Dagur - 11.11.1997, Qupperneq 2
2 — ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997
Thypsr
AKUREYRI NORÐURLAND
Skautafélag Akureyrar 60 ára
Skautafélag Akureyr-
ar hélt hátíðlega upp
á 60 ára afmæli fé-
lagsins sl. suunudag.
Stofnfélagar voru 18,
og eru nokkrir þeirra
enn á lífi.
Skautafélag Akureyrar hefur
orðið deildarmeistari í íshokkí
síðustu 6 ár, nú síðustu ár í
stöðugt harðnandi samkeppni
við Skautafélag Reykjavíkur og
Björninn og hefur þrátt fyrir
fremur slaka aðstöðu einnig átt
mjög frambærilega keppendur f
unglingalandsliði Islands, m.a. í
Marjo Kristinsson á Akureyri, fráfarandi
formaður hlaupadeildar ÍSS ávarpar
Skautaþing 1997, sem haldið var á Ak-
ureyri um helgina.
því liði sem tók þátt í D-riðli
Evrópumeistaramótsins sem
fram fór í Belgrad í Jógóslavíu í
marsmánuði sl.
Rekstrar- og byggingasamn-
ingur var gerður milli Reykjavík-
urborgar og IBR sl. vor um nýja
skautahöll í Laugardal sem
væntanlega verði tekin í notkun
á næsta vetri. Vonir standa til að
samningur um yfirbyggingu
skautasvellsins í innbænum á
Akureyri verður tilbúinn innan
tíðar og framkvæmdir hefjist
fljótlega. Skautahöllinn á Akur-
eyri verður hluti af Vetraríþrótta-
miðstöð Islands. Það verða gíf-
urleg viðbrigði fyrir íslenska
skautamenn þegar rekstrartíma-
bilið fer upp í 8 til 9 mánuði og
mun valda byltingu fyrir iðkend-
ur og aðdáendur íþróttarinnar.
Auk íslandsmótsins verður m.a.
haldið Islandsmót barna og
unglinga á Akureyri.
A Islandsmóti í listhlaupi á
skautum sem haldið var á Akur-
eyri í marsmánuði sl. voru kepp-
endur 39 í Ijórum aldursflokk-
um og varð akureyrsk mær, Jódís
Eiríksdóttir, sigurvegari í yngsta
flokknum, 11 ára og yngri, en
keppendur SR í hinum aldurs-
flokkunum. Um næstu helgi, 13.
-15. nóvember, verður ráðstefna
um vetraríþróttir haldin á Akur-
eyri og mun Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra, flytja
ávarp við upphaf hennar ásamt
Ellert B. Schram, forseta Iþrótta
og olympíusambands Islands.
- GG
Akureyringurinn Sveinn Kristdórsson, sem á siðustu árum hefur verið „primus
motor“ skautaíþróttarinnar i Reykjavík undanfarin ár, var sæmdur gullmerki ís-
hokkídeildar SA af formanni þess, Magnúsi Finnssyni, sem jafnframt er formaður
Skautasambandsins.
Magnús Finnsson með gullhjálm sem
er afmælisgjöf til íshokkímanna á Ak-
ureyri frá Reykjavíkurliðunum, SR og
Birninum.
Þórarinn £ Sveinsson, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar íslands, afhendir
Árna Arasyni, formanni SA, gjöf frá iþrótta- og tómstundaráöi Akureyrar.
Þeir Birgir Ágústsson, Guðmundur Pétursson og Ingólfur Ármannsson voru útnefndir heiðursfélagar SA og jafnframt sæmdir
gullmerki félagsins. Þeir eru á myndinni ásamt Árna Arasyni, formanni. Einnig hlutu gullmerki félagsins á 60 ára afmæii þess
þeir Skúli Ágústsson, Vilheim Ágústsson og Jón Dalmann Ármannsson.
SKOÐANIR BRYNJÓLFS
Hnmdiö niður
launastigaim
Miklar ráðstafanir eru nú gerðar
í fyrirtækjum og stofnunum til
þess að lækka laun hjá láglauna-
fólkinu í landinu. Það er gert
með ýmsum ráðstöfunum sem
kallaðar eru því merkingarlausa
nafni „hagræðing". Þeir sem að
ráðstöfunum þessum standa eru
þeir sem standa ofar í Iaunastig-
anum og tilskipanir þessar koma
frá aðilum sem standa mikið ofar
í launastiganum. Svo langt er
gengið í láglaunasjónarmiðun-
um að fullvinnandi erfiðisvinnu-
fólk þarf að leita opinberrar að-
stoðar til þess að komast af með
nauðþurftir.
Nú eru grunnskólakennarar að
leita eftir því að komast ofar í
launastigann til þess að geta
komist af án aðstoðar. Það gæti
nefnilega blasað við þeim eftir
flutning grunnskólans og breyt-
ingu í einsetinn skóla. Þá kemur
w! l)reiðfylking á
'VT'yijF ' móti þeim sem
kallast samninga-
nefnd og reynir af
fremsta megni að varna þeim
uppgöngu. Ekki er útséð hvernig
þessar stimpingar fara. Þær eru
samt dæmi um þá áherslu sem
lögð er á að halda ákveðnum
hópi launþega í landinu á fá-
tækramörkunum. Hverjir eru
þeir sem telja sig hafa svo mikið
að verja og af hverju óttast þeir
svo mjög launajöfnuð í landinu?
í LANDNÁMI HELGA MAGRA
Draiumir uiii
GEIRA.
GUÐSTEINS
SON
SKRIFAR
Margar íþróttagreinar eða
íþróttafélög á Akureyri hafa
gegnum tíðina oft á tíðum notið
meiri velvilja bæjaryfirvalda en
skautaíþróttin og Skautafélag
Akureyrar, sem um þessar
mundir heldur upp á 60 ára af-
mæli sitt. Saga þessa félags hef-
ur að miklu leyti verið tilvistar-
barátta miklu frekar en margra
annarra félaga en vegna mikillar
og óeigingjarnar baráttu forystu-
manna félagsins, eða þrjósku,
hefur það haldið velli. Þannig
má benda á staðsetningu skauta-
svellsins í útjaðri bæjarins sem
ekki getur talist heppileg með
tilliti til aðsóknar barna og ung-
linga þangað, t.d. þeirra sem búa
úti í Gierárhverfi og það á raun-
ar einnig við Brekkupúkana.
Hefði ekki verið skynsamara að
byggja skautahöll í nágrenni
Iþróttahallarinnar, t.d. handan
Þórunnarstrætis neðan KEA-
verslunarinnar og samnýta t.d.
að einhverju leyti búningsaö-
stöðu?
Það vekur mig til umhugsunar
á þessum tímamótum af hverju
skautasvell þurfi endilega að
vera í Innbænum. Er það vegna
þess að skautaíþróttin er horn-
reka í kerfínu eða vegna þess að
það það fellur betur inn í Iands-
skautahöll 1 augsýn
lagið þarna innfrá með Súlurnar
í baksýn. Vissulega góð mótív
fyrir Ijósmyndara. Fyrir nokkrum
misserum var samþykkt að á Ak-
ureyri yrði Vetraríþróttamiðstöð
Islands. Engir peningar hafa þó
enn runnið til þess verkefnis en
á þeim er von á árinu 1998,
bæði frá ríkisvaldinu og Akureyr-
arbæ. Sagt er að hafin verði yfir-
bygging á skautasvellinu á Akur-
eyri á næsta ári svo ljóst er, þrátt
fyrir allt, að hagur Strympu er að
vænkast. Það vekur hins vegar
nokkra furðu að í stjórn Vetrar-
íþróttamiðstöðarinnar situr eng-
in fulltrúi skautamanna sem
valdið hefur því að samskiptin
þar á milli hafa oft á tíðum verið
nokkuð stirð.
Á Skautaþingi 1997, því fyrsta
sem haldið er á Akureyri, ótrú-
legt en satt, var samþykkt álykt-
un þar sem því er beint til að-
standenda Vetraríþróttamið-
stöðvar Islands að tryggt verði að
fulltrúi Skautasambandsins sitji
f stjórn Vetraríþróttamiðstöðvar-
innar. Janframt beindi fundur-
inn því til stjórnar Vetraríþrótta-
miðstöðvarinnar að hafist verði
handa við uppbyggingu skauta-
mannvirkja sem fyrst. Þrýsting-
urinn ætti að geta orðið í
„heimahéraði11, þar sem formað-
ur Skautasambandsins er Akur-
eyringurinn Magnús E. Finns-
son.
I nágrannalöndum okkar, Nor-
egi, Finnlandi og Svíþjóð, er ís-
hokkí og listhlaup þær íþrótta-
greinar sem draga einna flesta
áhorfendur að á veturna. Hraði,
harka, spenna og leikni er það
sem áhorfendur vilja öðru frem-
ur sjá, en ekki undir berum
himni í alls kyns veðráttu. Þegar
fram líða stundir er ég viss um
að áhorfendum að spennandi ís-
hokkíleikjum á Akureyri mun
fjölga til muna. Meðan aðstaðan
er á steinaldarstigi kemur ekki á
óvart að ungir, framagjarnir leik-
menn leita fyrir sér erlendis þó
það hafi löngum talist merki um
vöxt og viðgang íþróttar hérlend-
is ef íþróttamaður telst nógu
góður með erlendu liði. Fyrstur
til að hljóta slíkt alþjóðlegt flutn-
ingsskýrteini er Ágúst Ásgríms-
son frá Skautafélagi Akureyrar,
sem keppir í vetur með 1. deild-
arliði ÁIK í Árhus í Danmörku.
Honum fylgja hvatningarkveðj-
ur.