Dagur - 05.11.1997, Blaðsíða 5
MIÐVIKVDAGUR S .NÓVEMBER 1997 - 21
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
Samnorrænt mótfyrír
ungtfólk íFinnlandi
varhaldið íFinnlandi
dagana 6.-12. október
en samband mynd-
listaskóla fyrírböm og
unglinga íFinnlandi á
1S ára afmæli um
þessarmundir.
Af þvf tilefni var samtökum
myndlistaskóla á hinum Norður-
löndunum boðið að koma til
Finnlands og taka þátt í hátíðar-
dagskrá og námskeiðum. Frá
Myndlistaskólanum á Akureyri
fóru fimm nemendur og nokkrir
kennarar.
Nemendurnir tóku þátt í sam-
norrænni myndlistarsýningu,
„En del av dit land“, og kennur-
um og fulltrúum safna og ann-
arra liststofnanna var boðið á
hátíðarsamkomu í Anteneum
þjóðlistasafni Finna og afmælis-
hóf í Konsthallen til að fagna
tímamótunum.
Af íslands hálfu tóku þátt þrír
kennarar frá Myndlistaskólanum
á Akureyri, tveir frá Myndlistar-
skóla Kópavogs og einn frá
Myndlistarskólanum í Reykjavík.
-MAR
Fimm nemendur Myndlistarskólans á
Akureyri á aldrinum 12 til 16 ára, sem
hafa um langt skeið stundað nám við
skóiann, voru valdir til að taka þátt í list-
samveru í Voipaaia og internet-verkefni i
Lahti. Þe/r eru Ármann Guðmundsson,
Elfa Antonsdóttir, Helgi V. Helgason,
Kristín Lif Valtýsdóttir og Þorbjörg
Guðmundsdóttir.
Myndiistaskólinn á Akureyri hefur keypt
forláta kopargrafíkpressu sem var smið-
uð / Finnlandi. Finnskur grafíkmeistari
var að kenna mönnum á vélina þegar
blaðamenn Dags bar að garði. Hér er
Þuriður Elfa Jónsdóttir, nemandi í mál-
unardeild og Antti Salokanell frá
Finnlandi.
Setjið súefnis-
grímima fyrst á
yður...
Þessi bók er skrifuð af Andrési
Ragnarssyni sálfræðingi sem á
fjölfatlaðan dreng. Rókin fjallar
fyrst og fremst um það flókna og
sára ferli sem fólk þarf að fara í
gegnum til að takast á við lífið
þegar fatlað barn er í fjölskyld-
unni
Einnig grandskoðar höfundur
samskipti foreldra og fagfólks í
Ijósi sinnar eigin reynslu og
annarra foreldra. Einkum beinir
hann athygli sinni að foreldrum
sem stundum eru nefndir
„erfiðir". Og síðast en ekki hvað
síst hefur Andrés með þessari
bók bætt úr brýnni þörf á
kennsluefni fyrir þær starfsstétt-
ir sem sinna málefnum fatlaðra
og fjölskyldna þeirra.
Bókin er 133 bls. og kostar
1.980 kr. Útgefandi er Orms-
tunga.
Kóngur í ríki sínu
og Prinsessan
Petra
Bókaútgáfan Krass hefur nýlega
endurútgefið bókina Kóngar í
ríki sínu og Prinsessan Petra
eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur
rithöfund. Þetta er sjálfstætt
framhald af bókinni Kógar í ríki
sínu, sem var endurútgefin á sl.
ári en báðar þessar bækur höfðu
lengi verið ófáanlegar.
Báðar bækurnar eru mynd-
skreyttar af Brian Pilkington.
Vindarí
Raumsdal
Schubert og Brahms
Þann 2. nóvem-
ber, sunnudag,
var efnt til tón-
leika í Safnað-
arheimili Akur-
eyrarkirkju.
Tónlistarmenn-
irnir, sem fram
komu, voru pí-
anóleikararnir
Valgerður Andr-
ésdóttir, Helga Bryndís Magnús-
dóttir og Danfel Þorsteinsson.
Þá komu fram Guðrún Þórarins-
dóttir, víóluleikari, Guðni Franz-
son, klarinettleikari og sópran-
söngkonan Sigríður Gröndal.
Fyrst á efnisskrá var Sónata í B-
dúr D 960 fvrir píanó eftir Franz
Schubert. Valgerður Andrés-
dóttir lék þetta verk. Túlkun
hennareinkenndist af djúpri til-
finningu fyrir verkinu, sem er sérlega
lagrænt og rómantískt. Hún fór fagurlega
og af smekkvísi með blæbrigði og og áhersl-
ur og í leik hennar og fasi ríkti öryggi og
fumleysi. I heild tekinn var flutningur Val-
gerðar mjög vel af hendi leystur og er ljóst,
að þar fer góður listamaður, sem hún er.
Næst á efnisskrá var Sónata í f-moll op 120
nr. 1 fyrir víólu og píanó eftir Jóhannes
Brahms. Flytjendur voru Helga Bryndís
Magúsdóttir, píanóleikari, og Guðrún Þórar-
insdóttir, víóluleikari.
Leikur Helgu Bryndísar var öruggur og
fyrsta Iaginu, sem var Frúhlings-
glaube op 20 nr. 2 við ljóð eftir
Uhland. Þessi þvingun hvarf
smátt og smátt í næstu lögum,
og var söngkonan komin í gott
form í síðasta laginu, sem var
Suleika 2 op 31 við ljóð Mari-
anne v. Willemer. Lokaatriði
tónleikanna var tónverkið Der
Hirt auf dem Felsen op 120 eftir
Franz Schuberet. Verkið er
samið við Ijóðið Der Berghirt
eftir W.Miller og er fyrir sópran,
klarinett og píanó.
Sigrún Gröndal gerði vel í
þessu verki. Túlkun hennar var
næm og röddin í góðri legu.
Sérlega vel unnin var náin sam-
tvinnun raddarinnar og leiks
Guðna Franzsonar, klarinettleik-
ara, sem lék fallega á hljóðfærið
og gaf flutningi verksins mikið
af hrifum sínum. Þó virtist Guðni þurfa
smástund til þess að lifa sig inn í anda
verksins. Leikur hans í inngangi var nokkuð
harður og kantaður.
Leikur Daníels Þorsteinssonar jafnt í
þessu lokaverki sem í Schubertlögunum
fjórum var sérlega góður. Asláttur hans var
fullur af lífi og blær leiks hans í góðu sam-
ræmi við jafnt efni og anda verkanna sem
brag túlkunar annarra flytjenda. Tónleikarn-
ir voru allvel sóttir og þökkuðu áheyrendur
flytjendum fyrir ánægjulega samverustund
og góðan flutning með langvinnu lófataki.
Daniei Þorsteinsson píanóleikari spilaði á tónleikunum og var leikur hans sérlega góður.
ákveðinn. Hún studdi vel við og gaf blæ og
brag svo sem efni stóðu til. Leikur Guðrún-
ar Þórarinsdóttur var víða góður, ekk síst í
þriðja kafla verksins, sem þer yfirskriftina
Allegretto grazioso, þar sem hún náði sér vel
á strik. Því miður bar nokkuð á því, að tón-
tak væri ekki alveg nógu hnitmiðað, ekki síst
í fyrsta þætti, Allegro appassionato, sem olli
því að allvíða náðist ekki sá glans á verkið,
sem í því býr. Eftir hlé flutti Sigrún Gröndai,
sópran, íjögur lög eftir Franz Schubert við
undirleik Daníels Þorsteinssonar.
Rödd Sigrúnar virtist lítið eitt þvinguð í
Vindar í Raumsdal er úrval ljóða
norska skáldsins Knut 0degárd í
þýðingu Jóhann Hjálmarssonar
og Matthíasar Johannessen og
rita þeir einnig inngang.
Myndirnar í ljóðum skáldsins
eru raunsæislegar og nákvæmar
og stundum er farið inn á svið
sem venjulega eru látin
afskiptalaus í skáldskap. Þetta
eru ljóð sem höfða beint til les-
enda.
Bókin er 43 bls. og er unnin
hjá Odda.
Skáld og
skógarbóndi
segir frá
„Það var rosalegt" nefnist ný bók
um skáldið og skógarbóndann
þjóðkunna Hákon Aðalsteins-
son. Sigurdór Sigurdórsson,
blaðamaður skráði en Hörpuút-
gáfan gefur út. Bókin er 248 bls.
að stærð og prýdd fjölda mynda.
I bókinni segir Hákon m.a. frá
uppvaxtarárunum í Hrafnkelsdal
og lífi og starfi fólks á þeim af-
skekkta stað, fjalla- og jöklaferð-
um, hreindýraveiðum og baráttu
sinni við áfengisvandamálið en
honum tókst að sigrast á
Bakkusi.