Dagur - 11.11.1997, Qupperneq 1
Nýtt leikfélag í Hörgárdal
Stofnað liefur verið
nýtt leikfélag í Hörg-
árdal og færa þær með
blómlega leikstarf-
semi í dalnum inidaii
merkjum Ungmenna-
félags Skriðuhrepps.
Um árabil hefur leiklist verið
stunduð í Hörgárdal undir
merkjum Ungmennafélags
Skriðuhrepps, eða leikdeildar
þess félags. Starfsemi félagsins
hefur verið fremur lítil á öðrum
sviðum á síðustu árum og þannig
er einnig farið hjá ungmennafé-
lögum nágrannasveitarfélag-
anna. Til eflingar íþrótta- og
æskulýðsstarfs á svæðinu var.því
horfið að því ráði að sameina
ungmennafélögin í von um auk-
inn kraft í stærra og fjölmennara
félagi, og stofna sjálfstætt leikfé-
lag sem stofnað var 2. nóvember
sl. og hlaut nafnið Leikfélag
Hörgdæla. Formaður er Guð-
mundur Steindórsson.
Tilgangur félagsins er að efla
leiklist í Hörgárdal og nágrenni,
standa fyrir námskeiðum í leik-
list, vera vettvangur fyrir hvers
konar hópvinnu á því sviði og
standa fyrir leiksýningum. A
stofnfundinn mætti Einar Rafn
Haraldsson, formaður Bandalags
íslenskra leikfélaga, og ræddi al-
mennt um leiklist sem hann
kvað víða vera ótrúlega öfluga.
Ákveðið hefur verið að setja
upp í vetur á Melum barnaleik-
ritið Rympu á ruslahaugnum eft-
ir Herdísi Egilsdóttur undir leik-
stjórn Sunnu Borgar. Æfingar
hefjast strax á nýbyrjuðu ári og
frumsýning verður síðari hluta
febrúarmánaðar. — GG
Vilja veg um Öxar-
fjarðarheiði
Sveitarstjórnir í Norður-
Þingeyjarsýslu vilja nýjan
veg um Öxarljarðarheiði sem
stytti leiðina fyrir Þórshafn-
arbúa til Húsavíkur um 70
km.
Endurskoðuð vegaáætlun verður lögð fyrir
Alþingi innan tíðar og hafa fulltrúar sveitar-
stjórna á norðausturhorni landsins unnið í
samráðshóp með fulltrúum Vegagerðarinnar
um það hvaða lausnir eigi að velja til lang-
frama.
Reinhard Reynisson, sveitarstjóri Þórs-
hafnarhrepps, segir að íbúar Norður-Þingeyj-
arsýslu voni að umtalsverðum upphæðum
verði varið til varanlegrar vegalagningar á
svæðinu, en ekkert hefur verið unnið að
vegabótum síðustu 15 til 20 árin svo neinu
nemi. Þar er nýr vegur um Oxarfjarðarheiði
efstur á blaði.
„Gott vegakerfi er stöðugt nauðsynlegra
fyrir sjávarútveginn. Annars vegar að auð-
velda fyrirtækjum að ná til sín aðföngum,
eins og t.d. umbúðum, með sæmilega auð-
veldum hætti, og þar skiptir máli hversu löng
leiðin er og hversu auðvelt er að komast
hana. Það þarf síðan að koma afurðunum til
baka sömu leið fljótt og örugglega, ekki síst
ferskvöruútflutningi eins og t.d. er hjá fisk-
eldisfyrirtækjunum í Öxarfirði. Fyrirtæki sem
búa við öruggar vegasamgöngur eru betur
búin til þess að koma vörunni með Iitlum fyr-
irvara á markaðinn og fá auk þess besta verð-
ið.
Við búum heldur ekki við tíðar skipasam-
göngur, hingað kemur skip frá Samskipum á
tveggja vikna fresti sem eykur vægi vegakerf-
isins. Það er hægt að stytta vegalengdina til
Húsavíkur með því að leggja varanlegan veg
um Öxarfjarðarheiði. Við viljum svokallaða T-
lausn, þ.e. farið er héðan upp Garðsdal frá
Svalbarði og um Einarsskarð í stað Helgafells
og þannig liggur veglínan mun lægra. Síðan
lægi vegurinn lengra út og niður norður und-
ir Kópaskeri en ekki vestur með Múlanum og
niður hjá Sandfellshaga. Raufarhöfn tengdist
þessum veg vestan við Ormarsá svo leiðin til
Húsavíkur styttist einnig fyrir þá.
Góðar vegasamgöngur hafa veruleg áhrif á
skynjun fólks á búsetuskilyrðum hér og þar
með á afkomu sjávarútvegsfyrirtækja í þess-
um byggðarlögum, því erfiðara verður fyrir
þau að fá hæft fólk til starfa, bæði almenna
starfsmenn og stjórnendur. Góðar samgöng-
ur hafa því meira byggðavægi en margt ann-
að,“ segir Reinhard Reynisson, sveitarstjóri.
- GG
Skautavertíðm hafin
Skautasvellið á Akureyri var opnað sl. laugardag og strax á fyrsta degi þyrptist fólk þangað, þó aðal-
lega börn og unglingar. Opið verður daglega frá 19.00 til 21.00 og aukalega á laugardögum og sunnu-
dögum frá 13.00 til 16.00. Sama dag var haldið upp á 60 ára afmæli Skautaféiags Akureyrar.
Sjá bls. 2 -gg
Tetknistofan Form hannar íyrir FSA
Teiknistofan Form
mun annast hönnun
allra innréttina í ný-
byggingn Fjórðungs-
sjnkrahúsins á Akur-
eyri. Samningurinn
gHdir tH fjögurra ára.
Samninginn undirrituðu auk
fulltrúa frá Form, Valtýr Sigur-
bjarnarson, forstöðumaður
Byggöastofnunar á Akureyri og
formaður bygginganefndar FSA;
Jakob Björnsson bæjarstjóri og
Baldur Dýrfjörð bæjarlögmaður
og stjórnarformaður FSA.
Nýbygging FSA er fjórar hæðir
auk kjallara, alls 4.300 fermetrar
að flatarmáli. Fyrsti áfangi fram-
kvæmdanna er ný barnadeild á 4.
hæð hússins og er gert ráð fyrir
að hún verði tekin í notkun um
áramótin 1998/1999. Á 3. hæð
verður fæðinga- og kvensjúk-
Starfsfólk teiknistofunnar Forms fyrir framan Hæfingarstöð fatlaðra við Skógariund á Akureyri, en Form annaðist hönnun þeirrar
byggingar. F.v.: Bjarni Reykjalín, arkitekt og tæknifræðingur; Logi Már Einarsson, arkitekt; Ágúst Hafsteinsson, arkitekt; Árni
Gunnar Kristjánsson, byggingatæknifræðingur; Hetga Aðalgeirsdóttir, iandstagsarkitekt og Árni Árnason, húsgagna- og innan-
hússarkitekt.
dómadeild til húsa; á 2. hæð
bæklunardeild og á jarðhæð
rannsóknardeild og endurhæf-
ingardeild. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvaða starfsemi
verður í kjallara hússins. Það er
ríkissjóður og Akureyrarbær sem
standa straum af kostnaði vegna
framkvæmdanna og greiðir ríkis-
sjóður 85% kostnaðarins.
Teiknistofan Form hefur sér-
hæft sig í þjónustu við heilbrigð-
isstofnanir og meðal verkefna
síðustu misseri má nefna endur-
bætur á flestum deildum FSA,
hönnun endurhæfingardeildar
og starfsmannaaðstöðu á Krist-
nesspítala og æfingasundlaugar
þar, Hæfingarstöðvar fatlaðra við
Skógarlund á Akureyri og lækna-
miðstöðvar að Smáratorgi 1 í
Kópavogi. ,'\f öðrum verkefnum á
Akureyri rná nefna hönnun ný-
bygginga við Sundlaug Akureyrar
og hönnun verslunar- og skrif-
stofuhúsnæðis að Skipagötu 9,
sem m.a. mun hýsa Sparisjóð
Norðlendinga. — GG
■“v »r»i»i ,1,V» |