Dagur - 03.10.1997, Side 6
22 -FÖSTVDAGUR 3.0KTÚBER 199j
LÍFIÐ í LANDINU
Sýning á leðurfatnaði
Ólöf Matthíasdóttir opnar sýningu á leðurfatnaði í Galleríinu Amtmannsstíg 1 i dag
klukkan 17.00. Sýningin stendur til 20. október.
Sigríður Sunneva sýnir nýja línu í Ráðhúsinu um helgina (aðeins boðsgestir!) en þeir
sem vilja sjá og þreifa á glæsiflíkum hennar úr skinnum, roði og beinum (o.fl.) geta
skoðað og keypt í Atson Laugavegi, Veiðimanninum Hafnarstræti í Reykjavík og á
Akureyri að Hvannavöllum 14.
Sýning Ingibjargar
Á morgun opnar Ingibjörg Hauksdóttir sýningu á olíumálverkum í Gallerí Fold við
Rauðarárstíg. Sýninguna nefnir listakonan Þræðir, Sýningin stendur til 19. október.
Kvikmynclir lielgarinnar
Kvikxnynd helgarinnar er Flóttamaðurinn, en
hún er á dagskrá Stöðvar 2 á laugardagskvöld.
Harrison Ford, sem á dögunum var kosinn mesta
kvikmjTidastjarna allra tíma, leikur aðalhlutverk-
ið, Dr. Kimble, sem er á flótta ranglega ákærður
um morð á eiginkonu sinni. En harðjaxlinn
Tommy Lee Jones stelur senunni f hlutverki lög-
reglufulltrúans sem eltir Kimble.
Myndin var tilnefnd til nokkurra Oskarsverð-
Iauna á sínum tíma og Tommy Lee Jones hreppti
verðlaunin fyrir bestan leik í aukahlutverki.
Þetta er hörkuspennumynd sem óhætt er að
mæla með.
Ahorfendum Ríkissjónvarpsins gefst tækifæri
til að velja bfómynd föstudagskvöldsins. Valið
stendur milli Spies, Lies and Naked Thights,
gamanmyndar sem við kunnum ekki skil á,
Ghost með Demi Moore og White Palace með
Susan Sarandon.
Ghost fær okkar atkvæði, enda er hún í senn
spennandi og hugljúf. Svo er leikur Whoopi
Goldberg sérlega skemmtilegur enda hlaut hún
verðskuldaðan Oskar fyrir vikið.
Á laugardagskvöld sýnir Ríkissjónvarpið síðan
ágæta kafbátaspennumynd með Sean Connery,
Alec Baldwin og Scott Glenn í aðalhiutverki.
Brandarar
í einum þætti
Á laugardag frumsýna félagar í Leikfélagi
Kópavogs þrjá einþáttunga eftir Anton
Tsjekhov. Ber sýningin yfirskriftina Með
kveðju frá Yalta. Þættirnir heita Bónorðið,
Skaðsemi tóbaksins og Björninn. Tsjek-
hov kallaði þessa þætti sína „brandara í
einum þætti".
Sex áhugaleikarar koma fram í uppfærsl-
unni, Bjarni Guðmarsson, Frosti Friðriks-
son, Jóhanna Pálsdóttir, Skúli Rúnar
Hilmarsson, Ragnhildur Þórhallsdóttir og
Örn Alexandersson.
WWW.ISLANDIA.IS/ARGENTINA/
SLÁTURMARKAÐUR
Nú er rétti tíminn til að spara og taka slátur. A sláturmarkaði
GOÐA, Kirkjusandi v/Laugarnesveg, færðu slátur, nýtt kjöt
og innmat á góðu verði. Einnig tilbúið slátur í kössum.
Sláturmarkaður GOÐA er opinn
mánudaga til föstudagakl. 10-18.
Síminn er 568 1370.