Dagur - 14.10.1997, Blaðsíða 4
4 - ÞRIÐJUDAGVR 14. OKTÓBER 1997
AKUREYRI NORÐURLAND
O^vr
Noiræn bókasafnsvlka og „julefrokost“
Alice Emma Zackrísson, formaður Norræna félagsins á Akureyri, og Vaigerður Hrólfsdóttir, forstöðumaður Norrænu upplýs-
ingaskrifstofunnar á Akureyrí. - mynd: brink
AJmreyrardeild Nor-
ræna félagsins á Akur-
eyri heldur aðalfund
siiin í dag kliikkan
19.30 í húsnæði Nor-
rænu upplýsingaskrif-
stofunnar að Glerár-
götu 26. Félagsmenn
eru iiiii 150 talsins.
Formaður félagsins, Alice Emma
Zackrisson, segir að í auknu
mæli standi félagið fyrir kvik-
myndasýningum á norrænum
tungumálum fyrir börn og var
fyrsta sýningin sl. laugardag.
Sýningarnar verða í félagsmið-
stöðinni í Glerárskóla og verða
sýndar tvær myndir fyrir áramót
og tvær eftir áramót. Fyrsta
myndin, Elvis, EIvis, var með
sænskum texta en síðar verða
sýndar myndir með dönsku,
norsku og finnsku tali. Myndirn-
ar eru ótextaðar.
„Norrænt samstarf er mjög
mikilvægt til að viðhalda þessum
norrænu tengslum sem eiga mjög
gamlan bakgrunn. Það eru mjög
margir á Akureyri sem hugsa nor-
rænt og eiga því fullt erindi. Nor-
rænt samstarf í víðustu merkingu
þess orðs er í fullu gildi í dag. Við
verðum með afmælisfund um
helgina 24. október og þar mæta
tveir fulltrúar frá sambandsstjórn
Norræna félagsins og dagana 10.
til 16. nóvember verður norræn
bókasafnsvika sem verður á öll-
um Norðurlöndunum á sama
tíma. M.a. verður kveikt á kert-
um samtímis á öllum þeim bóka-
söfnum sem vilja taka þátt í
bókasafnsvikunni.
Föstudaginn 7. nóvember
verður kynning á ungmennastarfi
innan Norræna félagsins og mun
ungt fólk frá Reykjavík sjá um
kynninguna. Stofnuð verður
ungmennanefnd Norræna fé-
lagsins sem mun verða á öllu
landinu, þannig að þeir sem
ganga í félagið og eru innan við
tvítugt munu sjálfkrafa gerast fé-
lagar í ungmennadeildinni auk
þess að vera í félaginu. Þeir yngri
nenna ekki alltaf að taka þátt í
því sem vekur áhuga þeirra eldri,
og þarna er komið til móts við
þeirra óskir og væntingar," sagði
Alcie Emma Zackrisson.
Deild norræna félagsins á Ak-
ureyri stefnir að því að hafa nor-
rænt jólaborð, „julefrokost",
laugardaginn 6. desember og
bjóða deildum í nágrannasveitar-
félögum Akureyrar að taka þátt í
því. Þar er komið til móts við ósk-
ir margra sem ýmist hafa dvalið á
Norðurlöndunum og kynnst
þessum sið þar og eins þeirra
sem fæddir eru og uppaldir í ein-
hverju Norðurlandanna en eiga
nú heima á Akureyri eða ná-
grenni.
I tengslum við ferð forseta Is-
lands, Olafs Ragnars Grímsson-
ar, til Vesturheims verður hleypt
af stokkunum nýju verkefni,
Vesturfaraverkefninu, þar sem
markhópurinn er ungir afkom-
endur Vestur-íslendinga í Banda-
ríkjunum og Kanada. Nú þegar
hefur Norræna félagið áralanga
og mjög jákvæða reynslu af ung-
mennaskiptum í gegnum at-
vinnumiðlunina „Nordjobb“ og
nemendaskipti. Þannig gætu
vestur-íslensk ungmenni komið
hingað og fengið vinnu í sinni
„heimabyggð", þ.e. þar á Islandi
sem forfeður þeirra bjuggu.
Seinna færu ungmenni hér til
Bandaríkjanna og Kanada. Til-
gangurinn er ekki síst sá að af-
komendur Vestur-Islendinga geti
heimsótt ísland í ákveðinn tíma,
kynnst Iandinu, fólkinu og
menningu þess, sögu þess og
ekki síst tungumáli. Hugmyndin
er að þetta verkefni byrji sumarið
1998. — GG
Kosið uin sameiningu Jiriggj a
sveitarfélaga nk. 1 a ugardag
Árskógssandur, í forgrunni, kann að verða hluti nýs sveitarfélags eftir sameiningarkosningarnar á iaugardaginn. íbúar Hríseyjar,
fjær, felldu hins vegar tillögu um sameiningu 7 júní sl. þegar kosið var sameiningu fjögurra sveitarfélaga. - Mynd: GG
Sameiginlegur kynn-
riigaríimclur verðiir á
vegum sameiningar-
nefndar Árskógs-
strandarhrepps, Svarf-
aðardalshrepps og
Dalvíkurhæjar í kvöld
í félagsheimilinu Vík-
urröst á Dalvík klukk-
an 20.30. Kosning fer
fram nk. laugardag
18. októher.
Sameining sveitarfélaganna
dregur ekki úr möguleikum á
frekari sameiningu síðar við
Eyjafjörð að mati sameiningar-
nefndar, en fbúafjöldi þessara
þriggja sveitarfélaga er í dag um
2.100 manns. Þvert á móti hnígi
rök til þess að sameiningin ein-
faldi og greiði fyrir stærri skref-
um vilji íbúarnir á annað borð
ganga enn lengra. Sameinað
sveitarfélag muni þar að auki
standa sterkt að vígi í viðræðum
um frekari sameiningu á svæðinu
ef til kemur. Verði af sameiningu
tekur þegar gildi samkomulag
um fjármálastjórn fram að kosn-
ingum 1998. I kosningunum vor-
ið 1998 verður kjörin 9 manna
bæjarstjórn, en bæjarráð verður
skipað þremur bæjarfulltrúum.
Stjómsýsla sameinaðs sveitarfé-
Iags mun skiptast í fjögur svið,
þ.e. fjármála- og stjórnsýslusvið
sem bæjarritari mun veita for-
stöðu; félagsþjónustusvið sem fé-
lagsmálastjóri veitir forstöðu;
fræðslu- og menningarsvið sem
skóla- og menningarfulltrúi veitir
forstöðu og umhverfissvið sem
bæjartæknifræðingur mun veita
forstöðu.
Skoöaiiaköimim iiin viðhorf
til viðameiri sameiningar
Sameiningarnefndin hefur jafn-
framt ákveðið að efna til skoð-
anakönnunar samhliða atkvæða-
greiðslu um sameiningu sveitar-
félaganna þriggja nk. Iaugardag.
Það er gert til þess að afla upp-
lýsinga um viðhorf kjósenda til
enn umfangsmeiri sameiningar
sveitarfélaga við Eyjafjörð en
þeim stendur til boða á laugar-
daginn.
I skoðanakönnuninni verða
þeir sem eru sameiningu fylgj-
andi spurðir að því hvort þeir telji
að um æskilega stórt sveitarfélag
sé að ræða; hvort sameining sé
áfangi í að sameina allan Eyja-
fjörð í eitt sveitarfélag og hvort
sameining geti verið liður í að
sameina sveitarfélög við utan-
verðan Eyjafjörð, þ.e. hvort æski-
legt sé að Siglufjörður, Ólafs-
fjörður og Hrísey bætist í hópinn
síðar.
Þeir sem andsnúnir verða sam-
einingu verða spurðir að því
hvort þéttbýli og dreifbýli eigi
ekki samleið í einu sveitarfélagi;
hvort kjósandi hefði viljað sam-
eina fleiri sveitarfélög í þessari
lotu og hvort kjósandinn telji að
kosningar nú tefji eða hindri síð-
ar sameiningu allra sveitarfélaga
við Eyjafjörð.
Mismunandi fjárhagsstarta
Staða sveitarsjóðanna er mjög
mismunandi. Þannig er varið
Heilsuræktarstöðin World Class
opnar nýja heilsuræktarstöð í
„Slysavarnafélagshúsinu" við
Strandgötu á Akureyri næsta
laugardag klukkan 13.00. Opið
hús verður til ldukkan 17.00 og á
sama tíma á sunnudag. Fjöldi
fyrirtækja mun þar kynna starf-
78% af tekjum 1996 til reksturs
málaflokka, 71% f Svarfðardal og
87% á Árskógsströnd, og yrði
77% í sameinuðu sveitarfélagi.
Fjármagnskostnaður er 4% á
Dalvík, enginn í Svarfaðardal, 3%
á Arskógsströnd en yrði 3%.
Heildarskuldir eru 99% af tekj-
um á Dalvjk, 33% í Svarfaðardal
og 85% á Arskógsströnd, en yrðu
87%. Heildarskuldir á hvern íbúa
eru 128.401 króna á Dalvík,
35.267 krónur í Svarfaðardal og
116.410 krónur á Arskógsströnd.
Verulegir fjármunir eru taldir
sparast með sameiningu. Fram-
lag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
hækkar um 3,8 milljónir króna,
samræming álagningarreglna
sparar 2,2 milljónir króna, lækk-
un kostnaðar við yfirstjórn sparar
6,2 milljónir króna, kostnaður
vegna fræðslumála lækkar um
2,6 milljónir króna og lækkun
fjármagnskostnaðar er áætluð
195 þúsund krónur, Árlegur
sparnaður vegna sameiningar er
talinn nema um 13,9 milljónum
króna. — GG
semi sína.
Opnunartími verður virka
daga frá klukkan 06.30 til klukk-
an 23.00. Búningsaðstaða verð-
ur fyrir 140 manns og meðal
tækja má nefna 30 hjól, stiga og
8 hlaupabrautir, þær fyrstu á Ak-
ureyri. — GG
Fyrstu hlaupahraut-
iruar á Akureyri