Vísir - 15.01.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 15.01.1963, Blaðsíða 3
V1ZIR . Þriðjudagur 15. jáiiúar 1963, 3 Barclay hljómplötukóngur var í gervi yfirþjóns og gaf merkið um að slagurinn skyidi hefjast. Brigitte Bardot í matarhardaga JJin unga franska kvik- myndaleikkona Bir- gitte Bardot hefur nú orðið miðpunkturinn í æði miklu hneyksli, sem gerðist suður á Blá- strönd Frakklands. Hún var þátttakandi í sið- Iausu hófi í bænum St. Tropez, sem yfirgengur jafnvel allt það sem sýnt var í kvikmyndinni Hið ljúfa líf. í hófi þessu voru samankomn ir um 50 manns karlar og kon- ur úr stétt franskra auðmanna. Þar voru kvikmyndastjörnur og nýríkir dægurlagasöngvarar. Fólk þetta kom þarna saman í þeim tilgangi einum að sleppa sleppa algerlega fram af sér beizlinu og hegða sér eins og siðlaust eða jafnvel brjálað fólk. ♦ Veizlan breyttist skjótlega í einn alsherjar bardaga með hin dýrustu matvæli. Það var franskl plötukóngurinn Barclay, sem beitti sér fyrir þessari sam- komu. Hófst veizlan með því að Barclay og ýmsir aðstoðar- menn hans, sumir þeirra kunnir dægurlagasöngvarar gengu um veitingastofuna í þjónsbúning- um og tóku niður pantanir veizlugesta. Síðan báru þeir mat fram, ýmiskonar salöt, í fyrstu var hófið virðulegt og allir sátu saman í góðum fagnaði. steikt nautakjöt, krabba og kavíar. Matur var yfirleitt all- ur af dýrustu gerð en á borðum voru ýmiskonar sterkar sósur I flöskum, matarolía, tómatsósur og á hverju borði voru ýmist rauðv,nsflöskur eða kampavín sem trónuðu þar f ísfötum. ♦ Allt í einu gaf Barclay, sem var í hlutverki yfirþjóns merki um að veizlan skyldi breytast í skrílæði. Hann var að bera fram sítrónubúðing. Skyndilega tók hann fatið með sítrónubúð- ingnum og kastaði þvf framan í andlit næsta manns. Félagar hans sem voru með ýmiskonar salöt fóru eins að ráði sínu, dembdu þéssu yfir veizlugest- ina og hasarinn hófst. Allir börðust við alla. Kavíarklessur þutu um loftið. Brigitte Bardot var að beygja sig niður til þess að fá ekki tómatsósugusu fram an í sig. Menn tóku buffið af disknum hjá sér og tvíhentu það í and- litið á sessunaut sínum. Þó var fjarri því að þetta væri gert í illum hug, heldur var þett talin hin bezta skemmtun, allir skemmtu sér konunglega og skeliihlóu, líka Birgitta. Framhald a bls. 10. • ■' ■' A SL- • ■ ■'_ ■ :|i : Innan stundar voru allir útataðir matarslettum Stúlkumar séttu handþurrkur utan um hárið til að verja Iagninguna tðmatslettum. Margir voru illa farnir eftir slaginn. Heilar tertur og ávaxtabúðingar fylltu vit þeirra. Sumar ljósmyndimar urðu ógreinilegar vegna þess að majonessósa settist á gler ljósmyndavélarinnar. Hegðun kvikmynda- dísar vekur hneyksli

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.