Dagur - 12.11.1997, Blaðsíða 6
22-miðvikudagur i 2.nó vember 1997
ro^r
LÍFIÐ í LANDINU
Vmnusamar nuiinur
í reglu Karmelsystra í
Hafnaifirði eru nú 22
nunnur. Þærrækta sitt
eigið grænmeti ígarð-
inum við klaustrið og
framleiða ýmislegt
sem þærselja.
I klaustrinu ríkir friður, enda
mikil áhersla lögð á rólegheit.
Nunnurnar tala iítið saman,
nema hvað snertir vinnuna eða
nauðsynlega hluti. Gestir sem
koma í verslunina standa fyrir
framan grind, þeim er ekki
hleypt inn fyrir.
„Með því að tala lítið og vera í
ró við vinnu okkar, þá komumst
við nær Guði okkar og í betra
samband við hann,“ segir prior-
innan, systir Agnes, en hún tek-
ur á móti blaðamanni. Priorinn-
an sem er brosmild, sviphrein
kona er klædd brúnum kufli
sem kallaður er skapúlar og er
hann gjöf Maríu Meyjar, kom
fram árið 1251, þegar María
Mey birtist hinum sæla Símoni
Stock, Karmelmunki.
Gott að koma í klaustrið
I klaustrinu eru nú 22 konur,
allar frá Póllandi. Þær eru frem-
ur ungar og margar yngri en fer-
tugar, að sögn systur Agnesar.
„Karmelsystur verða fremur
gamlar, það er algengt að þær
verði meira en 85 ára,“ segir
systir Agnes og brosir. Systír
Agnes hefur verið hér í 13 ár og
talar furðugóða íslensku. „Það
koma margir til okkar í leit að ró
og til að biðja,“ segir hún.
„Þannig hef ég þjálfast við að
tala íslensku. Mörgum þykir gott
að koma til okkar og leita
Guðs.“
Nunnurnar rækta sitt eigið
grænmeti í garðinum við
klaustrið og það nýtist þeim allt
árið. Þær borða ekki kjöt, drekka
vatn, mjólk, te og stundum kaffi
á morgnana.
Ekki bara bænir
Margir halda kannskj að lífið í
klaustrinu snúist mest um bænir
og messuhald. Svo er þó ekki,
því nunnurnar vinna talsvert
mildð og framleiða m.a. eitt og
annað sem þær selja. Þær búa
til falleg kort, handmáluð, ein-
staklega falleg máluð kerti sem
henta við ýmis tækifæri, jötur
með Jesúbarninu, fjárhúsið og
krossa, svo eitthvað sé nefnt.
Einnig hafa þær nýlega gefið út
bók og kassettu með söng sín-
um. Þessar vörur selja þær í
versluninni sem er í klaustrinu.
„Það koma ekki mjög margir
að kaupa,“ segir systir Agnes, en
kannski þeir verði fleiri nú þegar
fólk hefur séð þá fallegu hluti
sem búnir eru til í Guðs friði í
Karmelklaustrinu í Hafnarfirði.
VS
Sitjum ekki á peningakassa
Félagsráðgjafarnir Kristján Jósteinsson, f.v. Brynja Óskarsdóttir og Stefán Hallgrímsson.
mynd: brink
Samspil einstaklings
og umhverfis ergrátt
svæði. Á því svæði
starfafélagsráðgjafar
ogþað erþessvegna
sem þeir taka höndum
saman í dag til aðgera
félagsráðgjöfsýnilega.
Félagsráðgjafarnir Kristján Jó-
steinsson, Brynja Óskarsdóttir
og Stefán Hallgrímsson eru
sammála starfssystkinum sínum
í Evrópu að mikil þörf sé á því
að kynna félagsráðgjöf en í dag
er evrópskur kynningardagur á
félagsráðgjöf.
Styðjum
fólk til sjálfshjálpar
Kristján segir að þrátt fyrir víð-
feðman starfsvettvang sé sú
ímynd sem félagsráðgjafar hafi í
samfélaginu tvenns konar. Ann-
ars vegar að þeir vinni við fé-
lagsþjónustu sveitarfélaganna,
sitji þar á peningakassa og veiti
fólki fjáhagsaðstoð. Hins vegar
að þeir vinni að barnavernd.
„Það heyrast stundum dökkar
sögur meðal fólks um félagsráð-
gjafann sem tekur börnin af for-
eldrunum. Þetta er einungis lítil
mynd og skökk af mjög víðfem-
um starfsvettvangi sem við höf-
um. Markmið félagsráðgjafa er
að styðja fólk til sjálfshjálpar á
öllum sviðum og sérstaða fags-
ins felst í ákveðinni heildarsýn,"
segir Brynja. „Þar er litið á ein-
staklinginn og samskipti hans
við sitt nánasta umhverfi og allt
samfélagið. Þetta samspil er
megin viðfangsefni félagsráð-
gjafar."
Víðfeðmux starfsvettvangur
Starfsvettvangur félagsráðgjafa
er á öllum sviðum mannlífsins
sögn Stefáns en m.a. á sjúkra-
húsum, hjá félagsþjónustu sveit-
arfélaga, í einkafyrirtækjum,
skólum og á einkastofum.
Stefán vinnur hjá ráðgjafardeild
Akureyrarbæjar og þar koma fé-
lagsráðgjafar að ýmsum málum.
„Þar vinnum við að barnavernd-
armálum, við veitum fjárhagsað-
stoð og ýmsa ráðgjöf. Umgengn-
is- og forsjármál koma inn á
borð til okkar ásamt fósturmál-
um og málum er snerta fatlaða.
“Starfssvið Kristjáns sem félags-
ráðgjafa er þjónusta við geð-
sjúka. „Eg er forstöðumaður
áfangastaðar fyrir geðsjúka, sem
er skammtímabúseta fyrir fólk
með langvinna geðsjúkdóma.
Einnig starfa ég við þjónustu-
íbúðir geðfatlaðra. “Brynja
starfar hins vegar á tveimur
stöðum sem félagsráðgjafi, á
fæðingadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri og hjá
Krabbameinsfélagi Akureyrar og
nágrennis. „Bæði störfin eru í
rauninni í þróun. Hjá Krabba-
meinsfélaginu vinn ég sem upp-
lýsingafulltrúi. Þar erum við að
þróa sálræna og félagslega þjón-
ustu við sjúklinga. A fæðinga-
deildinni er ég einnig í þróunar-
starfi þar sem ég í samvinnu við
aðrar fagstéttir vil styðja við fjöl-
skyldutengsl og persónulega úr-
vinnslu og aðstoða við réttinda-
mál.“
Uiiilmn er kyiming á
huguðu fólld
Þau nefna að þótt starf félags-
ráðgjafa sé að taka á mannleg-
um vandamálum og það kreljist
ákveðins hugrekkis þá þyld þeim
mikilvægt að undirstrika þá
umbun sem félagsráðgjafinn fær
í daglegu starfi sínu. „Sú umbun
er kynni af huguðu fólki. Fólki
sem glímir við það sem oft virð-
ist vera óyfirstíganlegur vandi,
en vinnur sigra á vandamálum
lífsins,“ segir Kristján. HBG