Austanfari


Austanfari - 19.08.1922, Qupperneq 3

Austanfari - 19.08.1922, Qupperneq 3
9. tbl. AUSTANFARI 3 Skóhlífar allskonar, nýkomnar í verzlun T. L. Imslands erfingja. fáu mönnum, er enginn kann ann- að um segja, en þaðsemsómi rná að vera hverjum góðum dreng. Lýsa vinir hans honum svo, að hæglátur hafi hann jafnan verið í dagfari, en þó glaður og reifur, drengur reynst hverjum manni og vinum sínum með afbrigðum vel. Hann átti fjölda barna og hefur þeim öllum komið vel til manns. Klauf hann alla þá erfiðleika, er einyrkinn með stóran barnahóp á við að stríða, og var talinn mjög vel stæður maður og hinn áreiðanlegasti í öllum slíkum sök- um. Vitavörður var hann við Dalatangavitann og hefur víst eng- inn það sagt getað, að hann hafi eigi rækt það starf svo sem bezt varð á kosið. Börn hans eru öll efnileg og líkjast föður sínum að dugnaði. Er vonandi að einhver sá, er þekt hefur Helga og notið vináttu hans, leggi sveig á leiði hans hér í blaðinu. tiruni. í fyrri viku brann til kaldra kola geymsluhús, er rafmagns- stöðin átti frammi í Fjarðarseli. Veit enginn neitt um orsök eldsins, húsið stóð í Ijósum loga, er stóðvarstjórinn kom út, skömmu fyrir óttu. Voru þá eigi tiltök að bjarga neinu. Húsið var vátrygt, en ekki það sem í því var. En eigi mun það hafa verið svo verð- mætt, að tjónið yrði tilfinnan- legt bænum. Aftur á móti skað- ast einstakir menn nokkuð við brunann, svo sem stöðvarstjórinn o. fl., er áttu þar eitthvað inni. ftjónavígslur. Uni miðjan júlí voru/gefin sam- an í hjónaband á Kálfafellsstað í Skaftafellssýslu Jóhanna Péturs- dóttir og Helgi H. Eiríks, náma- fræðingur. Faðir brúðarinnar vígði brúðhjónin. Fimtudag í fyrri viku voru gefin saman á Valþjófsstað Bryndís Þórarinsdóttir og síra Árni Sigurðsson, fríkirkjuprestur í Reykjavík. Séra Þórarinn, faðir brúöarinnar vígði. Fyrir nokkru voru gefin saman af séra' Haraldi Þórarinssyni í Hofteigi Ingibjörg Björnsdóttir Og Aðalsteinn Jóns- son frá Fossvöllum, bóndi á Vað- brekku í Jökuldal. Óskar „Aust- anfari“ öllum ungu hjónunum heilla. Stefdn EiríkSson, tréskeri, átti sextugsafmæli 4. þ. m. Var hann staddur norður í Vopnafirði við silungs- og lax- veiði. Fjöldi manna heimsótti áf- mælis„barnið“ og var gleði og glaumur mikill í tjaldinu hjá Ste- fáni, sem er enn sem ungur mað- ur, léttur á fæti og léttur í lund, kátur og skemtinn æskunnar unn- Vefjartvistur, bleiktur og óbleiktur, svo og brúnn, gulur og blár fæst í verzlun St.Th.Jónssonar,Seyðisfirði Verzl. St. Th. Jónsson^ Seyðisfirði heíur nú nýlega fengið: rúgmjöl, hafragrjón, hveiti, margarine, sultutau, línutauma, króka og fleira. Verðið altaf að lækka. Takið eftir! Timbur, cement, þakjárn, þakpappa, panelpappa, ofna og eldavélar er bezt að kaupa í verzlun Rolf Johansen, Reyðarfirði Hið alþekta góða B A ð L V F (Coopers) fæst í verzlun St. Th. Jónssonar. andi. Á Stefán enn eftir að láta margt fallegt frá sér fara — og óskar þess „Austanfari", að engi verði honum al'lur dagur langur und sal fjalla (Gunnl. Ormst.)unz öldin hefur honum hærur greitt á herðar niður. Knattspyrnan milli Seyðfirðinga og fótbolta- félagsins „Fram“, Hjaltastaöaþing- há, fór fram á tilsettum degi. Var fjöldi fólks viðstaddir og var framkoma knattspyrnumannanna þeim til sóma. Heldur var linleg sóknin og samspil ekki sem bezt, en reglum var vel fylgt og dóm- arinn Sveinn bóndi á Egilsstöðum virtist mjög góður. Lauk leiknum þannig, að Seyðfirðingar sigruðu með 3 mörkum gegn einu. „Fram“ þarf sérstaklega að æfa málmann sinn betur. Ætti nú „Fram“ að æfa sig og skora á Seyðfirginga og árétta. Bœjarstjórnarfundur var hér haldinn síðastliðinn þriðjudag. í húsbyggingartnáli bæj- arins, sem áður hefur verið á drepið, var samþykt að taka til- boði um byggingu steinhúss, frá Sveini Árnasyni, Stefáni Runólfs- syni og Sigurði Björnssyni. Nem- ur tilboðið 7000,00 kr. Þá voru greidd atkvæði um hverjum skyldi veita meðmæli til áfengissölu í bænum. Hafði Jón Sigurðsson kennari bæzt við umsækjendur eftir tilmælum séra Björns, eða svo lýsti hann sjálfur yfir. Var mörg vitleysa sögð í máli þessu og tuggnar gamlar tuggur fram úr jafn geðslegum munnum og þeirra Jónasar frá Hriflu, Ólafs Frið- rikssonar & Co. Atkvæðagreiðsla fór í fyrstu þannig, að N. C. Nielsen fékk 3 atkvæði Jón Sig- urásson 3 og Jóhann Wathne 2 Sveinn Árnason er hafði lýst því yfir að hann fylgdi Nielsen, var ekki viðstaddur. Var þá á ný kos- ið og lauk þannig þeirri kosningu, að Jón fékk 3 atkv. en Nielsen 5. „Hana nú þá og hana nú þá“, sagði Jón Þorláksson. M.b. „Óðinn'‘ er hér nú inni með bilaða vél. Bilaði hann strax er hann var út kominn héðan síðast og hefur eigi getað sint síldveiðum. Er vonandi að viðgerðin taki sem styztan tíma, svo að „Óðni“ tak- ist að flytja á land hér nokkur hundruð tunnur af sí'd áður lýkur sumrinu. Quðm. Pétursson nuddlæknir er nú seztur hér að inni í Fjaröarseli með fjölskyldu sína. Mun hann brátt hafa 3—4 rúm handa sjúklingum úr sveitum ofan. Um grein er Guðmundur skrifaði í Morgunblaðið 1915 um sama efni og nú í „Austanfara" fór Ólafur ritsjóri Björnsson þeim orðum, að hún væri mjög eftir- tektarverð — og kvaðst hann sjálf- ur, ásamt ýmsum öðrum lands- kunnum mönnum, erhann tilnefndi, hafa notið lækninga Guðmundar „AUSTANFAR1“ kemur út vikulega. Verð 5 kr. ár- gangurinn, ef borgað er í haust- kauptíð í haust, annars 6 kr. — Afgreiðslu og innheimtu annast Guðm. G. Hagalín Sími 54 A Góðar teg. fA|AAaf úrum og k 1 u k k u m. Guðm. W. Kristjánsson úrsmiður, Seyðisfirði. árum saman með bezta árangri. Umsögn Ólafs var í blaðinu „ísa- fold“. Strandað. hafa tvö norsk skip nú í vikunni sitt hvoru megin Langaness, ann- að á boða framundan Sauðanesi en hitt á Lambeyri, skamt frá Skálum. Skipið sem á Sauöanesi strandaði er mótorskonnorta, síld- veiðaskip. Voru í henni 600 tunn- ur af síld og 700 tómar tunnnr. Hitt skipið er gufuskip, sem var að koma frá Noregi, til að sækja síld til Siglufjarðar. Mannbjörg varð, en bæði skipin talin algert strand. „Síríus“ kemur hingað í dag með skipshafnirnar, „Leifur htpni“. hefur fiskaö með „snurrevaad" að undanförnu. Hefur hún reynst all vel, en samt kveður skipstjóri sér ekki að fullu líka aflinn. Segir hann tæplega nægan togara. En annars telur hann engin vandkvæði á að fiska hér við ísland með þessari veiðiaðferð. Skjpstjórinn er Gísli Oddsson frá ísafirði. E.s. fíotnia kom hér í nött. Meðal farþega voru Halldóra Björnsdóttir í Firði og dóttir hennar, Mogensen, lyf- sali, Jón Arneten, framkvæmda- stjóri, Páll Jónsson, kaupmaður á Eskifirði, Markús Jensen frá s. st. o. fl. Með skipinu voru hinn danski hluti lögjafnaðarnefndar- innar og ensku kvikmyndaleikar- arnir, sem hafa verið að kvik- mynda „The Prodigal Son“ eftir Hall Caine. Hitti ritstjórinn þá að máli og spurði hvort þeir hefðu ekki breytt til batnaðar heimsku þeirri um ísland, sem Hali Caine ber á borð. Kváðu þeir jú við, töldu myndina verða góða og viðurkendu að þeir hefðu vel séð, hverjar fjarstæður rithöfundurinn fer með. Hér á Seyðisfirði hugð- ust þeir dvelja um hríð, en sakir skipaferða þótti þeim tíminn of langur, er þeir þyrftu að dvelja. Þótti þeim einkennilegt og fallegt landslag hér og létu mjög vel af landinu. Flokkurinn var 14 manns, 12 karlar og 2 konur. Fulla vissu hefur nú ritstjóri „Aust- afara“ fyrir því, að náðun

x

Austanfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austanfari
https://timarit.is/publication/242

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.