Dagur - 23.12.1997, Qupperneq 1

Dagur - 23.12.1997, Qupperneq 1
80. og 81. árgangur - 243. tölublad Davíð skýri við hverjahaimá Með því að tilkynna hrókermgar í ríkis- stjóminni með löng- um íyrirvara hefur forsætisráðherra kall- að yfir sig og fiokkinn átök og þrýsting í all- an vetur um endur- nýjun í ráðherrastól- um. Mikil ólga er í báðum stjórnar- flokkunum vegna opinberra yfir- lýsinga Davíðs Oddssonar, for- sætisráðherra, um að skipt verði út ráðherrum á næsta ári. Friðrik Sophusson, sem talinn er á för- um úr ríkisstjórninni á miðju ári 1998 og í forstjórastól Lands- virkjunar, sagði í viðtali við Dag í gær: „Mér þykir eðlilegast að Davíð Oddsson skýri það hverja hann á við í þessu sambandi." Þungavigtar- menn innan Sjálf- stæðisflokksins sögðu blaðamanni Dags í gær að eink- um hefði verið um það rætt að Geir H. Haarde, for- maður þingflokks- ins, tæki við emb- ætti fjármálaráð- herra af Friðriki Sophussyni næsta sumar. Hins vegar hefði Davíð sett af stað atburðarás sem vafalítið myndi leiða til auk- ins þrýstings næstu mánuði í þá veru að skipt yrði um fleiri en einn ráð- herra Sjálfstæðis- flokksins. Fraiiisóknanneiin reiðir Yfirlýsing Davíðs kom ráðherr- um Framsóknarflokksins mjög á óvart. Heimildir Dags innan flokksins herma að forystumenn þar á bæ hafi reiðst mjög, þótt þeir gæti orða sinna opinberlega. Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra, segir almennt séð óheppilegt að hugsanlegar breyt- ingar á ríkisstjórn hafi Iangan að- draganda. „Eg tel að það sé með þetta eins og gengi gjaldmiðla, svona umræða veikir og hún veikir líka þá ríkisstjórn sem sit- ur og þá ráðherra sem slíkt um- tal er um,“ segir hann. Halldór segir að ekki hafi verið rætt um breytingar á ráðherra- skipan framsóknarmanna. „Eg hef fullt traust á ráðherrum flokksins og tel að þeir hafi stað- ið sig vel,“ segir hann. Rætt hefur verið um að Guð- mundur Bjarnason, umhverfis- ráðherra, hafi hug á að setjast í embætti bankastjóra Seðlahank- ans þegar Steingrímur Her- mannsson lætur þar af störfum á miðju næsta ári. Sjá fréttaskýringu bls. 8-9. Bæði vor og haust! Stjúpmæður og fleiri blóm frá sumrinu 1997 eru enn í hörku- vexti á Þorláksmessu, í húsa- görðum í grennd við ritstjórn Dags í Reykjavík, líkt og þær viti ekki að löngu er kominn vetur. I þeim sömu görðum eru svo lauk- ar vorsins 1998, krókusar jafnt og páskaliljur og túlípanar, komnir vel upp úr moldinni. Runnarósir, sem bjuggu sig und- ir vetur fyrr í haust, eru nú aftur farnar að vaxa og sama er að segja um lúpínur, næturfjólur og fjölda annarra fjölærra garða- blóma sem spretta á fullu um þessar mundir, líkt og þau haldi að komið sé vor. I görðum margra Reykvíkinga a.m.k. er þannig fátt sem minnir á vetur. En líklega á það eftir að renna illilega upp fyrir sumarblómum næsta árs að vorið 1998 er enn- þá langt undan. — HEI / görðum borgarbúa virðist nú bæði ríkjandi haust og vor en hins vegar fátt sem minnir á vetur konung, eins og þessar myndir sem teknar voru i gær i Reykjavík bera með sér. - mynd: pjetur Einar Már í tíu þúsund? Einar Már Guðmundsson hefur rækilega slegið í gegn á þessari jólabókavertíð en jafnvel er búist við að skáldsaga hans Fótspor á himnum muni seljast í um tíu þúsund eintökum. Halldór Guð- mundsson, útgáfustjóri Máls og menningar, segir að bókin virðist ætla að verða söluhæsta skáldi saga sem komið hefur út hjá for- laginu í allnokkur ár. Halldór sagðist búast við að er- lend forlög hafi áhuga á að gefa út Fótspor á himnum og taldi líklegt að viðræður myndu hefj- ast strax og jólabókavertíðinni lýkur. Bók Einars Más er ekki eina bók forlagsins sem erlend bóka- forlög renna hýru auga til en for- lög á Norðurlöndum og í Þýska- landi hafa augastað á smásagna- safni Gyrðis Elíassonar, Vatns- fólkinu, sem hefur náð góðri sölu fyrir þessi jól og verið tví- prentað. Foppmmjar áAkureyri Svo kann að fara að Norðlend- ingar eignist sitt poppminjasafn á Akureyri. Sigmundur Rafn Einarsson matreiðslumaður hef- ur viðrað þá hugmynd að koma upp slíku safni á kaffihúsi sem hann hyggst opna í Hafnarstræti með hækkandi sól á næsta ári. Hann hefur rætt málið við Rún- ar Júlíusson sem hefur reynslu af slíku safni sem komið hefur verið upp í Keflavík. Sigmundur Rafn telur ekki útilokað að safnmunir verði fengnir víðar af en frá Akureyri. I þeim elrium kemur til greina að horfa til alls Norðurlands í sögu dægurlagatónlistar. Hann leggur þó áherslu á að samvinna verður höfð við þá í Keflavík sem voru þeir fyrstu til að gera poppminjasafn að veruleika. - GRH Premium miðiarar IWiOI Perfectao B0RG ARTUT'fm “• SIMI 502 1 dagar tll jóla Ketkrókur 9SI Neysíuvatnsdælur SINDRI^ -sterkur í verki /222 • BREFASIMI 562 1024

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.