Vísir - 13.01.1965, Qupperneq 9
V 1 S I R . Miðvikudagur 13. janúar 1965.
9
Önnur hljómplata Flótta-
mannahjálpar SÞ
frábært listaverk í sinni röð
rir skömmu er komin út ný
hljómplata á vegum flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna. Er hún önnur í röðinni,
og útgáfu hennar hagað á sama
hátt og þeirrar fyrri — tónlist-
armennirnir hafa lagt fram ó-
keypis sinn mikilvæga skerf og
viðkomandi hljómplötufyrirtæki
og framleiðendur einnig, þann-
ig að andvirði rennur óskert til
ftóttamannahjálparinnar. Fyrri
hljómplötunni, þar sem nokkrir
af vinsælustu söngvurum núlif-
,\ndi sungu sína vinsælustu
söngva, var frábærlega vel tek-
ið. og nam ágóðinn af sölu
hennar 1,300,000 dollara, en því
fé var varið til margháttaðrar
aðstoðar við flóttafólk í Asíu,
Afríku, E.rópu og Latínsku
Ameríku. Eins og margan rek-
ur minnj t’il var sú hljómplata
seld hér á landi, og var svo vel
tekið að athygli vakti á erlend-
um vattvangi. Og ekki mun
þessari plötu verða síður tekið,
ef að líkum lætur
EINSTÆÐ HLJÓMPLATA.
Þó að allt væru það úrvals
listamenn á sínu sviði, sem iétu
til sín heyra á fyrri plötunni,
og söngvarnir, sem valdir voru
til flutnings, flestir löngu orðn-
ir sígildir fór ekki á milli mála
að miðað var við sem almenn-
astan smekk — og þá vitanlega
um leið við sem mesta sölu —
þó að hvergi værj slakað á. list-
rænustu ..öfum í sjálfu sér og
allur tæknilegur frágangur, eins
og hann getur beztur orðið. í
þetta skipti eru gerðar nokkuð
fyllri kröfur til tónlistarþroska
væntanlegra kaupenda, en val
flytjenda og viðfangsefna vand-
að eins og frekast er unnt —
sex frægustu píanósnillingar,
sem nú eru uppi, flytja þar
ýmis þau píanóverk meistar-
öðlazt og allir, sem unun hafa
öðlast og allir, sem unun hafa
af tónlist, kannast við. Eins og
áður er upptaka og skráning
og allur tæknilegur frágangur
sá vandaðasti, sem tök eru á.
Með tilliti til alls þessa, er það
sízt ofmælt að velja hljómplöt-
unn'i heitið „International piano
fesíival" — Alþjóðleg tónlistar-
hátíð, — því að þetta er í
sjálfu sér tónlistarviðburður, er
ekki á sinn líka, sem tónlistar-
unnendum um allan heim gefst
þama tækifæri til að njóta og
eignast. Ikun snillinga eins
og Claudio Arrau, Wilhelm
Backhaus, ' Alexander Brai-
lowsky, Robert Casadesus,
Byron Janis og Wilhelm I<empr<
á ýmsum fegurstu verkum Moz-.
arts, Schuberts, Schumanns,
Chopins. Beethovens • og ? Liszt
— á einni og sömu hljómplöt-
unni! Mun aldrei hafa verið
haldin sú alþjóðleg tónlistarhá-
tíð, að þessir snillingar hafi all-
ir komið þar fram, svo að jafn-
vel í þeim skilningi er þessi
hljómplata iíka einsdæmi.
☆
VAXANDI VIÐURKENNING
OG SKILNINGUR
Allir vita að snillingar á
hvaða sviði, sem um er að
ræða, eru. ekki nema mannlegir
í venjulegum skilningi, þó að
þeim sé gefin náðargáfa um-
fram aðra dauðlega. Þetta á
kannski ekki hvað sizt við um
frábæra listamenn. þeir eru
t.d. margir hverjir næstum
barnalega afbrýðisam’ir og þola
fátt verr en samanburð. í>að
lýsir því ef til vill betur en
nokkuð annað hvílkrar viður-
kenningar flóttamannahjálp
Sameinuðu þjóðanna nýtur nú
Umslag hl' .íplötunnar er hið
vandaðasta, með einkar smekk
Iegri forsíðu i litum, sem þvi
miður næst ekki á prentmynd.
Innan á forsíðunni er ávarp frá
hjálparinnar, jarlinum af Hare-
forstöðumönnum flóttamanna-
wood og Maitre ErnestAmser-
met, sem meðfylgjandi mynd
er af.
orðið og hve skilningurinn á
brýnni þörf hennar fer stöðugt
'’axandi. 5 er áreiðanlegt, að
ekkert annað málefni hefði get
að fengið þessa sex heimsfrægu
snillinga til þessarar samvinnu
vafalaust hefðu þeir, hver um
'% verið fúsir til að leika ó-
keypis hver inn á sína plötu,
en að leika allir inn á einu og
sömi plötuna, það horfir allt
öðru vísi við. Því að þó að allir
viti að samanburður á slíkum
snillingum hefur ekki við nein
sltynsamleg rök að styðjast,
vita allir — og ekki hvað sizt
þeir sjálfir — að hann er alltaf
til staðar eigi að síður. Það er
því hvorki óviðeigandi né ó-
tímabært að minnast dálítið
nánar á þá víðtæku og mikil-
vægu mannúðarstarfsemi, sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa
þarna með höndum — flótta-
mannahjálpina — einkum þar
sem það fyrirbæri er okkur
fjarlægt í þjóðfélagslegum
skilningi, þannig að v’ið þekkj-
um það — sein betur fer —
einungis fyrir afspurn. Hitt er
aftur á móti miður, þó að það
sé að vissu leyti ekki nema
eðlilegt, að við höfum ekki eins
nána eða greinagóða spum af
því og skyldi, þar sem þama er
um að ræða torleyst og sárt
vandamál, alþjóðlegt og ein-
staklingsbundið í senn, og
skilningsríka og fómfúsa al-
þjóðlega viðleitni til að ráða bót
á því, að svo miklu leyti, sem
það er unnt.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna er nú í höndum
tveggja stofnana, er starfa á
vegum þeirra — UNRWA
(United Nations Relief and
Works Agency for Palestlne
Refugies), sem komið var á fót
árið 1949 til aðstoðar Við þá
1,200,000 Araba, sem urðu
landflótta við átökin milli Ar-
aba og líins nýja Israelsríkis í
Palestínu 1948, og UNHCR
(United Nations High Comm-
issioner for Refugees), sem
sett var á stofn 1951, og tók
við hlutyerki Alþjóða flótta-
mannastofnunarinnar, sem þá
var lögð niður.
Þó að nú séu liðin full sextán
ár síðan Arabar þeir, sem áður
getur, flúðu Palestínu, fer þvi
fjarri að vandamál þeirra sé
leyst, því að enn er e’in milljón
þeirra á framfæri UNRWA, og
þar sem fjölgun þeirra fyrir
bamsfæðingar nemur 30,000
á ári, liggur við að vissu leyti
nær að segja að vandamál
þeirra verði stöðugt erfiðara
viðfangs. Auk þess að sjá þess-
um fjölda fyr’ir húsaskjóli og
lífsnauðsynjum er aðstoðin
einkum fólgin í margháttaðri
kenn; .. og starfsþjálfun, sem
geri fólki þessu smám saman
kleift að verða nýtir þegnar raeð
öðrum þjóðum og sjá þar fyrir
sér sjálft — en sú kennsla er
að miklu leyti kostuð með
frjálsum framlögum, víðsvegar
að. Og hluta af væntanlegum
ágóða af sölu fyrrnefndrar
hljómplötu verður meðal ann-
ars varið til þeirrar starfsem’i.
☆
ÍTÖÐUGT VANDAMAL
UNZ HVARVETNA
RÍKIR FRIÐUR
Það kann að láta undarlega
í okkar eyrum, en það er stað-
Auk þess sem birtar eru myndir í umslaginu af snillingunum sex,
ásamt upplýsingum um þá og verkin, sem þeir Icika, er þar greina-
góð frásögn af starfsemi flóttamannahjálparinnar, og þeim örðug-
Ieikum, sem hún á við að stríða. Einna sárast er með gamalt og
farlama fólk, sem stendur uppi allslaust og vegavillt og getur ekki
samhæfst framandlegum aðstæðum í nýju umhverfi.
reynd eigi að siður, að flótta-
mannavandamálið er ekki nema
að litlu leyti bein afleiðing síð-
ari heimsstyrjaldar, en t’il
hennar er okkur — og ekki að
ástæðulausu — tamast að rekja
flest það böl, sem samtíð okkar
á við að stríða. Svæðisbundin
hernaðarátök þjóðflokka og
kynþátta, sem við kunnum lítil
skil á nema sem óframberanleg-
um nöfnum, er valda þulum
hikj og stami við lestur út-
Vprpsfnétta,. ;g?tá(<teitt til þess'
áð þúsundir og jafnvel tugþús-
undir manna' vérði að flýja bað
land, slyppir og snauðir, sem
var aðsetur þeirra og forfeðra
þeirra frá ómunatíð, og eigi það
þá eingöngu undir aðstoð al-
þjóðlegr líknar- og mannúðar-
stofnana — og þá fyrst og
fremst UNHCR — hvort þeim
verður bjargað frá að farast úr
hungursneyð og sárustu þján-
ingum. Meira að segja svæðis-
bundin þjóðfélagsleg þróun,
sem teljast verður héillavæn-
leg og æskileg, eins og heimt
frelsis og sjálfstæðis, getur leitt
til þess að þjóðernislegur
minnihluti hljóti þessi illu ör-
lög. Það er því hverju orði
sannara, sem hinn mikli mann-
vinur og mannasættir, Dag
heitinn Hammarskjöld, mælti
undir lok Alþjóða flóttamanna-
Kinversk flót‘akona i Hong Kong.
ársins: ,,Skapist ekki aukinn
friður í heiminum, verður flótta
mannavandamálið ekki heldur
leyst“.
Þannig leitast UNHCR nú við
að draga úr neyð og vanda
flóttamanna í Afríku, sem
skipta hundruðum þúsunda;
kínverskra flóttamanna í Hong
Kong og Macao, tibetskra
flóttamanna í Nepal og Indlandi
og loks kúbanskra flóttamanna
i hinum latínsku ríkjum Ame-
ríku, svo að dæmi séu nefnd.
Neyð þessa fólks er yfirieitt
mikil, og það gefur auga leið
að það þarf ógrynni fjár þó að
ekki sé nema til þess að draga
úr sárustu þjáningum þess. Má
á það benda sem dæmi, að fé
það sem varið var til aðstoðar
evrópsku flóttafólki eingöngu,
sem missti þegnrétt og heimili
vegna heimsstyrjaldarinnar síð-
ari, nam 94 milljónum dollara,
en tæpur helmingur þeirrar
upphæðar var látinn í té af
UNHCR. Það vandamál má nú
heita úr sögunn'i, sem betur
fer, og er nóg samt.
Já, það er nóg samt, því að
þúsundir allslausra flótta-
manna, af ýmsu þjóðerni, bæt-
ast daglega í þann bágstadda
hóp.
Það er því ekki eingöngu, að
þeir sem kaupa þessa nýju
hljómplötu flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna skapi með
því sjálfum sér marga ánægju-
stund með þvi að hlýða frá-
bærr; túlkun hinna heimsfrægu
sexmenninga á fegurstu tón-
verkum meistaranna gömlu, sem
allur hinn siðmenntaði heimur
dáir enn i dag — heldur leggja
þeir um leið fram sinn skerf til
þess að draga úr sárustu neyð
þeirra, er orðið hafa fyrir
þeirrj þyngstu ógæfu, sem
hugsazt getur. Flóttafólksins,
sem misst hefur allt sitt í fyllsta
skilningi þeirra dapurlegu orða.
*g-
í
l'