Vísir - 15.05.1963, Page 16
VISIR
Miðvikudagur 15. maí 1963.
Foí-seti f
hringferð
Forseti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson og forsetafrú Dóra Þór-
hallsdóttir lögðu af stað í gær-
kvöldi með m/s Esju í hringferð
umhverfis landið.
Forsetahjónin eru væntanleg til
Reykjavíkur aftur um 20. maí.
Víðtækar athuganir á fíug-
vafíarstæðum við Reykjavík
Flugvallarstjórnin ís-
lenzka er nú að láta
framkvæma víðtæka at-
hugun á flugvallarstæð-
um þeim sem koma til
greina í nágrenni Reykja
Milwood haldið
Rannsóknin í véiritun
Logi Einarsson, yfirsakadóm-
ari, sagði f viðtali við Vfsi í
morgun, að rannsókn Milwood-
málsins fyrir sakadómi Reykja-
víkur færi nú að verða lokið
og er verið að vélrita rannsókn-
ina. Hún verður síðan send sak-
sóknara ríkisins, sem tekur sín-
ar ákvarðanir á grundvelli þess,
er fram hefir komið.
Réttað var stutta stund fyr-
ir sakadómi síðdegis f gær.
Komið hafði fram og verið
bókuð ítrekuð krafa frá eigend-
um Milwood um að togarinn
yrði gefinn frjáls, en dómurinn
sá ekki ástæðu til að breyta
fyrri ákvörðun sinni um það að
togaranum skyldi haldið hér
fyrst um sinn.
víkur. — Heimskunnur
flugvallaverkfræðingur
að nafni Mr. Hellman er
kominn til landsins og
mun dveljast hér í fimm
vikur til að kanna þetta
mál.
Rannsóknir verða gerðar á
flugvallarstæðum á Álftanesi,
Garðahrauni, Kapelluhrauni og
enn fremur könnuð hugsanleg
breyting á flugbrautum á Reykja
vikurflugvelli.
Ætlunin með þessu er að fá
lauslega kostnaðaráætlun um
hvað lagning nýs flugvallar
myndi kosta og samanburð á
kostnaði við hina ýmsu staði
sem til greina koma, en í um-
ræðum um þessi mál hefur slika
kostnaðaráætlun skort, svo að
umræður um málið hafa verið í
lausu lofti.
Að undanförnu hafa starfs-
menn flugmálastjórnarinnar ver-
ið á Álftanesinu, að rannsaka
flugvallarstæði þar. Er það Ólaf-
ur Pálsson verkfræðingur Flug-
málastjórnarinnar, sem hefur
stjórnað verkinu en aðstoðar-
maður hans hefur verið Júlíus
Þórarinsson. Verkið er m. a. fólg
ið í því að gera hallamælingar
og bráðlega verða gerðar grunn-
prófanir með borunum.
SEXFÆTT LAMB FÆÐIST
/ EYJAFIRÐI
Akureyri í morgun.
Sexfætt Iamb fæddist norður i
Eyjafiröi um síðustu helgi. Lambið
lifir ennþá og dafnar vel, enda
þótt það eigi erfitt með að reisa
sig upp og hefur ekki komizt á
spena ennþá.
Lamb þetta fæddist á bænum
Neðri-Vindheimum I Glæsibæjar-
hreppi s.l. sunnudag. Það var fyrra
lambið af tveim, sem ærin bar. Hitt
lambið fæddist í alla staði eðlilegt.
Vanskapaða Iambið er með fjóra
framfætur. Aukafæturnir tveir eru
að mestu samgrónir og koma neðan
úr bringunni framanvið hina fram-
fæturna og á milli þeirra.
Lambið er ógangfært. Það á mjög
erfitt með að rlsa á fætur og hefur
ekki komizt á spena. Það dafnar
samt ágætlega, þar sem þvl hefur
verið gefin mjólk úr pela, enda er
það gráðugt I hana.
Eigandi ærinnar og lambsins er
Jóhannes Jóhannesson bóndi á
Neðri-Vindheimum.
Sauðburður er hvarvetna I full-
um gangi I Eyjafirði og gengur
sæmilega vel og eðlilega, þrátt fyr-
ir kuldatíð og mikla umhleypinga
að undanförnu. Bændur telja að
tvílembur séu sízt færri nú en und-
anfarin ár og lambadauði sé ekki
meiri en venjulega þrátt fyrir kuld-
ann.
Þeir bændur, sem hafa nægan
húsakost, hýsa lambféð, en hjá öðr
um gengur það úti.
Happdrættisbílar SjóKstæðisllokksíns
Hér sjást hinir glæsilegu vinningar í skyndihappdrætti Sjálfstæðisflokksins.
Bílarnir eru tveir Taunus Cardinal, tveir Volkswagen og einn Austin Gypsy
landbúnaðarbílL Bílarnir eru til sýnis á lóðinni Austurstræti 1 og þar eru
seldir miðar. — Munið að það er dregið eftir aðeins tuttugu daga. Miðinn
kostar 100 krónur. Vinningsmöguleikar eru miklir. Fimm bílar. Dregið 5. júní.
Það er alþjóða flugmálastofn-
unin ICAO, sem kostar dvöl Mr.
Hellmans hér. Er það liður I
tæknilegri aðstoð stofnunarinn-
ar við ýmis lönd. Er búizt við
að hann skili álitsgerð I sum-
ar um flugvallarstæðin, sem yrði
þá fyrsti grundvöllurinn til þess
að ræða þessi mál af skynsemi.
1111
Fánar Norðurlandanna fimm blakta yfir gömlu sundlaugunum.
200 syntu í morgun
Tæplega 200 manns hafði synt
tvö hundruð metrana í samnor-
rænu sundkeppninni, sem hófst
í morgun, þegar Vísir hringdi í
aðalsundstaði borgarinnar í
morgun. Flestir höfðu synt I
Sundlaugum Reykjavíkur, eða
100 manns. Þar synti fyrstur
Erlingur Pálsson, yfirlögreglu-
þjónn .1 Sundhöll Reykjavíkur
höfðu synt 60 gestir. Þar synti
fyrstur Kristján Gestsson stór-
kaupmaður. Og í Sundlaug Vest
urbæjar höfðu synt 40 gestir.
Fyrstur fór af stað Magnús
Björnsson, 55 ára gamall Vest-
urbæingur. Elztur þátttakenda
var Benedikt G. Waage, sem
synti £ Sundhöll Reykjavíkur.
3 mál út af Sand-
gerðisdeilunni
Þrjú mál voru þingfest fyrir
Félagsdómi I gær og lúta þau
öll að Sandgerðisdeilunni.
LÍÚ hefir höfðað mál vegna
Guðmundar á Rafnkelsstöðum —
á verkalýðsfélagið I Sandgerði og
gerir þá kröfu, að vinnustöðvun
félagsins verði dæmd ólögmæt.
Stefndu fengu frest I málinu til
föscudags.
Á hinn bóginn hefir farmanna-
sambandið höfðað tvö mál á LÍÚ
vegna útgerðar Guðmundar á
Rafnkelsstöðum, og lúta þau mál
aö reikningsskilum þessarar útgerð
ar við sjóme» ■