifreiðum i heiminum hélzt
mikil árið sem leið og var um
mikla framleiðsluaukningu
að ræða.
Citroen-verksmiðjurnar til
dæmis framleiddu 337.316 bif
reiðar (316.218 árið áður),
þar af 251.106 farþegabif-
reiðar eða um 20 þúsund
fleiri en 1960. — Pegigot-
verksmiðjurnar framleiddu
236.637 bifreiðar (218.509
árið 1960).
MIKIÐ ÚRVAL Prentvél
af ódýrum og fallegum (handrokkur)
H ÖT T U M. óskast til kaups. — Sími
IIATTABÚÐIN H U L D 24649.
'JFUR SIQW'*
^5ELUR
SELJITM I DAG:
Chevrolet hard-top 1959,
selzt með veltryggðu
fasteignabréfi.
Volkswagen 1960. Kr. 95
þús. útborgun.
Ford Anglia 1957. Falleg-
ur bíll.
Mercedes Benz 220 1955.
Samkomulag.
Chevrolet 1953. Skipti j
koma til greina á Mosk-
vitsh árg 1957.
Vauxhall 1947—’55.
Chevrolet 1950. Kr. 40 þús.
útborgað.
Dodge 1950, 2ja dyra.
Góður bíll.
Mercedes Benz, diesel 1961
Km. 4 þús. Með eða án
krana.
Bílleyfi óskast.
BORGARTÚNI 1.
Heimasími 36548.
Símar 18085—19615.
LAUGAVE6I 90-92
Nýir
verðlistar
koma
fram
dag.
Gjörið svo veJ og skoð-
ið bílana. Þeir eru á
staðnum.
YNDLISTASKQLINN
1 Reykjavík, Freyju-
götu 41, inngangur frá
Mímisvegi, sími 11990.
Um mánaðamótin hefst
nýtt námskeið í barna-
deildum.
Innritun daglega
frá kl. 8—10 e.h.
Sunnudaginn 4. n.m. hefjast eftirtaldir náms-
flokkar á vegum Félagsmálastofnunarinnar:
Fundarstörf og mælska.
10 málfundir með leiðbeiningum. um ræðugerð,
fundarstjóm og rökfræði. Þátttökugjald kr.
250.00.
Verkalýðs- og efnahagsmál.
10 erindi um efni, sem varðar alla launþega. —
Þátttökugjald kr. 150,00.
Innritunar- og þátttökuskírteini seld í Bókabúð
KRON, Bankastræti.
Félagsmálastofnunin
SÍMI 19624.
Kópavogur
Sölubörn
Unglingar óskast til að selja Vísir í Kópavogi
(sérlega Vesturbæ). — Komið á Nýbýlaveg 53
(eða hafið samband við afgreiðslu Vísis Ing-
ólfsstræti 3).
Auglýsingadeild VÍSIS
Ingólfsstræti 3
sími 1-1-6-6-0
Auglýsingar, sem birtast eiga samdægurs, þurfa
að berast fyrir kl. 10 f. h. til auglýsingaskrif-
stofunnar og auglýsingar í laugardagsblað fyrir
kl. 6 á föstudögum.