Austanfari


Austanfari - 24.02.1923, Blaðsíða 3

Austanfari - 24.02.1923, Blaðsíða 3
30. tbl. AUSTANFARI 3 Bæjarstjórastaðan á Seyðisfirði er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur tii 1. maí næstkomandi. Staö- an veitist til næstu 6 ára frá 1. janúar 1924. Árslaun 4500 krónur. Bæjarstjórinn skal hafa á hendi bæjargjaidkerastarfið og fleiri störf í þarfir bæjarins, án nokkurs sérstaks skrifstofufjár. Umsóknir um stöðu þessa sendist undirrituöum. Skrifstofu bæjarfó^eta Seyðisfjarðar 20. febrúar 1923. Ari Arnalds. með mestri athygli, eru auðvitað deilumál Frakka og Þjóðverja, sem búast má við að leiði yfir heiminn hiná ægilegustu styrjöld, þar sem Rússar og Þjóðverjar beriast til þrautar, hlið við hiið. Og verður slíkt sízt til fagnaðar. Innlendar fregnlr. Svo er jafnt með innlendar fregnir sem erlendar, að eigi verður alt upp tínt, heldur tekinn sá kostur, að gefa yfirlit yfir það, sem gerst hefur, í sem styztu máli. Illviðri og afleiðingar þeirra. Tíðarfar hefur verið mjög svo um- hleypingasamt, og í janúar var snjó- koma all mikil og kaldleg veðrátta, enda ís mikill fyrij- Vesturlandi, svo að felmtri sló á menn. Hefði það og verið spauglaust, ef ís hefði svo snemma vetrar Iagst að Vestur- og Norðurlandi. Ofsaveður geysaði sunnanlands fyrst í janúar. Brotnaði þá hafnargarðurinn í Reykjavík á meira en 100 inetra svæði og skip löskuðust meira eða minna, stór og smá. Meðal annars rak á land „Þór“, björgunarskip Vestmannaeyínga, er náðist út aftur. Manntjón varð og á höfninni, vélarbátur sökk með tveim Keflvíkingum, er báðir druknuðu. í Sandgerði brotnuðu tveir vélbátar í spón og undir JÖkli fórust rnenn í lendingu. Nú upp á síðkastiö hefur tíðinni brugðið til hins betra, þó að enn þá sé umhleypingasamt. Verkamenn og vinnuveítendur. Ósamkomulag hefur verið í Reykja- vík milli vinnuveitenda og verkamanna, útgerðarmanna og sjómanna og hef-, ur gengið iila að ná samkomulagi. Buðu útgerðarmenn 220 kr. mánað- arkaup og vildu fá 20 prc. lækkun á lifrarhlut. Þá má og í þessu sam- bandi minnast á prentaraverkfallið, Vildu prentsmiðjueigendur lækka laun- in um 20 prc., iáta niður falla sjúkra- styrk til prentara og' ennfremur hætta að greiða laun í sumarleyfi. Stóð í stappi miklu og vildu hvorugir und an láta, unz samið var um að lækka skyldi launin urn fjögur og hálft prc. til 1. ágúst og síöan um 13 prc. Komu engin blöð út í Reykjavík ineðan á verkfallinu stóð—nema „Al- þýðublaöið", síðari hluta verkfHls- tímans. Mannalát. Fyrir skömmu lézt í Reykjavík Andrés Féldsteð, augnlæknir^ sem var alþekturað dugnmði og skörungsskap. Þá er og látinn þar syðra Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdarstjóri S. í. S. —- og missir þar Sainbandið hauk úr horni. Látist hefur á Akureyri Hendrik Schioth, fyrverandi gjáldkeri Islands- banka, merkur maður og vinsæll. Var hann 82 ára að aldri og mjög gam- all borgari Akureyrar. Tók hann þátt í stríðinu milii Dana, Þjóðverja og Austurríkismanna 1864 og kunni það- an irá mörgu að segja. Var hann faðir margra og nýtra barna. fslandsbanki. Settir hafp verið bankastjórar ís- landsbanka þeir Jens Waage, banka- bókari, og Öddur Hermannsson sktif- stofustjóri. Átján hafa sótt opinber- lega um embættið og tveir „prívao* -- að sögn. Líklegir eru taldir Jens Waage og Magnús Guðmundsson, alþingismaður. Nýlega hefur Islands- banki tekið að yfirfæra, svo að batn- andi tímum má ef til vill búast við. Þingið. Alþingi gat eigi komið saman fyr en síðastliðinn mánudag, sakir þess, hve „Goðafoss" kom seint til Reykja- víkur með þingmenn utan af landi. Kosningu hlutu sem þingforsetar: Magnús Kristjánsson í sameinuðu þingi með 16 atkv. (Jóh. Jóh. fékk 15 og 10 seðlar voru auðir). Bene- dikt Sveinsson í Neðrideild með 19 atkv. og Halldór Steinsson í Efri- deild með 7 atkv. (Guðm. Ólafsson íékk 5). Varaforsetar voru kosnir: Sveinn Ólafsson í sameinuðu þingi, Þorleifur Jónsson og Bjarni fráVogi í Neðrideild og Guðm. Ólafsson og Sig. Kvaran í Efrideild. Skrifarar eru í Neðri deild Þorsteinn Methúsa- lem og Magnús Guðmundsson og í Efrideild Hjörtur Snorrason og Karl Einarsscn. í nefndir voru kosnir flest- ir sömu og áður. Nýju þinginenn- irnir hiutu kosningar í nefndir svo sem hér segir: Ing björg H. Bjarnason í fjárveitinga- og mentamálanefnd, Jón Magnússon í samgöngumála- og allsherjarnefnd og Jónas frá Hriílu í mentamála-, fjárveitingar- og sjávar- útvegsnefnd. Fjármálaráðherra hélt fjármálaræðuna á þriðjudag, Lagði hann fyrir þingið hallalaus fjárlög sem og fjáraukalög, er námu hálfri miiiión. Hafa fjáraukalög ekki verið lögð fyrir þingið síðustu tvö ár, og er sagt að sú hin hálfa millión stafi mestmegnis frá konungskomunni. Óvíst er hversu flokkarnir bræða sig saman. Héldu þeir fundi síðastliðinn laugardag, en frá þeiin fundum kann „Austanfari" engin tíðindi. Líklegt þykir að stjórnin muni sitja. ...O " ---- Nýjustu fréttir. Erlent. Frakkar hafa reynt að neyða Þjóðverja til að kaupa óunnar vörur franskar. Þeir hafa og skift um lög- gæzlu í Ruhrhéraðinu, sett þarfranska lögreglu. Þrjár borgir hafa þeir tekið við Rín og sett þar her. Lýðveldis- hugsun þeirra (sbr. áður komnar fréttir) fær byr undir báða vængi. í löndum þeim, er þeir vilja gera að óháðu lýðveldi eru 10 milliónir manna. Fimm hundruð Prússum hefur verið vísað burt vegna opinberrar andstöðu gegn lýðveldis hugmyndinni. Bretar hafa fengið Frökkum til umráða eina af járnbrautum þeim, er þeir eiga að ráða yfir í Ruhrhéraðinu, þó með þeim skilyrðum, að ekki flytji þeir meira en tvær hersendingar á dag. Prússastjórn mótmælir harðlega. Sendiherra Þjóðverja í Whasington hefur beiðst fjár til styrks bágstöddu fólki í Ruhrhéraðinu. Bandaríkjastjórn hefur neitað og er orsökin sú, að þýzkir iðnkonungar eiga 200 millión- ir sterlingspunda í amerískum bönkum. Segja Bandaríkjamenú þeim sæmra að nota það fé fyrst, áður en þeir taki- að biðjast hjálpar. Um 50 þýzka embættismenn hafa Frakkar dæmt af lífi og fara aftökur daglega fram. Bandamenn hafa aukið hersending- ar sínar til Smyrna og hafa þeir þar nú 24herskip. Frakkar hafa lánað Pól- verjum 400 milliónir franka. Brezka stjórnin er ósammála um það, hvort hún eigi að slíta að fullu sambandi við bandamenn sína frá stríðsárunum. Þjóðþing Finna hefur ákveðið að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um bannlögin á nýjan Ieik. Innlent. Bátur með 4 mönnum fórst á höfninni í Vestmannaeyjum. Bátur fórst á Reykjavíkurhöfn á þriðjudaginn. Einn maður druknaði, en tveir kom- ust af. Afli togaranna selst 'vel í Englandi, en aflabrögð eigi að sama skapi góð. Engir samningar hafa enn tekist með sjómönnum og útgerðar- mönnum og er sama kaup goldið og í fyrra. Stofnað er stjórnmálafélag á Akur- eyri af andstæðingum „Tímaklíkunn- ar“ og Bolsivikka. Heitir það „Verð- andi“. Var það stofnað af 100 kjósendum og er búist við að 300 gangi inn sem bráðast. Heimilt er Nýkomnir Pianó- og borðlampar, mjög ódýrir, til Indriða Frakki í óskilum á Köhlershúsum. öllum að ganga í félagið, sem eru 18 ára að aldri óg eru samþykkir stefnu þess. f stjórn voru kosnir Sig. Hlíðar, dýralæknir, Karl Nikulásson, kaupmaður og Guðm. Bergsson, póst- meistari. Úr heimahögum. Rétt þykir að geta þess, að bæjarstjórnarkosn- ingarnar hér í vetur fóru þannig, að A- listi kom að þeim Karli Finnboga- syni og Jóni Sigurðssyni, en B-listj Ottó Wathne. Fengu þeir A-lista menn færri atkvæði en undanfarin ár, þótt þeir hefðu flokksforingja sinn efstan á lista, þann manninn, sem þeirra hefurmest fylgi,en B-lista menn mann, sem eigi hefur setið áður í bæjar- stjórn. All mikið kvað að breytingum á B-listanum og var Sig. Arngríms- son færður nokkuð upp. Bœjarstjórinn féll, við atkvæðagreiðslu, þá e,r bæjarstjórnarkosningarfóru frain. Galt þar málefnið flytjandans—eðahvað? Svo hélt „Austanfari" að fara mundi. Var málið síðan tekið upp aftur og því vísað í nefnd. Gaf bæjarfógeti mikilsverðar upplýsingar um kost- naðinn, og var við almenna atkvæða- greiðslu hinn 14. þ. m. samþykt að ráða bæjarstjóra. Er nú starfið aug- lýst sem sjá má í blaðinu, Opinberað hafa trúlofun sína ungfrú Lára Björnsson, símamær hér, og Jóhann Wathne kaupm. „Austanfari,, óskar heilla. Með „Gullfoss'‘ fóru til Hafnar sér til lækninga Fr. Watline og frú. Hallur Hallsson tannlæknir biður að geta þess, að hann verði hér tvo mánuði í sumar Kemur í júlí: Nánar í næsta blaði. Margt af greinum, bæjarfréttir, ýmsar at- huganir, hnútur að verðleikum veittar, smágreinar um menn og málefni, erlent og innlent, verður að bíða næsta blaðs og blaða. „ Gneisti'1 mun Iátinn. Banamein kuldi og ónot. Flugur þurfa hita. „Órabelgur" hefur fengið áströlsku svefnsýkina. Prentsmiðja Austurlands

x

Austanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austanfari
https://timarit.is/publication/242

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.