Vísir - 13.01.1965, Side 6
6
V1SIR . MiSvikudagur 13. janúar 1965.
Mól í landhelgisbrotum
dragost enn á Innginn
Bæði landhelgismálin, hins
brezka og íslenzka skipstjóra
eru enn f rannsókn. Var í gær
unnið að því að setja staðsetn-
ingu togaranna sem nákvæmast
út og mæla radartæki og fleira
sem því kemur við. Átti að
leggja skýrslu um þessi atriði
fram í málum beggja togaranna
kl. eitt eftir hádegi 1 dag.
Skipstjórinn, Robert John
Hutcheon. á brezka togaranum
Robert Hewitt neitar ákæru og
telur að staðsetning á skipi
hans hafi ekki verið rétt hann
hafi ekki verið að veiðum inn-
an landhelgi.
fslenzki skipstjórinn, Pétur
Þorbjörnsson á Bæjarútgerðar-
togaranum Pétri • Halldórssyni
mótmælir hins vegar ekki þeirri
staðsetningu, sem gerð var á
skipi hans, né heldur að hann
hafi verið að veiðum. En hann
telur hins vegar að á þessum
stað sé íslenzkum togurum
heimilt að veiða samkvæmt
þeim undanþágum, sem þeir
fengu á sínum tíma.
Yfirheyrslur yfir brezka skip
stjóranum stóðu lengi í gær-
kvöldi eða hálfa klukkustund
fram yfir miðnætti. Ómögulegt
er að segja hvort hægt verður
að gera út um málin eða kveða
upp dóma í dag eða ekki. Lik
legt að hægt verði að ljúka
öðru málinu.
Louis —
Múrarar —
Framh aí bls. 1
Enga múrara var hægt að fá frá
Danmörku vegna mikillar atvinnu
þar en múrarar frá vesturströnd
Noregs, Björgvin. Þrándheimi og
Stafangri voru fáanlegir til starfa
hér.
Meistararnir, sem réðu þá í
vinnu greiddu fyrir þá fargjöldin
fram og til baka og sömdu við
þá um þriggja mánaða lágmarks
tíma í starfinu. Margir þessara
múrara hafa reynzt vel, aðrir sæmi
lega og nokkrir miður, eins og
gengur og gerist. Þeir vinna eftir
sömu kjörum og fslenzkir múrarar
eru aukafélagar í Múrarafélaginu,
og Gjaldheimtan lætur halda eftir
hluta af launum þeirra upp í
skatta. Reiknað er með, að flestir
þeirra verði hér lengur en þrjá
mánuðina, sem fyrst var samið um
Framh at bls 1*
Vísir spurði Ólaf Erlendsson
að þessu. Hann kvaðst sem allra
minnst vilja um þetta segja á
þessu stigi málsins og að sem
minnst væri um það skrifað f
blöðin. Hins vegar staðfesti
hann að nú væri úrslita að
vænta, byggíst hann við bréfi
frá Ameríku i dag um það, hvort
af þessu yrði.
Hugmynd Víkings með þessu
er sú, að leita nýrra leiða í fjár
söfnunarskyni, þar sem flestar
eldri og alvanalegar leiðir væru
að verða uppþornaðar. En með
því að fá hingað svo heimsfræg
an og viðurkenndan listamann
og Louis Armstrong mætti
vænta mikillar aðsóknar.
Samningarnir um þetta eru
komnir á síðasta stig. hefur
meira að segja verið greidd til
fulltrúa Armstrongs viss trygg
ingarupphæð, en Louis Arm-
strong er ekki enn bundinn af
samningi. Bréfið sem væntanlegt
er í dag sker úr um það.
Reykingor —
Framh. aí bls 16
aukning. Neftókbakssalan, sem hef
ur staöi& v íunstáð,
minokfiQt
350 kfló. ; ' ” ,v. .
Ef tekin er samari sígarettusala
þriggja síðustu mánaða ársins, sést,
að hún hefur numið um 54,5 mill-
jónum stykkja, en sömu mánuði
árið 1963 losaði salan 55 milljónir
stykkja, svo um rúmlega 1%
minnkun hefur verið að ræða. Með
sama áframhaldi virðist það ætla
að taka ár frá því að skýrslan
birtist og þangað til hún fellur end-
anlega í gley .sku.
Menntamálaráðherrafundur -
Frh. af bls. 7.
þriðja hvert ár. Væntanlega verða
verðlaunin veitt í fyrsta sinn í
febrúarmánuði 1965 hér í Reykja-
vík í sambandi við fund Norður-
landaráðs. Við verðlaunaveitingu
koma einungis til greina tónverk
eftir núlifandi tónskáld. Mennta-
málaráðuneytin á Norðurlöndum
skipa hvert um sig til þriggja
ára í senn 2 menn í dómnefnd
um tónverkin, svo og einn vara-
mann. Af íslands hálfu hafa verið
skipaðir i nefndina Árni Krist-
jánsson, tónlistarstjóri Ríkisúút-
varpsins, og Páll Kr. Pálsson, org-
anleikari í Hafnarfirði, en vara-
maður er dr. Robert A. Ottós-
son, söngmálastjóri þjóðkirkjunn.
ar.
Á menntamálaráðherrafundin-
um var rætt um samræmingu á
skólakerfi Norðurlanda. Hafði
menntamálaráðherra Noregs,
Helge Sivertsen, hreyft því á
fundi Norðurlandaráðsins í Stokk
hólmi í fyrra, að stefna bæri að
samræming skólakerfa Norður-
landa. Ættu Norðurlandaþjóðir
svo margt sameiginlegt á sviði
menningar ála, að samræming
skólakerfanna myndi framkvæm-
anleg enda miðaði þróuninni i
átt til samræmingar, einkum á
skyldufræðslustiginu. Siðar báru
fjórir fulltrúar á fundi Norður-
landaráðs, Finni, Norðmaður og
tveir Svíar, fram tillögu um sam-
ræmt skólakerfi. Á menntamála-
ráðherrafundinum var málið rætt
allítarlega og mun það koma fyrir
fund Norðurlandaráðs í Reykja-
vík.
Þá samþykkti ráðherrafundur-
inn eð efna til sýninga annað
hvert ár á verkum ungra mynd-
listarmanna á Norðurlöndum. i
Skulu sýningar þessar verða til
skiptis í löndunum, hin fyrsta í
Kaupmannahöfn árið 1966. Gert
er ráð fyrir að sýnendur verði
allt að 5 frá hverju landi, hver
með allt að fimm verk. Sérstök
nefnd í hverju landi um sig velji
verk til sýningar en sameiginleg
dómnefnd fjalli um verðlaunaveit-
ingar. Verður nánar kveðið á um
einstök atriði síðar.
Fleiri mál voru tii meðferðar
svo sem málefni, sem Norræna
menningarmálanefndin hafði haft
til athugunar, þ.á.m. háskóla-
kennsla og rannsókriir á Norður
löndum í Afrfku- og Asíufræð-
um, norrænt samstarf á sviði haf
fræði, skiptiferðir nemenda milli
norrænna skóla og aukinn stuðn-
ingur við Norræna listbandalagið.
Menntamálaráðuneytið,
11. janúar 1965.
B. Th.
Thor Thors —-
Framhald aí bls. 1
Kæri herra forseti
Það olli mér mikilli sorg að
frétta um andlát virðulegs
ambassadors yðar í Washington,
Thors Thors.
Ég flyt yður innilegar sam-
úðarkveðjur mínar og rikisstjórn
ar minnar vegna þess missis,
sem bæði lönd okkar hafa orðið
fyrir vegna þessa ótímabæra frá
falls ambassadorsins.
Yðar einlægur
Lyndon B Johnson.
Samúðarkveðja frá utanríkis.
ráðherra Bandaríkjanna.
Utanríkisráðherra barst i gær
svohljóðandi skeyti frá utanríkis
ráðherra Bandaríkjanna, Dean
Rusk.
„Það olli mér mikilli sorg að
frétta um andlát Thors Thors
ambassadors. Hann hafði frá-
bæra eðliskosti sem maður og
embættismaður og átti mikinn
þátt í því að styrkja hið vin-
samlega samband landa vorra.
Færi ég yður á þessari sorgar-
stund persónulegar samúðar
kveðjur mínar og samstarfs-
manna minna í utanríkisráðu-
neytinu.
Yðar einlægur
Dean Rusk".
Kveðja frá U Thant.
Þá hefir aðalritari Sameinuðu
þjóðanna U Thant sent samúðar
kveðjur til frú Ágústu Thors,
ekkju hins látna, og til utanrfkis
ráðherra Guðmundar í Guð-
mundssonar í skeytinu til frú
Ágústu segir U Thant:
„Mér til mikillar sorgar hefi
ég frétt um lát eiginmanns yðar
og sendi yður mínar innilegustu
samúðarkveðjur. Allir samstarfs
menn hans hjá Sameinuðu þjóð
unum sem þekktu hann og dáðu
í löngu og merku starfi hans
sem fulltrúa íslands, munu djúpt
sakna hans“.
í símskeyti til Guðmundar í.
Guðmundssonar segir U Thant
að hann harmi lát Thors Thors.
„Sem aðalfulltrúi fslands hjá
Sameinuðu þjóðunum þjónaði
hann ekki aðeins landi sínu með
mikilli prýði um margra ára
skeið, heldur lagði hann einnig
af mörkum mikilsvert starf á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Vildi ég biðja yður aðfærameð-
ráðherrum yðar mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur".
Síldin —
Framhald af bls. 1
Hafþór
Hafþór byrjar nú sfldarleit og
þreifar fyrst fyrir sér út af suð
suðfjörðunum á Austfjörðum
og leitar einnig fyrir sunnan
land síðan að likindum. Annars
munu bátar sem voru að veið
um úti fyrir Austfjörðum og
nýlega leituðu suður fyrir,
land aðallega hafa farið vegna
þrálátrar norðanáttar á miðun
um út af Austfjörðum, en ekki
vegna síldarleysis. Tveir bátar
lóðuðu þar 1 talsverða sfld
í gær, en gátu ekki kastað
vegna veðurs.
Jakob Jakobsson kvað von
um, að Hafþór yrði við sfldar-
leit áfram. Skipstjóri er Jón
Einai son, sem annazt hefur
síldarleitina á undangengnum
tíma.
Þess má geta, að Hafþór er
nú eða síðan laust fyrir ára-
mót í eigu Seðlabankans.
Landað.
Þórður Jónasson landaði hér
í gær 1500 tn. sem að ofan seg
ir og lét svo úr höfn aftur og
fór austur á miðin. Einn bát-
ur landaði í Þorlákshöfn og 2-3
bátar munu hafa landað í ver
stöðvum suðvestanlands.
Ríklsútgófa námsbóka
hefur gefið út skriftarbók
Ríkisútgáfa námsbóka hefur ný-
lega gefið út Skriftarbók eftir Frið
björn Benónísson kennara Bók
þessi, sem er einkum ætluð ungl-
inga- og gagnfræðaskólum, er 48
bls. í stóru broti. í bókinni eru all
margar teikningar eftir Halldór
Pétursson listmálara. — Prentun
annaðist Litbrá hf. í greinargerð
um bókina segir höfundur m. a.:
Verkefni þau, sem birtast i þessari
skriftarbók, eru nokkuð mismun-
andi að formi og gerð. í fyrsta lagi
eru skrifuð verkefni, þá verkefni
með svonefndri blokkskrift, enn-
fremur verkefni til að æfa hreyfing
ar og glöggva sig á formum og hlut
föllum skriftar, og loks eru prent
uð verkefni.
Gert er ráð fyrir, að nemendur og
kennarar geti notfásrt sér bókina á
sem frjálslegastan hátt, hver eftir
sínum sérstöku þörfum. Nemend-
um er ekki ætlað að skrifa hugs-
unarlaust eftir fyrirmyndinni. Al-
mennt takmark skriftarkennslunnar
er liðleg, greinileg og persónuleg
rithönd. Því verður bezt náð með
frjálslegu samstarfi nemenda og
kennara á hverjum stað. Því má
ekki gleyma, að skriftarkunnátta er
ekki náðargjöf, heldur árangur af
námi og erfiði, en góður skrifari
stendur betur að vígi gagnvart
ýmsu námi og starfi en lélegur
skrifari.
Sjómaans
saknað
Ungs sjómanns úr Reykjavík er
saknað og hefur rannsóknarlög-
reglan Iýst eftir honum.
Um ferðir þessa unga manns er
ekki vitað af hans nánustu á aðra
viku. Maðurinn heitlr Steinar
Ágústsson og það síðasta sem vit-
að er um hann, er að hann fór
heiman að frá föður sínum, Hverf-
isgötu 59, þriðjudaginn 5. janúar
síðastl.
Steinar er 28 ára að aldri, hann
er tæplega meðalmaður á hæð, en
áberandi þrekinn með mikið hár,
skolleitt. Hann hefur undanfarið
starfað sem matsveinn á togurum,
síðast á Agli Skallagrímssjmi, en
fór af honum fyrir jól og hefur
verið í landi síðan.
Ef einhver kynni að hafa orðið
var við Steinar eftir 5. jan. er sá
beðinn að gera rannsóknarlög-
reglunni aðvart
Allmargt manna
á skíðum
Allmargt manna var á skíð-
um uppi á Hellisheiði og í ná-
grenni borgarinnar um helgina,
en þó mun ekki margt manna
hafa dvalið £ skálum félag-
anna yfir helgina. Guðmundur
Jónasson, sem annast fólks-
flutninga í svo til alla skíða-
skálana, sagði að um eitt hundr
að manns hefði notfært sér
ferðir hans, en annars hefði
allmargt manna farið á einka-
bílum.
Blaðið hringdi upp í skíða-
skálann í Hveradölum í morg-
un og fékk þær upplýsingar að
þar væri nú sæmilegt skíðafæri
annars væri nokkuð mikið harð
fenni. Margt manna kom í
Athugasemd
Siökkviliðið í Reykjavík, sem
hefur jafnframt með sjúkraflutn-
inga að gera, hefur beðið Vísi að
geta þess að frásögn blaðsins um
tóman súrefniskút í sambandi við
sjúkraflug Björns Pálssonar sé á
misskilningi byggð.
Það rétta var að tvær sjúkra-
bifreiðir voru sendar út á flugvöll
sín með hvora súrefnisflöskuna í
öryggisskyni ef þrjóta kynni súr-
efnið úr annarri þeirra áður en
barriið kæmist í sjúkrahús.
Slökkviliðsmenn viljá jafnframt
róma frammistöðu konunnar, sem
fylgdi barninu til Reykjavíkur og
telja að hún hafi bjargað lífi
barnsins með blástursaðferðinni
eftir að súrefnið þraut í flugvél-
inni.
Þú hefur Vísi loks verið bent á
að hinn sjúklingurinn í umræddri
flugvél hafi ekki verið barn, eins
og Vísi hafðj upphaflega verið
sagt, heldur hafi þar verið um
fullorðinn mann að ræða. Hann
var svo sendur áfram daginn eftir
í flugvél til Khafnar og lagður þar
inn í sjúkrahús.
skíðaskálann i gær og nokkuð
margir notuðu tækifæri og tóku
þátt i norrænu skíðagöngunni.
Var þetta annar dagurinn sem
norræna skíðagangan hefur ver
ið gengin í Hveradölum, en
þar hefur verið lögð mjög góð
braut fyrir gönguna.
Færð er nú góð uppi á heiði
og einhvem næstu daga verða
brekkurnar í nágrenni skíða-
skálans upplýstar, en lyftan er
þegar komin í gang.
. Bílasala
Matfhíasar
Símar 24540 og 24541.
Mercedes Benz 189, 190 og 220
1955-1964.
Chevrolet Chewelle ’64 lítið ekinn
Ford Comet ’62 ’63 og ’64
góðir bílar.
Consul Cortina '62 og ’64 lítið
keyrðir.
Opel Rekord ’58-’64
Opel Caravan ’55-’64
Volvo station ’55, ’59 og ’62
Saab ’62, '63 ’64
Moskowitch ’57-’64
Volkswagen ’56-’64
Austin Gipsy ’62 ’63 benzin og
diesel bílar.
Land Rover ’61 ’62 ’63
Hillma,n Imp ’64 ókeyrður
Taunus 17 M ’62 ’63 ’64
Höfum einnig mikið úrval af vöru.
bifreiðum, sendiferðabifreiðum,
langferðabifreiðum og Dodge
Weaponum, allir árgangar.
iílasala
Matfhéasar
^WBBaamB^rá.