Vísir - 23.12.1968, Qupperneq 9

Vísir - 23.12.1968, Qupperneq 9
V í SIR . Mánudagur 23. desember 1988. \ Svo skal dansim iuaa Uflit jókflundirbúning — jólngleði — hjótrú og fleira Stígum fastara á. fjöl spörum ekki skó, ráði guð, hvar við lendum önnur jól. ■ Pað er gömul saga og ekki ný, að mörgum þyki nóg um allt umstang við jólahaldið. Menn hafa frá örófi alda gert sér dagamun um þennan tíma og hefur þá jafnan leikið á ýmsu, svo sem þessi vísa úr gömlu þjóðkvæði gefur til kynna. ■ Þeim, sem búa hér norður á hjara veraldar, er vorkunn öðrum fremur, þótt þeir geri sér ærlega dagamun um jólin, stytti sér langar skammdegisstundir og fagni hækk- andi sói. Jjetta hefur líka jafnan veriö iðkað á hverju byggðu bóli eftir því sem efni og aðstæður leyfðu hverju sinni. Á íslenzkum sveitaheimilum tíðkaðist, ekki síður en nú, að undirbúa jólin vel og rækilega. Þá var allt þvegið, askar, disk- ar, koppar og kirnur, og fólk fékk hrein klæði, yzt sem innst. Bærinn var sópaður, svo að hvergi sást rusl í skoti. Hver afkim; varð að vera tandur- hreinn. Nokkru fyrir jól voru jólakertin steypt úr tólg og bakaðir háir hlaðar af lummum. Sums staðar var skorið út laufa- brauð. Ekki mun þáð þó ýkja- gamall siöur. Á aðfangadag jóla var oft slátrað einni á. Hún var kölluð „jólaærin". — Var það gert til þess að hafa nýmeti yfir jólin. Jólahaldið hefur verið með ýmsu móti, eftir því sem tíð- arandinn leyfði. Á seinni öldum var það siöur að lesa húslestur síödegis á aðfangadag og eftir það fengu allir góðgjöröir, lummur væntanlega og kaffi, eftir aö þaö kom til sögunnar. Á jóládag var maturinn skammtaöur og fékk þá hver vei útilátinn skerf. Þótti þá ekki vel skammtaö, nema mat- urinn eritist fram yfir nýár, og átu þó flestir ósleitilega og tóku ríflega til matar síns. Var þessi skammtur kallaöur „jólarefurinn“, þar var á trogi hangikjöt, ferskt kjötmeti, magáll, speröill og bringukollur og kornbrauð, sem voru fágæti lengst af hér á landi. Grautur var einnig fram bormn á ióium, á aðfangadag, bankabygg- grautur, eða hnausþykkur grjónagrautur. Minna var um gjafirnar en nú tíðkast. Allir fengu þó nýja skó, „jólaskó", eða einhverja flík og húsfreyja gaf heimils- fólkinu kerti. Þá var það siður efnaðra að hygla fátæklingum einhverju og umrenningum var sýnd mildi og ölmusugæði. Jafnan var mjöður blandinn' og mungát heit. Húsbændur gáfu oft á tíöum heimilisfólki sínu í straupinu til hátíða- brigða. Fó,k sinnti ekki nema nauð- syniegustu búverkum um jólin og fram yfir áramót, en gerði sér dagamun með margs konar skemmtun. Fyrrum tíðkaðist að messa á jólanótt. Fóru þá til kirkju þeir sem gátu, en jafnan var einhver heima til þess að gæta bæjar. — Ungt fólk hefur trú- lega ekki látið á sér standa að sækja þessar messur. Oft var þá ekki farið heim aftur fyrr \ en eftir messu á jóladag. — Ekki va-r alls staöar húsrými fyrir alla kirkjugestina á prest- setrunum. Á meðan eldra fólkiö svaf inni í stofu hófu hinir yngri leiki að loknum tíðum. Munu gleðisamkomur þessar líklega hafa verið kailaðar vökunætur — og talað var um vökumenn. Ekki fara margar sögur af því aö dansaö hafi verið f kirkjum á Islandi á jólanótt, þótt eins sé víst að svo hafi Verið á stundum — Prestar voru misjafnlega glaumgjarnir. Fræg er sagan um dansinn 1 Hruna. — Þar dansaöi prestur með tíðagestum í kirkjunni lengur en góðu hófi gegndi. Þótti Unu, móður prests, sem var ekkert um þessa dansgleöi sonarins, eins og djöfullinn sjálfur kæmi í gætt- ina og kvað hann þessa vísu: „Hátt lætur í Hruna hirðar þangað bruna. Svo skal dansinn duna að drengir megi þaö muna. Enn er hún Una og enn er hún Una.“ Með þessum dáradansi sökkti prestur kirkjunni og kirkju- garðinum með fóikinu í Sagt er aö aldrei hafi verið dansaö síðan á jólanótt í Hrunakirkju. Cums staðar var fyrrum haldin kJ’ jólagleði. Telja margir aö hin fræga Jörfagleði hafi verið haldin á jólum. Kunn er einnig Munaðarhólsgleði — undir Jökli. Latínu-Bjami, sem bjó í Breiðu- vík, er sagður hafa bundið enda á þessa gleði með fjölkynngi. Var það með þeim hætti að granni Bjarna Teitur á Knerri sat gleði að Munaðarhóli. Svaf hann í lokrekkju um nótt og fannst örendur að morgni blámarinn um hálsinn. — Þessi gleði hefur lfklega verið aflögð nokkru fyrir aldamótin 1800. Á Þingeyri fara sögur af dansgleði í Þingeyrarstofu. Hófst hún þriöja dag Jóla. — Séra Þorsteini Péturssyni á Staðarbakka var ekkert um þessa gleði gefið, en hann skrif- aði um hana bannig: „... Svo herðir sig hver að dansa eftir útblæstri eða andar- drætti ludi magistri, og þegar suma svimar, svo þeir tumba um koll, þá verða ýmsir undir, fara þá föt og forklæði sem verða vill; þá er og föidum kvenna flug og forráð búið .. . Brennivín er þá við höndina að hressa hinn gamla Adam, svo hann þreytist hvorki né upp- gefist fyrr en mælir syndanna er uppfylltur“. Hér virðist hafa verið dansað eftir pípblæstri og mun svo vfðar hafa verið. Veizlur tíðkuðust á jólum allt frá söguöld. Buðu ríkisbændur þá gjaman til sfn fjölda manna og var þar glaumur mikill. Mestar munu veizlur þessar hafa orðið á Sturlungaöld, enda var þá fv!|tur svndamælirinn og spilling viðgekkst í hvívetna. Heima á bæjum var jafna mikil kátína, þótt ekki yrðj sótt nein jólagleði og jafnvel ekki farið til tfða. Þá var snilað al- kort, farið í ýmsa leiki. Ekki þótti slíkt athæfi þó leyfilegt fyrr en eftir jóladag. Fjar sem fólk bjó í rökkvuðum torfbæjum, vöknuðu f skammdeginu hugmyndir um ýmislegt kynlegt úti í myrkrinu. Þjóðsögur geyma fjölda sagna um álfa og ýmsa vætti, sem einkum létu á sér bæra á jólum. Álfar héldu mikla dans- gleði á jóla- og nýársnótt meö dansi og hlióðfæraslætti. Mnldu fólkið fór þannig að líkt og mennskir menn. — Kom bað gjama á bæi og tók hús af fólki, þar sem enginn var heima. Var þá eins gott að allt væri hreint út úr dyrum til þess að styggja ekki álfana. Ef þeim leizt vel á húsakynnin sögðu þeir: „Hér er bjart, hér er hreint og hér er gott að leika sér“. Annað hljóð kom í strokkinn, ef ekki var allt hreint og bjart í hverjum kima. Ef setið var á krossgötum, sem lágu til fjögurra kirkna þyrpust álfar að manni. Reyna þeir með ýmsum ráðum að fá þann sem situr á krossgötum til þess að mæla, en það verður hann að forðast eins og heitan eldinn. því ef hann yrðir á álf- ana er voðinn vís. Þá tryllist hann og verður vitstola. Honum liggur lífiö við að þegja hversu sem álfamir biðja har^n og hverjar gjafir sem þeir bjóða. | Átti hann að segja þegar nóttu | tók að bregða: „Guði sé lof, nú 0 er dagur um allt Ioft“. Þustu þá | álfarnir á burt, en skildu eftir | gersemar sínar. TPrúað var einnig á jólasveina, sem taldir voru synir Grýlu tröllkerlingar. Grýla var mesta forað Grýlukvæðin segja hana hafa fimmtán hala, „en á hverjum hala hundrað belgi, en í hverjum belg börn tuttugu“. Þá segja kvæðin einnig að hún hafi ótal hausa og þrenn augu í hverjum haus. Jólasveinarnir voru hálf- gerðar óarflr og alls ólíkir sveininum rauðklædda, sem nú | er ■ rðinn eins konar vörumerki jj fyrir varning á jólama’rkaðinum, kemur á skemmtanir og gefur börnum gott í munninn. — 1 Sveinarnir hinir fornu voru öllu » fremur vísir til þess að hnupla | ýmsu smávegis, heldur en gefa. g - En þeir hljóta að breytast | með tíðarandanum eins og ann- | að, sem menn hafa til þess aö glingra sér viö, | Ekki var nóg með aö álfar og | jólasveinar færu á stjá á jólum, « heldur áttu dýrin það til að | ' dilla sér þá einkum kýrnar i p. fjósinu.' Þær áttu þaö til að kj mæla mannamál, sumir segja á Jj brettándanum: „Mál er að mæla maður er f fjósi, ærum hann ærum hann“ sögöu þær og bar enginn þess bætur að vera með 3. síða. 0 I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.