Vísir - 06.04.1964, Blaðsíða 16
VISIR
manuaagur d. apm íao^.
Ríkið og híuf-
verk þess
Dr. Benjamín Eiríksson banka-
stjóri flytur erindi á vegum Heim-
dallar F.U.S. í Valhöll n.k. þriðju-
dagskvöld 7. apríl um RlKIÐ OG
HLUTVERK ÞESS. 1 erindi sínu
mun bankastjórinn gera grein fyrir
Framh. á bls. 5.
BfíndhríS áSiglufjarSorskarfíihefur
tafið opnun skarSsms
Ruðningur Siglufjarð-
arskarðs hefur tafizt
vegna blindhríðar sem
gerði á skarðinu s.l. laug
ardag. Urðu ýtumennirn
ir þá að hætta mokstri
og fara með ýtuna niður
á Siglufjörð. Var ekki
snert við mokstri um
helgina, en ráðgert var
að byrja að nýju í dag.
Eins og lesendur Vísis rekur
vafalaust minni til, spáði blaðið
því í vikunni sem leið að gera
myndi hríð þegar byrjað væri
að ryðja Siglufjav"'irskarð. Sú
spá hefur nú rætzt í orðsins
fyllstu merkingu. Að því er
fréttaritari Vísis á Siglufirði
tjáði blaðinu í morgun gerði
hríð þar nyrðra um hádegið á
laugardaginn. Hennar gætti
raunar ekki að neinu ráði niðri
í kaupstaðnum, og þar gerði
aðeins nokkurt föl, en uppi í
Siglufjarðarskarði, var veður-
ofsi með mikilli fannkomu. Var
hríðin svo mikil að ekki var
viðlit að halda mokstrinum á-
fram og þorðu ýtumennirnir
ekki að skilja ýtuna eftir af
ótta við að hún færi I kaf og
týndist.
Þegar moksturinn í skarðinu
átti að hefjast í s.l. viku urðu
nokkrar tafir vegna þess að ýt-
an, sem annast átti ruðninginn
lenti niður úr snjóbrú á leið-
inni uppeftir og valt á hliðina.
Hvorki urðu þó skemmdir á
henni né meiðsli á mönnum, en
alltafsamt varð að ná ýtunni
upp aftur.
Þá — um miðja síðustu viku
— var veðursæld mikil á Siglu-
firði og komst hitinn suma dag-
ana upp í 10 stig, og i vikunni
þar á undan í 14 stig. Bjuggust
menn við áframhaldandi veður-
Framh. á 5. síðu.
WIZLOK NADIST
ÚT EN SÖKK
Klukkan tólf í gærkvöldi I togaranum Wizlok út af
tókst björgunarmönnun- Landeyjasandi. Dráttar-
um loksins að ná pólska!
Framh. á bls. 5.
Sex slösuSust í bílveltu
Sex unglingar slösuðust er
drukkinn ökumaður ók bifreið
út af veginum rétt fyrir neðan
Grafarholt í Mosfellssveit í
fyrrinótt.
Þessir unglingar voru að
koma af dansleik í Hlégarði og
var klukkan að ganga 4 þegar
slysið varð. Bifreiðin var af
Dodge-Cariol gerð, sem hér var
um að ræða og voru alls 9
manns í henni, piltar og stúlkr
ur. Eigandinn var sjálfur með í
bifreiðinni, en hafði ekki ekið
henni sjálfur á leiðinni uppeftir
vegna þess að hann var undii
áhrifum áfengis. Fékk hann tiJ
þess pilt sem var alls gáður.
Átti sá hinn sami að aka til
borgarinnar aftur að dansleilcn-
um loknum. Þegar til átti að
taka kom hann bifreiðinni ekki
í gang. Settist eigandinn þá
undir stýrið m. a. vegna þess
að hann taldi sig þekkja öðrum
betur á farartækið. Farþegarnir
hjálpuðu til með þvl að ýta
á bílinn og að lokum fór hann
í gang. En þá neitaði bíleig-
andinn að hverfa undan stýrinu
og kvaðst mundu aka sjálfur
til Reykjavíkur. Varð svo að
vera.
Skömmu eftir að bíllinn var
lagður af stað, fóru eftirlits-
menn frá lögreglunni, sem ver-
ið höfðu á dansleiknum um
kvöldið og nóttina, einnig af
stað til borgarinnar. Þegar þeir
voru komnir rétt niður fyrir
Grafarholt, eða móts við Laxa-'
lón heyrðu þeir neyðaróp mikil
og hljóð utan úr myrkrinu.
Námu þeir staðar og lýstu fyr-
ir sér með vasaljósum. Komu ,
þeir þá auga á bifreið á-hlið-
inni, sem kastazt hafði langt út
fyrir veginn og niður í lækjar-
farveg. Þar höfðu farþegarnir
komizt við allan Ieik út út bíln-
um, flestir meira eða minna
skornir og skrámaðir, þ. á m.
bílstjórinn, sem skorizt hafði
m. a. á höndum. Einn farþeg-
anna virtist verst leikinn, illa
skorinn á höfði og höndum og
viðar. Allur hópurinn, 9 talsins,
var fluttur í slysavarðstofuna.
Af honum sluppu 3 við líkam-
lega áverka, en voru miður sín
af taugaáfalli. Hinir sex höfðu
meira eða minna skorizt og voru
þeir fram eftir nóttu í slysa-
varðstofunni til aðgerðar. Þeir
síðustu urðu að vera þar til kl.
2 e. h. í gær að þeim var leyft
að fara.
Óþarft er að taka fram að
ökumaðurinn var blindfullur, og
var hann meðhöndlaður sam-
kvæmt því.
Tvö önnur slys urðu um
helgina, bæði á laugardaginn.
Það voru tveir krakkar sem
hlupu á bíl'a, annar á Laufás-
veginum, ■hinn á Hverfisgöt-
unni, en munu ekki hafa meiðzt
alvarlega. I síðara tilfellinu a.
m.k. var það fyrir snarræði öku
manns að hann gat afstýrt því
að aka yfir barnið með þvf að
snarbeygja frá.
Kjartan Ásmundsson, gullsmiður fyrir framan sýningarkassann.
Þetta er í þriðja skiptið
sem rænt er úr kassanum
segir Kjartan Ásmundsson, gullsmiður
„Þetta er í þriðja skiptið, seni
farið er í kassann. í eitt skiptið
tókst þeim einnig að hirða allt
úr honum, en lögreglan kom
að þeim og ég sótti þýfið út
á lögreglustöð um morguninn,"
sagði Kjartan Ásmundsson gull
smiður í stuttu viðtali við Vísi
í morgun.
Aðfaranótt laugardags var
spenntur upp sýningarkassi, sem
Kjartan hefur að Aðalstræti 8.
Kjartan sagði, að vörurnar, er
í kassanum voru hafi verið úr
gulli og „þá eru þær ekki lengi
að ná þúsundinu," sagði hann.
Heildarverðmæti þess sem
stolið var nemur ca. 85 þúsund
krónum. Mikið var af hringum
m.a. 12 trúlofunarhringar,
skyrtuhnappar fyrir um 10 þús.
krónur, 5 armbönd að upphæð
24.200 kr og einnig voru í kass-
anum hálsfestar, sumar með eð
alsteinum. 1 fiestu var 14 karata
gull.
„Ég setti þennan kassa upp
fyrir u.þ.b. 8 árum og þetta er
f þriðja skiptið, sem kassinn er
rændur. Einu sinni tókst þeim
að brjóta lítið gat á glerið og
ná í tvö armbönd, en í hitt skipt
ið hreinsuðu þeir kassann, en
lögreglan sá til þeirra og ég
sótti þýfið út á lögreglustöð um
morguninn. Einnig hafa þeir
nokkrum sinnum verið að
„fikta“ i kassanum, en ekki tek
Framh. á bls. 5.
£u>