Vísir - 08.08.1962, Qupperneq 1
VÍSIR
52. árg. — Miðvikudagur 8. ágúst 1962. — 184. tbl.
íslenzkir leikarar
eru mjög góiir
segir Balling leikstjóri
Töku fyrstu íslenzku
kvikmyndarinnar er lokið.
Eftir stanzlausa vinnu,
þeysing og hamagang í
heilan mánuð, hafa öll at-
riðin verið filmuð, og það
oftar en einu sinni. Mynda
spólan er hvorki meira né
minna en 12000 metrar,
sem er ekki lítið þegar lit-
ið er á að myndin sjálf
verður aðeins 2600 metr-
ar. Það hefur tekið heilar
nætur að mynda þriggja
mínútna senu og verkið
hefur staðið í heilan mán-
uð — myndin sjálf stendur
í einn og hálfan tíma.
Maðurinn á bak við allt þetta,
skipuleggjarinn, framkvæmdar-
maðurinn, potturinn og pannan, er
leikstjórinn Erik Balling. Sagan er
eftir Indriða, handritið er Guðlaugs
Rósinkranz og linsan hefur beinst
að leikurunum, en á bak við heldur
Balling í taumana og stjórnar verk-
inu.
Það hefur verið samdóma álit
allra, sem við kvikmyndunina hafa
unnið að betri stjórnanda hafi
ekki verið hægt að hugsa sér. Fyr-
ir það þakka þeir honum og um
leið það afrek að gera það „ó-
mögulega mögulegt".
Sjálfur segir Balling:
— Það er ekkert að þakka. Ég
og allir aðrir gerðu eins og þeir
gátu og það er aðeins það sem
krefjast verður af hverjum manni
I sínu starfi.
Söltun 40 þús. tunnaleyfð
í morgun bárust Síld-
arútvegsnefnd fregnir
um að tekizt hefði að
selja 6.000 tunnur af sér
verkaðri Norðurlands-'
síld til ísraels. Er það
fyrsta síldarsalan, sem
við það ríki hefir verið
gerð sem nokkru nemur
en fyrir allmörgum ár-
um voru send nokkur
sýnishorn af Suðurlands
síld þangað.
Upplýsingar þessar gaf Er-
lendur Þorsteinsson, formaSur
nefndarinnar, í morgun. Er hér
um að ræða eins konar matjes-
verkun, en að viðbættum sykri.
Heildar-tsraelsmarkaðurinn er
25—30.000 tunnur.
Nú hefir söltun verið leyfð
aftur sem kunnugt er. Taldi for-
maður Síldarútvegsnefndar að
óhætt myndi verða að salta 35
—40 þúsund tunnur enn upp í
Rússlandssamninginn. Auk þess
væri ekki að vita nema tækizt
að selja til Norðurlanda meiri
síld ef veiðar Norðmanna og
Færeyinga gengju illa á næst-
unni.
Heildarsíldarsöltunin mun þvi
fara yfir 300 þús. tunnur. Það
er samt ekki eins mikið magn
og saltað var á vertíðinni í
fyrra.
Engin
síldveiði
Engin síldveiði var i nótt vegna
brælu á miðunum. Veiðiflotinn ligg-
ur að heita má allur í vari, flestir
bátanna á Austfjarðahöfnum, en
mjög fáir á vestursvæðinu.
Veðurstofan spáir nú lygnandi
og batnandi veðri á miðunum og
menn gera sér almennt vonir um
að flotinn leggi af stað síðdegis í \
dag eða með kvöldinu.
Erik Balling.
En hann segir líka, nú þegar
hann heldur af 1 andi brott, að
starfið hér hafi verið sérlega á-
nægjulegt. Bæði fólk og land kom
mér á óvart og enginn skuggi hef-
ur fallið á samvinnu mína og
ykkar manna hér.
Óneitanleg reynsla.
— En hvað viljið þér segja um
kvikmyndina sem leikstjóri henn-
ar?
— Það er aldrei hægt að segja
neitt fyrr en myndin er komin
Framh á bls. 5
Nýr forstöðu-
maður
Um síðustu mánaðamót urðu
forstöðumannsskipti hjá Bif-
reiðaeftirliti ríkisins. Jón Ólafs-
son, sem veitt hefur Bifreiða-
eftirliti ríkisins forstöðu frá
stofnun þess, lætur nú af starfi,
en Gestur Ólafsson, sem hefur
verið fulltrúi í stofnuninni, hef-
ur verið settur forstöðumaður.
Gestur hefur unnið við Bifreiða-
eftirlitið yfir tuttugu ár.
Mynd þessa tók ljósmyndari Vísis í gær, þegar verið var að
landa aflanum úr Hvalfellinu við togarabryggjuna.
Fyrsta togarafísknum
landað í Reykjavík
Reykjavíkurtogararnir eru nú þeir aflann í land og er þár mest
farnir að koma af veiðum. Leggja
Uppspretta taugaveikibróður
í andabúi í Minni Vatnsleysu
Engin hætta frá hænueggjum
Skýring er fengin á upp-
runa sjúkdómsfaraldurs
þess, sem kallaður ^r
taugaveikibróðir. Þess kon
ar sýklar hafa nú verið
ræktaðir frá andarungum í
andabúi fyrirtækisin* Sílt’
Dg fiskur í Mmm V afn-
leysu. Verður öllum fugl-
um í andabúinu nú eytt og
búið lagt niður. Hins veg-
ar virðist engin ástæða til
að óttast að sjúkdómúrinn
berist með hænueggjum,
þv; af þar hefur hanr ekk;
fundiV þrát< fyrir víðtæk?
rannsókn á hænsnabúum.
Vfsi barst í morgun svolátandi
tilkynning frá borgarlækninum f
Reykjavík:
„Eins og frá hefur verið skýrt
hefur sieitulaust verið leitað að
uppruna faraldurs þess, sem geng-
ið hefur hér að undanförnu og al-
mennt er kallaður taugaveikibróð-
ir.
í rannróknum, sem Rannsóknar-
stofa Háskólans og Tilraunastöð-
in á Keldum hafa unnið að í sam-
einingu hefur ræktazt frá ný-
klökturr andarungum úr ahdabú-
inu í Minni Vatnsleysu á Vatns-
leysuströnd samskona* sýkill (Sal-
monella typhii murium) og sá er
valdið hefur faraldrinum.
Má með nokkurn veginn öruggri
vissu fullyrða að hér sé fengin
skýring á uppruna veikinnar að því
er varðar flest sjúkdómstilfellin,
en smitunarleiðir eru þó ekki full-
kannaðar enn.
Fuglum í andabúi því er hér á
í hlut verður öllum eytt og anda-
búið lagt niður. Er þar með tekið
fyrir þessa uppsprettu veikinnar.
Mjög víðtækar rannsóknir hafa
verið gerðar á hænsnabúum, en
þær hafa ekki leitt í ljós að sýk-
ingarhættn stafi frá þeim.
Nánari tlkynning um gang, máls
ins verður sfðar birt
um að ræða karfaafla. Tveir tog-
arar eru þegar komnir inn, Narfi
og Hvalfell. Sá þriðji, Ingólfur Arn-
arson, er væntanlegur f höfn f
kvöld eða á morgun. Það er ekki
búizt við að togararnir fari að
selja í erlendum höfnum fyrr en
í september, því að fiskmarkaður-
inn er Iíklegur þar á sumrin.
Fyrsti Reykjavíkurtogarinn kom
inn á mánudaginn. Var það Narfi
eftir 10 daga útivist. Var hann með
143 tonn af karfa. Aflinn skiptist
þannig milli frystihúsanna, að fyrst
fékk frystihúsið á Kirkjusandi
I helming, en hinn helmingurinn
skiptist milli fjögurra frystihúsa,
ísbjarnar, Bæjarútgerðar, Hrað-
frystistöðvar og Sænska.
Á þriðjudag kom Hvalfellið inn
með 140 ’tonn einnig karfa og
skiptist hann allur milli þeirra
fjögurra fyrrnefndu frystihúsa, sem
tóku helminginn af afla Narfa.
Framb. á bls 5