Vísir - 03.05.1962, Side 8
VISIR
Fimmtudagur 3. maí 1962.
Utgetandi: Blaðaútgðfan VTSIK
Ritstjórar- Hersteinn PSIsson. Gunnai G Schram
Aðstoðarntstióri: Axel rhorsteinsson
Fréttastióri: Þorsteinn Ö. Thorarensen
Ritstiórnarskrifstofur: Lauga'/eg: 178
Auglýsir.gr, 5 >g afgreiðsia- ..gólfsstræti 3.
Áskrift’ rgjald ei 45 krónui mánuði
I lausasflu 3 kr aint Sfmi 11660 (5 linur)
Prentsmiðia /isis — Edd a h.t
V.------------------------------------------------------------------------/
Ábyrg verkalýðsstétt
Tímamót hafa verið mörkuð í íslenzkri verklýðs-
sögu. Lýðræðissinnuðu verklýðsfélögin hafa slegið
skjaldborg um hagsmuni launþega, en varpað komm-
únistavofunni fyrir borð. Það var tími til kominn að
þau létu ekki kommúnista beygja sig, en tækju af
skarið og héldu sinn eiginn 1. maí fund. Sá fundur
var mjög glæsilegur og geysifjölmennur, meðan
kommúnistarnir sífruðu í skugganum undir Miðbæj-
arskólanum.
Á fundi Fuiltrúaráðsins var ekki flúið austur á
Volgubakka né hagsmunamálum verkamanna gleymt.
Þar var dagurinn helgaður raunhæfum kjarabótum,
kauphækkunum fyrir þá lægst Iaunuðu og auknum
þjóðarafköstum. Verkamönnum og öðrum launþegum
hefir skilizt að það er ekki krónutala kaupsins, sem
skiptir meginmáli; það er kaupmáttur þeirrar krónu,
sem upp úr launaumslaginu kemur. Því eru raunhæfu
kjarabæturnar m. a. í því fólgnar að stöðva verðbólg-
una, koma á 8 stunda vinnudegi án kaupskerðingar,
auka afköstin, vinnuhagræðingu og koma á sem
hæstri framleiðslu á sem flestum sviðum.
Að öllu þessu vinnur ríkisstjórnin. Þar eru þó
mörg verkefni enn óleyst og því þykir mörgum laun-
þeganum að hlutur sinn sé enn of skarður. Slík af-
staða er ekki nema eðlileg og skiljanleg. Óskandi væri
að unnt væri að stórbæta kjör launþega landsins í
einum skömmum áfanga. En hér duga engin undra-
meðöl, sem sjúkleika efnahagslífsins lækni á einni
nóttu, — sér í lagi ekki, þegar verkfallsmennirnir sitja
um að ausa salti í sárin.
En stefnan er mörkuð. Ríkisstjórnin hefir oft haft
ábyrga stefnu í efnahagsmálum, sem nokkrar stund-
arfórnir hefir kostað, en mun leiða til langvinns góð-
æris þegar af Heljardal er komið. En hér megnar rík-
isstjómin ekki ein um að véla. Hún þarf fulltingi
sterkrar, lýðræðissinnaðrar og ábyrgar verklýðsstétt-
ar við það mikla starf að byggja upp nýtt ísland.
Hitaveita i hvert hús
Gufa tók í gær að rjúka úr borholu stóra bors-
íns við Suðurlandsbrautina og er þar komið niður á
hitaæð. Er það önnur æðin, sem finnst á litlu svæði
innan mánaðar. Þessir fundir leiða hugann að því að
hitaveita mun verða komin í öll hús innan bæjar-
marka Reykjavíkur innan fjögurra ára.
Hin mikla hitaveituáætlun borgarinnar er þegar
komin í framkvæmd og mun mjög auka þægindi og
sparnað hjá þúsundum Reykvíkinga. Þannig ber borg-
aryfirvöldunum að hraða sem allra mest nauðsynleg-
um framkvæmdum, sem borgurunum eru svo mikil
hagsmunamál sem heita vatnið.
Mynd þessi sýnir hvar Stirling Moss er klemmdur fastur í ökumannssætinu, en
menn eru að klippa sundur járnin, sem halda honum.
astur
Frægasti ökugikkur Breta,
Kappakstursmaðurinn Stir-
ling Moss, liggur í sjúkra-
húsi þungt haldinn eftir ó-
happ, sem hann varð fyrir á
Goodwood kappakstursbraut
inni í Englandi. Hann ók Hft
af brautinni á sveigju. Var
hann þá á 180 km hraða á
klst. og þykir mesta mildi að
hann skuli halda lífi. Talið
er, að slysið hafi orðið vegna
bilunar á benzíngjöfinni. —
Benzínið stóð á sér svo að
Moss gat ekki dregið úr ferð-
inni, þegar hann nálgaðist
beygjuna, heldur þeysti bif-
reiðin á fullum hraða út af
henni út I skurð, hvoífdi,
rakst á vegg og kastaðist afí-
ur inn á brautina.
- ★ -
Goodwood ökukeppnin er
160 km löng og eru farnir 42
hringir á akbrautinni. Fyrslu
fjóra hringina var Mess
fjórði í röðinni á kappakst
ursbíl sínum, sem hann kall-
aði Lotus. Þá bilaði gírskipt-
ing bílsins svo að hann varð
að nema staðar. Aðstoðar-
menn hans voru fljótir að
gera við bilunina og aftur ók
Moss af stað, en hafði nú
dregizt töluvert aftur úr. Var
sýnilegt, að hann væri bæði
æstur og reiður yfir þessari
töf. Hann fór nú næsta hring
á meiri hraða en nokkru
sinni áður hefur verið gerr
og náði maðalhraðanum
165.7 km. Með þessu dró
hann á harðasta keppinaut
sinn Graham Hill, sem var á
brautinni fyrir framan hann,
að vísu tveimur hringum a
undan.
Stirling Moss steig benzín-
ið á botn og var að þeysa
fram úr Hill með 178 km.
hraða á klst. En þá komu
þeir að beygju og skeði ó-
happið þá sem fyrr segir.
- ★ -
Ef kappakstursbíll fer út
af brautinni á slíkum hraða
er ferlegt að sjá hvernig
hann kastast til og frá, velt-
ur og lyftist upp. Einmitt það
gerðist hérna og horfðu þús-
undir áhorfenda á þetta at-
vik skelfingu lostnir.
Að lokum staðnæmdist
hinn sundurbrotni kappaksi-
ursbíll þó til hlítar á braut-
inni og sneri upp. Menn sáu,
að Moss hreyfði höfuðið í
sætinu og heyrðu að hann
kallaði á hjálp.
- ★ -
En ekki komst björgunar-
sveit til hans fyrr en nokkru
seinna vegna þess að sífellt
streymdu kappakstursbílam
ij- framhjá. Loks tókst m°ð-
an örstutt hlé varð á umferð-
inni að draga hinn skemmda
bíl út af brautinni. Kom í
ljós, að Sterling Moss var
enn við meðvitund. Hann
var fastur í bílstjórasætinu,
klemmdur inni og hafði mik!-
ar kvalir.
Var nú komið með tæki til
að klippa járnið í sundur,
sem kreppti að honum. Það
tók 40 mínútur að losa um
Frh. á bls. 13
Kappakstursbíllinn brotnar í sundur.
V.V.'.V
ib auaauBwnaaBaaBi