Austanfari - 19.08.1922, Síða 2
2
A U SjT A N F A R I
9. tbl.
Seyðisfirði
hafa fyrirliggjand
Kex, 2 teg.
Rúsínur
Sveskjur
Hafragrjón
Hveiti, 2 teg.
Oma-smjörlíki
Eldspítur
Kartöflumjöl
Hrísgrjón
AAjólk Libby
Sáldsykur
Gerduft
Baunir
Bankabygg
Riismjöl
Rúðugler
Sykur, höggvinn Fiskibursta
Islenzkar afurðir keyptar háu verði
Jörð til sölu.
Hálf jörðin Bakkagerði í Borgarfirði, sem er
2 hundruð að fornu mati, er til sölu nú þegar.
L. J. Imsland.
og gera eigi áðurtaldir kröfu til
tignarsæta.
Var nú stigið í bátinn og á
stað haldið í áttina til Beruness.
Flutti okkur Karl Steingrímsson,
fiskimatsmaður og maður með
honum. Komum við að Berunesi
um líkt leyti og Kristjón reið að
garði með hestana. Virðist Beru-
nes góð jörð og vel setin, en
eigi gáfum við okkur tíma til að
stanza þar, en gerðum upp við
fylgdarmennina og hestamanninn
og riðum af stað.
Ferðin út ströndina gekk slysa-
lítið. Beizliskeðjan á Bleik slitnaði
einusinni og hann rauk á harða
sprett með Svein yfir stokka og
steina. Loks gat Sveinn stanzað
og lagfært keðjuna og gekk þá
alt vel. Vegurinn var vondur og
þokan huldi sýn til fjalls og fjöru.
Við og við mættum við fólki, en
höfðum lítt tal af því. Loks hitt-
um við bóndann á Krossi og reið
hann með okkur áleiðis. Er það
vel miðaldra ma/ður, góðlátlegur
og dugnaðarlegur. Heitir hann
Jón Eiríksson og hefur 'verið hér
á Seyðisíirði og víðar um firðina.
Kvaddi hann okkur yzt úti á
nesinu og hélt heim á leið.
Á Strætishorni svonendu er nú
verið að reisa vita all mikinn.
Bætir hann talsvert sjóleiðina á
þessum slóðum, en betur má ef
duga skal. Sáum við vita þennan
gnæfa hátt í þokunni, en gáfum
okkur ekki tíma til að athuga
hann náið, þar eð áliðið var
orðið kvölds.
Þá er kemur út fyrir nesið,
greikkar vegurinn. Til allrar ham-
ingju var dý á leiðinni og feng-
um við þar svölun nokkra. Liðk-
aðist þá málbeinið og Sveinn tók
að segja mér sögu af því, er mað-
ur einn, er við könnumst báðir
við, var að æfa hest sinn á að
hlaupa undir fullum manni. Tókst
Sveini svo vel lýsingin, að við
hlógum okkur báðir máttlausa.
Innan skamms komum við að
Ósi, fyrsta bæ í Breiðdal. Gætti
ég hestanna við túnhlið, en Sveinn
fór heim að spyrja til vegar yfir
Breiðdalsá. Brátt kom hann aftur
og hittum við nú mann á fótum.
Kvað hann okkur skyldu ríða
£ötuna svo sem hún lægi, unz
gatnamót tækju við. Þó skyldum
við halda neðri götuna. Loks
mundutn við koma að ánni og
skyldum við ríða hana undan
hólma einum. Halda síðan út
þann hólma og þvínæst ríða
kvísl af kvísl. Þá er áin væri að
baki, kvað hann okkur bezt að
ríða leira nokkura, unz við kæm-
um að læk einum. Upp með þeim
læk ættum við svo að ríða og
kæmum þá á götu, er lægi út í
Snæhvamm, er væri yzti bærinn
í norðanverðum Breiðdal. Og
þangað var ferðinni heitið.
Héldum við síðan af stað út í
þokuna, er var myrk og þykk
sem veggur. Yfir ána gekk sæmi-
lega„ utan hestur Sveins stakst
einu sinni í sandbleytu og alt fór
á bóla kaf. En ekki varð að slysi.
En þá er kom yfir ána, fór
hið góða samlyndi okkar Sveins
heldur að versna. Báðir þóttust
bezt vita leiðina, vorum þarna á
ókunnri flatneskju, mýrum og
melum í blindþoku. Rifumst við
við og við snarplega og vorum
all-þungir á brún. En einhver ó-
vitandi gáfa varð þess sífelt vald-
andi, að sá lét undan í hvert
sinn, er rangt hafði fyrir sér, og
innan skams komumst við á greið-
ar götur. Tókum við nú að sjá í
þokunni hús og bæi og alt var,
Snæhvammur; en þá er nær kom,
reyndist sumt algerð glámskygni,
en annað bæir, en ekki áfanga-
staðurinn. Loks riðum við heim
traöir all miklar, og gerði Egils-
staðajarpur þar það þrekvirki, að
hann stökk yfir garðinn og út á
túnið og smó síðan undir grind
og inn á tröðina aftur. Kvað þá
Sveinn rétt að veita honum verð-
laun fyrir hástökk og langstökk,
en ekki fyrir þýðleik og snild.
Þarna höfðum við tal af manni og
reyndist bærinn Þverhamar. Mikil
bygging var þar og reisuleg, en
ekkert sá fyrir þoku. Frh.
Kyrsetumenn - fþrúttamenn
Það er alkunnugt, að menn sem
hafa of mikla kyrsetur eða of
miklar stöður, verða þreyttir og
máttlitlir í líkama og útlimum.
Sumir fitna og verða værugjarnir,
aðrir megrast og verða fölir og
þreytulegir útlits; vöðvarnir rýrna,
hreyfingar allar þunglanialegar,
líkamleg og oft andleg deyfö fær-
ist yfir þá. En þannig er áStatt
fyrir hóp manna, að þeir hafa lít-
inn eða engan tíma aflögum, til
þess að hressa sig úti við á gangi
eða líkamsæfingum, sem þeim er
þó bráðnauðsynlegt.
Það er einmitt þessum mönnum,
sem ég, af margra ára reynzlu vil
benda á hvernig þeir auðveldast
og á skömmum tíma geta bætt
sig og náð sér til fullnustu og
sfðan haldið sér við.
Aðferðin er að láta núa á sér
allan líkamann (Totalmassagc),
fyrst daglega í 10—14 daga og
síðan sjaldnar 1—2 á viku í nokk-
urn tíma og úr því við og við
1—2 á mánuði. Með lítilli fyrir-
höfn gerir þetta þeim sem nudd-
aðir eru, meira eða jafnmikið
gagn og dagleg líkamleg áreynzla
°g göngur, en útheimtir í mesta
lagi llz—:!/4 tíma í hvert sinn.
Bezt er samtímis að viðhafa köld
böð, er hressa og styrkja líkam-
ann afar mikið og koma í veg
fyrir ýmsan kveifarskap, kulvísi
og kvef, sem ásækja þessa
menn mörgum fremur. — Það
sem þá vinst með þessari tiltölu-
lega *stuttu en öruggu læknisað-
ferð er:
1. hraustlegt útlit,
2. liprir og stæltir vöðvar,
3. menn þola betur veðurbreyt-
ingar (minna kulvísir og
kvefgjarnir),
4. taugaslappleiki (Nervösitet)
hverfur,
5. gigtarköst. (Rheumatismus)
hverfa með öllu.
6. nautn og vellíðan, sem þess-
ir menn þekkja einir.
Margir íþróttamenn þessa lands
þekkja vel nytsemi baðs og nudds
og nota það rækilega (eftir því
sem þeirgeta viðkomið), en þeir
eru alt of fáir. Þeir eiga allir, sem
kostur gefst á slíka, að láta baða
sig og nudda eftir hvern einasta
kappleik. Því að það er viðurkent
og þrautreynt um allan heim, að
nuddið eykur afl, leikni og þraut-
seygju og kemur algerlega í veg
fyrir harðsperrur, sinadrætti og
önnur óþægindi.
Kyrsetumönnum er ekki síður
nausynlegt nuddið. Og það mega
þeir muna, að engar íþróttir geta
verið þeim einhlýtar til líkams-
viðhalds, ýmsir vöðvar líkamans
þroskast of mikið, aðrir of lítið.
En nuddið þroskar alla jafnt, fram-
kvæmt af þar að kunnandi manni.
Seyðisfirði 17/s 1922
Guðm. Pétursson
nudíilœknir
Símfréttir.
Rvík 18. ágúst.
Frakkar héldu fast fram hegn-
ingarkröfunni gegn Þjóðverjum á
Lundúnaráðstefnunni. Lauk henni
því samkomulagslaust. Var mál-
inu vísað til skaðabótanefnd-
arinnar í París. Frakkar hafa
lýst yfir því, aö þeir muni ekki
gegna úrskurði nefndarinnar verði
hann ekki í samræmi við Poin-
care og kröfur hans. Liðsafnaður
er hafinn í Frakklandi til innrás-
ar í Rínarlöndin. Ákvörðun Lloyd
George var samþykt af öllu ráðu-
neytinu enska, en íhaldsblöðin
halda því fram, að óheimilt hafi
verið að láta ráðstefnuna klofna
um málið. Talið er að sundur-
þykkjan verði ekki til eyöilegg-
ingar samvinnu Frakka og Breta
framvegis. Stjórnarherinn írski
hefur tekið síðasta hæli uppreist-
armanna, Cork. Borgin er öll í
rústum. Griffith forseti er dáinn.
Var hann jarðaður í fyrradag að
100 þúsund manns viðstöddum.
Northcliffe, lávarður, einnig dáinn.
Var hann jarðaður í gær í West-
minsterdómkirkjunni. Þjóðverjar
telja ráðstefnuslitið í Lundúnum
alvarlegasta viðburð sögunnar,
síðan vopnahléssamningarnir kom-
ust á. Stjórnin þýzka hefur feng-
ið tilkynningu um, að greiðslu-
frestur fáist alls ekki á skaðabót-
unum. Hún hefur svarað og kveðst
ekki geta greitt neitt. Kolanáma-
verkfallinu í Ameriku er nú lokið.
Noregsbanki hefur lækkað vexti
niður í 5%.
Steinolíueinokun stjórnarinnar
er mesta umræðuefnið hér og er
talinn nýr nagli í stjórnarlíkkist-
una. Lögjafnaðarnefndin hefur
mælt með stofnun loftskeytastöðv-
ar á Austur-Grænlandi. Máliö er
mikið rætt í dönskum blöðum.
Er talið líklegt að verkið verði
framkvæmt í náinni framtíð.
Reykjavíkurgengi í dag: Sterling
25,70, danskar 124,22, sænskar
155,33, norskar 102, dollar 5,87,
mark í Danmörku 0,43.
Svipall.
Hitt og þetta.
Látinn
er fyrir nokkru Helgi Hávarðs-
son bóndi á Grund í Mjóafirði,
vitavörður við Dalatangavitann.
Var banamein hans lungnabólga.
Var Helgi hniginn mjög á efra
aldur. Hann var einn af þeim