Vísir - 15.02.1964, Síða 8
8
Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrœti 3
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði
í lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
„Hreint æskulýðsstorf"!
Tímmn tók það óstinnt upp, þegar Morgunblaðið
benti á það s. 1. miðvikudag, að stjórnmálaflokkar
mættu ekki reyna að draga börn inn í stjómmálabar-
áttuna; en Félag ungra Framsóknarmanna hér í borg-
inn hafði þá orðið uppvíst að því að reyna að tæla
börn til þátttöku í starfsemi sinni.
Tíminn hélt því auðvitað fram, að þetta væri hel-
ber uppspuni. Framsóknarfélagið héldi fast við þær
reglur, sem gilt hefðu um stjórnmálaþátttöku ungl-
inga og sæktist ekki eftir þeim yngri en 16 ára í sam-
tökin. Hins vegar væri til Unglingaklúbbur FUF, en
I hann væri „ekki í neinum tengslum við stjórnmála-
starf félagsins“, heldur væri þar um „hreint æskulýðs-
starf að ræða“, og væri foreldrum jafnan boðið að
fylgjast með starfinu. Segir blaðið að þessi klúbbur
hafi hlotið þakkir foreldra og hann sé öllum unglingum
opinn. Það er mjög trúlegt að hann sé öllum unglingum
opinn, því að starfsemi hans hefði minna gildi, ef hann
væri aðeins opinn börnum „rétttrúaðra“, sem fæst
þurfa líklega „frelsunar“ við, þótt gott geti verið að
styrkja þau í trúnni.
Já, þetta er Ijóti áróðurinn gegn saklausu og upp-
byggilegu æskulýðsstarfi! En svo undarlega vill til, að
j sama daginn og Tíminn er að hneykslast á þessum
| ásökunum Morgunblaðsins, birtir Þjóðviljinn frétta-
I skeyti austan frá Egilsstöðum, þar sem frá því er skýrt,
að um helgina næst á undan hafi verið stofnað þar
Félag ungra Framsóknarmanna „og það siðleysi við-
haft, að smala börnum úr barnaskólum á Héraði í þenn-
an félagsskap með ýmsum gylliboðum, svo sem ókeyp
is dansleikjum og skemmtiferðum“.
Þá segir ennfremur í Egilsstaða-fréttinni, að í barna-
skólanum þar hafi erindrekum Framsóknar tekizt að
ná 8 börnum 14 ára gömlum í félagið, en á Eiðum hafi
aldurstakmarkið verið fært niður í 12 ár. Þess er og
getið, að foreldrar þar eystra líti þessar barnaveiðar
Framsóknar alvarlegum augum og telji að óhætt sé að
lofa þeim að ljúka barnaskólanámi áður en farið sé að
heilaþvo þau.
Tíminn segir vafalaust að austur á Héraði gegni
sama máli og hér, þetta hafi bara átt að vera „unglinga-
klúbbur“, undir eftirliti FUF! - En fréttin frá Egilsstöð
um sýnir að þessar barnaveiðar Framsóknar þykja
varhugaverðar víðar en á skrifstofum stjórnarþlaðanna
hér í höfuðstaðnum.
En enginn skyldi halda að hér sé um nýja hugmynd
að ræða hjá Framsókn. Erindrekar hennar hafa alltaf
stundað þessar veiðar með þeim aðferðum, sem þeir
töldu bezt henta á hverjum stað og tíma. Aðferðin, sem
hentaði vel í dreifbýlinu fyrir 20-30 árum — þegar
hægt var með ýmsum ráðum og aðstöðu að koma því
svo fyrir, að Tíminn bærist einn blaða á marga sveita-
bæi - er lítt framkvæmanleg lengur. Það þurfti því að
finna upp nýja aðferð til að „kristna“ börnin — óg hún
1 er fundin!
v í
SIR . Laugardapur 15. febrúar 1964.
Frú Bjarnveig við vinnuborð Ásgríms.
Sýning fyrir skóla-
fólk í Ásgrimssafni
Sýn'ngin sem elnkum er ætluð
fyrir skólafólk, vérður opnuð í
Ásgrímssafni, sunnudaginn 16.
þ.m. og er þetta nýmæli af
hálfu safnsins. Frú Bjarnveig
Jónsdóttir, systir listamannsins
sagðl á fundi með fréttamönn-
um, að mikið væri nú rætt um
spiilingu aldarfarsins, og að
nauðsynlegt sé að beina hugum
unga fólksins inn á hollar braut
ir. Það mætti vafalaust telja
það hollan skóla fyrir æsku-
fólkið að kynnast fögrum list-
um og listmenningu, og viid’, Ás
grímssafn stuðla að að sliku.
Siðan safnið var opnað hefur
mlkið af ungu fólki heimsótt
það, og hefur það sýnt mikla
hrifningu og áhuga á lista-
verkunum.
Á heimili listamanns'ns rnunu
nú vera um 400 málverk, og er
meginhluti þeirra geymdur í sér
stakri geymslu sem er bæði eld
traust og útilokar skemmdir
af völdum vatns. Heimilið er al
gerlega eins og það var á dög-
um Ásgríms, og meira að segja
á vinnuborði hans eru sömu
hlutir og hann skildi þar síðast
eftir. Ásgrímssafn er opið al-
menningi þriðjud., fimmtudaga
og sunnudaga. Skólar geta pant
að sér tíma hjá forstöðukonu
þess.
Nemenda-
skipti á veg-
um American
Field Service
Eins og undanfarin 7 ár mun
menntastofnunin Amerxan Field
Service í New York i ár veita fs-
lenzkum framhaldsskólanemendum
styrki til skólagöngu og dvalar hjá
fjölskyldum víðsvegar um Banda-
ríkin. f vetur dveljast 20 Is'lenzkir
nemendur vestan hafs á vegum
American Field Service og í ágúst
n.k. mun annar jafnstór hópur
halda vestur um haf.
Sl. þrjú sumur hafa 7 bandarísk-
ir nemendur komið til tveggja mán-
aða dvalar á íslenzkum heimilum
og I ár er ráðgert að auka þennán
fjölda að mun.
Tilgangur þessara nemendaskipta
er I stuttu máli sá að gefa ungling-
um viðkomandi þjóða kost á að
ferðast, kynnast lifnaðarháttum í
öðrum löndum og taka af heilum
hug þátt í starfi og áhugamálum
fjölskyldunnar, er þe r búa hjá.
Af fjölskyldunni er til þess ætl-
azt, að þær líti ekki á hinn erlenda
nemanda sem gest, heldur sé hon-
um veitt sama umhyggja og öðru
heimilisfólki. Æskilegast er að á
heimilinu sé unglingur á aldrinum
16-19 ára, þó koma roskin hjón,
er alið hafa upp unglinga, einnig til
greina. Þá er það og skilyrði, að
einhver tali ensku á þeim heimil-
um, þar sem bandarískir nemendur
búa.
Þær fjölskyldur I Reykjavík og
kaupstöðunum úti á landi, er kynnu
að hafa áhuga á að taka á móti
bandarískum unglingum til dvalar
á heimilum sínum í sumar eða
næsta vetur, geta leitað allra nán
ari upplýsinga hjá fulltrúum Amer
ican Fieid Service í sfma 23222 og
23223 kl. 6-7 e.h. til 14. þ.m.
ÁST
við
fyrstu
sýn
Brezku blöðin eru farin að
kalla Peter Sellers „dr. Quick-
love“, vegna þess að hann varð
skyndilegt gripinn svo funheitri
ást til sænsku kvikmyndaleik-
konunnar Britt Eklund, að
hann bað hennar á stundinni.
Hún var að koma frá New York
og Peter var í Lundúnaflugstöð
innl til þess að taka á móti
henni.
Britt kom kl. 7,35 og kl. 7,45
voru þau trúlofuð. Peter gaf
hcnni hring settan smarögðum
demöntum og rúbinsteinum og
seinna í húsi sínu í Surrey —
rauðan sportbíl af Lotusgerð,
sem kostar 1500 pund. Hér er
Britt við stýrið á nýja bílnum
sínum, sem hún getur ekið f ð
180 km hraða.