Vísir - 19.06.1964, Blaðsíða 1
54. árg. - Föstudagur 19. júní 1964. - 137. tbl.
Silungsrannsókn-
ir í Kleifarvatni
Silungurmn vunnærður?
í vor var gerð athug-
un á silungastofninum í
Kleifarvatni, en þar
veiddist þá mjög horað-
ur fiskur. Alexander
Guðjónsson, form Stang
veiðifélags Hafnarfjarð-
ar, sagði í morgun, að
þeir félagarnir, sem hafa
undanfarin ár staðið fyr-
ir fiskrækt í Kleifarvatni
séu bjartsýnir á að hér
sé ekki um neitt alvar-
legt mál að ræða.
Mjög mikið fiskmagn er í
Kleifarvatni, en svif og annar
grðður takmarkaður. 1 vor þeg-
ar horaða bleikjan veiddist, var
farið fram á við veiðimálastjóra
að hann rannsakaði málið. Voru
sýnishorn tekin úr vatninu og
er fiskurinn, sem þá veiddist ald
ursgreindur og rannsakaður að
öðru leyti, m. a. til að athuga
hvort um bakteríur er að ræða
eða vannæringu.
Tilraunir til fiskiræktar í
Framh. á bls. 6
jT
Afhentu forseta Islands
íslemlingasögur á sænsku
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní ' seta íslands og afhentu honum röð. Það er heildarútgáfa á ís-
gengu tveir Svíar á fund for- ritsafn, sem er einstakt í sinni lendingasögunum þýdd á
sænsku. Sögurnar eru í fimm
bindum og voru forseta Islands
NÆRRI400MANNS LOGÐUHOND
AÐ VERKIÁ USTAHÁTÍÐINNI
Jón Þórarinsson forseti Bundalags
listamanna ónægður með órangurinn
í dag lýkur listahátiðinni
með Iokasamkvæmi listamanna
sem haldið verður að Hótel
Sögu. Er þess vænzt að sem
flestir listamenn komi þar til
að skemmta sér við iok þess-
arar miklu hátiðar, sem hefur
tekizt vei. Hófið situr m. a. for-
seti íslands herra Ásgeir Ás-
geirsson, og Tómas Guðmunds-
son skáld mun halda ræðu. Þar
slítur Jón Þórarinsson forseti
Bandalags íslenzkra listamanna
listahátíðinni.
Vísir átti í morgun tal af Jóni
Þórarinssyni og spurði hvort
BLAÐID ! DAG
hann væri ánægður með lista-
hátíðina eins og hefði tekizt til.
— Já, við erum mjög ánægðir
með hana i heild, margt hefur
gengið mjög vel, eftirá sér mað-
ur að visu, að i sumu hefði bet-
ur mátt gera. En það er einnig
þýðingamikið að við erum
reynslunni ríkari ef við vildum
halda slíka hátíð siðar.
— Hefur yður fundizt, að
menn væru í hátiðaskapi og að
menn hafi haft á tilfinningunni,
að hinar mörgu dreifðu skemmt
anir hafi skapað eina heild.
— Það var dálítið um það,
að menn keyptu heildarmiða á
listahátíðina, og mjög margir
hafa sótt þorra skemmtiatrið-
anna. Ég held að okkur hafi
tekizt að gefa þennan heildar- |
svip. Fólk fann að það var ekki
aðeins að fara á þetta ákveðna
skemmtiatriði, heldur á lista-
hátíðina. Meðal þeirra sem
lögðu hönd að verki varð og
viða vart sérstaks áhuga og
hrifningar.
— Hvað eru það margir ein
staklingar, sem lagt hafa lista-
hátíðinni lið með starfi sínu og
verkum?
afhentar þær í skrautbandi. Var
það ætlun útgefandans að þetta
yrði gjöf í tilefni 20 ára afmælis
lýðveldisins. En stærst er sú
gjöf hans, að ef þetta verk tekst
vel, fá íslendingasögurnar nú
meiri útbreiðslu í Svíþjóð en í
nokkru öðru landi.
Myndin sem hér fylgir var
tekin er þeir Sviarnir afhentu
forsetanum verkið. Eru bæk-
urnar á borðinu fyrir framan
þá. Vinstra megin er þýðandinn
dr. Ake Ohlmark, hægra megin
útgefandinn Bjarne Steinsvik.
— Þeir skipta hundruðum,
senniiega nálægt fjórum hundr-
uðum. Auðvitað hefur það fólk
lagt misjafnlega mikið til, þar
eru taldir t. d. allir kórsöngvar-
ar og léikarar.
Frarnh á bls. 6
BIs. 3 Myndsjá úr
stúdentahófi.
— 5 Kvikmyndaþáttur.
— 7 Viðtal við Lúðvíg
Guðmundsson
skólastjóra.
— 8 Verzlunarskólanum
slitið.
9 Föstudagsgreinin
Umfangsmiklar geimrannsóknir
frá MÝRDALSSANDI
I
„Eldflaug skotið upp í ógúst/# segja Frakkarnir
Eins og kunnugt er af
fréttum, hykkjast fransk
ir vísindamenn stunda
geimrannsóknir frá Mýr
dalssandi í sumar og
senda þaðan eldflaugar
út í himingeiminn. { gær
kvöldi kom til landsins
verkfræðingur sá, sem
yfirumsjón hefur með öll
um verklegum fram-
kvæmdum geimrann-
sóknanna, og í kvöld
kemur Selá hlaðin tækj-
um og öðrum útbúnaði.
Fréttamaður Vísis átti stutt
tal við verkfræðinginn. de Vill-
epin, en með honum er einnig
Lefévre, en báðir eru þeir frá
byggingarfyrirtækinu Sud Aviat
ion, sem sér um uppsetningar
sem þessar.
„Tilgangur þessara rannsókna
sagði de Villepin, „er að mæla
segulmagn jarðar í hinu svo-
kallaða Van Allen belti. Við
verðum að vera á sextugustu
breiddargráðu, innan vissrar
fjarlægðrar frá norðurpólnum, á
ca. sextugustu breiddargráðu,
og því erum við hér. Mýrdals-
sandur þótti heppilegur staður
fyrir tilraunastöðina, vegna fá-
mennis í nágrenninu og annarra
ytri skilyrða“.
„Rannsóknir sem þessar“,
hélt de Villepin áfram, „eru ein
göngu gerðar á vegum Frakka,
þ.e. ekki annarra þjóða, og geta
að sjálfsögðu komið að marg-
víslegum notum. Gagnsemi
þeirra kemur vitaskuld ekki í
Frarnh. á bls. 6.