Vísir - 03.05.1962, Page 16
VISIR
Fimmtudagurinn 3. maí 1962.
Særðust
Tveir særðir menn voru fluttir
í slysavarðstofuna í gær, annar
hafði gengið á rúðu í hurð, en hinn
verið skotinn með ör í andlitið.
Síðarnefnda atvikið skeði í
Melahverfinu í Vesturbænum í
gærdag. Krakkar voru að leika sér
í hóp, en einhver drengur sem stóð
utan við hópinn skaut af boga á
þyrpinguna og lenti örin í andliti
10 ára drengs, Steinþórs Guð-
bjartssonar, Hagamel 41. Örin
lenti ,á vanga Steinþórs, rétt neðan
við augað og varð af svöðusár. Ef
örin hefði lent örlítið ofar má
fullvíst teija að hún hefði farið í
auga drengsins og hann misst sjón-
ina á auganu. Þetta atvik ætti að
vera næg bending foreldrum að
aðvara krakka sína um meðferð
boga og helzt að láta þeim önnur
leikföng í té, því að jafnvel hinir
varkárustu krakkar geta af slysni
valdið óhappi með þeim. Steinþór
litli var fluttur í slysavarðstofuna
og sár hans saumuð saman.
I gærmorgun vildi það óhapp
til að maður gekk á rúðu í útihurð
Verzlunarbankans £ Bankastræti.
Rúðan f(5r í mél og maðurinn
skarst talsvert og var strax fluttur
til læknisaðgerða.
VegirumNorö-
urland ófærir
Erfitt er um allar samgöngur
norðanlands á landi vegna ófærra
eða illfærra vega, enda hefur um-
ferð um þá ýmist verið takmörkuð
til muna eða jafnvel bönnuð með
Öuti.
Öllum bifreiðum hefur verið
bönnuð umferð um Vaðlaheiði,
Fljótsheiði og Tjörnes eins og sak-
ir standa, ennfremur um nokkurn
hluta Dalvikur- og Svalbarðsstrand
arvega, en umferð um flesta aðra
vegi, allt úr Húnaþingi og norður í
Þingeyjarsýslur hefur verið tak-
mörkuð við jeppa. Þó hefur létt-
hlöðnum mjólkurbílum verið leyfð
umferð um vegi úr Öxnadal, Hörg-
árdal og innanverðum Eyjafirði.
Þá hefur mjólk verið flutt á báti
úr Grenivík til Eyjafjarðar og
sumir Fnjóskdælir fara með mjólk-
ina til Grenivíkur.
Atkvæðagreiðsla togara■
manna hefst /
í gær lögðu sáttasemj-
arar ríkisins þeir Torfi
Hjartarson og Einar Arn-
alds fram miðlunartillögu
í togaradeilunni. Telur til-
lagan í sér um 12% hækk-
un á fastakaupi auk 4%
hækkunar þeirrar sem
verður þann 1. júní. Þá eru
breytingar gerðar á afla-
verðlaunum þannig að þau
lækka nokkuð þegar siglt
er með ísfisk til útlanda
en hækka þegar selt er
innanlands, þar sem mið-
að er þá við miklu hærra
fiskverð en nú er í gildi.
Sáttasemjarar afhentu
deiluaðilum miðlunartil-
löguna á fundum í Alþing-
ishúsinu um miðjan dag í
Leifur Þórarinsson ritar
um tónlist fyrir Vísi
Leifur Þórarinsson tónskáld
hefir tekið að sér að rita um
tónlist fyrir Vísi. Mun hann
bæði rita um einstaka tónleika
og einnig skrifa greinar um
ýmsa þætti tónlistarmála, inn-
lend efni og erlend. Leif er ó-
þarft að kynná fyrir Iesendum.
Hann hefir þegar getið sér góð-
an orðstír á sviði íslenzkrar
tónlistar þótt hann sé enn ekki
nema tæplega þrítugur að aldri.
Undanfarin þrjú ár hefir hann
dvalizt við nám í Bandaríkjun-
um, lagt stund á tónsmíði hjá
hinum kunna tónlistarmanni
Giinther SchuIIer og hafa tón-
smíðar eftir Leif verið leiknar á
hljómleikun. í New York, San
Fransisco og víðar um Banda-
ríkin að undanförnu.
Vísir býður Leif Þórarinsson
velkominn í hóp greinahöfunda,
sem í blaðið rita að staðaldri.
Mun fyrsta grein hans fjalla um
tónleika Sinfóníuhljómsveit-
arinnar í kvöld og birtist hún
hér í blaðinu á morgun.
gær. Voru fundir bæði í
stjórnum sjómannafélag-
anna og togaraeigenda í
morgun, þar sem rætt var
um tillöguna.
Atkvæðagreiðsla í 4 daga.
. í kvöld verður haldinn almennur
fundur togarasjómanna í Reykja-
vík og hefst hann kl. 20,30 í Al-
þýðuhúsinu. Að honum loknum
mun hefjast atkvæðagreiðsla um
málamiðlunartillöguna í skrifstofu
Sjómannafélags ReykjavíkUr og á
hún að standa í fjóra daga, ljúka á
mánudagskvöldið. Samtímis verður
atkvæðagreiðsla £ hópi togarasjó-
manna £ Hafnarfirði, Akureyri,
Siglufirði og Akranesi.
Aðalefni tillögunnar.
Miðlunartillagan er alllöng og ýt-
arleg, en aðalatriði hennar eru
þessi:
Fastakaup hækkar um 12%.
Kaup háseta, kyndara, aðstoðar-
manna við dieselvél og 2. mat-
sveins hækkar úr kr. 3.412,50 £ kr.
3.800,00.
Kaup netamanna hækkar úr kr.
3.762,50 í kr. 4.300,00.
Kaup bátsmanns og 1. matsveins
hækkar úr kr. 4.462,50 f kr.
4.900,00.
Þá hækka aflaverðlaun mikið,
þegar isfiskur er seldur innanlands,
og skiptir það verulegu máli, þvi
að mikill hluti af tekjum togara-
sjómanna er aflaverðlaunin. Segir
Framhald á Us 5.
Róbert A. Ottósson stjórnar'
tónleikum Sinfóníhljómsveitar- -
innar £ Háskólabíóinu i kvöld *
og Iætur þá Icór sinn, Filharmo-!
niukórinn, aðstoða öðru sinni, (
þegar flutt verður verkið Polo-
retskir dansar fyrir blandaðan ]
kór og hljómsveit, eftir Borodin, i
en fyrr i vetur flutti sami 70 1
manna kór ásamt hljómsveit-'
inni þýzku sálumessuna eftir <
Brahms. Ljósmyndari Vísis I. M.1
tók þessa mynd af kórnum og ]
hljómsveitinni á æfingu í gær.
í síðasta fundi borgarráðs
Reykjavíkur skýrði borgarstjóri
frá því, að hann hefði falið
Skarphéðni Jóhannssyni arki-
tekt að gera tillöguuppdrætti að
Bora dýpra
Vísir skýrði í gær frá því að
stóri jarðborinn hafi komið niður
á heita vatnsæð innst við Lauga-
veginn í gærmorgun.
Niður á æð þessa var komið í
rúmlega 300 metra dýpi, eða fyrr
miklu en búizt hafði verið við.
Talsvert vatnsmagn var þarna
um að ræða, eða sem næst 20 lítr-
um á sekúndu, en hitinn ekki nema
100 stig og það þótti bormönnun-
um of lítið. Þeir sætta sig ekki við
minna en 130 -140 stiga hita, því
að með því fá þeir helmingi meira
varmamagn úr sama vatnsmagni.
Ákvörðun var þýí tekin um að loka
holunni og halda borun áfram nið-
ur á meira dýpi, í þeirri von að þar
fáist heitara vatn.
þrem barna- og vistheimilum:
a) Uppeldisheimili (upptöku-
heimili) fyrir 30—40 börn
á aldrinum 3—7 ára
b) Uppeldisheimili fyrir 24
börn, 7—16 ára og
c) Vistheimili fyrir 15—20
börn á aldrinum 2—16 ára.
Reykjavíkurborg rekur nú 3
barnaheimili, að Hlíðarenda, Sil-
ungapolli og í Reykjahlíð. Hug-
myndin er, að Thorvaldsensfé-
lagið taki við Silungapolli' og
hafi þar vöggustofu, en Reykja-
víkurborg byggi eitt af ofan-
nefndum heimilum í Reykjahlíð
til að taka við börnum á þeim
aldri, sem nú dveljast að Sil-
ungapolli. Þá verði upptökuheim
ilið byggt á Lambhaga, og loks
er vistheimilið ætlað börrtum til
lengri dvalar. Þegar byggð hafa
verið hin nýju heimili, tvöfald-
ast sú tala, sem hægt er að
taka við af börnum, miðað við
það sem nú er.
16 þús.
Á næstu 20 árum er
nauðsynlegt að byggja
um 16 þús. nýjar íbúðir
hér í bænum, eða fram
til ársins 1981. Þessar
upplýsingar komii fram
í ræðu Gísla Halldórs-
sonar arkitekts á Varð-
arfundi í gærkvöldi.
Gísli ræddi um íbuðar-
byggingar ' Reykjavík og
gerði gre: :yrir framtíðar-
j áformum á því sviði. Ræddi
I hann um heildarskipulag
borgarinnar næstu 20 árin,
en að því hefir verið mikið
unnið að undanförmn
Beggja vegna Elliðaáa.
Talið er að í Reykjavík muni búa
123 þús. íbúar árið 1981. Hefir ná-
kvæm athugun farið fram á því
hvar unnt sé að byggja hinar 16
þúsund nýju íbúðir. Munu þær
verða reistar í Fossvogi og á þeim
svæðum sem enn eru óbyggð bæj-
armegin við Elliðaár. Er þar rúm
fyrir 20-25 þús. manns. En jafn-
margar íbúðir þarf að byggja aust-
an megin árinnar því reiknað er
með að mannfjölgun verði alls um
50 þús á þessu tímabili. Að þessu
tímabili loknu verða alls í Reykja-
vík 35 þús. íbúðir, en á hverjum
10 árum verður að byggja jafn
margar íbúðir og voru hér 1940.
Gísli gat þess einnig að áætlað
sé að ein íbúð komi á hverja 3,5
íbúa árið 1981. Verður því að
byggja 12 þús. íbúðir vegna fólks-
fjölgunarinnar næstu 20 árin og 4
þús. til útrýmingar heilsuspillandi
húsnæðis og vegna minnkandi fjöl-
skyldustærðar.
í ræðu Gísla Halldórssonar kom
glöggt í ljós hvert starf skipulags-
yfirvöld borgarinnar vinna við að
gera áætlanir um framtíðina í bygg
ingarmálunum og hvernig húsum
verður haganlegast fyrir komið.
Auk Gísla tóku til máls um þetta
efni þeir Þorkell Sigurðsson vél-
stjóri, Sigurður Magnússon kaup-
maður og Guðmundur H. Guð-
mundsson sjómaður.