Dagur - 10.10.1997, Blaðsíða 1

Dagur - 10.10.1997, Blaðsíða 1
Þak Sjúkrahúss Reykjavíkur er ónýtt, múrinn hrynur af Jiví og tæki jjarf að endur- nýja. Aðeins fengust 46 milijónir til við- halds á húsinu en heð- ið var 11 ni 400. Því miður er þetta allt saman rétt. Astand hússins er orðið þannig að gjörgæsludeildin held- ur hvorki vatni né vindi og það lekur inn á hana þegar rignir. Þaldð hefur verið dæmt ónýtt á þeirri álmu spítalans. Það er líka hægt að horfa á það útum glugg- ann hjá mér hvar liggja múrbrot um allt sem hrunið hafa undan þakinu. Það hafa verið gerðar út- tektir á ástandi hússins og þakið á álmunni hefur verið dæmt ónýtt. Það eru mörg ár sfðan nauðsynlegt var að heíjast handa við viðgerðir á því og fleiru utan húss. Eg fæ ekki séð að það birti neitt til í þessum málum á næsta ári miðað við þá fjárveitingu sem okkur er ætluð,“ sagði Magnús Skúlason, staðgengill forstjóra hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur, í samtali við Dag í gær. I umræðum um fjárlagafrum- varpið sagði Ossur Skarphéðins- son að á þessu ári hafi Sjúkrahús Reykjavíkur óskað eftir 400 millj- óna króna Ijárveitingu til við- gerða á spítalanum en aðeins fengið 46. Hann fullyrti að ástandið á spítalanum væri mjög Sjúkrahús Reykjavikur er illa farið og peninga vantar til úrbóta á húsnæði og tækjum. alvarlegt. Kaupa þarf ný tæki og endurnýja þau sem fyrir er. Ekk- ert af þessu verði hægt að gera á næsta ári, hvorki viðgerðir á hús- inu né tækjakaup, miðað við þá fjárveitingu sem spítalanum væri áætluð á fjárlögum. „Þetta er alveg rétt. Við fengum aðeins 46 milljónir í það sem kallast meiriháttar viðhald og við höfum ekki getað látið neitt af þessum peningum í utanhúss viðhald. Við erum með mikið eld- varnakerfi og þvi þarf að halda við. Sömuleiðis erum við með loftræstikerfi sem þarf að halda við og margt fleira innan húss. Og á meðan við getum engum peningum varið í utanhússvið- gerðir versnar ástand hússins ár frá ári,“ sagði Magnús Skúlason. - S.DÓR Gjörgæslan heldur hvorki vatni né vindi Þriðji hver utan múra Þriðji hver refsifangi lýkur af- plánun annars staðar en í fang- elsi og það sparar 40 milljónir. Þetta kemur fram í ársskýrslu Fangelsismálastofnunar. Á sfð- asta ári var 60 föngum heimilað að afplána síðustu vikur eða mánuði refsivistar á áfangaheim- ili Verndar og stunda þaðan vinnu. Þetta er tvöföldun frá ár- inu áður. 50 fengu að afplána dóma með samfélagsþjónustu í stað refsingar. Þá lauk 41 fangi refsingu sinni í sex vikna meðferð hjá SAÁ. Um það bil þriðji hver fangi lauk þannig afplánun á annan hátt en í fangelsi og er samfélags- þjónustan ekki talin með. Þessar nýju refsileiðir eru taldar spara 19 fangapláss á árinu og 40 millj- ónir króna. Fram kemur í skýrslunni að um helmingur fanga situr inni fyrir auðgunarbrot og hefur það hlut- fall lítið breyst á undanförnum árum. Hins vegar hefur hlutfall fíkniefnabrotafanga hækkað úr 8% í 13% frá 1993 en þeim fækk- aði sem sátu inni vegna mann- dráps eða tilraunar til manndráps úr 4,6 prósent í 1,4%. — FÞG Allir þurfa þak yfir höfuðið ekki sist nú þegar vetur gengur í gard. Arnar Ússur Haröarson og Hreggviður Harðarson heita þessir ungu athafnamenn sem hafa reist sér þessa myndarlegu villu við Aðalstræti 18 á Akureyri til að eiga þar skjól fyrir veðri og vindum. - mynd: gs mm ÁTVR átthagafélag Blað 2 Stofnfimdux Samtáka um ft* * þjóðareign hls. 8

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.