Vísir - 18.08.1962, Síða 16
VISIR
Laugardagur 18. ágúst 1962.
Geislun í mjólk
Geislavirkt joð í mjólk jókst um
y3 í Bandaríkjunum í júlí.
Heilbrigðisstjórn Bandaríkjanna
birti um þetta tilkynningu í gær.
Það er einkum á vissum stöðum
í vesturhluta landsins, sem aukn-
ingin er svo mikil, að útkoman
varð þessi. Annars staðar í land-
inu er hún yfirleitt mjög lftil. —
Kjarnorkuráð Bandaríkjanna segir
aukninguna stafa af tilraununum
með kjarnorkuvopn í Nevadaauðn-
inni.
(
Yfír 84 bjórkassar
fumfust í Heklu
Nýtízku togari
ítarleg rannsókn hefur
nú farið fram á varningi
þeim, er tekinn var úr M.s.
Heklu. Upplýsti tollgæzlu-
stjóri, Unnsteinn Beck, að
hér hefði verið um að ræða
töluvert smygl, m. a. fund-
ust í skipinu yfir tvö þús-
und flöskur af bjór.
Við komu Heklu til Reykjavíkur
s.l. miðvikudagsmorgun gerðu
tollverðir allítarlega leit í skipinu.
Var hér meir um að ræða svokall-
aða „stikkprufu", er tollgæzlan
gerir öðru hvoru, frekar en um
rökstuddan grun væri að ræða.
Tjáði tollgæzlustjóri að þetta væri
einnig gert öðru hvoru til þess að
Auglýsinga-
verð útvarps-
ins hækkcr
Fyrir nokkrum dögum hækkaði
verðið á viðskiptaauglýsingum hjá
Ríkisútvarpinu. Hækkaði það úr 8
krónum á orðið í 10 krónur. Síðast
varð hækkun á auglýsingaverði út-
varpsins í nóvember í fyrra, þegar
það hækkaði úr 6,55 í 8 krónur.
Verðið á dánar- og jarðarfarartil-
kynningum hefur hins vegar staðið
óbreytt í mörg ár, kr. 4 á orðið.
ganga úr skugga um hversu mikil
neyzla væri um borð á tóbaki, á-
fengi og bjór, og þá ætíð höfð toll-
skírteini skipsins til hliðsjónar og
því hægt að sjá hvemig þessi varn-
ingur skilaði sér.
Var allur grunsamlegur varning-
ur innslglaður og vel var fylgzt
með uppskipun úr skipinu. —
Rannsókn hefur nú farið fram og
við hana upplýstist að hér hefur
verið um nokkurt smygl að ræða.
Voru teknir 84 kassar af bjór eða
rúmar tvö þúsund og eitt hundrað
flöskur og dósir. Um eitt hundrað
kvensíðbuxur. Einn kassi af sæl-
gæti var tekinn. Sex hundruð síga-
rettur og loks fimm flöskur af
sterku áfengi. Eitthvað smávægi-
legt mun hafa verið enn þá, en þar
sem ekki hafði verið náð í eigand-
ann, vildi tollgæslustjóri ekki upp-
lýsa það.
Smyglvarningur þessi var tekinn
um allt skip, en einhverjum hluta
hans hafði verið komið út í bifreið
er stóð á hafnarbakkanum og var
það tekið af tollvörðum er vöktuðu
skipið.
Við frumrannsókn viðurkenndu
fjórir skipverjar að þeir væru eig-
endur af varningi þessum. Mál
| Sovétstjórnin ætlar nú að reyna
að efla landbúnaðinn í Eystrasalts
löndunum með aðstoð Dana. Hjálp
Dana í þessu efni er fólgin í því,
að danska landbúnaðarráðuneytið
hefir samþyklít, að kaupa megi 550
nautgripi af bezta danska mjólkur
kúakýni til útflutnings til Sovét-
ríkjanna. Eru gripimir keyptir
hingað og þangað i Danmörku.
þetta verður nú sent til sakadóm-
araembættisins til nánari rann-
sóknar.
Þetta var ein af Norðurlanda-
ferðum skipsins og voru viðkomu-
staðir þess Kaupmannahöfn,
Gautaborg, Kristiansand og Þórs-
höfn. Vegna þessa umfangsmikla
eftirlits urðu farþegarnir fyrir
nokkrum óþægindum, því það
dróst frá kl. 9 um morguninn til
hádegis, að skipið gæti lagzt að
bryggju. Flestir farþeganna voru
erlendir, þýzkir og danskir.
Hér birtir Vísir tvær myndir
af nýtízkulegum rússneskum
skuttogara, sem ljósmyndari
blaðsins á Siglufirði tók. Tog-
arinn heitir Gongharóv og er
3250 lestir að stærð. Tók tog-
arinn þátt í rannsóknarleiðangri
á Norðuratlantshafi, sem fimm
þjóðir stóðu að í sumar, um
ákvarðanir á möskvastærð. —
Togarinn vinnur úr öllum þehn
fiski, sem hann aflar. Hefur
hann fullkominn togútbúnað,
fiskvinnslustöð, frystihús og
mjölverksmiðju innanborðs. —
Fréttamanni Vísis á Siglufirði
virtist útbúnaður þessi allur
hinn fullkomnasti og einnig að-
búnaður skipshafnarinnar. —
Minni myndin sýnir hvar varp-
an er, dregin inn í skut skips-
ins. (Ljósm. Ól. R.)
Hvítisandur Reykvíkinga í Nauthólsvík
1 gær, þegar fjara var lægst, fór jarðýta frá Reykjavíkurbæ suður í Nauthólsvík og tók að vinna að þvf að dreifa skeljasandinum, sem Sandey gaf bæjar-
búum á dögunum um fjöruna. Var skeljasandshrúgan þá á þurru og tókst dreifingin ágætlega eins ogmyndin sýnir. Nú er aðeins eftir að sjá, hvort sand-
urinn helzt í víkinni yfir vetrarmánuðina. Vonandihafa Reykvíkingar nú eignazt fyrir fullt og allt sinn Hvitasand.