Vísir - 08.08.1962, Síða 10
10
VISIR
r
Miðvikudagur 8. ágúst 1962.
Þrír efstu bótarnir eru Höfrungur iB,
¥íðir II og Helgi Helgason
Þrjú aflahæstu skipin á síld-
arvertíðinni í sumar eru nú
Höfrungur II frá Akranesi með
17,020 mál og tunnur, Víði II
úr Garði með 16,771 mál og
tunnur og Helgi Helgason frá
Vestmannaeyjum með 16,668
mál og tunnur.
Um helgina var heildaraflinn
á síldveiðunum orðinn 1,413,-
064 mál og tunnur er það
um 215 þúsund meira en á sama
tíma í fyrra. Aflinn í síðustu
viku var um 225 þús. mál og
tunnur.
Aflinn hefur verið hagnýttur
eins og hér segir:
Saltaðar hafa verið 225 þús.
tunnur á móti 342 þús. í fyrra.
í bræðslu hafa farið 1,1 milljón
mál á móti 834 þús. f fyrra. í
frystingu hafa farið 27 þús.
tunnur á móti 19 þúsund í
fyrra.
Auk þeirra þriggja skipa, sem
hæst voru eru þessi komin með
yfir 10 þúsund mál og tunnur:
Akraborg frá Akureyri 10,905,
Anna frá Siglufirði 12,801,
Ámi Geir frá Keflavík 10,914,
Auðunn frá Hafnarfirði 11,676,
Bergvík frá Keflavík 11,814,
Björgúlfur frá Dalvík 11,818,
Bjöm Jónsson, Reykjavík
11,432, Dofri, Patreksfirði
10,017, Einar Hálfdáns, Bol-
ungarvík 10,213, Eldborg, Hafn-
arfirði 16,476, Gjafar, Ves-
mannaeyjum 13,184, Guðbjartur
Kristján, ísafirði 10,014, Guð-
björg, ísafirði 10,314, Guð-
mundur Þórðarson, Reykjavík
16,349, Guðrún Þorkelsdóttir,
Eskifirði 14,417, GuIIver, Seyð-
isfirði 11,035, Hafrún Bolungar-
vík 12,343, Haraldur, Akranesi
12,020, Héðinn, Húsavík 12,986,
Hclga, Reykjavík 12,266, Helgi
Flóventsson 12,142, Hilmir,
Keflavík 11,540, Hólmanes,
Eskifirði 10,124, Hringver, Vest
mannaeyjum 12,905, Ingiber
Ólafsson, Keflavík 10,222, Jón
Garðar, Garði 11,767, Jón á
Stapa, Ólafsvík 10,159, Leifur
Eiriksson, Reykjavík 12,923,
Ólafur Magnúpsoiií" AJfpreyri,
15,935, Pétur Sigurðsson,
Reykjavík 11,529, Seley, Eski-
firði 15,070, Sigurður, Akranesi
11,343, Sigurður Bjarnason, Ak
ureyri 11,020, Skírnir, Akranesi
12,882, Sunnutindur, Djúpavogi
10, 376, Sæfari, Sveinseyri
12,505 og Þorbjöm, Grindavík
13,502.
Eru 40 síldveiðiskip þannig
komin með afla yfir 10 þúsund
mál og tunnur.
íþróttir —
Framh Dls 2
í dag er talinn bezti miðvörður
Bretlandseyja, og er þá mikið sagt.
McGrath lék með Blackburn í úr-
slitum Bikarkeppninnar 1901, geysi
sterkur ieikmaður.
í framlínunni eru Giles og Cant-
well stærstu nöfnin. Giles er um
tvítugt, og þykir eitt mesta efnið
sem þar hefur verið uppgötvað.
Cantwell lék lengi bakvörð með
West Ham., en hefur undanfarið
leikið miðherja með góðum ár-
angri.
Tuohy lék gegn íslandi 1958.
Hann var keyptur til Newcastle f
hittiðfyrra fyrir háa fúlgu.
írland lék síðast gegn Austur-
riki og tapaði þeim leik. Tvær
breytingar eru gerðar frá þeim
leik.
ÍSLAND.
Gegn þessu höfum við svo valið
13 menn til íriandsfarar og er lið
okkar þannig skipað, talið frá
markverði til v. útherja: Helgi
Daníelsson (ÍA), Áfni Njálsson
(Val), Bjarni Felixson (KR), Garðar
Árnason (KR), Hörður Felixson
(KR), Sveinn Jónsson (KR). Skúli
Ágústsson (ÍBA), Þórólfur Beck
(St. Mirren/KR), Ríkharður Jóns-
son (ÍA), Ellert Schram (KR), Þórð-
ur Jónsson (ÍA).
Höfrungur II.
Vörnin og framverðirnir halda
sér frá leiknum við Norðmenn 9.
júlí s.l., en framlínan hefur verið
tekin upp og Iagfærð rækilega. Á
h. kant hefur verið settur ungur
og efnilegur leikmaður, Skúli
Ágústsson frá Akureyri, og enda
þótt hann hafi aldrei áður leikið,
stöðu útherja, má ætla, að svo
skynsamur leikmaður sem hann er,
skili hlutverkinu eins og til verð-
ur ætlazt. Innherji hans megin
verður Þórólfur Beck ,sem oft ligg-
ur mikið aftur og „matar“ félaga
sína. Ríkharður hefur oft gegnt
sama hlutverki, en er nú settur í
miðherjastöðuna. Ellert Schram
„brilleraði“ gegn Færeyinguni og
hefur allt sumarið verið að mjaka
sér nær landsliðssæti og hreppir
það nú réttilega. Má vænta góðrar
samvinnu hans og Þórðar Jónsson-
ar eins og oft áður.
Er varla hægt að álasa Lands-
liðsnefnd nú fremur en oftast áður
fyrir val hennar, sem er mjög erfitt
og vandasamt sökum þess, hve úr
litlu er að spila hjá okkur. Sem
varamenn hefur Landsliðsnefnd
valið Geir Kristjánsson (Fram) sem
markvörð og Guðjón Jónsson
(Fram) „altmuligmand“, sem getur
tekið að sér nær hvaða stöðu sem
er á vellinum. í landsleik þessum
má ekki skipta inn á eftir að leikur
er hafinn, þótt um meiðsl verði að
reeða.
Prófarkalesari.
Dagblaðið Vísir óskar eftir prófarkalesara.
Staðgóð kunnátta í íslenzku áskilin. Vinnu-
tími aðallega á morgnana. — Upplýsingar í
síma 1-16-60.
Blaðamennska.
Dagblaðið Vísir vill ráða fréttamann til starfa
á ritstjórn blaðsins. Æskilegt að viðkomandi
hafi nokkra starfsreynslu að baki. Umsóknir
sendist framkv.stjóra Vísis, Laugavegi 178.
Frenntíðgiirsffirf
Garnahreinsun
Ungur lagtækur maður óskast sem fyrst til
að læra og stjórna nýrri garnahreinsunarvél
i Garnastöð S.Í.S. Gott kaup. Umsóknir send-
ist S.Í.S., deild 30.
ifdrfsmaiinahnlfl