Vísir - 28.02.1968, Síða 4
á !;•
Það fór framhjá fleirum en okk
ur, því að jafnvel Rússar sjálfir
veittu því ekki eftirtekt, þótt þeir
gætu séð það á almannakinu
sínu, að Alexei Kosygin, forsæt-
isráðherra, varð 64 ára gamall í
síðustu viku. Smáum stöfum
stendur prentað á rússneska al-
manakinu, að „A. N. Kosygin"
hafi fæðzt 21. febr. Annars gera
Rússar ekki mikið úr afmælum
stórhöfðingja sinna, nema merk-
isafmælum, eins og sextugs-,
fimmtugs- og sjötugsafmælum.
Brigitte og Gunther í veizlunni hjá Gancia,
Bardot og maður hennar sameinuð í St. Moritz
Brigitte í tízkufötum
ársins 2000.
Síöustu efasemdirnar um hjóna
band þeirra Bardot og Gunther
Sachs hafa nú eyðzt, þegar frétt-
ist, aö þau hjónin væru sameinuð
í St. Moritz — skíðabænum hjá
Geneva-vatni. f ‘ ‘
Þangað hraöaði hún sér á fund
hans, strax og annir hennar i
kvikmyndaverinu leyföu, en sá
tími er nú upp runninn, þegar
allir, sem vettlingi geta valdiö
(eiga meira en 20 millj.), leggja
leiö sína til St. Moritz.
Gunther Sachs er meðal þess-
ara milljónamæringa, sem bregöa
sér éins oft á skíöi og nokkur
kostur er til. Hann þykir mjög
leikinn í íþróttinni og er meira
að segja líkt viö Jean-Claude
Killv þann, sem vann þreföld
verðlaun á síðustu vetrarolympíu
leikjum, hvað viðvíkur dirfsku og
fimi í brekkunum.
Loftiö i Alpafjöllunum er svo
tært. Fjöllin eru svo brött og
„kampavínið er svo dýrt“, bæta
gárungamir við, þegar rætt er
um, hvaö dragi þetta fræga fólk
til St. Moritz.
Hvað, sem því líður, þá var
það Gunther Sachs sem dró Bri-
gitte Bárdot þángkö, því hún „fór.
bara til þess að vera hjá honum",
eftir því, sem hún sagði sjálf. Þar
á hann sjálfur sinn eigin heim
og sinn kunningjahóp, en hún var
strax tekin í hópinn.
Það fór ekki á milli mála, að
það var ástúðlegt meö þeim hjón
um og komst varla hnífurinn á
milli þeirra, það aðrir sáu til, þeg
ar þau birtust saman í samkvæmi
hjá vini Gunthers, Roberto
Gancia ítölskum vínframleiöanda.
Hún hékk utan á honum, hvert
sem hann fór. Þótt hann brygði
sér aðeins í símann, fylgdi hún
honum og sást þá,— þótt hún
héldi sjálf, að enginn sæi til —
strjúka honum ástúðlega.
Einhver úr hópnum taldi sig
svo kunnugan hjónunum, að hann
þorði að spyrja, hvað hæft væri
í þessu slúðri um skilnað þeirra,
Gunther svaraði stuttlega:
„Það verður enginn skiinaður.
— Brigitte hefur verið önnum
kafin við kvikmyndina og hún
kom hingáð eiris fljótt og hún gat,
til þess að vera hjá mér.“
Fjölmennt
Þessi tími er hábjargræðistími
þeirra St. Moritz-búa, því nú er
ferðamannastraumurinn þangað
mestur og fæst af gesj:um staðar-
ins fátæklingar. Á fyrsta degi sín
um í svissnesku Ölpunum fóru
þau hjón í Corviglia-klúbbinn —
einhvern dýrasta klúbb staðarins
— og þar hittu þau keisarahjón-
in persneskú. Keisarinn getur vel
stundað skíöaíþróttina í fjöllun-
um ofan við Teheran, en árlega
flýr hann til St. Moritz.
Meðal annarra, sem sóttu veizl
Gancia hins . ítalska, vorú Ira
Furstenburg prinsessa og faðir
hennar Tazilo prins, en í fylgd
Hún vann að kvikmyndagerð á
Spáni ásamt Sean Connery og
Stephen Boyd. Myndin heitir Al-
meria og á að gerast í Villta
vestrinu, en er tekin þar syðra
af spamaðarástæðum.
í St. Moritz
með prinsessunni er vinur Paolo
Marinotti greifi.
í St. Moritz er einnig Stavros
Niarchos, skipakóngurinn og auð
kýfingurinn gríski, sem eitt sinn
var kvæntur Ford-milljónaerfingj
anum, og fleiri Grikkir eru þarna
saman komnir. George Livanos,
einn auöugasti maður heims, er
þar meö hinni ungu konu, Litu,
og litlu barni þeirra hjóna. Þeirra
gestir eru Tina systir Onassis og
nýji eiginmaður hennar, mark-
greifinn af Blanford. en hann er
erfingi erkihertogans af Marl-
borough.
Aðsent bréf.
Oft er ritað og rætt um þjóð
arbölið mesta, og er þá átt við
áfengismálin, sem allir eru
sammála um að séu í hinu
mesta ófremdarástandi. Fjöldi
manna og kvenna verða á ári
hverju áfenginu að bráð, þann-
ig að þetta fólk sljóvgast af
langvarandi áfengisneyzlu, kast
ar að lokum frá sér atvinnu og
loks öryggi heimilislífsins. Er
einungis hægt að bjarga svo
langt leiddu fólki með hæfilegri
hælis- eða sjukravlst.
Það er athyglisvert hversu
lítil aðstaða er hérlendis til að
koma á móts við áfengissjúkl-
inga hér á landi og erfitt um
vik, að koma slíku fólki á við-
unanúi sjúkrahús eða hæli. Ein
stöku sinnum mun vera hægt
að koma áfengissjúklingi á
Kleppsspítalann, en eina hælið
til að vista áfengissiúklinga ein-
göngu mun vera Fiókadeildin,
sem svo er kölluð, og er nú
deild frá Kieppsspítalanum. En
i heyrzt hefur, að sú aöstaða sé
engan veginn nógu góð, og þeir
sem bar eru vistaðir séu oft á
tíðum skrifaðir út of fljótt,
vegna þess hve aðkallandi er
oft að koma öðrum sjúklingum
að. Ennfremur er starfsfólk ekki
nægilegt til að veita viðunandi
aðhald að vistfólk, svo lækn-
ing kemur ekki alltaf að gagni,
vegna þess að tök eru jafnvel
að ná sér í vín á meðan á út-
göngunni stendur. Allir sjá að
slíkt er ófært, ef árangur á að
nást.
Þcgar tekið er tillit til þess,
hversu ýmis líknarsamtök fá á-
orkað á því sviði, sem þau hafa
haslað sér völl á, þá er í raun
inni undravert, hvað lítið iiggur
eftir bindindismenn til hjálpar
drykkjusjúklingum. Má benda á
stórátök í iíknarmáium, svo sem
slysavarnarmálum, berklavarn-
armálum, hiarta- og æöavernd-
armálum og síðast en ekki sízt
krabbameinsrannsóknum. Geta
ekki baráttumenn gegn drykkju
skap stuðlaö að sambærilegu
stórátaki í áfengismálum. Ef
ekki, bá er orðin brýn nauðsyn
á að ríkisvaldið geri stórátak
til hjálpar drykkjusjúku fólki,
og ennfremur er nauðsynlegt að
afla aðstöðu fyrir fólk, sem ekki
er orðið algjörir „alkóhólistar"
en þarf læknisaðstoð. Það sem
vantar er aöstaða fyrir fólk á
mismunandi drykkjustigi, þann
ig að bví verði komið til hjálp
ar, áður en það er orðið of
seint.
Sá hópur, sem giatað hefur at
vinnu, og eyðilagt heimilislíf
sitt og síns nánasta venzla-
fólks er ailtof stór. og ef nokk-
ur leið væri að henda reiður á
alla þá vinnudaga, sem giatast
vegna drykkjuskapar, þá mundi
•
flesta reka í rogastanz. •
Það sem hér er skrifað um »
þessi mál, eru ekki nein ný sann •
indi, en á þessum málum er •
tekið með sinnuleysi, vegna þess *
hve iengi við höfum búið við •
bölið. En kunnugir teija að á- •
standið fari hraðversnandi þrátt J
fyrir strangar hömlur á neyzlu •
áfengra drykkja, og þrátt fyrir •
bjórbann. Það sem kannski J
mestrar athygli væri vert, er að •
áfengisneyzla unglinga er geig J
vænleg, brátt fyrir það, að sam •
kvæmt lögum á fóik undir 21 •
árs aldri ekki að geta fengið J
keypta áfenga drykki. *
Áfengisvandamáiin eru kannski J
þau vandamál okkar, sem einna •
brýnast er nú að ráða fram úr •
eða finna einhverja bót á. Vinda J
þarf bráðan bug að því ,að skor •
in verði upp herör gegn áfeng- *
isbölinu, með öðru sn orðum J
einum. •
Þrándur í Götu. •