Vísir - 08.08.1962, Qupperneq 4
4
V'ISIR
Miðvikudagur 8. ágúst 1962,
I; Ohamingjusama
stúlkan.
V Marilyn Monroe var alltaf ó-
■« hamingjusöm stúlka. Hún vai
•! 36 ára er hún dó, hét rétti
■WAV.WA’AW.V.V.SW.V.'AW.V.V.V.'.V.1
.".’.V.V.V.'.V.W.V.'.'AW.W.'.V.V.V.V.'.V.V.VAV.V^AW.^W.W.WA'AV.V.V.W.V.VAV
* :•
ímynd lífsgleðinnar
framdi sjálfsmorð
Marilyn og þriðji eiginmaður hennar Arthur Miller
Fréttin um hið skyndi
lega andlát kvikmynda-
dísarinnar Mariiyn Mon
roe vekur óhug meðal
þeirra milljóna um allan
heim sem hafa séð hana
á kvikmyndatjaldinu, —
sem táknmynd lífsgleð-
innar og fegurðarinnar.
Marlyn er sennilega
frægasta kvikmyndaleik
kona þessarar aldar. Þó
maður renni augunum
yfir allar þær skæru
stjörnur, er risið hafa
upp á þessari öld kvik-
myndanna, virðist engin
þeirra hafa logað jafn
skært og Marilyn.
Svaf í Chanel 5.
Hún var eins og þjóðsagna-
persóna, kynbomban mikla,
hnyttileg orð hennar og athafn-
ir urðu heimsfleyg. Allur heim-
urinn kannast við hið fræga
svar hennar, þegar nærgöngull
blaðamaður spurði í hverju hún
svæfi á næturnar og hún svar-
aði: í Chanel five.
í kvikmyndunum var Marilyn
Monroe jgfnan hamingjusöm og
glöð Hún var ímynd lífsþróttar-
ins og ástarhamingjunnar, sprell
andi af fjöri.
En við vitum nú að þetta var
aðeins ímyndaður svipur, sem
kvikmyndafélögin í Hollywood
gáfu henni og áróðursmennirnir
reyndu að telja almenningi trú
um.
vissi aldrei hver faðir hennar
var og móðir hennar varð geð-
veik og var sett á geðveikra
sjúkrahús, er hún var smá barn.
Sjálfri var Marilyn komið fyrir
á munaðarleysingjahælí. Hún
'ólst upp án ástúðar í miskunn-
arlausum heimi og varð sem
barn fyrir svo miklum sálræn-
um áföllum, að hún fór að
stama.
Alla tíð síðan hefur hún verið
hrædd við heiminn. Hún játaði
t.d. að hún yrði alltaf hrædd,
þegar síminn hringdi. Síminn
var ímynd hins ytra heims sem
hún óttaðist. Þegar hún dó í
rúmi sfnu í Hollywood hélt hún
um símtólið. Ef til vill ætlaði
hún á síðustu stundu að leita
hjálpar umheimsins sem hún ótt
aðist, en það var of seint, lífið
fjaraði út af eitrinu.
Fyrirhafnarlaus
frægð.
Og þó sigraði Marilyn Monroe
heiminn fyrirhafnarlaust. Hún
var uppgötvuð af ljósmyndara,
þar sem hún vann í málningar-
verksmiðju og varð fræg sem
kvikmyndafyrirsæta. Myndir
á almanökum af henni hálfnak-
inni urðu frægar. Hún fékk árið
1947 smáhlutverk í kvikmynd
sem kallaðist „Asphalt Jungle“,
en stal senunni frá aðalleikur-
unum. Svo var hún orðin fræg
í Bandaríkjunum, um heim allan
áður en hún vissi sjálf af.
Hinn kunni bandaríski leik-
stjóri Joshua Logan, sem stjórn-
„Kynbomban“ Marilyn Monroe
aði upptöku á nokkrum kvik-
myndum hennar sagði um hana:
— Ég hef aldrei unnið með
kvikmyndaleikkonu, sem er eins
nálægt fullkomleikanum og
Marilyn. Hún hefur í sér bæði
dálítið af Gretu Garbo og
Charlie Chaplin vegna þess að
hún kann svo vel að þræða
milliveg gamanleiks og harm-
leiks.
Marilyn Monroe var fögur
en óhamingjusöm
Örlagarík kynni.
Það mun hafa verið Logan,
sem hvatti Marilyn til að fara
á leikskóla til frægasta leikkenn
ara Bandaríkjanna Lee Stras-
berg í New York. Sú för varð
örlagarík þ>ví að í henni kynntist
hún leikritaskáldinu Arthur Mill
er.
Marilyn hafði verið gift ein-
um frægasta íþróttamanni
Bandaríkjanna, baseball spilar-
anum Joe di Maggio. Hann var
geðugur náungi, ólaglegur en
góðlegur og talinn heldur
heimskur. En við dvölina í New
York var sem Marilyn þroskað-
ist og yrði hafin upp yfir hann.
Enda kom að því að hún skyldi
við kraftana og heimskuna og
giftist Arthur Miller.
Það hjónaband var talið í-
mynd þess að fegurðin og vitið
sameinuðust. Marilyn dáði Art-
hur Miller. Henni fannst hann
líkjast Abraham Lincoln sem
hún dáði framar öllu öðru, enda
hengdi hún mynd af Lincoln
fyrir ofan rúmið sitt. Miller féll
hinsvegar algerlega fyrir líkam-
legum töfrum hennar, hljóp frá
konu 'og börnum til að komazt
í faðm frægustu kynbombu
Bandaríkjanna.
Svívirti Miller.
En hjónaband þeirra; gat ekki
blessazt til lengdar. Áhugamál
þeirra féllu ekki saman og þegar
þau skildu í reiði og hatri urðu
iýðnum ljósir hinir miklu skap-
gallar kvikmyndaleikkonunnar.
Slitin urðu við kvikmyndaupp-
töku á kvikinyndinni „The Mis-
fits' sem Miller hafði samið.
Miller var viðstaddur kvik-
myndaupptökuna og varð að
þola þar hina hraklegustu fram
komu Marilyn. Hún skammaði
hann eins og hund og sýndi
honum hverskyns fyrirlitningu
og svívirðu.
Eftir skilnað þeirra var Mari-
lyn mjög lágt niðri. Hún lagð-
ist um tíma inn á sjúkrahús fyr
ir sálsjúká, lenti í ástarævintýr-
um niður í Mexíkó. Það var auð
séð að hún vissi ekkert hvað
hún átti af sér að gera.
Nýtt líf.
Þegar kvikmyndafélagið Fox
Maiilyn í síðustu kvikmynd sinni „The Misfits“ ásamt Clark Gable. Frh. á 6. síðu.
WVAS%VAV.V.V^AWA>.V.V.WW.VAVAV.».V.V.'.W.V.V.’.V.V.'.V.VA%WAWA'AV...V.WV.V.V.V.VA%VAW.