Dagur - 11.11.1997, Qupperneq 3

Dagur - 11.11.1997, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 - 3 Tkypr. AKUREYRI NORÐURLAND Spomað gegn skógarhöggi á Akureyri Bygginganefnd Akur eyrar hefiir eftrr mikla yfirlegu sam- þykkt að feUa megi aspartré sem stendur fyrir framan Hamars- stíg 29 á Akureyri, sem engum er lengur til ánægju eða yndis- auka. Stefán Olafsson, annar eiganda hússins og asparinnar, sem gróð- ursett var kringum árið 1955, segir að tjón hafi hlotist af ösp- inni á vorin en af trénu hafi fall- ið eitthvað Iímkennt klístur sem sest hafi m.a. á nýjan bíl og skemmt á honum lakkið og hindrað þannig notkun á bíla- stæðinu hluta úr ári. Tréð hafi auk þess hindrað eðilega að- komu að húsinu, rætur þess teygja sig út um allt. Tréð stend- ur norðan hússins og skyggir því lítið á sól að sumri. „Ég vil líka losna við tréð vegna þess að ég er orðinn hræddur um lagnirnar við húsið, t.d. er frárennsli frá húsinu ekki eins gott og það á að vera. Stað- setning trésins er einnig mjög slæm, það skagar inn í bílastæð- ið og gangveginn að íbúðinni á neðri hæðinni og lokar af svæð- um sem hægt væri t.d. að nota sem pall undir hjól o.fl. I þess stað verð ég að vera með steina í stað hellulagningar. Aður hafði fengist leyfi til að fella aðra ösp sem var þarna f garðinum en ekki þessa og var getið sem skýr- ingar fyrir fyrri neitunum að tréð væri sérstakt afbrigði og því full ástæða til að halda í það,“ sagði Stefán Ólafsson. Umhverfisnefnd gefur í flest- um tilfellum Ieyfi ef íbúar hyggj- ast stunda skógarhögg í görðum sínum. Þar ræður heildarmynd götunnar miklu um en það vekur athygli að ekkert tillit er tekið til afstöðu eða þarfar eigenda. — GG Jón Armann Gísla- son kosinn prestur á Skinnastað Jón Ármaim Gíslason vax kjörinn lögmætri kosningu sl. föstudag sem sóknarprestur að Skinnastað. Þrír umsækjendur voru um Skinnastaðarprestakall og á fundi aðal- og varamanna þeirra þriggja sókna sem prestur þjón- ar, þ.e. Snartarstaðasóknar, Skinnastaðarsóknar og Garðs- sóknar, var Jón Ármann Gísla- son kosinn lögmætri kosningu. Aðrir umsækjendur voru Lára Oddsdóttir og Sigurður R. Ragn- arsson en þremenningarnir eru allir nýútskrifaðir guðfræðingar. Búist er við að Biskup Islands, hr. Ólafur Skúlason, muni stað- festa vilja sóknarnefndanna í þessari viku og vígsla Jóns Ar- manns fari fram innan tíðar. Fráfarandi sóknarprestur, sr. Eðvarð Ingólfsson, hefur verið vígður sóknarprestur Akurnes- inga, en hann kom til starfa á hlaupársdag 1996. Þar áður þjónaði sr. Eiríkur Jóhannsson brauðinu í sex ár, en hann er nú prestur í Hruna. Eiginkona Jóns Armanns, Hildur Sigurðardóttir, er aðstoðarprestur á Seltjarnar- nesi, en hún flytur norður og gerir Laufey Bjarkadóttir, for- maður sóknarnefndar Skinna- staðarsóknar, sér vonir um að starfskraftar hennar nýtist við leikskólann í Lundi, en fráfar- andi prestsfrú var leikskólastjóri þar. Að sögn biskupsritara, sr. Baldurs Kristjánssonar, hefur umsókn eftir lausum brauðum á Norðurlandi veríð óvenju mikil að undanförnu og töluvert síðan að umsóknir hafa borist í öll laus prestaköll, einnig í öðrum lands- hlutum. Húnvetningar og Mý- vetningar hafa fengið nýja presta, því á sunnudag var Sveinbjörn R. Einarsson vígður til Þingeyrarldaustursprestakalls í Húnavatnsprófastsdæmi og Ornólfur Jóhannes Olafsson til Skútustaðaprestakalls í Þingeyj- arprófastsdæmi. — GG Starfsemi Akur- eynirbæjíir í Glerárgötu kyunt Húsnæði Akureyrar- bæjar að Glerárgötu 26 verður bæjarbúum tH sýnis nk. föstudag frá klukkan 14.00 tH 17.00. Akureyrarbær tók í ársbyrjun 1996 í notkun húsnæðið sem hýsir Fræðslu- og frístundasvið sem innifelur skóladeild, leik- skóladeild, menningardeild og íþrótta- og tómstundadeild ásamt félags og heilsugæslusviði. Undir þá deild heyrir ráðgjafa- deild, búsetu- og öldrunardeild og atvinnudeild. Einníg eru í húsnæðinu jafnréttis- og fræðslufulltrúi, Norræna upplýs- ingaskrifstofan og Skólaþjónusta Eyþings. Menntasmiðja kvenna í Glerárgötu 28, sem heyrir undir jafnréttis- og fræðsludeild, verð- ur einnig opin til kynningar á sama tíma. Um klukkan 16.00 á föstudag verður tónlistaflutningur á veg- um Tónlistaskólans á Akureyri, léttar veitingar verða í boði og á hæðunum verður fólki kynnt það sem unnið er að í hverri deild. - GG LITLI LASERPRENTARINN MEÐ STÓRU EIGINLEIKANA PAGEPRO 6, nýr PC prentari frá MINOLTA 29.925,- Stgr.verð ÞÆGILEGUR, HRAÐVIRKUR, TÆKNiLEGA VEL ÚTBÚINN 06 Á ÓTRÚLEGU VERÐi. Lítil fyrirferð. Það fer lítið fyrir PAGEPRO 6. Hann tekur álíka pláss á borði og A4 örk. Vinnsluhraði. 6 blaðsíður á mínútu. Tæknilegir yfirburðir. 2 mb. minni, sem stækka má í 18 mb. Mikil prentgæði. 600 punkta upplausn í prenti verður fyllilega sambærileg við 1200 punkta upplausn, með tilkomu "Fine ART" tækninnar, Advanced Resolution Technology. Lítill rekstrarkostnaður. Hagkvæm nýting á prentdufti eykur endingu til muna. MINOLTA smumsmmGSu* KJARAN TÆKNIBUNAÐUR SIÐUMUL112 108 REYKJAVIK SIMI 510 5500 FAX 510 5509 Leikfélag Akureyrar * Hart / í bak Af því ég skemmti mér svo vel. Arthúr Björgvin Bollason í Dagsljósi. föstudagskvöld 14. nóv. kl. 20.30 laus sæti laugard. 15. nóv. kl. 16.00 laus sæti laugardagskvöld 15. nóv. kl. 20.30 UPPSELT föstudagskvöld 21. nóv. kl. 20.30 laus sæti laugard. 22. nóv. kl. 16.00 laus sæti laugardagskvöld 22. nóv. kl. 20.30 UPPSELT Næst síðasta sýningarhelgi föstudagskvöld 28. nóv. kl. 20.30 laus sæti laugard. 29. nóv. kl. 16.00 laus sæti Næst síðasta sýning laugardagskvöld 29- nóv. kl. 20.30 laus sæti Síðasta sýning Missið ekki af þessari bráðskemmtilegu sýningu. Á ferð með frú Daisy eftir Alfred Uhry í hlutverkunum: Daisy Werthan: Sigurveig Jónsdóttir Hoke Coleburn: Þráinn Karlsson Boolie Werthan: Aðalsteinn Bergdal Þýðing: Elísabet Snorradóttir Lýsing: Ingvar Björnsson Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir Leikstjórn: Ásdís Skúladóttir Frumsýning á Renniverkstæðinu annan í jólum, 26. des. kl. 20.30 2. sýning 27. des. kl. 20.30 3. sýning 28. des. kl. 20.30 4. sýning 30. des. Gjafakort í leikhúsið Jólagjöf sem gleður Verð: Almenn kort 1800 krónur Kort á Söngvaseið: Fullorðnir: 2.400 kr. Börn: 1.300 kr. Eldri borgarar: 1.500 kr. Söngvaseiður Aðalhlutverk: Þóra Einarsdóttir frumsýning í Samkomuhúsinu 6. mars ^ Markhúsar- guðspjall Einleikur Aðalsteins Bergdal Frumsýning á Renniverkstæðinu um páska Sími 462 1400 Munið Leikhúsgjuggið HUGfÚAG ÍSmíDS sími 57Ö-36ÖÖ er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.