Alþýðublaðið - 16.12.1966, Síða 1
Föstudagur 16. desember 1966 - 47. árg. 283. tbl. - VERÐ 7 KR.
2501 árekstur fyrstu
11 mánuði þessa árs
Árekstrar það sem af er þessu
ári fram að 1. desember liafa orð-
ið í Reykjavík 2501 og hafa í
þeim slasazt 399 manns, dauða-
slys hafa orðið 6. í fyrra urðu
2.738 árekstrar og slys í Reykja-
vík. í þeim slasaðist 389 manns
Gamalt tré fellt
í GÆR var unnið að því
að fjarlægja tré á lóð
Landssímans við Austurvöll.
Hér mun vera um að ræða
eitt elzta tré í bænum og
verður ugglaust mörgum
bæjarbúa eftirsjá í því.
Fyrirhugað er að byggja
stórhýsi á þessari lóð og var
því nauðsynlegt að fjar
lægja þetta gamla og virðu-
lega tré. (Mynd Bjarnl.).
og 8 dauðaslys urðu. Slys á böm-
um hafa verið mjög tíð í ár eða
97 en voru allt árið í fyrra 66. í
desembermánuði í fyrra urðu 288
árekstrar og varð í þeim mánuði
hæst árekstratala ársins, en aftur
á móti urðu þá fæst slysin.
Árið 1962 urðu árekstrar 2.180,
árið 1963 2.451 og árið 1964 2.509.
í júlí í sumar urðu árekstrar 210,
en 215 í fyrra, samsvarandi tölur
í ágúst eru í ár 208, í fyrra 235, í
september 225, í fyrra 260, í októ-
ber 239, í fyrra 248, í nóvember
fóru svo árekstrarnir upp í 280,
sem er mjög há tala, en voru í
nóvember í fyrra 204. Flestir hafa
árekstrar orðið á gatnamótum
Laugavegs og Nóatúns, Miklu-
brautar og Lönguuhlíðar og Grens
ásvegar og Miklubrautar. Á gatna-
mótum Hofsvallagötu og Hring-
brautar hefur einnig orðið mikið
um árekstra.
Endurskoöa þarf stjórn
kerfi Reykjavíkurborga
Reykjavík, — EG.
Önnur umræða um fjárhagsá-
ætlun Reykjavíkurbergar hófst á
fundi borgarstjóruar klukkan 5 í
gærdag. Stóð' fundurinn cnn er
blaðið fór í prentun um miðnætt
ið'. í upphafi fundár í gær gaf
borgarstjóri, Geir Hallgrímsson
yfirlit um framkvæmdir á þessu
ári og skýrði nýja framkvæmda-
áætlun, sem lögð hefur verið
fram og gildir fyrir árin 1967-70.
Fulltrúar Alþýðuflokksins flytja
að þessu sinni engar breytingar-
tillögur við fjárhagsáætlunina, og
í umræðunum í gær gaf Óskar
Hallgrímsson svohljóðandi vfirlýs-
ingu um málið, sem var bókað:
„í sambandi við afgreiðslu
Munið HAB
Opið til 10
frumvarps að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið
1967, óska borgarfulltrúar Alþýðu
flokksins að taka fram eftirfar-
andi: Það er skoðun borgarfull-
trúa Alþýðuflokksins að brýnasta
viðfangsefni íslenzkra efnahags-
mála nú, sé stöðvun verðbólgunn
ar og að opinberir aðilar, ríki og
sveitarfélög, liafi öðrum fremur
skyldum að gegna í þeim efnum.
Ríkisstjórn og Alþingi hafa nú
tekið forustu um verðstöðvun sem
er veigamikill þáttur baráttunnar
gegn verðbólgunni.
Við lítum á þá viðleitni til hóf
semi sem að okkar dómi birtist
í frumvarpi því að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1967,
sem hér er til meðferðar sem
vfirlýsingu meirihluta borgar-
stjórnar um stuðning við þessa
stefnu svo langt sem hann nær.
Það er álit borgarfulltrúa Al-
þýðuflokksins að sú megin stefna
sé eins og á stendur rétt, að
st.illa í hóf annars vegar skatt-
heimtu borgarsjóðs, sem vaxið hef
’ir hlutfallslega á síðari árum, og
hins vegar rekstursgjöldum, þótt
við hefðum kosið að ganga lengra | er á samkvæmt þeirri áætlun sem
á þeirri braut að draga úr rekst- hér liggur fyrir.
urskostnaði borgarinnar en raun Framhald á 15. síðu.
í ár hafa verið fluttir inn 5036
bílar, á sama tíma í fyrra 3164 «g
allt árið í fyrra 3.900 bílar. A ár-
inu hafa verið gefin út meira en
1900 ökuskírteini.
FRAMSÓKNAR-
FLOKKURINN
FIMMTUGUR
Fimmtíu ár eru í dag liðin frá
stofnun Framsóknarflokksins, e*.
hann var stofnaður 16. d.-sember
1916. Fyrsti formaður ílokicsins og
aðal hvatamaður að stofnun hans
var Jónas Jónsson frá Hriílu, síð-
ar ráðherra.
Framsóknarflokkurinn hefur á
þessu tímabili átt aðiid að mörg-
um ríkisstjórnum og Hermann,
Jónasson, sem lengi var formað-
ur flokksins var forsætisráðherra
margra ríkisstjórna, síðast vinstri
stjórnarinnar svokölluðu írá 195®
til 1958. Núverandi form. Fram-
sóknarflokksins er Eysteinn Jóns-
son fyrrum ráðherra, en varafor-
maður flokksins er Óíafur Jóhann.
esson prófessor. Flokkurinn mun.
í dag minnast þessa afmælis m.a.
með stækkaðri útgáfu af Tíman-
um og móttöku síðari hluta dags-
ins. ||
Walt Dlsney látinn
LOS ANGELES, 15. des. (NTB
Reuter) — Walt Disney, kon-
ungrur teiknimyndanna, lézt í
dag í Rurbanck I Kalifomíu,
65 ára að aldri.
Fyrir hálfum mánuði var
Disney fluttur á sjúkrahús, þar
sem tekið var úr honum vinstra
lungað. Eftir uppskurðinn var
sagt að Disney gæti aftur haf-
ið vinnu eftir einn og hálfan
mánuð. Hann lézt þegar hann
fór aftur á sjúkrahús til venju-
legrar rannsóknar.
Dlsney var höfundur flestra
kunnustu teiknimyndahetja
Hollywoods, m.a. Mikka Músar
sem fýrst kom fram í kvikmynd
1928. Fyrsta teikhimynd hans
af venjulegri lengd var „Mjall-
hvít og dvergarnir sjö“ (1937).
Seinna gerði hann margar vin-
sælar teiknimyndir eins og
„Fantasíu", „Bambi“, „Ösku-
busku“ og margar aðrar.
Á siðari árum var Disney
önnum kafinn við hinn gífur-
lega stóra skemmtigarð sinn,
Disneyland, í Suður-Kaliforn-
íu, sem hundruð þúsunda gesta'
heimsækja ár hvert, þeirra á
meðal margir erlendir stjórn-
málamenn, sem koma í heim-
sókn til Bandaríkjanna.
Auk Mikka Músar var Andr-
r ramhald á 13. si