Vísir - 04.06.1963, Page 9

Vísir - 04.06.1963, Page 9
VlSIR . Þriðjudagur 4. júní 1963. 21 Óhemjulegt ölæði Ungur maður slasaðist i Þjórsárdal. Varð undir bíl. Hér stumrar lögreglumaður yfir honum. Vísir hafði í morgun samband við handlækningadeiid Landsspítalans og spurðist fyrir um líðan mans ins sem varð undir bíl í Þjórsárdal og var fluttur suður til Reykja- víkur með sjúkrabifreið. Neitaði Iæknirinn að gefa upplýsingar um hversu mikið maðurinn væri slasaður, en hann sagði að honum lið vel eftir atvikum og hann væri með meðvitund. ar á hafa sennilega verið um 500 til 600 unglingar inni í Þjórsárdal, þegar mest var. — Samtök höfðu verið um ferð- ina, því áskriftarlistar fyrir wæntanlega þátttakendur í „sKemmtiferð" í Þjórsárdal lágu á á einum fjölsóttasta veitinga- atað í borginni, Hressingarskál- anum. BÆNDUR TIL HJÁLPAR. Það mun hafa verið um kl. 2,45, sem lögreglunni á Selfossi barst kall frá bændum í Þjórs- ándal. Höfðu þá sumir bændur verið að aðstoða bifreiðir sem höfðu fest sig á leiðinni inn í dalinn. Einnig höfðu bændurnir kom- ið nokkrum ofurölva ungling- um til aðstoðar, m.a. dregið þá Ur ánni. Ástandið var mjög geigvænlegt og óskuðu aðstoð- ar. Sneri lögreglan á Selfossi sér til Reykjavíkur-lögreglunn- ar, sem sendi sjö lögreglumenn austur kl. 4 um nóttina með talstöðvarbíl. HÖRMULEGT ÁSTAND. Þegar lögregluþjónarnir komu austur var ástandið vægast sagt hörmulegt. Unglingarnir lágu eins og hráviði innan um rusl, matarleifar, fataræfla og flösku- brot. í gærkvöldi þegar Vísir hitti að máli þá lögregluþjóna, sem fyrstir komu á staðinn, sögðust þeir vart eiga orð til að lýsa hinu mikla hörmungarástandi sem ríkti á staðnum, og enginn þeirra lögreglumanna, sem inn í Þjórsárdal iór, hefur aðra^ eins samkomu og þarna var, svo öskaplegur var ólifnaðurinn á unglingunum. Tveir lögregluþjónar, Svein- Björn Bjarnason og Hjörtur Elí- asson, sem starfað hafa í lög- reglunni yfir 17 ár, lýstu ástand inu þannig: — Það sem fyrst vakti at- hygli okkar var að þegar við fórum að nálgast staðinn, voru alls staðar með fram veginum tðmar brennivínsflöskur og öl- flöskur. Ástandið inni í dalnum var ömurlegt. Þarna lágu ungling- arnir í hópum ofurölvi og ó- sjálfbjarga, innan um alls kyns óþverra. Margir hverjir reyndu að slást og rífa fötin hver utan af öðrum, en lítið var um meiri háttar meiðsli vegna þess hve unglingarnir voru máttlausir af ölvun. KÖSTUÐU SÉR í ÁNA. — Það sem unglingarnir virt- ust hafa lang mest gaman af var að henda sér f ána, baða út öllum öngum, slást þar og skvetta hver á annan. Margir hverjir hentu sér í fullum klæð- um, með slifsi og £ hvítri skyrtu. Sumir klæddu sig úr öllum fötum og löbbuðu um al- veg naktir. Enn aðrir ráfuðu um rifnir og tættir, t.d. sáum við suma sem voru búnir að vefja gauðrifnum nærbuxum utan um hálsinn á sér. Þannig mætti lengi telja. LOKUÐU SÖLUVAGNINUM. — Fyrsta verk okkar, halda lögregluþjónarnir áfram, var að loka söluvagninum, sem stór hópur var saman kominn utan um. Höfðu unglingarnir gert sér það að leik áður en við komum að grýta hverri ölflösku, sem tóm var í vagninn, svo gler- brotin dreifðust yfir hópinn. Við staðsettum bifreið okkar á miðju svæðinu og notuðum hana sem fangageymslu, og stungum þar inn nokkrum öl- óðum unglingum, sem við þurft- um að setja í handjárn. Mikið vár ufh þjðfnáð',' stolið var pen- ingufn’ af mörgum sem sváfu, en það yrði of langt mál að telja upp nöfn á þeim hlutum sem stolið var, en til marks um það, hversu þetta gekk langt er hægt að segja frá einum sem sofnaði með skellinöðru- hjálm, en þegar hann vaknaði var búið að stela hjálminum af honum. LÉLEGUR ÚTBÚNAÐUR. — Mikill fjöldi þeirra ung- Iinga sem inn í Þjórsárdal fóru voru algjörlega vegalausir, þeir höfðu ekki með sér tjald eða svefnpoka. Klæðnaðurinn var fyrir neðan allar hellur, margir voru í sparifötunum með slifsi og í hvítri skyrtu. Kvenfólkið sumt var í nælonsokkum og í pilsi. Mjög margir týndu af sér einhverju af fötunum og einnig sáum við nokkra sem týnt höfðu ýmist öðrum eða báðum skónum. Mjög mörg tjöld voru felld og rifin, nokkrir ungling- anna voru ekkert að hafa fyrir þv£ að tjalda heldur lögðu bara tjöldin yfir sig. MIKLAR SKEMMDIR. — Skemmdir voru geysileg- ar, brotnar og óbrotnar öl- og brennivínsflöskur lágu út um allt, auk bréfarusls og matar- Ieifa. Skógræktarmerkið var eyðilagt og náttúrunni mikið spillt. Skemmdir voru unnar á bflum, sem voru £ nágrenninu, m.a. á bil bóndans f Haga. Við gætum vel hugsað okkur að svæðið liti út svona svipað og á Krukkusléttu í Laos, sögðu þeir Sveinbjörn og Hjörtur að lokum. ÖNNUR LÖGREGI.USVEIT SEND. Fljótlega tftir að fyrstu lög- regluþjónarnir komu á staðinn kölluðu þeir til Reykjavfkur og báðu um að fleiri menn yrðu sendir austur til þess að leysa þá af, því að ástandið töldu þeir svo slæmt að það þyrfti að hafa lögreglulið áfram á staðn- um. Voru níu lögregluþjónar sendir austur á sunnudagsmorg uninn til þess að leysa þá af sem fyrir voru. Er leið á dag- inn fór ástandið að batna, á- fengi var farið að brjóta og fólk farið að sofa. Var lögreglan fyrir austan til kl. 10 um kvöld ið, en þá fór hún með þrjá ölv- aða bílstjóra til Selfoss. En þeg ar að lögreglan kom á Selfoss var tilk. um slys inni í Þjórs- árdal ogh élt lögr. þá aftur inneftir. Sjúkrabifreið fór til þess að sækja hinn slasaða mann ,sem orðið hafði fyrir bif- reið, og festst undir henni og slasazt mikið. Tók lögreglan með til baka fimm ölvaða ungl- inga sem voru algjörlega vega lausir og höfðu ekkert tjald. Eins og fyrr segir voru þetta svo að segja allt unglingar á aldrinum 14—21 árs og gizkar lögreglan á að meðalaldur hafi verið 17 ára. Pascal! Pascall nylon sokkarnir 30 Din., eru komnir aftur. Verð aðeins 30 krónur. REGNBOGINN, Bankastræti 6 Sími 22135. G E Y M S L A Vantar bragga eða annað rúmgott geymsluhúsnæði. Stefán Thoraren- sen h.f. Sími 24049. AFGREIÐSLUMAÐUR Afgreiðslumaður, duglegur og áreiðanlegur getur fengið góða atvinnu við sérverzlun við Laugaveginn. Gott kaup. Uppl. um aldur, menntun, hvar unnið áður o. þ. h. sendist afgr. Vísis merkt „Góð atvinna". STÚLKUR ÓSKAST 2 stúlkur óskast í þvottahúsið Bergstaðastræti 52. Símar 14030 og 17140 HERBERGI ÓSKAST Vantar herbergi nálægt miðbænum (má vera lítið). Uppl. f símum 20330 og 10035. A T V I N N A Stúlka, helzt vön óskast til afgreiðslustarfa. Þarf að geta byrjað strax. Barónsbúð, Hverfisgötu 98. Sími 11851 og 35111 eftir kl. 7. Vogar — Heimar — Kleppsholt Vanur vörubflstjóri óskast við fiskverkunarstöð á Gelgjutanga. Sími 24505.____________________ F L Y G I L L Flygill óskast til kaups. Má þarfnast viðgerðar. Sími 23889 eftir kl. 7. S T Ú L K A Stúlka óskast til afgreiðslu- og eldhússtarfa. Ekki yngri en 22 ára. Uppl. f síma 36066. _______________________ MIÐST ÖÐ V ARKETILL Miðstöðvarketill og kynditæki, sem hafa verið í notkun innan við ár, er-til sölu. Hæfileg stærð fyrir einbýlishús. Sfmi 33963._ BÍLL TIL SÖLU. Morris 10 1947 til sölu. Selst mjög ódýrt. Uppl. í síma 17625. STOFA TIL LEIGU Stofa til leigu fyrir einhleypan. Uppl. í síma 22222. REGNF ATN AÐUR Regnklæðin eru hjá VOPNA, þar með veiðikápur, veiðivöðlur og á unglingana. VOPNI, Aðalstræti 16, sími 15830. STÚLKA - ÓSKAST Stúlka óskast til eldhússtarfa. Hótel Skjaldbreið. Sfmi 24153. BARNALEIKTÆKI Smíðum ýmiskonar barnaleiktæki, rólur, sölt, rennibrautir o. fl. Komið og skoðið úrvalið, einnig snúrustaurar ýmsar gerðir. Málmiðjan Barðavogi. Uppl. í síma 20599. Opic til kl. 7 e. h. alla virka daga. RÆSTINGARKONA Ræstingakona óskast strax. Verzl. Kjöt & Fiskur, Laugarásvegi 1. Sími 38140. _____________ AFGREIÐSLUSTÚLKA ÓSKAST Kaffistofan Austurstræti 4 Sfmi 10292. G E Y M S L A 100—200 ferm. geymsla óskast í Reykjavík eða Hafnarfirði. Mætti einnig vera skúr. Uppl. í símum 38057 og 14488. STARFSSTÚLKA Stúlka ekki yngri en 17 ára óskast strax. Uppl. ekki í síma. Gufupressan Stjarnan h.f. Laugaveg 73. ______________________ FRAMREIÐSLUSTÚLK A Dugleg og reglusöm stúlka óskast til framreiðslustarfa. Veitingastofan Bankastræti 11. AUKAVINNA Afgreiðslustúlka óskast annaðhvort kvöld og helgi, helzt vön. Tilboð merkt „Strax — 200“ sendist afgreiðslu blaðsins. Melavöllur í kvöld kl. 8,30 leika Hofnfirðingar — Þróttur Dómari Steinn Guðmundsson. Línuverðir Magnús Thejll og Skúli Jóhannsson. Mótanefnd.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.