Vísir - 02.11.1966, Page 7

Vísir - 02.11.1966, Page 7
7 V f S IR . MiSvihudagur 2. nóv::::bsr I93S. „HVAÐ NÖ UNGI MAÐUR? Unga fólkið í atvinnulífinu á sumrin menningar. Ég- dreg ekki í efa, aö sú er skoðun þeirra manna, er þar láta til sín heyra, en þungi þess valds, sem gullinu ræður, beinist oft í aðra átt. I dag standa málin þannig, að hvergi er erfiðara að fá hvert rúm fullskipað, svo vel sé, en í skólana. Menn fást ekki til kennslu, þar sem önnur og auð- veldari störf, betur lau.mö, eru í boði. Það mun jafnvel mega finna dæmi þess í sumum skól- um, aö mjög er dregið úr lögboð inni kennslu eða hún felld nið- ur. Skortur á skólahúsnæði er orðinn svo tilfinnanlegur, að stór hópur af ungu fólki, sem gjarnan vill afla sér menntunar, á þess engan kost sökum þess, að þaö fær hvergi inni. Víst skal þaö viðurkennt, að ört fjölgandi m. k. sjoppunum, en þar er engu síöur um fjármagn að ræöa, er hagnýta hefði mátt á annan og þjóðhollari hátt. Ég minntist áðan á sjónvarps- stengur, sem á undanförnum ár- um hafa verið augnayndi Suður- nesjamanna. Ekki skal ég draga úr gildi sjónvarps, sem fjöl- miðlunartækis, en þó efa ég,' að þjóðmenning íslendinga hafi miklum framförum tekið fyrir áhrif þeirra svipmynda, sem birzt hafa þar síðustu árin. Hvort hyggjast þeir menningar- vitar, sem heitast hafa beöið, að frá oss yrði ekki tekin þessi menntunarlind, harlsa sér starfs vettváng áI sögusVÍði Snorra? Þrátt fvrir okkar tiltölulega unga skólnkerfi, erum viö í mörgu tilliti á eftir okkar ná- grannaþjóöum. Þó má segja, að . og unga fólkið í skólunum á veturna. baka um gengna götu og fram til þess, sem koma skal, svo langt, sem séð verður eða af líkum ráðið. Nú er swmar að baki, vetur setztur að völdum og sú starf- semi, sem bundin er þeirri árs- tíð öðrum fremur, þegar hafin. Sé litiö um öxl, til hins liðna sumars, verða það sjálfsagt verztanarhaHir, skipabyggingar, álsamningar og iöjuver, sem hæst gnætfa, að ógieymdu hinu óvenjulega mikla síldarmagni, er á landi hefur borizt. Mun hér eflaust vera talið, að -um sé að ræða undirstööu velmegunar í velferöarríki og af því megi sjá hve háþrówð menningarþjóð byggi þetta litla eyland yzt í norðurhafi. Á flestum húsþök- um um gjörvaftan suðvestur- hluta landsins, má einoig sjá þess merki, að fólkið hefur átt þess kost að- kíkja inn í fram- andi hugarheima og kynnast þeirri andlegu reisn, sem ríkir í sjónvarpsstöö edendrar her- stöðyar á Miönesheiði. Flest þessi lífsins gæði eru ávextír af iðju þess fólks, sem sækÍD út til miða, erjar land til akurs og vekur þroskaviðleitni þeirra, er aö fcamförunum standa. Hitt orkar svo tvímælis, hvort þeir, sem fjármagnið skapa, hafa jnest um ráöstöfun þess að segja. Þar koma ýmsir aðrir til, og vill þá stundum verða svo, að hinn óþektki her- maður, sem þar stóð í fremstu víglínu og gait jafnvel iheð lífi sínu öflun verðmætanna, er gleymdur þegar gullið er eytt. Nú hafa staðið yfir, og standa ennþá, hryðjuveður baráttunnar um þaö, hvernig skipta skuli þeim afla, sem rekur á fjöru þjóöarbúsins, en um þau skipti eru ekki allir sammála og vill hver gera sinn hlut sem stærst- an. Ekki get ég gert það að minni trúarjátningu, að klippa skuli öil tré svo þau verði jafnhá, sýnist mér sem það mundi brot á því lögmáli náttúrunnar, að möguleikar tengdir kynlægum erfðum njóti eðlilegs þroska til aukinnar þjóðmenningar. Gömul helgisögn getur þess, að þegar þjóð var skilin for- ystulítil eftir í eyöimörkinni, þá var henni reistur gullkálfur, sem hún gerði að átrúnaði sínum og dansaöi umhverfis. í þessum dansi glataði hún ýmsum þeim eigindum, sem áttu að auðvelda henni leiöina til fyrirheitna landsins. í dag er okkur sagt, að Islend ingar eigi mikið gull, og sumir hafi þegar reist sér kálf, sem auðvelt sé að fá fólk til að dansa í kringum. „En hvað nú ungi maöur“? Nú hefur æskan, framtíöarvon I'slands, setzt á skólabekk. Til- gangur þeirrar vetrarvistar er á pappírnum talinn sá, að þetta fólk skuli betur til þess fallið að leysa af hendi verkefni fram- tíðarinnar, en þeir sem nú eru á ferð. Veröi góðir íslenzkir þegnar, sem víösýnir og virtir, geta haft vinsamleg samskipti við allar þjóðir og boðið bróður- legt handtak hverjum frjálst hugsandi manni. En hver skilyrði hefur sú kynslóð, sem ríkjum ræöur í dag boðið ungu fólki til athafna á þessu sviði? Hefur ekki ljómi gulls og gróðahyggju villt um vegi? Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hvað sem öllu skráöu gengi á vinnumarkaði líður, þá er það f mörgum til- fellum auðveldari leið til fjáröfl- unar að mylja grjót í götu, en stunda nám eða gerast leiðbein- andi ungs fólks innan skóla- veggja. ' Margir unglingar hafa til þess tækifæri, að afla sér tekna, yfir sumarmánúðina, sem eru mun hærri en árslaun þeirra rnanna, er vetrarlangt eiga aö greiða þeim götu í þekkingarieitinni. En hér sitja ekki allir þeir ungu viö sama borð. Ýmsum hefur oröið full erfitt að afla þess, sem þarf fyrir brýnustu lífsnauðsynjum líðandi stundar. Og nú sitja þeir í sama bekk, pilturinn, sem kom af síldinni meö tvö hundruð þúsund króna hýru og hinn, er hafði fjörutíu þúsund í vegavinnunni. Verður auðyelt að samrýma sjónarmið og lífshætti þessara manna þannig, að skólagangan verði báðum sami vegur? Ég er ekki að átelja það, þótt ungir menn og konur vinni vel og afli sér fjár eftir því sem tækifæri gefast, en hitt tel ég vítavert, að foreldrar ungling- anna, skuli svo að segja ó- hindrað, láta þá hafa umráð yf- ir eyðslu slíkra fjármuna. Er hér ekki verið að skapa gull- kálf, sem þeir féiagar, er ennþá hafa ekki lokið sinni eyðimerk- urgöngu eru fúsir að dansa kringum. Og það mega allir, sem hlut eiga að máli gera sér Ijóst, að sá sem reist hefur höll til hagnýtingar vinnuafrakstri þessa fólks, er síður en svo mót- fallinn því, að sem mest hrjóti að hans borði. I ræöu og riti er mjög á orði haft, hver nauðsyn ungu fólki sé, að fá tækifæri til menntun- ar. I hátíðaræðum er því jafn- an haldið fram af forystumönn- um þjóðarinnar, að gott heimili og góöur skóli séu undirstaða heilbrigðrar og batnandi þjóð- þjóö, sem búið hefur við frum- stæö skilvrði og allt þarf að byggja frá grunni á fáum árum, hlýtur að taka nærri sér og í sumum tilfellum verða að flýta sér hægt, ef hún ekki á að koll- sigla sig. En sé það viðurkennt, sem raunhæf sannindi, að skóla starf í landinu sé undirstaða meiri menningar og skapi kom- andi kynslóö betri framtíð, verður að líta svo á, að þau mál verði aö vera efst á dagskrá á hverjum tíma. Þetta virðist þó talsvert á annan veg. I mörgum þeim hér- uöum, sem eru það illa stödd með húsnæöi fyrir starfsemi skólans, að ungt áhugafólk fær hvergi inni, eru reist danshús fyrir milljónatugi og „sjoppur" á flestum krossgötum. Að vfsu munu einstaklingar standa að ýmsum þessum framkvæmdum í þessu efni vitum við tæpast til fulls hvað við erum að segja, því ennþá er þetta kerfi ekki fullmótað og hefur í mörgum héruðum aldrei komið til fram- kvæmda. Hitt er annað mál, aö kennslufyrirkomulag og kennslu hættir eru án efa fjarri því að svara kröfum tímans. I mörgum tilfellum er kennarinn ennþá „heyrari“ hins gamla tíma, sem prófar og aftur prófar, án þess að leiðbeina og miöla þekk- ingu, sem hlýtur þó fyrst og fremst að eiga að vera uppistaða starfsins. Hitt er svo nemand- ans, að tileinka sér þá þekkingu sem honum er flutt. Nú er skólakerfið í gagngerðri endurskoðun og er þess aö vænta, að þar verði vel og mann bætandi að unnið. Þá kem ég aftur að efninu: Skólaæskan og fjármálin. Ég tel mig geta talað um þetta af nokkurri reynslu eftir að hafa starfað meðal barna og unglinga á skyldunámsstigi í hálfan fjórða áratug. Qg ég leyfi mér að halda fram þeirri skoöun minni, að hér sé um að ræða eitt örlagaríkasta vandamálið í lífi skólaæskunnar í dag. Mál, sem hún er ekki fær um að leysa án þess þeir eldri komi þar til. í löndum, þar sem skólatím- inn er mun lengri en hér, eru þessi mál ekki erfitt viðfangs- efni, þar er litið á skólastarfið sem þjóðnýta vinnu ,og ríkið greiðir hóflegan styrk, þeim sem þar ganga til starfa. Sumarleyf- ið er hvíldar og leiktimi glaðrar æsku, sem ekki hefur alltof mikil fjárráð til hóflítilla lífs- hátta. Sjálfsagt gerast alls stað- ar einhver „Þjórsárdalsævin- týri“, en þau eru að mínu viti enginn Salómonsdómur um framferði æskunnar almennt. Ekki eiga unglingarnir bifreið- irnar, sem aka þeim á ákvörö- unarstað. Ekki eru þeir sölu- menn þeirra stofnana, sem föng- in leggja til. Öllu alvarlegra tei ég, þegar stór hópur, af ungu vel gerðu fólki, slær slöku við starf sitt í skóla, sökum þess, að því finnst það eiga rétt á aö njóta þess munapar, sem mikill fjár- afli getur veitt. Þaö var ekki óalgengt áður, aö 1 ungir námfúsir piltar grétu við gráa mosaþúfu, fátækt sína og gæfulevsi, þegar leiðin til náms var þeim lokuð. Þetta er rauna- sagp, sem nú er tæpast þekkt. — En, hvort er minna átakanleg sú saga dagsins í dag, að hið gullna tækifæri til náms og frama rennur út í sandinn. Hinn stóri vinningur sumarsins lenti hjá gróðamanninum, sem gerði sér munaðargirnina að féþúfu. Glataö ár. — Mun gæfuleysið minna, þótt grátið sé í gylltum sal en við gráa mosaþúfu? Væri eHki rétt að gera nokkra athugun á því, að lengja árleg- an starfstíma framhaldsskól- anna, styrkja þegar í upphafi það fólk, sem þá leið vill fara og jafnframt fækka árunum að settu marki. Ég hygg, að sjónarmiðin yrðu þá samrýmanlegri, stefnufestan meiri og markvissari barátta ungra manna og kvenna til auk- ins frama í þjóðnýtu starfi. Gullkálfurinn yrði þá ekki guo fólksins í landinu, en þegnskap- ur þjóðhollra manan grunntónn inn f hljómkviðu íslenzkra lífs- hátta. þ. m. r HC' .

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.