Dagur - 29.11.1997, Síða 5

Dagur - 29.11.1997, Síða 5
» * X. sP I- FRÉTTIR L'AUGARbA‘^bh{'29.NbvXEMBÉXáS ^3^7 - *> Vill miirnst fmrni millj- arða fj árlagaafgang Sendinefnd Alþjóða- gjaldeyrissjóðsms varar við verðbólgu- hættu og vill sjá metnaðarfyllri mark- mið við fjárlagagerð. „Ljóst er að beita þarf frekara að- haldi í stjórn efnahagsmála til þess að draga úr þrýstingi vegna aukinnar eftirspurnar „áður“ en hann kemur fram í vaxandi verð- bólgu,“ segir í áliti sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem nýlega eyddi viku á Islandi til að kynna sér stöðuna, og sýnist hætta á að upp úr sjóði. Slakinn sem skapaðist í síðustu lægð og gaf færi á hagvexti án verðbólgu sé nú horfinn og stöðugleiki til lengdar því ólíklegur án sér- stakra aðgerða. Fjárlagafnunvarpið 1988 £ær lága einkium „Af ýmsum ástæðum ættu ríkis- íjármálin að bera meginþunga nauðsynlegrar aðlögunar," segir nefndin. „Þjóðhagsleg áhrif tjár- lagafrumvarpsins fyrir 1988 munu í besta falli verða hlutlaus, þar sem ekkert er dregið úr örv- unaráhrifum ríkisfjármála.“ Sendinefndin leggur því til að markmið fjárlagafrumvarpsins verði sett hærra, eða sem nemur a.m.k. 1% af landsframleiðslu í afgang, sem væri meira en 5 milljarðar. Auk þess verði allri hagvaxtaraukningu umfram spár varið til að bæta stöðu ríkissjóðs í stað þess að mæta auknum út- gjöldum, eins og gert hafi verið. Heldur hærra gengi og vextir tilbóta Til að halda verðbólgu í skefjum sé aukið aðhald í peningamálum líka nauðsynlegt. Gengislækkun krónunnar undanfarnar vikur hafi leitt til slökunar. Heldur hærra gengi yrði í góðu samræmi við ríkjandi aðstæður í þjóðarbú- skapnum. „Þess vegna eru for- sendur til þess að hækka vexti og jafnframt nýta möguleika til inn- gripa til þess að takmarka geng- ishækkun og styrkja gjaldeyris- forðann um leið.“ Til framtíðar litið mundi trúverðugleiki pen- ingastefnunnar vaxa enn meira ef Seðlabankanum yrði veitt formlegt sjálfstæði til að stuðla að stöðugleika í verðlagi." Iðnaðurinn óttast lika að upp úr sjóði Samtök Iðnaðarins boðuðu til fundar um sama efni í vikunni. Talsmenn þeirra telja ljóst að verði ekki tekið í taumana muni innlendir kostnaðarþættir hækka umfram það mark sem atvinnu- lífið þolir. Valið standi þá að lok- um milli tveggja slæmra kosta: Gengisfellingar eða aukins at- vinnuleysis. „Hvorugt vilja Sam- tök iðnaðarins sjá,“ sagði for- maðurinn. Til að komast hjá þessu þurfi þjóðin að spara og spara: I stað þess að auka þenslu, eins og ríki og sveitarfélög geri sig nú sek um, þurfi þau að draga úr henni. Af nógu sé þar að taka hjá þjóð með 3. hæstu samneyslu innan OECD. Stjórnvöld ættu einnig að hvetja einkaaðila til aukins sparnaðar, t.d. með skattalegum hvötum, s.s. vegna hlutabréfa- kaupa, aukins lífeyrissparnaðar og/eða nýrra húsnæðissparnað- arreikninga. - HEI Vinnan í fastanefndum þingsins er mismikil, en það er alltaf nóg að gera í fjártaganefnd þingsins á þessum tima árs. Hins vegar hafa fá mál borist utanríkis- og landbúnaðarnefndum til umfjöllunar I vetur. Lítið að gera í landbúnað amefnd Álagið á neliidimi Al- þingis er mismikið. UtanríMsnefnd hefur 2 mál að fjalla um og landbúnaðamefnd 3, en mun meira er að gera í fjárlaga- og efnahags- og við- sMptanefnd. Engir þingfundir hafa verið þessa viku, enda svokölluð nefndavika samkvæmt starfsá- ætlun Alþingis. Sú nýbreytni var tekin upp fyrir nokkrum árum að gera hlé á hefðbundnum þing- störfum til þess að gefa fasta- nefndum meiri tíma til þess að afgreiða þingmál og hefur þetta þótt gefa góða raun. Alagið á þingnefndunum er hins vegar mismildð og í haust hefur verið ósköp lítið að gera í landbúnaðar- og utanríkismála- nefndum þingsins. Utanríkis- málanefnd hefur ekki fengið eitt einasta frumvarp til umíjöllunar og aðeins 2 þingsályktanir, sam- kvæmt yfirliti um stöðu mála í fastanefndum. Önnur ályktunin er um hvernig minnast skuli landafunda íslendinga og hin um viðskiptabann á Irak og get- ur hvorugt þessara mála kallast flókin eða stórmál í þeim skiln- ingi að þau kalli á umsagnir hvaðanæva að eða langar og strangar umræður. Sömu sögu er að segja af land- búnaðarnefnd. Þremur þingmál- um hefur verið vísað þangað, en 2 þeirra hafa ekki enn verið rædd. Eina málinu sem vísað hefur verið til nefndarinnar í vet- ur er þingsályktun Össurar Skarphéðinssonar um urriða- stofninn í Þingvallavatni. Stórmál Fjárlaganefnd hefur reyndar að- eins fengið 3 mál til umljöllunar en það eru engin smámál, held- ur sjálft fjárlagafrumvarpið, fjár- aukalög og ríkisreikningur. Rétt er hins vegar að taka fram að all- ar nefndir þingsins íjalla nokkuð um og gefa umsagnir um fjár- lagafrumvarpið. Eins og svo oft áður er einna mest að gera í efnhags- og við- skiptanefnd þingsins. Hún hefur fengið 19 mál til umljöllunar, en málaQöldinn í allsherjarnefnd slagar hátt í það, eða 15 mál, og sum þeirra eru umfangsmikil, eins og t.d. frumvarp um dóm- stóla, lögmenn, vopnalög og endurskoðun skaðabótalaganna. Menntamálanefnd er með 11 mál til umfjöllunar. Aðrar nefndir hafa haft minna við að vera í vetur, 7 málum hef- ur verið vfsað til félagsmála- nefndar, og 7 til heilbrigðis- og tryggingarnefndar. Iðnaðar- nefndarmenn hafa 5 mál að dunda sér við á nefndarfundum og einnig félagar þeirra í sam- göngunefnd. Sex mál höfðu borist á borð umhverfisnefndar og 4 til sjávarútvegsnefndar. -VJ Listameim styrktir Stjórn styrktarsjóðs Svavars Guðnasonar og Astu Eiríksdóttur hefur úthlutað tveimur styrkjum til ungra myndlistarmanna. Til úthlutunar fyrir árið 1997 voru tveir styrkir að upphæð 300 þúsund hvor. Styrkina hlutu Kristín Gunnlaugsdóttir og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson. Kristín Gunnlaugsdóttir er fædd árið 1963 og stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri og MHI. Þá stundaði hún nám í íkonagerð í Róm og Flórens. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er fæddur árið 1968 Kristin Gunnlaugsdóttir. og stundaði nám við MHI og við listaháskóla í Þýskalandi og Flollandi og við San Francisco Art Institute. Sjávarútvegur á fulltrúaráðsfimdi „Það getur verið að petta hafi einhverja þýðingu. Það verður að koma í ljós síðar,“ segir Markús Möller, hagfræðingur, sem flytur erindi um framtíð sjávarútvegs á flokks- og fulltrúaráðstefnu Sjálfstæðisflokks- ins í dag. Markús hefur verið einn ákafasti talsmaður veiðileyfagjalds innan Sjálfstæðisflokksins, en umræða um þau hefur ekki átt mjög upp á pallborðið hjá forystu flokksins undanfarið og var í reynd þög- guð niður á landsfundi flokksins í fyrra. Afmælishátíð F.í. Ferðafélag íslands efnir til afmælishátíðar f dag, laugardag frá kl. 16- 17 í Mörkinni í Reykjavík. I framhaldi af hátíðinni verður opnuð sögusýningin „A ferð í 70 ár“. A sunnudaginn verður hins vegar efnt til opins húss í Mörkinni 6 í Reykjavík Sýningin er einnig opin á sunnudag og einnig á öðrum tímum næstu vikur. Leiðrétting Ranglega sagði Magnús Már kynnir á, yrði í dag, laugardag. Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Þessi samkoma verður réttilega á á Akureyri í Degi í gær, að morgun, sunnudag, í samkoma á vegum Kvenfélags Alþýðuhúsinu við Sldpagötu og Akureyrarkirkju sem hann er hefst klukkan 15.00.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.