Austanfari - 19.08.1922, Page 1

Austanfari - 19.08.1922, Page 1
AUSTANFARi RITSTJÓRI OG EIGANDI: 6UÐM. G. HAGALlN 9. tbl. Seyöisfiröi, 19. ágúst 1922 1. árg. Æsingatilraunir „Tímans". Alkunnugt er, alkunnugra en því þurfi frá að segja, að það sem skilur „Tíma“-menn frá öðr- um stjórnmálaflokkum er það, að flokkurinn virðist lifa eingöngu á æsingum. Kaupfélögin þurftu aldrei á flokknum að halda, þau áttu í heilbrigðri samkepni að sýna yf- irburði síns verzlunarfyrirkomu- lags. Ef þau gátu ekki þrifist með því að bjóða mönnum betri kjör en kaupmenn, sönnuðu þau ein- ungis, að ósatt væri að kaup- menn stingju meira í sinn eigin vasa, en sanngjarnt væri fyrir á- hættu og óhöppum, sem alt af koma fyrir í viðskiftalífinu, sönn- uðu, að mestu veldur hver á held- ur, hversu hann er hagsýnn og dggandi, er við stýrið stendur, og eigi tjáir að taka sem verzlunar- stjóra eða forstöðumenn kaupfé- laga menn, sem enga „praktiska" þekkingu hafa á viðskiftamálum, en skriðið hafa að nafninu til upp úr einhverjum verzlunarskóla. „Tíminn“ og öll hans verzlunar- stjórnmál, virðast því fullkom- ið fálm út í bláinn. Er þá auðskilið að blaðið og flokkur- inn verði að nota blekkingar og æsingar. Alkunnugt er, hversu blaðið hefur hamast á Spánarmálinu. lJar hefur það með öllu undir orðið, flokkurinn snúið við því bakinu Qg alþjóð íslenzk, utan nokkrir ofstækisfullir templarar. Hefur blaðið gert málið að aðal- stefnumáli sínu upp á síðkastið og mundi því í hverju því landi, þar sem stjórnmálalífið væri heil- brigt, reynast með öllu úalandi og úferjandi. Það hefur hamast á því, að málið væri sjálfstæðismál mikið og föðurlandssvikum gengi næst að taka til greina kröfur Spánverja. Það hefur svívirt nafn Jóns Sigurðssonar og annara slíkra afbragðssona landslns, með því að leggja framkomu hans i sönnum nytjamálum þjóðarinnar á borð við hneykslis- og æsinga- framkomu sína. Þjóðin fylgdi Jóni Sigurðssyni, af því að þar fann hún að unnið var óeigingjarnt íyrir hennar málstað, barist fyrir •lífi hennar og tilverurétti, en eigi gert að leiksoppi fjöregg hennar, svo sem „Tíminn“ hefur gert, þar eð hann með æsingum og úlfaþyt hefurætlað aðstofna í bersýnilegan voða efnalegu sjálfstæði hennar, sem cr undirrót alls sjálfstæðis. Jón Sigurðsson hóf baráttu sína á því, að fá til handa þjóðinni verztunarfrelsi og losa fjárhags- málin úr höndum erlendra þjóða. Hann skildi hvað er undirrót sjálfstæðisins. Nýjasta afrek „Tímans“ í æsinga- áttina er að reyna að telja mönn- um trú um það, að hækkun Norðmanna á tolli á íslenzku saltkjöti, standi í sambandi við Spánarmálin. En sannleikurinn er sá, að Norðmenn vilja nú sem mest búa að sínu og hafa yfir- leitt hækkað toll á innfluttum vörum. Nær hefði legið, að bendla tollhækkun Norðmanna við tunnu- tollinn, sem sannað er að rúið hefur ísland um mikið meira, en sem því svarar, er tollurinn gefur í Iandssjóðinn. Norðmenn hafa sem sé firzt það, svo sem unt hefur verið, að flytja nokkuð hingað inn af slíku tæi eða hafa hér bólfestu sína. Og findist nú „Tímanum" það drepandi fyrir sjálfstæði vort, þótt vér færum fram á það við Norðmenn, að þeir lækkuðu kjöttollinn, gegn því, að vér breyttum að því leyti sér- löggjöf vorri, að vér lækkuðum tunnutollinn? Það væri alveg hið sama og vér höfum gert við Spánverja. Og enginn hefur minst á að kjöttollurinn sé tilraun af hendi Norðmanna til að hnekkja sjálfstæði voru, enda mættu þá Norðmenn segja, að við vildum með tunnutollinum ganga á sjálf- stæði þeirra og sjálfsákvörðunar- rétt. Þetta mál og samningar þeir, sem kunna af því að rísa, verð- ur alger ega litið á frá viðskifta- hliðinni, að öðru en því, sem það snertir fjárhagslegt sjálfstæði landanna. Og vill „Tíminn“ halda því fram, að Norðmenn séu svo þröngsýn þjóð og kúgunargjörn, að hún setji háa tolla á fram- leiðslu vora fyrir þær sakir, að vér sáum okkur ekki fært að gera annað en það, sem þeir hafa nú orðið sjálfir að gera? Okkur, smá- þjóðinni hefði varla getað geng- ið betur en Norðmönnum, sízt er fisksala þeirra ti! Spánar er hlut- fallslega 20 sinnum minni en vor. Þá er rétt að minnast á eitt ósamræmið í æsingamáli „Tím- ans". Hafa önnur blöð réttilega bent á þá hlið málsins. Nú telur blaðið drep fyrir landið að fá 15 aurum minna fyrir hvert kjötkíló, en annars hefði orðið — en áöur þótti því vel fært, að landið tæki árlega á sínar herðar 12Va millión króna skatt, er spánski tollurinn hafði í för með sér. Bóndi, sem lætur í kaupstaðinn 2000 kg. kjöts, tapar raunar 300 krónum við kjöt- tollinn, en Spánartollurinn mundi hafa numið 130 krónum á hvert einasta mannsbarn í landinu. Enn- fremur hélt „Tíminn“ því fram, að landinu mindi ókleyft að borga vexti og afborganir af enska lán- inu, 10 milliónum, en spanski toll- urinn var sem bezt kleyfur! „Tím- inn“ stingur þegar upp á því, að farið sé út og samið við Norð- menn. Heldur hann að við þurfum ekkert að slaka til á móti — og þar með eftir hans dómi limlesti sjálfstæði vort? Sjá ekki allir hér blekkingarnar og æsingatilraunirn- ar, sem liggja að baki yfirskininu? Auðvitað er sjálfsagt að leita samninga við Norðmenn um lækk- un kjöttollsins; það er bæði sjálf- sagt og eðlilegt og annað ekki samboðið oss íslendingum. Vill „Austanfari“ stinga upp á því, að reynt verði að fá tollinn lækkaðan, gegn því að vér lækk- um síldartunnutollinn. Eru þá tvær flugur slegnar í einu höggi: Fyrst lækkaður íslenskur tollur, sem oss er skaðlega hár, og á annan veg lækkaður norskur tollur, sem er oss hættulegur. Mættusíðan báð- ir málsaðilar una vel málunum—og sjálfstæði vort væri betur trygt eftir en áður, fjárhagslega með lækkun tollanna og stjórnarfarslega með góðu samkomulagi við frændþjóð vora. Suður um firði. Frh. Nokkru fyrir hádegi fundust hestar okkar, en þá var sá, er skildi fara nieð þá inn fyrir fjörð- inn, týndur í þokunni. Var hann enn að leita hestanna, en hafði farið á mis við þá. Loks kom hann, kaupin voru gerð, Qeir tór af stað áleiðis til Hornafjaröar, en Kristjón með hestana inn fyrir Berufjörðinn. Nú hafði Sveinn lokið störfum sínum, og hittum við nú að máli Ríkarð Jónsson. Sýndi hann okk- ur smíðisgripi sína, bæði í leir og tré, og gat þar margt að líta. Einkum varð mér starsýnt á and- litsmyndir hans og aska. Mátti á öskunum sjá hinar einkennilegustu hugmyndir og verur. Upp úr einu lokinu miðju stóð haus á hana, er virtist gala sem ákafast. Hafði hann auðsýnilega ekki asklok fyrir himin, en teygði sig mót hærri stöðum og víðari hvelfingu. Frá verkstofu Ríkarðar var leiðin lögð heim til hans. Sagði hann okkur nokkuð af h^stamanni okk- ar Kristjóni og dugnaði hans. Kvað hann Kristjón nefndan hafa verið Stjónka, þá er hann var drengur, og kvað hann nú sakir röskleika og flýtis Kristjóns kall- að að „stjónka" einhverju, þá er vinna skyldi af áhuga og dugnaöi. Tóbakshorn eitt mikið átti ég í þann tíð, og þá er rætt hafði ver- ið um Kristjón og dugnað hans, var Ríkarði rétt hornið með eft- irfarandi urrímælum: „Ef ég biðja einhvers má, óska ég þess í Ijóði, að þú „stjónkir“ stöfum á „struntuna* mína, góði“. „Strunta“ er og orð, sem ég hef aidrei heyrt fyr en í ferðinni — og eru svo nefndar af sumum hér eystra tóbakspontur. Skar nú Ríkarður stafina, með- an kaffið hitnaði, og mátti segja, að hánn „stjónkaði“ því verki. En er hornið kom aftur, voru þar meðal annara mynda hanar tveir, og var Ríkarði svo svarað: I „Ef þú hefðir hana þá hátt á öxlum þínum, mundi Óðinn mega gá mjög að heiðri sínum". Skyldu hanarnir koma á axlir Ríkarði í stað hrafnanna hjá Óðni. Loks fylgdi Ríkarður okkur til Elís Jónssonar, og var nú búist til ferða, enda vorum við mettir vel af nýju skyri og öðru góðgæti. En áður en á skipsfjöl var stígið, barst húsbændunum vísa sú, sem hér fer á eftir: „Ef ég kem á einhvern stað ykkar meiri að prýði, þeysi ég ekki’ í þetta hlað, þó að árin líði“. Vonar sá, er vísuna kvað, að eigi hendi hann það, þótt ísland sé land gestrisni og myndarskap- ar, að hann þurfi að framkvæma hótunina, því að gjarna vildi hann gista enn að Elís Jónssonar og konu hans. Og skilja menn þá hvert farið er í vísunni. En eigi urðu til fleiri kviðlingar í ferðinni,

x

Austanfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austanfari
https://timarit.is/publication/242

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.