Austanfari - 12.08.1922, Síða 4
4
AUSTANFARI
8. tbl.
Hf. Hinar samein. fsl. verslanir
Seyðisfirði
selja ýmsar vörur í heildsölu, svo sem:
Kaffi, óbrent
Exportkaffi
Melís í tunnum
og kössum
Sáldsykur
Hafragrjón
Hveiti. Rúgmjöl
Margarine
Kol — Salt
Kaupa allar íslenzkarafurðir
Nýkomið í verzlun
Jörgens Þorsteinssonar:
Ytri fatnaðir, karla og unglinga, kvenkápur, nærfatnaðir, karla, kvenna
og barna, telpukjólar. — Qaflar, hnífar og skeiðar úr nikkeli og silfri,
ansjósur, Agra margarine ódýrara én áður, kartöflur, Libbys-mjólk
ogm. fl. -Allir geta komist að afbragðs kaupum
Jörð til sölu.
Jörðin Bakkagerði í Borgarfirði, sem er 2
hundruð að fornu mati, er til sölu nú þegar.
L. J. Imsland.
Skófatnaður allskonar. Vefnaðarvörur ýmiskonar.
Tilbúnir frakkar margskonar. Gæðin einskonar.
Heildsala
Sig. Arngrímssonar
það. Þrjár beiðnir um meðmæli
til vínsölunnar komu fram, frá
þeim N. C. Nielsen kaupmanni,
Jörgen þorsteinssyni, kaupmanni
og Jóhanni Wathne. Var málinu
loks frestað til næsta fundar, er
eigi skyldi síðar haldinn en 15.
þ. m.
Önnur lönd.
#
Eftirlit með innflutningi,
Hér á landi hefur verið mikið
um það deilt, hvort hafa skyldi
eftirlit með innflutningi eða ekki.
Sænska þingið hefur ekki alls
fyrir löngu hafnað frumvarpi jafn-
aðarmannastjórnarinnar þar í
landi um innflutningshöft. En eft-
irtektaverðust er reynzla Svisslend-
inga í þessum eínum. Sviss er eitt
þeirra landa, sem harðast hafa
komið niður á viðskiftavandræði
þau, er stríðið hefur af sér leitt,
Er Sviss iðnaðarland mikið og
tekur sambandsráðið þar þau
óyndisúrræði 18. feb. 1921, að
setja innflutningshöft tii að
bæta úr ástandinu. Þegar lögin
gengu í gildi, voru 42,700 manna
atvinnulausir, en ári síðar var tala
þeirra 99,500. Og þrátt fyrir lögin
hefur Sviss orðið að eyða svo
miklu fé til að bæta úr skák
fyrir hinum atvinnulausu, að
skuldabyrðirnar virðast nú ætla
að vaxa ríkinu yfir höfuð. Síðan
stríðið byrjaði hefur ríkið eytt
700 milliónum til lækkunar á
nauðsynjavörum og' 550 millión-
um tii hjálpar atvinnuvegum og
s. frv. Tekjurnar verða alt af minni
en gjöldin, og árið 1925 búast
Svisslendingar við að ríkisskuldirn-
ar verði orðnar tvö þúsund
milliónir króna, eða 500 krónur
á hvern mann í landinu. Hvernig
litist íslendingum á 45 millióna
ríkisskuldir, sem er tiltölulega jafn
mikið. — Ekki reynast innflutn-
ings höftin vel í Sviss!
Morðin í Litlu-Asíu
Alkunnugt er það, að Tyrkir í
Litlu-Asíu hafa löngum veitt krist-
num mönnum þar þurfgar búsifjar.
Hafa þeir oft og tíðum drepið
varnarlausar konur og börn svo
þúsundum skiftir. Einkum hefur á
þessu borið þegar tyrkneska ríkið
hefur orðið fyrir erfiðum kostum
af hendi Evrópustórveldanna. Mun
að mestu mega um kenna þjóð-
ernistilfinningu Tyrkjanna, fremur
en trúarbrögðunum. Er og von-
legt að Tyrkjum þyki lítið mark
takandi á mannkærleika boðorð-
um kristnu trúarinnar — og finnist
þá Múhamedstrúin hreinni og
beinni, þar eð hún leyfir vopna-
burð og manndráp, ef það er í
hennar eigin þjónustu. í vor drápu
Tyrkir í Litlu-Asíu 1300 konur og
börn á hinn herfilegasta hátt,
Mæltist þetta auðvitað allsstaðar
illa fyrir — en kristnir menn
mega sinni egin harðýðgi gegn
Tyrkjum um kenna og er varla
vonlegt að yfirvöldin tyrknesku
geti haft hemil á alþýðu manna,
sem tekur trúarbrögð sín bókstaf-
lega og finnur sárt hvað að kreppir
þjóð þeirra.
Símfréttir.
Rvík 12. ágúst.
Ráðherrafundur Bandamanna í
London hófst sjöunda. Poincare
framsetti kröfu um framkvæmd
þvingunaákvæðanna, takandi um-
sjón tollmála og útflutningsÞýzka-
iands, yfirráð náma og skóga
Ruhrhéraðsins og 60% lilutafjár
litunargerðanna í Rínlöndum, inn-
færandi sérstakt tollsvið undirgef-
ið Bandamönnum Rínlöndum.
Fjármálanefnd fundarins dæmdi
frumvarpið óhafandi. LloygQeorge
telur það óforsvaranlegt inngrip í
fullveldi Þýzkalands. Poincare svar-
aði, að ef ekki Bandamenn sam-
þyktu ráðstafanirnar, mundu Frakk-
ar framkvæma þær sjálfir. Brezka
ráðuneitið kvatt saman, takandi
mikilvægar ákvarðanir, ef það komi
fyrir að Frakkar láti ekki undan.
Stjórnarskifti í Kína. Dýrtíðin >
Þýzkalandi hefur tíuþúsundfafdast
síðan fyrir stríð. Aflmesta loft-
skeytastöð heimsins, St. Assie,
opnuð. Er hún ferfalt sterkari en
nokkur önnur. Áframhaldandi ó-
eirðir í Ítalíu. Allsherjarverkfallið
hefur mistekist vegna þjóðhjálpar
og hermannavinnu. Landskjörs-
talning 21. ágúst. Þýzk brenni-
vínsskúta var tekin í Hafnarfirði
á mánudag og flutt hingað. Yfir-
heyrslum ólokið. Búist við tugt-
húsvist skipstjórans og háum
sektum. Löggjafarnefndin starfar.
Kragh innanríkisráðherra kom
ekki. Svipall.
Liptons -te
fæst í verzlun
Halldórs Jónssonn
Hitt og þetta.
Ldtin
Látin er hér í bænum Aldís
Halldórsdóttir, því nær níræð. Var
hún greindar og gæðakona, móð-
ir Eðvalds Eyjólfssonar pósts, sem
allir vita að er frábærlega dug-
legur í sinni stöðu. Hafði Aldís
dvalið elliár sín hjá syni sínum
og tengdadóttur.
E.s. „Goðafoss“
kom hér á leið til útlanda.
Meðal farþega hingað var Kjarval
málari, Quðm. Þorsteinsson lækn-
ir með konu og barn, Kristján
Kristjánsson, læknis o. fl. Meðal
farþega út var ungfrú Helga Stef-
ánsdóttir, til lækninga.
Verzlun armatinafrídagur
er á mánudaginn og verður
hann haldinn hátíðlegur bæði hér
fram í dal og í skólanum.
Síldveidi
er nú afarmikil nyrðra. Einnig
liefur fiskast mikið af síld á Fá-
skrúðsfirði. Afbragðs þorskafli er
nú hér. Sömuleiðis á Borgarfirði,
Vopnafirði, Skálum og Raufarhöfn.
M.b. Óðinn kom eftir síðustu
helgi með nálega 300 tunnur af
síld hingað.
Heyskapur
er með versta móti, einkum í
þeim sveitum, sem langt liggja
frá sjó.
Kirkjuvígslan
fór fram hér á sunnudaginn.
Vígði kirkjuna Jón prófastur Quð-
mundsson á Nesi í Norðfirði. Við-
staddir af prestum voru séra Ás-
mundur Guðmundsson, skólastjóri,
séra Ingvar á Borgarfirði og sókn-
arpresturinn. Séra Sigurjón á
Kirkjubæ kom fyrst að vígslu
lokinni. Vígsluræðan verður birt
síðar í blaðinu og hefði komið
nú, ef prófastur hefði getað látið
hana af hendi.
íslensku
togararnir Leifur hepni, Austri
og Þorsteinn Ingólfsson hafa kom-*
ið hér í dag og taka kol.
Æfisaga
ritstjóra blaðs þessa, hefur birst
í „Verkamanninum“ á Akureyri,
mikið rit og merkilegt!!