Dagur - 03.10.1997, Blaðsíða 10
26 - FÖSTUDAGUR 3.0KTÓBER 1997
LÍFIÐ t LANDINU
Gamalt útlit
en snyrtilegur
Jeep Cherokee hefur verið nánast óbreyttur i tæplega hálfan annan áratug. Þessi árgerð kom að vísu með örlítíð
rúnaðri línum en breytingin brýtur ekki blað í sögu bilaiðnaðarins. - mynd: ohr
Jeep Cherokee er af-
komandi gömlu Willy’s
jeppanna sem íslenska
orðið „jeppi“ er dregið
af í upphafi. Utlits-
hönnunin er Akkilesar-
hæll þessa bíls.
í fyrsta sinri í tólf ár
voru gerðar svolitlar út-
Iitsbreytingar á þessari
árgerð. Hornin voru ör-
lítið rúnnuð en aðrar breytingar sem
gerðar voru á bílnum voru að innan-
verðu enda er hann ágætlega snotur og
aðlaðandi að innan. En það væri mikil
ofrausn að segja breytinguna á Cher-
okee brjóta blað í sögu bíliðnaðarins.
Veltistýrið þægilegt
Veltistýrið gerir þægi-
legra að smeygja sér
undir og undan stýrinu.
Sveiflan á því er mjög
rúm. Stýrið er misþykkt,
þykkast þar sem armarn-
ir festast við stýrishjólið
en þynnra á milli, gripið
gott. Það fer ágætlega
um mann undir stýri á
Cherokee þó axlaplássið
sé í það mínnsta. Þægi-
legt að skipta um gíra og
beygjuradíusinn er til-
tölulega þröngur þannig að bíllinn er
lipur í akstri. Upptakið í 2.500 rúm-
sentímetra 125 hestafla bensínvélinni er
að vísu ekkert stórkostlegt, en allt í lagi
og hestöflin skila sér þokkalega þegar
vélin er komin á snúning. Fjöðrunin
hefur verið eitthvað endurbætt í þessari
árgerð. Bíllinn virkar stífur á malbikinu.
A malarveginum er hann samt þokka-
lega mjúkur og liggur ágætlega þó hann
eigi það til að skvetta rassinum á þvotta-
brettum. I rólegum akstri á ósléttu landi
eru hreyfingarnar frekar harðar. Til að
komast í aftursætið þarf maður að
smeygja sér yfir hjólskálina. Sætin eru
þægileg og bíllinn er þokkalega rúmgóð-
ur og gott farangurspláss aftan við aftur-
sætin en þau er hægt að fella fram.
Eitt sem vakti sérstaklega athygli
mína og undrun var söngur í millikassa
eða drifbúnaði. Ekki hávær en þó vel
merkjanlegur í rólegum akstri. Veghljóð
er mjög Iítið en töluvert vélarhljóð skilar
sér inn í bílinn, sömuleiðis myndast
óþægilegur titringur í gólfinu aftur í
þegar vélin er komin á snúning, e.t.v.
vegna titrings sem púst-
kerfið leiðir frá 4 strokka
bensínvélinni.
Verðið á bílnum verð-
ur að teljast viðunandi,
2.670 þúsund. Staðal-
búnaður er m.a. fjarstýrð
samlæsing, tveir líknar-
belgir fram í, rafdrifnir
speglar og rúður ásamt
ræsitengdri þjófavörn.
Mundi ég?
Mundi ég kaupa svona
bíl? Eg get ekki sagt með
hreinni samvisku að
Cherokee komist ofarlega á óskalistann
hjá mér. Eg er að vísu hálfgerður jeppa-
kall en mér hefur aldrei fundist varið í
þetta útlit Cherokee og skil hreinlega
ekki hvers vegna framleiðandinn heldur
svona fast í það. En menn hafa misjafn-
an smekk. Nei, ég mundi ekki kaupa
svona bíl en margir aðrir gera það. ohr
Olgein Helgi
Kjartansson
skrifar
Jeep Cherohee er
lipur í akstri og
þokkalega þýður
en frekarhávær.
Meira en áratugs
gamalt útlit.
Cherokee
Nokkrar stærðir
Heildarlengd 4,26 m
Heildarbreidd 1,73 m
Heildarhæð 1,63 m
Lægsti punktur 2,16 m
Hjólhaf 2,58 m
Sporvídd 1,47 m
Bensíntankur 76 1
Umijöllun um bíla verður
hér eftir á þessum stað í
Degi á þriðjudögum og
fimmtudögum.
Sönn vinátta er eins og góð
heilsa, gildi hennar getum við
sjaldan metið fyrr en við höfum
glatað henni.
Það að geta spjallað við vin
um Iífsins mál, hvort sem það eru vanda-
mál eða gleðimál, gefur lífinu gildi og
færir manni þá tilfinningu að vera ekki
einn í heiminum. Það má leiða að því
getum að fólk sem á góða vini og ræðir
mikið við þá, þurfi síður á aðstoð sálfræð-
inga að halda en hinir sem halda öllu fyr-
ir sig og loka tilfinningar sínar inni.
skrifar
Við hér á íslandi erum svo
heppin að landið er lítið og fjöl-
skyldu- og kunningjatengsl mikil,
þannig að við lendum ekki í því
sem svo algengt er f stóru löndun-
um, að fólk flytur langar vegalengdir og
missir öll tengsl. Þó svo það sé hægt að
halda vináttu við með símtölum og bréfa-
skriftum, er nauðsynlegt að hittast öðru
hvoru, svona rétt til að taka utan um við-
komandi.
HVAÐ A E G A Ð GERA
Vertu ákveöin
Kona spyr: Eg vinn á stórum vinnustað
þar sem miklar kröfur eru gerðar til
starfsfólksins. Mér finnst oft sumt af
samstarfsfólkinu sýna mér yfirgang og
ætla mér verk sem ég á alls ekki að vinna.
En ég þori sjaldnast að mótmæla, því ég
er svo hrædd um að verða óvinsæl við það
að kvarta. En ég er sár og reið inni í mér
fyrir að vera svona mikil gunga og vildi
gjarnan fá einhver ráð.
Það er erfitt að bregðast við slíku, sér-
staklega ef maður er feiminn. Hér eru
nokkrir punktar sem geta kannski
hjálpað þér.
Ekki afsaka það sem þú segir. Þetta
er þín skoðun/álit og þú hefur fullan
rétt á því að hafa skoðun.Stattu bein
og talaðu skýrt og ákveðið. Horfðu í
augu viðkomandi þegar þú talar.
Ekki brosa á meðan þú ert að mót-
mæla. Þegar maður segir eitthvað nei-
kvætt eða er ekki alveg sáttur, þá virkar
brosið þannig á viðmælandann, að
honum finnst þér ekki vera mikil al-
vara með því sem þú segir.
Haltu þig við umræðuefnið. Ef þú
ætlar að neita eða mótmæla einhverju,
skaltu gera það strax til að Ijúka því af.
Láttu ekkert koma þér af sporinu og
ekki samþykkja að skipta um umræðu-
efni fyrr en þú hefur komið þínu til
skila.
Vigdís svarar í símann!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í simann M. 9-12.
Siminn er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Pastaréttur
Fyrir 4
350 g pasta
150 g beikon, skorið í bita
1 lauknr, fínskorinn
1 chilipipar smátt skorinn
2x400 g dósir af niðursoðn-
um tómötum með kryddi
(tomatoes ivith herbs)
Sjóðið pastað í 10-12 mín.
Látið vatnið renna af því.
Hitið á meðan stóra pönnu
og léttsteikið beikonið á
millihita fyrst, svo á hæsta
hita til að það verði stökkt.
Geymið það í skál og haldið
heitu. Steikið laukinn og
chiliið í beikonfitunni í 4-5
mín. Bætið tómötunum útí,
kryddið ef vill og látið
krauma í um 10 mín. Hrær-
ið saman sósunni og past-
anu og dreifið beikoninu
yfir. Berið fram með græn-
metissalati og brauði.
Ráðagóða homið
Til þess að sjampóið endist betur, er gott að setja smávegis af vatni í flöskuna þegar sápan
Ilmolíur í bað eru vinsælar í
mií jt, bað, en olía og vatn blandast Hj ekki sérlega vel saman. Því er
Það er ágætt að nudda sjampói á kraga og ermalíningar áður en skyrtan er sett í þvottavél-
rað að blanda oliuna lyrst ut í smávegis af mjólk, áður en hún er sett í baðið. Þannig Ieysist hún mun betur
upp.
•**•;**.