Dagur - 03.10.1997, Qupperneq 4
20 - FÖSTUDAGUR 3.OKTÓBER 1997
LÍFIÐ í LANDINU
Mál sem upp er risið í Seðla-
bankanum, út af utanferðum
Steingrfms Hermannssonar
bankastjóra, það er á margan
hátt dæmigert fyrir þau sárafáu
spillingarmál sem hér komast í
fréttirnar. Það er að segja: það
er í rauninni smávægilegt, eins
og einn dropi í hafinu, komst
upp fyrir tilviljun og er rekið á
tilviljanakenndum grunni í fjöl-
miðlum; yfirlýsingar ganga á víxl
og munu halda áfram enn um
sinn, þangað til málið er farið að
snúast um einhver alger aukaat-
riði, það verður þæft fram og til
baka um skeið - en þá verða líka
allir orðnir dauðleiðir á því,
löngu búnir að gleyma þeim
meginatriðum sem málið kann
að hafa snúist um í upphafi, og
svo sofnar málið svefninum
langa og allt verður eins og best
verður á kosið í okkar besta
landi allra landa þangað til eitt-
hvert smámálið af svipuðum
toga rís upp næst, og þarf að
þæfa það þangað til það deyr.
SpiUiiigannál
Spillingarmál kalla ég það,
vegna þess að spilling er auðvit-
að það sem málið snýst um; hef-
ur Steingrfmur Hermannsson
misnotað aðstöðu sína og fengið
borgaðar ferðir til útlanda af al-
mannafé, sem hann hefði átt að
borga sjálfur úr eigin vasa? Nú
er þar fyrst til að taka að vissu-
lega hefur Steingrímur Her-
mannsson rétt fyrir sér, þegar
hann segir sér til málsbóta að
umhverfismál muni verða æ
mikilvægari í framtíðinni og
snerta efnahagsmál í mun ríkari
mæli en verið hefur. Því er út af
fyrir sig ekkert nema gott um
það að segja að Seðlabankastjór-
ar skuli hafa áhuga á og vita
eitthvað um umhverfismál. Það
er lítill vafi á því að sá Seðla-
bankastjóri er betri Seðlabanka-
stjóri en ella sem hefur til að
bera þekkingu á fleiru en ein-
tómum útreikningum á vöxtum
og verðbólgu, til dæmis um-
hverfismálum. Spurningin er
bara sú hvort ríkissjóður eigi
endilega að borga ferðir fyrir
bankastjórann að kynna sér slík
mál á éinhverjum lúxusfundum í
útlöndum. Það væri gaman að fá
að vita hvort og þá hverníg
vönduð þekking Steingríms Her-
mannssonar á umhverfismálum
hefur haft áhrif á mikilvæg störf
hans nú að íslenskum efnahags-
málum. Gæti hann nefnt ein-
hver dæmi?
Sporslukerfi
En það er best að reyna að prófa
þetta mál á sjálfum sér. Ég hef
til dæmis þó nokkurn áhuga á
umhverfismálum og ég er viss
um að það gerir mig að mun
betri útvarpsmanni en ella að
vita svolítið um þau mál öll. Eigi
að síður hefur mér reyndar ekki
dottið í hug að fara fram á það
við Ríkisútvarpið að það borgi
undir mig ferðir á fundi í út-
löndum, þar sem ég gæti kynnt
mér umhverfismál. Og ég er
heldur ekki f þeirri aðstöðu að
geta skrifað bara slíka ferð á út-
varpið, bjóði mér svo við að
En mergurinn málsins er auðvitað sá að Stein-
grímur er uppalinn iog gegnsýrður afsmá-
spillingar- og sporslukerfi þvi sem íslenska
stjómkerfíð er undirlagt af.
horfa. Og ég er líka viss um að
ef ég gengi á fund framkvæmda-
stjóra útvarpsins og tilkynnti
honum að ég ætlaði að fara á
þrjá slíka fundi í útlöndum á
vegum útvarpsins - eins og
Steingrímur virðist hafa farið á
fund Þrastar Olafssonar for-
manns bankaráðs Seðlabankans
og tilkynnt honum að hann ætl-
aði að skreppa út og hugsa r m
umhverfismál svolitla stund - þá
myndi framkvæmdastjóri út-
varpsins ekki taka því þegjandi
og hljóðalaust, eins og Þröstur
virðist hafa gert þegar Stein-
grímur kynnti honum ferðalög
sín. En ég er náttúrlega ekki
Steingrímur Hermannsson, og
syrgi það út af fyrir sig ekki að
ráði. En það sem mest er um
vert: ef ég hefði samsvarandi
laun hér hjá útvarpinu og Stein-
grímur hefur hjá Seðlabankan-
um, þá held ég í fullri einlægni
að mér myndi ekki endilega
detta í hug að láta útvarpið
borga fyrir mig ferðir á fundi til
að kynna mér mál sem ég hefði
persónulega brennandi áhuga á.
Steingrímur sagði í viðtali við
DV fyrir viku eitthvað á þá leið
að hann hefði ekki getað farið
þessar ferðir, nema á kostnað
Seðlabankans. Ansi hlýtur hann
þá að hafa þurft’ að gista á góð-
um hótelum, ef Seðlabanka-
stjóralaunin - og annað smálegt
sem Steingrímur hefur heyjað
sér gegnum tíðina - hrukku ekki
til. Og Steingrímur vælir helst
um það í viðtalinu í DV að hann
hafi ekki getað haft konuna sína
með sér, heldur hafi þurft að
fara einn, litla skinnið. En
mergurinn málsins er auðvitað
sá að Steingrímur er uppalinn í
og gegnsýrður af smáspillingar-
og sporslukerfi því sem íslenska
stjórnkerfið er undirlagt af; því
efast ég ekkert um einlæga
undrun hans og hneykslun yfir
því að þetta lítilræði skuli hafa
vakið einhverja athygli.
Engai hreinar límir
En það er annáð einkenni á
þessum íslensku spillingarmál-
um - sem sé að það eru í raun
engar hreinar línur, og enginn
getur talist hafa hreinan skjöld.
Hlutur bankaráðsins í þessu
máli er til að mynda helst til
bjánalegur. Nú gefur banka-
stjórnin út yfirlýsingu fulla af
heilagri vandlætingu í garð
Steingríms, af því málið er kom-
ið í blöðin og fjölmiðlana, en á
fundinum með Steingrími á sín-
um tíma virðist Þröstur Olafs-
son ekki hafa þorað að segja
múkk þegar Steingrfmur til-
kynnti honum að hann væri að
hugsa um að skjótast til útlanda
og hugsa dálítið um koltvísýring.
Nú snýst málið altso um það
hvort skilja mátti þögn Þrastar
sem samþykki, eða hvort Stein-
grímur hefði átt að ráða eitthvað
í íylusvipinn á honum að hann
kynni að hafa eitthvað á móti
þessu. En kannski hafði Þröstur
ekkert á móti þessu, kannski var
hann bara dauðfeginn því að
Steingrímur skyldi þó yfirleitt
gera eitthvað í vinnunni, þó svo
það væri í útlöndum og snerist
um umhverfismál en ekki bein
efnahagsmál; kannski fattaði
Þröstur sem sagt ekki að það
væri neitt athugavert við þetta
fyrr en það kom athugasemd frá
endurskoðendum bankans um
hvað þessar nótur frá einhverj-
um fínum hótelum í Ríó eða
hvar það nú var kæmu eiginlega
starfi Seðlabankastjóra við. Það
er reyndar dálítið merkilegt að
svo virðist sem endurskoðendur
séu nú að verða helstu siðferðis-
postular þessa Iands - flestoli
þessi Iitlu subbulegu spillingar-
mál okkar komast í dagsljósið af
því þeir eru ekki sáttir við það
sem þeir sjá í bókhaldinu. Er
ekki eitthvað verulega einkenni-
legt við Iand þar sem siðferðis-
postularnir eru ekki stjórnmála-
menn, ekki fjölmiðlamenn, ekki
prestar, ekki áhrifamenn af
neinu tagi - heldur bókhaldarar?
Dagpeningar
fyrir eiginkonur
Og Þröstur Olafsson hefur alveg
.sérstaklega ekki úr háum söðli
að detta sem siðferðispostuli,
frekar en aðrir í Seðlabankan-
um. Nú kemur það allt í einu
upp úr dúrnum - meira og
minna fyrir tilviljun að sjálf-
sögðu - að í fyrra hafði bankaráð
Seðlabankans þegjandi og
hljóðalaust, án þess nokkur
vissi, sett aftur í gildi reglur sem
höfðu verið afnumdar vegna al-
mennrar hneykslunar á sínum
tíma; þær reglur að rétt væri og
sjálfsagt að almenningur borgaði
ferðir, uppihald og dagpeninga
fyrir eiginkonur Seðlabanka-
stjóra sem færu til útlanda á
fundi. Þessu hafði náttúrlega
enginn tekið eftir - nema náttúr-
lega bókhaldararnir, en þetta var
í samræmi við skjalfestar reglur
bankaráðsins og því náði þeirra
siðferðisvitund ekki yfir þetta.
Og almenningur var látinn
halda að reglur sem hann taldi
ósanngjarnar hefðu verið
afnumdar, í nafni réttlætis og
snoturs siðferðis í stjórnsýsl-
unni, en reglurnar voru þá bara
settar aftur, um leið og allir voru
búnir að gleyma málinu.
Fallöxin sjálfskipaða
Dæmigerðast af öllu við þetta
mál, og það sem gerir það svo
sér-íslenskt hneykslismál, er svo
hvernig það fer fljótlega ekki að
snúast um rétt siðferði, heldur
um persónur. Og DV, sem aug-
lýsir sig þessa dagana grimmt
sem fallöxi yfirvaldanna, blað
sem hlífir engum og dýpkar
skilning manna á þjóðfélaginu
öllu, það spyr Steingrím Her-
mannsson í viðtalinu fyrir viku -
eftir að hafa tekið á honum með
sannkölluðum silkihönskum -
hvort hann sé sár yfir þeirri
gagnrýni sem ferðalög hans á
kostnað almennings hafa hlotið.
Blaðið sjálft, fallöxin sjálfskip-
aða, leggur sem sagt upp í hend-
urnar á sakborningnum Stein-
grími tækifæri til að láta vor-
kenna sér, enda reyndist Stein-
grímur náttúrlega vera ansi sár.
Enda þótt fundahöld Steingríms
í útlöndum séu auðvitað ekki
glæpur, þá eru þau hallærisleg
afglöp, og kannski væri næsta
skref DV að fara á Litla-Hraun
og spyrja fangana þar hvort þeir
séu ekki agalega sárir yfir því að
verk þeirra skuli hafa verið
gagnrýnd. En það verður náttúr-
lega ekki, því þeir eru ekki part-
ur af kerfinu og hér á Islandi
hefur aldrei tíðkast að það sé
sama - Jón og séra Steingrímur.
Pistill llluga varfluttur i morg-
unútvurpi rásar 2 í gær.