Vísir - 08.08.1962, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 8. ágúst 1962. -------------- ---------------------- VISIR
Það er kannske orðið full-áliðið sumars til að birta þessa
mynd, því að allar blessaðar stúlkurnar eru víst búnar
að fá sér sumardragt, en við birtum hana nú samt.
Þetta er iétt sumardragt frá þýzku tízkuhúsi, liturinn
veikur, efnið „diolen“ og ull. Slik dragt er tilvalin til
hvers konar útivistar eða sumarsamkvæmis.
Næturlæluiii ei i slysavarðstof
unni. Simi 15030
Neyðarvakt Læknafélags Reykia-
víkur og Sjúkrasamlags Reykjavík-
ur er kl 13-17 alla daga frá mánu-
degi til föstudags Sími 11510
Kópavogsapótek et opið alla
virka daga daga kl 0,15 — 8, laugai
daga frá kl £.15 — 4. helgid frá
1-4 e.h Slmi 23100
Næturvörður vikuna 4.-11. ágúst
er í Vesturbæjarapóteki.
Úfvarpið
Miðvikudagur 8. ágúst.
18.30 Óperettulög. 20.00 Bohemian
hljómsveitin í Vín leikur Strauss-
valsa. — Fried Walter stjórnar.
20.25 Erindi eftir Ole Storm: „Svip
myndir úr sögu brezku alfræðibók
arinnar". Ólafur Gunnarsson þýðir
og flytur. 20.55 íslenzk tónlist:
Páll Kr. Pálsson leikur á orgel i
Hafnarfjarðarkirkju. 21.15 Eyjar
við ísland: I. Flatey á Skjálfanda
(Sverrir Bergmann). 21.45 Sonja
Schöner, Heinz Hopp o. fl. syngja
létt lög. 22.10 Kvöldsagan: „Jacobo
wsky og ofurstinn" eftir Franz
Werfel: I. (Gissuf Ó. Erlingsson).
22.30 Næturhljómleikar: „Byron-
sinfónía“ op. 53 eftir Alan Bush.
Robert Launhöfer bariton, kór og
sinfóníuhljómsveit útvarpsins í
Leipzig flytja. — Herbert Kegel
stjórnar. 23.25 Dagskrárlok.
Gullkorn
Jesú sagði við hana (Mörtu). Ég
er upprisan og lífið, sá sem trúir
á mig, mun lifa þótt hann deyi.
Og hver sá sem trúir á mig, hann
skal aldrei að eilífu deyja. Trúir
þú þessu. Hún segir við Hann. Já,
ég hefi trúað, að þú ert hinn
Smurði ,Guðs-Sonurinn ,sem koma
á í heiminn. Jóh. 11. 25-28.
16 ölvaðir
ökumenn
í gær var vitað ufh 16 ölvaða
ökumenn, sem teknir voru drukkn-
ir undir stýri um verzlunarmanna-
helgina. Af þeim tók vegalögregl-
an í Reykjavík 6 víðsvegar úti á
landsbyggðinni, 8 voru teknir í
Reykjavík sjálfri, þar af voru tveir
þeirra réttindalausir og annar
meira að segja í stolinni bifreið.
Akureyrarlögreglan tók 2 ölvaða
ökumenn í sínu umdæmi og höfðu
báðir lent í árekstrum. Alls lentu
þar nyrðra 10—12 bifreiðar í á-
rekstrum um helgina, en ekki stór-
vægilegum.
Tveir sæmdir
fálkaorðu
Hinn 3. ágúst 1962 sæmdi forseti
íslands, að tillögu orðunefndar
þessa íslendinga riddarakrossi hinn
ar íslenzku fálkaorðu:
1. Lúðvig Hjálmtýsson, fram-
kvæmdastjóra, Reykjavík fyrir
störf að veitinga- og gistihúsamál-
um.
2. Hallstein Hinriksson, fim-
leikakennara, Hafnarfirði, fyrir fé-
lags- og íþróttastörf.
— Gensgið —
26. júll 1962.
1 Sterl.pund 20,49 120,79
1 Jan ríkjad 42,95 43,06
1 Kanadad 39,76 39,87
100 Danskar kr 621,56 623,16
100 Norskar kr. 601,73 603,27
100 Sænskar kr. 834,21 836,36
100 Finns mörk 13,37 i3,40
100 Franskir fr 876,40 878,64
100 Belglskir fr. 86,28 86,50
100 Svissneskir fr. 994,67 997,22
100 Gyllini 1195,13 1198,19
00 Tékkneskar kr. 596,40 598,00
000 V-þýzk mörk 1077,65 1080,41 1
1000 Lírur 69,20 69,38
10 þús. gestir
í fyrradag komu 1800 gestir, sem
greiddu aðgangseyri, til þess að
skoða Árbæjarsafn, og er þetta
næst mesta aðsókn á einum degi,
en á Jónsmessuhátíðina' komu 2200.
Börn í fylgd með foreldrum eru
ekki talin með, því að þau greiða
ekki aðgangseyri.
Frá því að safnið var opnað, 19.
júní, er tala gesta að meðtöldum
börnum rösklega 10.000.
Árbæjarsafn er lokað í dag, en
verður svo opið eins og áður hef-
ur verið auglýst.
Það er mikið rætt og ritað um
það hve hættulegt það sé, að menn
aki bifreiðum undir áhrifum á-
fengis, — jafnvel eitt eða tvö
staup geti gert ökumanninn óörugg
ari, þótt hann sjálfur geri sér það
ekki ljóst, og víst er rétt að vara
menn við að neyta áfengis áður
en þeir setjast undir stýri á bif-
II
Mikið er ég hrifin af því að þér
skuli hafa tekizt þannig að venja
þig af ljótum siðum, — en geturðu
þá ekki líka vanið þig af að vera
að gorta af þessu.
iorræna sýningin
Munið norrænu heimilisiðnað-
arsýninguna f Iðnskólanum. —
Opið þessa viku frá 2-10. Inn-
gangur frá Vitastig.
reið, en það þarf ekki síður að
vara menn við annarri hættu, og
hún er sú, að menn aki bíl þreytt
ir eða án þess að hafa notið nægi-
legs svefns. Þreytan er hættuleg
og svefnleysið.
í Brautinni, Félagsriti Bindindis-
félags ökumanna, sem er nýkom-
ið út, er spurt: Getur þreyta verið
eins hættuleg f umferð og áfengið?
Og svarað er: Nýlega skeði það
f Danmörku, að lögreglan í Hró-
arskeldu ákærði leikara nokkurn
fyrir ógætni við akstur. Ástæðan
fyrir ógætni ökumannsins var tal-
in vera þreyta. Nú er spurningin:
Að hve miklu Ieyti er hægt að
jafna þreytu við áfengisáhrif eða
misnotkun deyfilyfja? Víst er, að
margir eru þeir ökumenn, sem oft
aka þreyttir, enda mjög þreyttir.
íslenzk lög banna mönnum að aka
séu þeir mjög þreyttir. Hins vegar
eru þab áreiðanlega fá ákvæði um
ferðarlaganna sem oftar eru brot-
in en einmitt þetta.
Hve mörg umferðarslys stafa af
þreytu — áreiðanlega ekki fá.
Hinn danski lífeðlisfræðingur,
prófessor dr. med. E. Lundsgárd
segir um þetta: „Enginn vafi er á
því, að þreyta og svefnskortur get-
ur dregið mjög úr viðbragðsflýti
ökumanna, á stundum eins mikið
og ef um væri að ræða mikil á-
fengisáhrif. Það sama getur átt
sér stað eftir mikla notkun nýtizku
taugalyfja, sem eins og kunnugt er,
eru mjög mikið notuð í Dan-
mörku“, og einnig á Islandi, bætir
Brautin við.
Varnaðarorðin um, að aka ekki
bíl, hafi menn neytt áfengis, verða
aldrei endurtekin of oft. En það
þarf einnig að vara menn oft og
; rækilega v:ð þeirri hættu, að aka
l þreyttir eða svefnlitlir eða —
i hvort tveggja.
Þær eru ennþá lifandi. Ég verð
að reyna -að finna leiðina ti! ops-
ins í myrkrinu.
Þetta gengur vel, piltar, þetta
ætti að nægja.
Þakka ykkur, herrar mínir. Ég
held að ég hafi aldrei verið ánægð-
ari að heyra í neinum manni.