Vísir - 03.05.1962, Page 13
Fimmtudagur 3. maí 1962
VISIR
Æskan —
Framh. af 7. siðu.
— Hvað er langt síðan þið
stofnuðuð hljómsveitina?
— Við byrjuðum í október,
þá vorum við fjórir, síðan hefur
bassaleikarinn bætzt við.
— Hver er meðalaldur hljóm-
sveitarmeðlimanna?
— Við erum á aldrinum fimm
. tán til sautján ára.
— Hvað ert þú gamall?
— Ég er á bezta aldri, fimm-
tán ára, og er yngstur í hljóm-
sveitinni.
— Jæja, ert þú yngstur og
jafnframt hljómsveitarstjóri,
veiztu hvað iá því til grundvall-
ar?
— Nei, það hef ég ekki hug-
mynd um, þetta var ákveðið að
mér fjarverandi.
— Hvað æfið þið ykkur oft í
viku?
—1 Fæstar sameiginlegar æf-
ingar eru einu sinni í viku, en
við æfum okkur, auk þess, aliir
mikið heima.
— Hafið þið leikið eitthvað
opinberlega?
— Það er nú varla hægt að
segja það. Við höfum jú leikið
nokkrum sinnum í Stjörnu-
klúbbnum, og í „pausurn" á'
skólaskemmtunum.
— Hafið þið eitthvað sér-
stakt í áætlun í sambandi við
sumarið?
— Já, við höfum mikinn hug
á því að komast einhversstaðar
að, þar sem háldnar verða ung-
lingaskemmtanir, vegna þess
að við æfum aðallega lög sem
eru vinsæl hjá krökkunum.
— Hvers konar lög eru það?
— Nú leggja unglingarnir
mest upp úr hraðanum, sbr.
twist, en róleg falleg lög eru
alltaf vinsæl, ef þau eru
skemmtilega útsett.
Við þökkum Sturlú kærlega
fyrir og fengum okkur sæti og
þeir léku fyrir okkur kynningar
lagið sitt, sem heitir Midnight.
Því næst kvöddum við þá og
þökkuðum þeim fyrir upplýsing
arnar og hljómlistina um leið
og við óskuðum þess að þeir
ættu eftir að skemmta mörgum
reykvískum unglingnum, því
þeir eru sannarlega efnilegir
hljómlistarmenn. — Á. S.
utan —
Framh. af 8. síðu.
fætur hans. Moss var alblóð-
ugur og þegar hann hafði ver
ið fluttur í sjúkrahúsið koin
í Ijós, að meiðsli hans voru
meiðsli á höfði, vinstri fótur
og eitt rif brotið. — Þykir
mesta mildi að hann skuli
ekki hafa meiðzt meira.
- ★ -
Moss var spurður í sjúkra-
húsinu, hvort hann mundi nú
ekki hætta kappakstri, en
þessi frægasti ökupiaður
Breta varð einnig fyrir slysi
í fyrra, er hann var að æfa
sig undir belgíska Grand Prix
kappaksturinn. Ók hann pá
út af og slaðsðist í baki. í
síðasta mánuði rakst hann á
og skemmdi bíl, sem hann ók
í kappakstri í Melbourne í
Ástralíu en slapp sjálfur ó-
meiddur.
Fundurinn á Lækjartorgi
Fundur lýðræðissinna á Lækj
artorgi 1. maí var nijög fjöl-
mennur og náði mannsöfnuður-
inn m.a. langt upp i Banka-
stræti. Ræðumenn á fundinum
deildu mjög á kommúnista fyr-
ir að kljúfa einingu verkalýðs-
ins um hátíðahöld þessa dags
og báru fram kröfur um raun-
hæfar kjarabætur.
Myndirnar sem hér birtast
tók ljósmyndari Vísis I.M. í
upphafi fundarins. Sýnir önnur
fánaborgina kringum ræðustól
og er Sverrir Hermannsson þar
að flytja ávarp frá Landssam-
bandi Verzlunarmanna, en hitt
er skemmtileg mynd tekin af
túninu fyrir framan stjórnarráðs
húsið. Þar hafa nokkrir áheyr-
endur farið inn á túnið og sezt
I hring kringum styttu Hannes-
ar Hafstein, en á bak við sést
mannfjöldinn upp eftir Banka-
stræti.
Þessi 32 ára ökugiggur |
kvaðst ekki vera af baki dott
inn. Auðvitað getur hann
ekki tekið þátt í kappakstri
í sumar, en strax og honum
er batnað næsta ár mun hann
halda áfram á sömu braut.
Það er vart hægt að hugsa
sér áhætbusamara líf en það,
sem kappakstursmenn iifa.
Menn komast ekki í fremstu
röð á því sviði án þess að
tefla stöðugt á tyær hæ't-
ur og með því að sýna áræði
og bjóða hættunum byrgmn
H. Grofh —
Framh. af 10. síðu.
þær. En það er auðvitað geysimik-
ið atriði til að full heild megi tak-
ast, að hver þjöð geti mælt á sínu
máli og þurfi ekki að tala á máli
annarrar þjóðar. T.d. væru yfir 100
þús. íslendingar, sem skildu mál
hinna landanna, en engir hinna
skildu þeirra mál. Þetta yrði að
breytast, og að því miðaði, að nú
verður tekin upp kennsla í nútíma-
fslenzku í norskum skólum.
Eiturbyrlun
Rúmlega sextug ekkja í A.-Ber-
lín, Agnes Völker, hefir verið
dæmd í ævilangt fangelsi fyrir eit-
urbyrlun.
Sannaðist á hana að hafa drepið
tvo leigjendur hjá sér á arseniki,
en auk þess reyndi hún að myrða
heila fjölskyldu, sem leigði hjá
henni og hún matbjó fyrir.