Vísir - 21.06.1963, Qupperneq 1
VÍSIR
Hitaveitan tilbúin þegar
fó/kii flytur í húsin
53. árg. — Föstudagur 21. júní 1963. — 159. tbl.
í morgun voru opnuð í Inn-
kaupastofnun Reykjavfkurborg-
ar tilboð f hdtaveitulagningu í
fyrsta áfanga Múlahverfis, sem
nær yfir Fellsmúla og hverfið
norðan og austan Háaleitis-
brautar. Hverfið er að mestu
óbyggt, var lóðum þar útlilutað
í vor. Er þetta í fyrsta sinn,
sem lögð verður hitaveita í
hverfi áður og um leið og bygg
ingarframkvæmdir hefjast. Á
Valgarð Briem (t.v.) forstjóri Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar ásamt fulltrúum verktaka, sem gerðu tilboð.
Hrein eign Reykjavíkurborg-
hún að vera tilbúin þegar íbúar
hverfisins flytja f íbúðir sínar.
Véltækni hf. var með lægsta
tilboð kr. 2.553.748,00. En Al-
menna byggingarfélagið var
með um 90 þús. kr. hærra til-
boð.
Að sögn Valgarðs Briem, for-
stjóra Innkaupastofnunarinnar,
verður í umræddum áfanga lögð
hitaveita í 358 íbúðir sem eru í
19 fjölbýlishúsum, 7 einbýlishús
um og 39 raðhúsum.
Með því að hefja hitaveitu-
lagninguna áður en byggingar-
framkvæmdir hefjast og geta
lokið þeim samhliða bygging-
unum, er unnt að nota stórvirk-
ari véltækni en ella. í eldri
hverfum var búið að leggja
strengi og kapla í svæðið áður
en hitaveituframkvæmdir hófust
með þeim afleiðingum, að vinna
varð á hægvirkan hátt til að
varast skemmdir á því sem bú-
ið var að gera.
Framhald á bls. 5. 1
Sáttafundur
með skipa-
smiðum
Eins og kunnugt er, eru skipa-
smiðir í verkfalli um þessar mund-
ir. I gær hélt sáttasemjari sinn
fyrsta fund með þeim og vinnu-
veitendum, en ekkert samkomulag
mun hafa náðst á þeim fundi með
deiluaðilum.
Askenazi heldur tónleika í
Reykjavík ú fimmtudaginn
Pétur Pétursson sagði Vísi í
morgun að ákveðið væri að
Vladimir Askenazi og Þórunn
Jóhannsdóttir kæmu til Reykja-
víkur uni miðja næstu viku og
Askenazi héldi fyrstu tónleika
sína í Þjóðleikhúsinu n. k.
fimmtudagskvöld. — Á efnis-
skránni eru tvær sónötur eftir
Beethoven og 4 ballöður eftir
Chopin.
Munu aðdáendur þessa mikla
listamanns og vinir þeirra
hjóna fagna þessari heimsókn,
en talað hefir verið um að,
Askenazi héldi 3 tónleika f
Reykjavík að þessu sinni og
einnig einhverja tónleika utan
Reykjavíkur, a. m. k. á Akur-
evri.
Vísir hringdi til London í
morgun,1 og vai; þá sagt að
Þórunn og Askenazi væru ekki
komin þangað og ekki fullvfst
hvenær þau kæmu frá Moskvu.
Eftir þetta samtal hafði blaðið
samband við Pétur Pétursson
og kvaðst hann hafa talað við
Þórunni í Moskvu í fyrradag og
hefði hún búizt við að þau
hjónin færi þaðan til London n.
k. mánudag og yrðu komin til
Reykjavíkur um miðja næstu
viku, að líkindum á miðvikudag.
Þórunn sagði Pétri að burtför
þeirra frá Moskvu hefði dregizt
vegna tónleika, sem maður
hennar og bandarískur píanó-
leikari hefðu verið að halda
saman í Moskvu, og orðið að
halda oftar en búizt var við
sökum mikillar aðsóknar.
ar jókst um nær 100 millj.
REIKNINGAR Reykja-
víkurborgar fyrir árið
1962 voru til fyrri um-
ræðu á borgarstjórnar-
fundi í gær. Geir Hallgríms
son borgarstjóri gerði
stutta grein fyrir þeim.
Borgarstjórinn kvað greiðslujöfn
uð vera hagstæðan um rúmlega
eina milljón króna. Tekjur fóru
13.8 milljónir fram úr áætlun og
var þvi fé varið til framkvæmda,
t. d. skólabygginga 7.7. millj., til
verkamannahúsa 3.3. millj. og 1.7
millj. til sjúkrahúsa, leikvalla og
íþróttamannvirkja.
Rekstrargjöld urðu 213 þúsund
krónum fram yfir áætlun eða
0.07%. Ef tekið er tillit til kaup-
hækkana verða þau hins vegar
1.8% jmdir áætlun.
Hrein eign borgarinnar jókst um
96.7 millj. Er þá búið að draga frá
skuldir, sem jukust um 36 millj.
Þessi aukning stafar fyrst og
fremst af því að reikningum var
nú lokað um áramót en hefur hing-
að til ekki verið gert fyrr en i fe-
brúar, þannig að þær tekjur, sem
koma í janúar og febrúar geta ekki
komið til lækkunar á skuldunum.
Er hér um reikningslega endurbót
að ræða.
Eftir ræðu borgarstjóra talaði
Guðmundur Vigfússon og gerði
nokkrar athugasemdir.
Að því loknu var tillögu borg-
arstjóra visað til annarrar um-
ræðu.