Vísir - 08.08.1962, Side 8
8
Otgeíandi: Blaðaútgáfan VISIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjðri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjðrnarskrifstofur Laugavegi 18. |
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. | ‘
Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði.
í lausasölu 3 kr. eint. — Sími 11660 (5 línurj.
Prentsmiðja Visis. — Edda h.f.
Heimsmót i réttu Ijósi
Hinu svokaliaða heimsmóti æskunnar, sem komm-
únistar efndu til í áróðursskyni austur í Helsinki, er
nú lokið. Hefir mót þetta verið fróðlegt á margan
hátt, því að það hefir leitt í Ijós, að slík mót eiga
engum öðrum tilgang að þjóna en hagsmunum komm-
únista. Þeir, sem kunna að hafa efazt um þetta, ættu
ekki að þurfa að gera það héðan í frá.
Menn, sem fóru á mótið frá Afrikuiöndum, komust
fljótlega að því, að ef þeir aðhylltust ekki skoðanir
kommúnista, áttu þeir ekkert erindi á mótið. Þeir voru
hreinlega ekki viðurkenndir, og hafa kommúnistar þó
mjög leitazt við að telja heiminum trú um, að þeir
sé einmitt sérstakir vinir Afríkuþjóða. En annað varð
upp á teningnum, er á hólminn var komið. Þá fengu
komumenn að sjá heimsmótið í réttu ljósi, og það
reyndist vera ósvikin áróðurssamkoma í þágu komm-
únista.
Einn hinna ensku þátttakenda í mótinu hefir látið
svo um mælt, að þar hafi ekkert málfrelsi ríkt, komm-
únistar máttu koma sínum skoðunum á framfæri, en
hinir höfðu enga heimild til að taka til máls. Og Dani,
sem sótti mótið, kvað kjarnorkutilraunir Bandaríkja-
manna hafa verið fordæmdar, en samskonar tilraunir
sovétstjórnarinnar voru taldar til fyrirmyndar, þar
sem þær mundu stuðla að raunverulegum friði í heim-
inum.
Þetta er einkar fróðlegt, þegar haft er í huga,
hvernig brugðizt var við í Moskvu fyrir fáeinum vik-
um, þegar nokkrir friðarsinnar vildu efna til útifundar
við Kremlmúra. Kommúnistum féll ekki allskostar
vel sú barátta fyrir friði, sem þar skyldi háð, og voru
íeynilögreglumenn fljótir að taka niður spjöld þeirra
manna, sem þarna voru að verki. Og þeim var tilkynnt,
stutt og laggott, að þeir mættu svo sem mótmæla
heima hjá sér, en ekki á þeim stað, þar sem þeir voru
staddir.
Allir tryggir kommúnistar hljóta að vera harð-
ánægðir með slíka röggsemi sinna mana, en hún ætti
að opna augu annarra fyrir því, að friðarbarátta komm
únista er fyrirlitlegur áróður, sem engan ætti að
blekkja, er enn hefir heimild til að afla sér sannra
frétta af heimsviðburðum, og draga sínar ályktanir af
þeim.
Rökrétt framhald
Og það var rökrétt framhald og viðeigandi við
lok heimsmótsins, að Rússar byrjuðu á ný tilraunir
með kjarnorkusprengjur um það bil, þegar mótsgestir
voru að tygja sig til heimferðar. Kommúnistar hafa
vissulega unnið mikinn sigur í friðarmálum með hvoru
tveggja!!
VISIR
Miðvikudagur 8. ágúst 1962.
Svarti dauði stingur
sér niður í En slandi
Hlnn látni vísindamaður
Geoffrey Bacon
Það vakti mikinn ugg
meðal Englendinga, þeg
ar skýrt var frá því í síð-
ustu viku, að vísinda-
maður einn í Salisbury
í Suður-Englandi hefði
sýkzt af svarta dauða og
látizt.
Það var von að brezkum al-
menningi brygði í brún. í fyrra
vetur hafði bólusóttarfaraldur
komið upp í Englandi og valdið
miklum truflunum og ótta. Þá
voru það aðallega tvö héruð,
sem urðu fyrir miklum óþæg-
indum, borgin Leicester í Mið-
Englandi og Suður-Wales, þar
sem flest tilfellin voru. En ótt-
inn við þennan ægilega miðalda
sjúkdóm var svo mikill, að hvar-
vetna þyrptist fólk á læknastof-
ur til bólusetningar.
Og nú í síðustu viku skaut
annar miðaldasjúkdómur, plága
mannkynsins fyrir nokkrum öld
um, upp kollinum.
Fólk les tilkynningarnar um
þetta furðulega fyrirbæri og
spyr, hvort nú megi búast við
„plágunni miklu“.
JJeilbrigðisyfirvöld Bretlands
svara, að engin hætta sé á
svarta-dauða-faraldri. En þau
grípa jafnframt til mjög ákveð-
inna og skjótra aðgerða til að
hindra útbreiðslu veikinnar.
Nú þegar hafa 42 manns feng
ið mótefni og verið settir í sótt-
kví vegna samneytis við sjúk-
linginn. Og leitin heldur áfram
að fólki, sem haft hefur sam-
skipti við Bacon-fjölskylduna. Á
sunnudaginn var birt tilkynning
í Lundúnaútvarpinu til lækna i
Libyu, þar sem þeir voru beðn-
ir um að leita uppi tvær systur,
Katrínu og Elisabetu Laird, sem
höfðu nýlega komið á heimili
Bacon-hjónanna, en síðan flog-
ið til foreldra sinna í Libyu.
Geoffrey Bacon veiktist
skyndilega um fyrri helgi. Hann
var fluttur í sjúkrahús á þriðju-
daginn og hafði þá háan hita
og lungnabólgueinkenni. Þar
lézt hann á miðvikudagskvöldið.
Hann var starfsmaður við
rannsóknastofu hersins í sýkla-
hernaði, sem er í bænum Pro-
ton skammt fyrir norðan Salis-
bury. Vegna starfs hans kom
upp grunur um að hann kynni
að hafa sýkzt í tilraunastöð-
inni og var sá grunur staðfest-
ur, þegar hermálaráðuneytið til-
kynnti að rannsókn hefði Ieitt
í ljós, að sjúkdómur hans hefði
verið lungna svarti dauði.
j^Jeðgöngutími sjúkdómsins er
10 dagar og hefur það vald-
ið einna mestum ugg, að Pam-
ela kona vísindamannsins er
matreiðslukona í stórum heima-
vistarskóla í Salisbury og er
skammt síðan börnin fengu sum
arfrí. — Heilbrigðismálastjórnin
segir þó, að vegna þess hve
meðgöngutími sjúkdómsins er
stuttur hafi smitun þessi senni-
lega orðið eftir að skólanum
var slitið.
Læknar fylgjast nú mjög ná-
ið með heilsufari fólksins, sem
sett hefur verið í sóttkvh Hefur
því öllu verið gefið mótefni
gegn sjúkdómnum og líkamshiti
þess er mældur oft á dag. Það
Iiggur í einangrunarálmu Salis-
bury-sjúkrahúss.
j sambandi við þetta hafa byrj-
að umræður í Englandi um
stofnun þá, sem Bacon starfaði
við, rannsóknastofu í sýklahern-
aði. Hafa sumir gagnrýnt það,
að brezka hermálaráðuneytið
skuli starfrækja . slíka stofnun.,
En hermálaráðuneytið hefur
svarað gagnrýninni og heldur
því fram, að óhjákvæmilegt sé
að starfrækja hana. Hún var
sett á fót fyrir 18 árum, þegar
grunur lék á að Þjóðverjar
myndu fara að beita sýklum i
ófriðnum mikla. Var hlutverk
hennar að framleiða mótefni
gegn sjúkdómum, sem Þjóðverj-
ar kynnu að beita.
Nú er vafalaust talið, að Rúss
ar hafi til taks margar tegundir
sóttkveikju til notkunar í hern-
aði og geta þeir skotið þeim
hvert sem er um heiminn í eld-
flaugum. Líkast til myndu þeir
dreifa sóttkveikjunum úr eld-
flaugunum með hænsnafiðri. —
Það, væri ábyrgðarlaust, segja
brezk hernaðaryfirvöld, ef eng-
ar gagnráðstafanir væru gerðar.
Bretar framleiða ekki sjálfir
sýklavopn, en stöð þeirra í Por-
ton hefur haft náið samstarf við
vísindamenn bandaríska hers-
/
Kona hans Pamela.
ins og veitt þeim aðgang að
rannsóknum sfnum. Bandaríkja-
menn framleiða og geyma mikl-
ar birgðir af sýklavopnum ef á
þyrfti að halda til að svara rús::
neskri sýklahernaðarárás.
Sýning
sænskra
Svo sem frá var sagt í Vísi
um síðustu helgi, er að hefjast
í Ásmundarsal við Freyjugötu
sýning á málverkum ok skúlp-
túr-myndum 5 sænskra lista-
manna. Verður sýningin opnuð
gestum í kvöld, en almenningi
á morgun og verður opin dag-
lega kl. 14 — 22 næstu tvær
vikur.
Listamennirnii1 starfa allir í
Gautaborg og hefir sýningin
verið á ferðinni undanfarna
mánuði, fyrst f Danmörk en
kom hingað frá Noregi. Einn í
hópnum er myndhöggvari,
Lennart Ason, og vekja myndir
hans sérstaka athygli. Þegar
Ásmundur Sveinsson kom að
skoða verkin, varð hann eink-
um hrifinn af þessu verki eftir
hinn sænska kollega sinn, en
það nefnist „Fordæmdi hermað-
urinn“.