Vísir - 08.08.1962, Qupperneq 6
6
VISIR
Miðvikudagur 8. ágúst 1962.
Jeppe Madsen Ohlsen: FRIÐUR
um þessa ósveigjanlega dóm-
ara, er hann sagði honum að
hahn væri til smánar fyrir „das
Vaterland" og væri bezt að
hypja sig sömu leið til baka.
Bakdyrnar voru opnar og Ohl-
sen beið ekki boðanna. Þessari
mannúð dómarans gleymdi
hann aldrei, því hennar átti
hann sfzt af öllu von. Til
Christiansfeld kom hann ekki
aftur fyrr en 1931 'og var þar
nokkur ár. Á þeim tíma málaði
hann merkilegustu myndir
sínar.
Þótt háð og spott fylgdi Ohl-
sen jafnan var margt gott um
hann. Hann var barngóður og
umtalsfrómur, greindur vel og
skrifaði frábær sendibréf. En
listin var honum allt, hluti af
honum sjálfum og um hana
vildi hann einkum ræða. Þótt
veraldarlánið væri valt þá
haggaðist þetta ekki, en i mál-
verkum sínum túlkaði hann
fyrst og fremst umhverfi sitt
og andrúmsloft þess frá sínu
eigin sjónarmiði og hugleiðang-
um um lífið og dauðann, eink-
um dauðann, sem gekk um í
svörtum kufli með ljáinn og
fyrir honum voru allir jafnir,
en svo var einnig í þýzkri mið-
aldaiist, einkum tréristum Hol-
beins. Það var líka einmitt
QNEMMA á 18. öld stofnaði
greifi nokkur sérti'úarsöfnuð
á herragarðinum Herrnhut í
Saxlandi og er þetta trúarfélag
kennt við þann stað. Siðvenjur
þess eru mjög strangar og ó-
venjuiegar og að sjálfsögðu var
ætlunin að flytja boðskap trú-
arinnar víða um lönd og frelsa
lýðinn. Struensee varð hrifinn
af þessu fólki, einkum vegna.
starfa þess á sviði iðnaðar og
verklegra framkvæmda. Fyrir
hans tilstilli fékk söfnuðurinn
því umráðasvæði á Jótlandi og
byggði þar bæ sinn, Christians-
feld. Þéttbýlið hefur slðan sieg-
ið hring um bæinn með nútíma
glaum og sífelldu breytingum.
En bærinn er eins og klettur
úr hafinu, svo óbreytanlegur
sem hann hefur ætíð verið. Á
„akri Ðrottins“, kirkjugarðin-
um eru allir legsteinar ná-
kvæmlega eins, því að á þeim
stað er"<snginn öðrum fremri.
Þar eru hvorki blóm né tré,
aðeins sléttar grafarhellur í
reglubundnum röðum, sem
hverfa út í blámóðii fjarlægðar-
innar er fölur máni varpar
daufri glætu yfir akurinn, en
þannig er þetta í einu málverki
Ohlsens, er hann nefndir „Eilífð-
iri“. Þarna kemur söfnuðurinn
saman hvern páskadagsmorgun
TjÓTT mikil áherzla sé á það
lögð nú á dögum, að afla
einni stefnu þess fylgis í ver-
öldinni, er jaðri við einræði, þá
mun þó verða svo enn um skeið,
sem hingað til, að margir fari
sínar eigin leiðir í myndlistinni
og vilji engri framandi leiðsögn
fylgja, eða láta sannfærast af
vafasömum rökum. Að þessu
leyti getur myndlistin engan
veginn verið frábrugðin öðrum
listgreinum, sem ekki getur
heldur talizt æskilegt, hvernig
sem á það er litið. Þá er eirinig
vafasamt að stjörnudýrkun nú-
tímans sé listinni hoil, því
frægðin á sér oft vafasamar
rætur, sem rétt er að athuga
og meta á öfgalausan hátt. Og
„oft er það í koti karls“, sem
athyglisvert getur talizt og utan
við alfara leið. Einn slíkur ó-
þekktur „kotkarl“ var danski
málarinn Jeppe Madsen Ohlsen.
Þessi sérstæði málari, sem
einkum túlkaði dapurleikann,
er hann hafði svo náin kynni
af um ævina, var fæddur í
bænum Christiansfeld á Suður-
Jótlandi árið 1891, er var inn-
an landamæra Þýzkalands unz
Danir fengu þetta umdeilda
landssvæði eftir fyrri heims-
styrjöldina. Ævisaga Ohlsens
skal ekki rakin hér, en hún var
hörmuleg á margan hátt og
sjálfur vildi þann sem minnst
um það efni ræða. Hann var
löngum háður framfærslu-
stjórn þeirra staða, er hann
dvaldi á, sem ekki var alltaf
tillitssöm, en hann átti líka erf-
itt með að bjarga sér og lundin
var oft stirð. Auk þess þótti
honum sopinn góður og var því
ckki að sökum að spyrja. Hann
sagðist drekka vegna þess að
hann yrði að vinna óþrifaleg-
ustu verkin fyrir bæjarfélagið,
en þau verk væru honum út-
hlutuð vegna þess að hann
drykki. Þessa úlfakreppu tókst
honum ekki að rjúfa.
TjEGAR stríðið hófst árið
** 1914 þótti Ohlsen ekki hæf-
ur til herþjónustu, þar sem
hann var lítili vexti og illa fær
til erfiðra verka. En er tímar
liðu varð vandfýsnin minni með
fallbyssufóður og þótti honum
þá óvænlega horfa, og þar sem
hann var friðarsinni og danskur
þá laumaðist hann yfir landa-
mærin til ættlands slns, komst
svo til Noregs og dvaldi þar um
Málarí dapuríeikans
hríð og var eitthvað við mynd-
listarnám hjá lærisveini Chr.
Krogh, án þess þó að gleyma
gömlu þýzku listinni vegna
nýrra áhrifa. Er stríðinu lauk
fór hann aftur til Danmerkur og
átti I basli, en komst að lokum
til Christiansfeld, sem var
hættuiegt, því enn var bærinn
þýzkur, enda var hann fljótlega
leiddur fyrir herrétt, en fyrir
sök hans var dauðadómur einna
visastur. Strangur prússnesk-
ur ofursti fór með mál hans og
las honum óþægilegan pistil, en
svo þóttist Ohlsen sjá einhverju
einkennilegu bregða fyrir I aug-
þýzk miðaldalist, sem var Ohl-
sen hugstæðust, nákvæmni
hennar og innlifun, en dapurleg
er hún frá okkar sjónarmiði og
það sama má segja um Christ-
iansfeld. Ohlsen túlkaði því líf-
ið og dauðann I þessum sár-
kennilega bæ, húsin og fólkið,
umhverfið og andrúmsloftið. í
list sinni var hann ekki barna-
Iegur (naiv) I venjulegum skiln-
ingi, hafði t. d. athugað gaum-
gæfilega verkanir ljóssins hjá
meistara Rembrandt og allt
varð að vera nákvæmt og sam-
kvæmt ströngustu fjarvíddar-
reglum.
og hlýðir á orð prestsins. Standa
konur honum þá til annarrar
handar en karlmenn til hinnar
og þannig er það einnig við guðs
þjónustu I kirkju, að maður og
kona mega ekki ganga um sömu
dyr. Madsen Ohlsen hefur tekið
saman I einni mynd það sem
honum var tamast að mála I
þessum flokki, og nefnir hana
„Mine modeller“. Þar má sjá
líkkistu, strangan og einfaldan
byggingastíl, uglu vizkunnar,
kirkjuturninn, pípuhatt, grafar-
hellu með nafni listamannsins,
en við hana stendur dauðihn á
sinni svörtu hempu, sem þarna
hefur sem snöggvast lagt frá sér
ljáinn og tekið ofan hattinn I
virðingarskyni.
(QjHLSEN tilheyrði ekki söfn-
uði Hsrrnhuta, en hann var
fæddur I þessum bæ og faðir
hans var trúboði. Andrúmsloft
staðarins og strangleiki ti-úarlífs
ins mótuðu hann því frá æsku
og tvinnuðust örlögum hans,
svo sem landslag og húsin I
bænum, en I þeim viðfangsefn-
um tókst ho'num að sneiða hjá
hættulegustu skerjunum, vegna
einlægni sinnar og innlifunar.
Kyrralífsmyndir málaði hann
einnig, fáa og fátæklega hluti,
sem hann gat sýnt I einhverri
dularfullri stemningu, ef svo
mætti segjá. Oft tók hann þátt
í samsýningum, en myndir hans
voru ekki með þeim hætti, að
margir hefðu löngun til að eign-
ast þær. Þó voru nokkrir menn,
sem reyndu að festa kaup á
eins mörgum þeirra og mögulegt
var og vildu hjálpa höfundi
þeírra á ýmsa lund, en það var
oft erfitti
Myndir sínar málaði Ohlsen
einkum að næturlagi við kerta-
iós, því ekki var það vel séð
ið styrkþegi bæjarfélagsins not
aði rafljós I svo ónytsömum til-
gangi. Þær urðu fyrst til I huga
hans á Iöngum tíma fyrir áhrif
frá því, er hann hafði séð og
upplifað og brotið heilann um.
LitastigL hans var einfaldur og
, fábreyttur en I góðu samræmi
við innihald myndarinnar, en
það var honum aðalatriðið. Verk
hans voru ekki list fyrir listina
né heldur til þess að sýna ný-
stárlega meðferð efnisins. Hans
verður áreiðanlega ekki getið I
sögu ismanna, þar sem hann
fór ekki þeirra leið og fjöldans,
sem lætur heillast af bumbu-
slætti og hávaða frá happdrætt-
inu um frægð og fé.
^ALLUR
samanburður er fá-
nýtur, en einhverra orsaka
vegna datt mér Hjálmar á Bólu
I hug þegar ég las iitla bók um
þennan hrjáða listamann eftir
Herman Madsen, listmálara og
ritstjóra, en þaðan hef ég leyft
mér að taka aðalefni þessa
greinakorns.
F.
— lar^iyn . • . •
Framhald af 4. síðu.
bauð henni að leika I nýrri kvik
mynd „Somethings gotta give"
vonaði hún að sú mynd yrði
henni uppreisn. Hún gæti byrjað
nýtt líf. En það fór á aðra leið.
Veikindi hennar sem e.t.v. hafa
mest verið af sálrænum toga
spunnin gerðu það að verkum,
að aðeins 7 y2 mínúta var tek-
in af kvikmyndinni, þó upptak-
an stæði marga mánuði. Loks
gafst kvikmyndaféla^ið Fox
upp á þessu m.a. vegna þess
hve útgjöld þess höfðu orðið
mikil við upptöku kvikmyndar-
innar Kleopötru. Félagið rak
Marilyn Monroe úr starfi fyrir
óstundvísi.
Þessi brottrekstur kom mjög
hart niður á Marilyn, ekki síst
eins og sálrænt ástand hennar
var þá. Hún þjáðist eins og oft
áður af þunglyndisköstum og
svefnleysi.
„É get leikið hvar sem er
I heiminum, sagði hún, og ég
hlakka til þess að lifa lengi og
verða gömu!“ sagði hún fyrir
skömmu. „En það sem mig
vantar nú, bætti hún við, er
einhver fastur grundvöllur til að
standa á. Mig vantar rætur,
sem ná djúpt niður I jörðina og
ekki er hægt að grafa upp. Ég
held það sé allt I lagi með yfir-
bygginguna, en ég hef vaxið
upp án grunns. Nú er ég að
vinna að því að fá mér grund-
völl.“
En Marilyn Monroe hafði ald-
rei tíma til að gera sér þennan
grundvöll eða verða gömul. Hún
er dáin.
Það sem hún þráði.
Hún fékk aldrei tækifæri til
að njóta þess sem hún þráði.
Hún þráði heimili, vegna þess
að hún var alin upp á munaðar
leysingjahæli. Hún þráði eigin-
mann, en þrjú hjónabönd urðu
henni kvöl. Hún þráði að eign-
ast barn, en tvisvar sinnum
missti hún fóstur fyrir tímann
og læknar sögðu henni að hún
gæti ekki orðið móðir.
Þegar hún átti 36 ára afmæli
fyrir nokkru leit hún yfir farinn
vegxxg sagði: — Ef ég mætti lifa
lífinu aftur, myndi ég breyta
hverri einustu ákvprðun sem
ég hef tekið.
Síðan bætti hún við:
— En það skiptir víst ekki
máli. Niðurstaðan yrði víst al-
veg sú sama.
Þær sugu pelana sína og
hreyfðu hendurnar ótt og títt
eins c>g smábörnum er tamt. Þá
gat móðirin ekki lengur á sér
setið, hún grét af gleði.
TvíEHirar
Fi-amh. af 7. síðu.
coise litla hélt áfram að lifa.
Tveir sólarhringar liðu og enn
lifði Francoise og dafnaði. —
Barnið sem hafði verið fórnað
lifði jafngóðu lífi og systir henn
ar, sem henni hafði verið fórnað
fyrir.
Tjá gekk Bernard Duhamel að
" nýju inn I skurðstofuna og
að þessu sinni með Francoise
litlu eina. Og að þessu sinni
leitaði hann til móðurinnar,
hvort hún vildi gefa svolítið
stykki úr húð sinni til þess að
hægt væri að hylja höfuðsár
barnsins.
Hann þurfti ekki að spyrja.
Móðirin var sú eina sem hafði
trúað þvi fastlega alla tíð að
Francoise litla myndi lifa. Hún
lagðist á beð og var húðstykki
15 sinnum 30 sentímetra tekið
af læri hennai', svo að hægt
væri með því að hylja höfuð
barnsins.
Enn einu sinni var ungbarnið
borið út úr skurðstofunni og nú
voru menn bjartsýnni á að það
lifði af. Móðir þess lá nú enn
á sjúkrahúsinu meðan sárið
eftir húðskurðinn var að gróa.
Hún hélt áfram að sauma borð-
dúkinn sinn.
Vi' u síðar fékk hún að sjá
dætur sfnar. Þarna voru þær
litla Francoise og Isabella, að-
skildar eins og venjuleg börn,
en með bindingar um höfuðið.
sii- og
S E ‘. U R :
Volkswagen ’55 —’62
Corvair ’6f
Ford ’5’
Ford ’55 góður blll
Chevrolet ’55
Skoda ’56 - ’59
Moskowitch ’55 — ’60
leppaj 42 — ’55
Aust:r. '46 — ’55
VÖRUBIL4R
Mercede. 8en2 ’55 — ’61
Chevrolet ’55—’61
Volvo ’55 — ’57
Bedford. ’60 - ’61
Chevrolei '47
Ef þéi ætlið að selja bfl.
El
lítið inn.
þér ætlið
litið inn
þá
að kaupa bíl, þá
og
búvélasalan
viö Miklatorg Slmx 2313X