Austanfari - 30.06.1922, Side 1

Austanfari - 30.06.1922, Side 1
AUSTANFARI RITSTJðRI OG EIGANDI: GUÐM. G. HAGALÍN 2. tbl. Seyðisfirði, 30. júní 1922 1. árg. Niðurl IV Næst er þá að ininnast á C- listann. Á honum eru eingöngu konur, þó ekki konur í þeirri merkingu orðsins, sem nú er tíð- ust. „Austanfari" verður að játa það, að hann þykist eigi geta tekið lista þennan alvarlega. Fyrst og fremst vegna þess, að hann er til orðinn á með öllu röngum grundvelli. Það þykist hann sem sé mega fullyrða, að hlægileg mein- loka sé, að þjóð vor taki að skifta- sér í stjórnmálaflokka eftir kynjum. Er vonandi að meinloka sú verði ekki langæð enda sjái reykvísku konurnar það nú við kosningarnar, að út um landið hafi eigi kven- réttindamálið hlaupið með kven- þjóðina út á neina glapstigu. Þjóð vor, karlar og konur á auðvitað að skiftast í flokka oftir skoðun- um. Þær konur, er á þjóðmála- brautinni vinna þörf og mikil störf, munu síðan verða viðurkend- ar og hafðar í kjöri við þing- kosningar, eigi síður en karlmenn. En von er það „Austanfara“, að konurnar eigi sér annan göfugri metnað og samræmari eðli sínu en að vinna sér kvikult gengi á vígvelli stjómmálanna. Broslegt er það, þá er „19 júní“ kveður kon- ur verða að fylgja C-listanum vegna þess, að nauðsynlegt sé hag heimilanna í landinu að koma á þing konum þeim sem í kjöri er.u á honum. En þrjár þær efstu eru það sem kallað er „pip- armeyjar“. Þær hafa sem sé með lífi sínu sýnt að þær vilja styðja að því, að sem flest góð og göf- ug heimili séu á landi hér, sýnt það með því að hirða eigi um að helga heirnili krafta sína! Þær eru eins og búnaðarskólamennirnir, sem alls ekki þora að leggja út í búskap sjálfir, en vilja kenna bænd- um að búa. Og þeir menn eru fræg stétt í landinu. Eðlilegt er og |jað, að konum, sem ekki hafa haft kjark eða vilja til að eignast sjálfar heimili, finnst líf sitt tómlegt og tilgangslaust. Þær fyllast gremju þeirri og lífsbeizkju sem alkunn er og gefur þeim „piparbragðið", verða ömurlegar og eins og alger- lega sérstakur kynþáttur í landinu. Einkenni þess kynþáttar er meðal annars andúð gegn karlmönnum og öllu sem þeir taka sér fyrir hendur og háð og aðfinslur gegn hinum giftu kynsystrum sínutn. Loks gerast þær postular, vilja laga heimilin og hjónabandið, bæta hag giftu kvennanna, sem una sér yfirleitt mjög vel og hafa eitthvað að lifa fyrir — og að síðustu endar alt í stjórnmálaleg- um æsingum og pilsaþyt, sem flestum þykir alt annað en kven- legur. En að vonum taka menn þeim vítt um heim með breiðu brosi — og taka ekki þytinn einusinni svo alvarlega að vilja fórna sér til að afstýra hættunni, sem þeir vita vel hvernig unt er að afstýra. Konur á íslandi hafa lengstum verið að því kunnar, að reynast skörungar, skylduræknar, og vand- ar að virðingu sinni og heimila sinna. Þær láta flestar bændur sína um það sem starfa skal út á við og eiga sitt verksvið fyrir sig. Varla mun þeim nú svo gengið, að þær vilji eigi heldur láta rólega íhugun málanna ráða hvar þær skipa sér við kosningar, heldur en kynferðið, sem virðist þó ekki geta mælt mikið með C-listanum við landskjörið, því að það mun óhætt að fullyrða, að vilji ekki íslenzkar húsmæður trúa kvæntum og reyndum heimilisfeðrum fyrir hag heimilanna á löggjafaþingi þjóðarinnar, þá trúa þær ekki fyr- ir þeim þremur efstu konunum á piparlistanum.Um fjármálavit þeirra og æfingu í stjórnmálastörfum er víst nokkuð hið sama að segja og æfingu þeirra í húsmóður og heimilisstörfum. V Þá koma síðustu listarnir U- og E-listinn. Ritstjóri blaðs þessa lítur svo á, að á milli þeirra manna, sem að þessum tveim listum standa, sé eigi langur vegur í skoðunum álandsmálum. Handvömm og gam- all kritur hafa orðið þess valdandi, að komið hafa fram D- og E-listi, þar sem einn hefði vel mátt vera. Það sem mjög hefur bagað oss, mörgu öðru fremur, er flokkaleys- ið í landinu. Það hefur orðið vatn á mylnu þeirrá manna, er viljað hafa komast til vegs og valda, án þess að finna hjá sér þann styrk og starfsdug, er til þess þarf, ef hreinn leikur skal leikinn. Þeir hafa því blásið óspart í glæður stéttarígs og úlfúðar, og einkum notað sér til þessi hin erfiðu ár fjárkreppunnar. Á móti þessum mönnum er fjöldi beztu og nýtustu manna þjóðarinnar. En þeir hafa hykað við að hefja baráttu, gegn fargani þjóðmálaskúmanna, þar eð margir þeirra hafa vænst þess, að þjóðin mundi ekki sinna gaspri óhlutvandra manna. Þeir hafa fund- ið, að þeim kröftum, sem eyða þarf í að koma fyrir kattarnef óþokkapólitikinni, hefði mátt eyða til skynsamlegrar framsóknarvið- leitni á sviði þjóðmálanna. Þeir hafa viljað byggja flokkaskiftinguna á öðru en andróðri gegn því, er þeim hefur virzt að enginn andlega heilbrigður maður mundi geta lit- ið réttu auga. En nú mun mörgum tekið að skiljast það, að eigi heilbrigt stjórnmálalíf að geta þrifist í land- inu, þá þarf þjóðin að losna við óþverrann sem þróast hefur í skjóli vandræða þeirra og truflunar er heimsstyrjöldin hefur valdið. Og það er trú „Austanfara“, að við næstu kosningar vinni þeir saman, er nú standa að D- og E-listanum. Um D-listann er það að segja, að ritstjóri blaðs þessa er alls eigi ánægður með það, hversu hann er skipaður. Jón Magnússon er að vísu svo æfður starfsmaður og hefur svo lengi á þingi setið, að hann mun geta talist fyllilega boð- legur þingmaður efrideildar, þótt illa hafi honum fyrir margra hluta sakir tekist stjórnarstörfin, á vand- ræðatímum þeim, sem yfir oss hafa gengið — og eigi þola menn A- og B-listans við hann neinn samanburð. Jón hefur aldrei verið kunnur að pólitiskri stigamensku, en jafnan reynst hið mesta prúð- menni. Um hina menn listans er |jað að segja, að þeir eru nýtir menn og dugandi. Sigurður Sig- urðsson er þjóðkunnur að störfum sínuvn í þágu landbúnaðarins og gamall þingmaður. Sveinn Bene- diktsson er alkunnur myndar- og dugnaðar maður og engum að öðru kunnur en prúðmennsku. Hinir menn listans eru og nýtir menn þjóðfélagsins og áhugasam- ir borgarar. Þá er E-listinn. Á honum er efstur séra Magnús Blöndal í Vallanesi, duglegur bóndi og fjár- málamaður hinn mesti. Ötull hef- ur hann reynst í hvívetna og eng- inn veifiskati. En lítt er hann þekt- ur utan Austurlands og að nokkru í Reykjavík, og má margt segja um það, hversu valið hafi tekist. ef litið er til þess, hversu líklegt sé honum fylgi. En þegar um er að ræða landskjör, þurfa menn helzt að velja þá, sem þjóðkunn- ir eru og góðkunnir. Næstur er Þórarinn Kristjánsson, hafnarverk- fræðingur, gætinn maður og at- hugull, mentur vel og starfhæfur — en annars lítt kunnur. Þriðji maðurinn er Sigurður Sigurðsson, lyfsali í Vestmannaeyjum, (Sigurð- ur frá Arnarholti). Er hann mað- ur bráðgáfaður, duglegur með af- brigðum og áhugasamur. Er hann sá maður, er á síöari árum hef- ur unnið mest og bezt að ýms- um nauðsynjamálum Eyjaskeggja. Fjórði maður er Sig. E. Hlíðar, dýralæknir á Akureyri. Hefur hann haft talsverð afskifti af pólitík og reynst þar sem annarsstaðar lið- tækur. Síðustu mennina á listan- um má það um segja, að þeir séu sem hinir mjög svo frambærilegir sem þingmannsefni og til alls góðs líklegir. Á áðurnefndum tveim listum eru menn, er vilja vinna að því, að framfarir þjóðfélags vors og þróun þess verði að fullu og öllu í samræmi við -stærð þess og háttu lands vors. Jafnvæginu verði sem bezt haldið og atvínnuvegun- um gert jafn hátt undir höfði. Þeir hafa fullan skilning á því, að þjóöfélagsskipulag vorra tíma er ekki algilt að fullkomnun, og þeir vilja læra af reynzlunni — og þoka smátt og smátt í áttina um- bótunum. Þeir vilja ekki kasta hinu gamla, sem gott er, og ætla sér ekki þá dul, að gerbreyta á nokkrum árufn með öllu lyndis- einkunnum og þjóðareinkennum vorum. Og þeir boða engan falsk- an fagnaðarboðskap, heldur segja við þjóðina: Okkar stefna er fyrst og fremst sú, að fá þjóðina til að vinna svo sem hún getur unn- ið, andlega og líkamlega. Fá hana til að leggja sem mest af því, er hún vinnur fyrir, í það, sem nyt- samt geturorðið óbornum kynslóð- um, en ekki ausa því burt í óhófi og gengdarleysi. Þessir menn boða því gleðiboðskap starfsins og starfsgleðinnar og munu um það samhentir, hverjir þeirra er á þing verða kosnir, að byggja ekki framtíð þjóðarinnar á sandi. íslendirgar, forðist hina óheilu æsingamenn, og gætið þess á kjördegi, að greiða þann veg at- kvæði, að eigi verðið þið að vopni íslands óhamingju! Hitt og þetta, Embœttaveitingar. Magnúsi Péturssyni, alþingis- manni og lækni Strandamanna, hefur verið veitt bæjarlæknisem- bættið í Reykjavík. Qerður hefur

x

Austanfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austanfari
https://timarit.is/publication/242

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.