Vísir - 10.11.1962, Page 5
VlSIR . Laugardagur 10. nóvember 1CS2
5
FLÖKT“
Því miður hafði ég ekki haft
neina nasasjón af tónverkinu
„Flökt“ eftir Þorkel Sigur-
björnsson, sem flutt var á síð-
ustu tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Ég var fullur
eftirvæntingar, því maður vænt
ir mjög mikils af Þorkatli —
hann hefur sannarlega gefið til-
efni til þess.
Verkið er samið fyrir tréblást
urshljóðfæri, trompeta, básún-
ur og horn (tvennt af hverju),
slaghörpu, hörpu, píanó, 4
fyrstu og 4 aðrar fiðlur, 4 víól-
ur, 2 sello og 2 kontrabassa.
„Flökt" er ákaflega heilsteypt
verk og jafnvægið milli hinna
ýmsu hljóðfæra hárfínt. Það
hvílir viðkvæmur ljóðrænn
blær yfir verkinu, en einmitt sá
eiginleiki hefði komið betur
Þorkell Sigurbjörnsson,
tónskáld.
fram með sveigjanlegri og á-
kveðnari túlkun hljómsveitar-
innar.
Sem sagt, sannfærandi og tær
músik.
Fjölnir Stefánsson.
Eldsvoði —
Framh. af bls. 1.
leytið í fyrrinótt. Sást hann frá
höfuðbólinu Grund, sem stendur
hinum megin árinnar. Gerði heim-
ilisfólk á Grund slökkviliðinu á
Akureyri aðvart. En er það kom
á vettvang skömmu síðar var hús-
ið í þann veginn að hrynja. Út-
veggir hússins voru steyptir en allt
annað úr timbri,
Húsið vai-$3#-Í440 ára gamalt og
var búið í því þar til í haust er
heimamenn fluttust til Akureyrar.
Bækur og nokkur búlsóð var
geymd inni í húsinu og gjöreyði-
lagðist það.
Slys —
Fannst —
Framhald af bls. 1
orðinn af súrefnisskorti, en hann
lá uppi f legubekk.
Á gólfinu fyrir framan bekkinn
höfðu legið vinnubuxur af piltin-
um, en þær voru brunnar upp til
ösku og sömuleiðis hafði gólf-
dúkurinn sviðnað á þeim stað þar
sem buxurnar höfðu legið. Annað
hafði ekki brunnið né sviðnað í
herberginu, en af þessu hafði það
fýllzt af reyk.
Það var þegar í stað beðið um
sjúkrabíl og pilturinn fluttur í
síjysavarðstofuna, en hann var þá
svo illa kominn að flytja varð
hann í sjúkrahús og strax tekið að
dæla í hann súrefni.
í gærkveldi er Vísir átti tal við
lækni sjúkrahússins þar sem pilt-
urinn lá var hann enn ekki kominn
að létta á dælum þeim, sem eru
við borholurnar sjálfar, en koma
ekki öllu því vatnsmagni, sem úr
holunum kemur, inn í bæjarkerfið
vegna mótþrýstings.
Holur þær við Lækjarhvamm,
sem boraðar hafa verið undanfar-
ið og gefa mikið vatn, verða
tengdar síðar eftir þvf sem föng
verða á.
Vatnsmagn það, sem hitaveitan
fær nú ofan frá Reykjum, er um
290 lítrar á sekúndu og er það
vatn um 80 stig, þegar það kemur
í geymana. Fyrir nokkru nam vatns
magnið 270 lítrufn, en það getur
verið nokkuð breytilegt og fer eftir
úrkomu, sem þó segir ekki til sín
fyrr en eftir nokkurn tíma. Þá get-
ur hitaveitan. dælt inn á kerfið úr
borholum innan sjálfs bæjarins um
100 lítrum á sekúndu, og það vatn
er um 120 stig að meðaltali.
Kvikmynd —
F amhald at 16 slðu:
kennum íslands.
í fyrrasumar kom A. Ehrhardt
til Islands og hafði þá að ein-
hverju Ieyti samvinnu við Ferða-
málafélagið um kvikmyndatöku
hér á landi. Flugfélag íslands festi
seinna kaup á kvikmyndinni, en
þar koma — eins og í mynda-
bókinni — öll helztu sérkenni ís-
lenzkrar náttúru fram svo sem
hverir og eldstöðvar, fjöll og jökl-
ar, jökulár, fossar, eyðisandar og
hraun. Þeim, sem sáu þessa kvik-
mynd, þótti hún vera listaverk
frá ljósmyndarans hálfu, en sýna |
hins vegar næsta lítið athafnalíf ]
bjóðarinnar, þjóðlíf og menningu.
Þess vegna varð það að ráði, að ]
Flugfélag íslands fékk A. Ehrhardt ;
til að koma aftur til íslands í sum
ar og bæta inn í kvikmyndina köH
um um þetta efni. Var Ehrhardt
hér í nokkrar vikur, ásamt aðstoð-
armönnum 'sfnum. til að I' ika kvik
mvndatökunni. og hefur þegar lok
ið við að gera frumdröe að henni.
Telia heir. sem séð hafa, að hún i
sé afbragð'-góð og listræn í bezta
laai.
Myndin verður gerð bæði með
íslenzku og þýzku tali, e. t. v.
skeytt inn í hana hliómlist, og er
nú unnið að bví að fullbúa hana
Framhald af bls. 1.
ir í húsinu og skildi ökumaðurinn
við hana eina þar og mannlausa,
en lét henni í té nafn sitt og bif-
reiðarnúmer. Seinna í gærkveldi
kom hann aftur til hennar að spyrj
ast fyrir um líðan hennar, en hafði
þá enn ekki gefið sig fram við Iög
regluna. En um níuleytið gaf hann |
sig fram við hana og gaf skýrslu ;
í málinu.
Umferðarnefnd rannsóknarlög-
reglunnar vissi að einhverjir sjón-
arvottar höfðu verið að slysinu og
biður hún þá að koma til viðtals,
helzt strax í dag.
Önnur kona fékk aðsvif niður í
Tryggvagötu eftir miðjan dag í
gær. Hún féll í götuna, en mun
ekki hafa meiðzt alvarlega, því
hún var flutt heim til sín að lækn-
tsskoðun lokinni í Slysavarðsstof-
unni.
til meðvitundar.
Dr. Snorri —
Fran.nalc ai bls. i.
— Já, þó merkilegt megi virðast
höfum við ekki þurft að vísa sjúkl-
ingum á brott í einu einasta til-
felli enn sem komið er.
— En þetta er mikið erfiði hjá
ykkur?
— Það má segja að það hangi
á bláþræði. Þetta gengur á meðan
ekkert sérstakt eða stórt skeður,
en það má ekkert út af bregða. Ef
við fengjum t. d. erfiða sjúklinga
nótt eftir nótt, þá er þetta ekki
hægt lengur. En þangað til--•
Hitaveitan —
til sýningar. Hvenær það verður,
er bó enn ekki vitað.
Að því er Sveinn Sæmundsson.
hlaðafulltrúi Flugfélagsins, tjáði
Vfsi, verður sýningartími myndar-
innar um hálf klukkustund, og er
það hugmynd Flugfélagsins að
sýna hana í kvikmyndahúsum bæði
heima og erlendis og einnig á ann-
an hátt að nota hana í landkynn-
ingarskyni, svo sem til sýningar
í ferðaklúbbum víðs vegar um
heim, á sýningarfundum ferða-
skrifstofa o. s. frv.
Anna Borg —
Framhaid af bls. 9
seinni hluta dags og um kvöld.
Það versta við þetta var, að
ég fékk hvert gallsteinakastið
Frænkan í 20. sinn
Gamanleikurinn „Hún frænka
mín“ verður sýndur í 20. sinn
næstkomandi sunnudag. Þetta
er léttur gamanleikur, sem kem
ur öllum f gott skap. Leikur-
inn fjallar um Mame frænku,
sem er mjög sérstæð persóna.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir leik-
ur þessa broslegu persónu á
mjög sérstæðan og skemmtileg-
an hátt.
Myndin er af Guðbjörgu og
Stefáni Thors í hlutverkum
sínum. (Frá Þjóðleikhúsinu)
á fætur öðru og loks fékk ég
hræðilegt kast á hverjum degi.
fy'Jorguninn, sem lokaæfingin
átti að vera á ímyndunar-
veikinni, vaknaði ég með kvöl-
um. Ég gat varla skriðið fram
úr rúminu. Ég hringdi til lækn-
isins, sem var góður vinur okk-
ar, og spurði hvort hann gæti
ekki gefið mér eitthvað til að
draga úr kvölunum.
— Ég skal strax koma, svar-
aði hann, en þá verður þú að
vera undir það búin að ég gefi
þér sprautu og þá er ekki um
annað að gera en að aflýsa sýn-
ingunni.
Aflýsa. Það kernur ekki til
mála. Vertu sæll, sagði ég og
lagði símtólið á.
Mér tókst að klæða mig og
farða, þótt sársaukinn væri svo
óþolandi, að tárin kreistust út
af hvörmum mínum. Ég gat ekki
rétt bakið, ég gat varla andað,
ég gat ekki talað.
En inn á sviðið fór ég og ég
talaði, hló, dansaði, skríkti og
gerð’ að gamni mínu, eins og
ekkert hefði í skorizt. Ég skil
ekki sjálf hvaðan ég fékk kraft
til þess. Maður skal, og þá gerir
maður það.
En strax og sýningunni var
lokið, fór ég f keng af sársauka
og kvölum. Loks var kastið liðið
hjá og ég hvíidi mig dálítið í
leikhúsinu, farðaði mig upp á
nýtt og stóð aftur á sviðinu um
kvöldið, nú sem Jeanne d’Arc
jpjegar maðurinn minn heyrði
að ég væri Veik, fór hann
í skyndi til Reykjavíkur til að
fylgja mér heim. Þegar hann
kom til Reykjavíkur, gat hann
varla þekkt mig, svo mögur og
þreytuleg var ég orðin. Nú sagði
ég leikhússtjóranum, að ég yrði
að hætta að leika, en hann bað
mig um að leika aöeins einu
sinni enn. — Jæja þá, sagði ég.
Og hálftíma síðar hringdi hann
aftur til mín og sagði: — Það
er uppselt á næstu sýningar, get-
urðu ekki leikið einn dag til við-
bótar?
F-g leit til mannsins míns
— Þér er ekki við bjargandi
sagði hann. Og ég lék fjóra daga
til viðbótar og það þótt ég yrði
stöðugt að þola hinar versti:
gallsteinakvalir.
LID0 opnað fyrír æskuna
Læknamálið -
Framhald at bls 1
málinu er að Hæstiréttur tekur
niðurstöður Félagsdóms í mál-
inu til athugunar og kveður upp
dóm sinn eða úrskurð. En eins
og kunnugt er gekk úrskurður
Félagsdóms gegn málsstað
Iæknanna og taldi dómurinn sig
bæran að fjalla um málið. Því
vill lögmaður læknanna fá
hnekkt með áfrýjuninni.
Venjulegui gangur áfrýjunar-
mála fyrir Hæstarétti er sá að
rétturinn hefir viku til þess að
athuga málið. En í þessu tilfelli
má vera að styttri frestur líði
þar til rétturinn kveður upp úr-
skurð sinn.
Framhald af bls. 16
bora eru þrjár .njög góðar, en það
telja verkfræðingar holu, sem
gefui um 20 lítra á sekúndu af
vatni, sem er yfir 100 stiga heitt.
Fjórða holan gefur 4-5 lftra á
sekúndu, en hinar tvær hafa ekki
gefið neitt að ráði.
Gufuborinn mun aðallega verða
notaður f þágu hitaveitunnar á
næstunni, megin áherzla lögð á að
fullnægja þörfum hennar f sam-
bandi við aukningu hennar.
Þá fékk Vísir þær upplýsingar
iijá Jóhannesi Zoöga, -ð nú væri
unnið kappsamlega við að tengja
holuna fyrir æstan Bílasmiðjuna
við kerfi hitaveitunnar. Jafnframt
er verið að koma upp millidælu-
stöð á svæðinu fyrir norðan Lauga
veg móts við Bolholt. Á dælustöðin
Nú hefur í fyrsta skipti á Is-
Iandi verið opnaður skemmtistað-
ur, sem eingöngu unglingum á aldr
inum frá 16 til 21 árs^ er ætlaður.
Ekki mun þó lokað dyrurn fyrir
öðrum, sem þarna vilja skemmta
sér án áfengis. Staður þessi er
veitingastaðurir; Lido, sem
flestum mun þegar kunnjgt af
fregnum blaða.
í gærkvöld var staðurinn opnað-
ur og ungmenni borgarinnar tóku
staðnum með mikilli gleði, að þ"í
ei virtist. Ef svo kynni að fara
að áfengi fyndist hjá einhverjum,
má hann búast við því að hann og
allir hans félagar fái ekki að sækja
skemmtanir á staðnum. Ef að á-
fengi finnst á staðnum getur sá
sem það finnst á, reiknað með því
að honum og öllum vinum hans
verði vísað út.
Veitingahúsið hefur ákveðið að
öll þess starfsemi skuli vera án
vínveitinga og mun neita allra
þeirra ráða sem ta k eru til að
koma í veg fyrir vínneyzlu á stað..-
um. Fyrsta skilyrðið til að æsku-
skemmtistaður geti staðizt er það
að enginn sé þar undir áhrifum
áfengis. Selt mun verða inn í
Lido á kvöldin, á föstudögum kr
35, á laugardögum kr. 50 og á
sunnudögum kf. 25.
Á staðnum verða á boðstólum
gosdrykkir, mjólkur- og ísdrykkir
ásamt sælgæti, pylsum og hamborg
urum. Var ekki hægt annað að sjá
þá stuttu stum-' sem blaðamenn
voru með unga 'ólkinu að það
skemmti sér hið bezta við hina á-
gætu tónlist hljómsveitar Svavars
Gests og félaga hans.
Lido.