Dagur - 23.12.1997, Síða 10

Dagur - 23.12.1997, Síða 10
10-ÞRIÐJUDAGUR 23.DESEMBER 1997 FRÉTTIR L. MiMI olvun í Reykjavík Dagbók lögregluimar í Reykjavík 19. til 22. desember 1997. Mikið annríki var hjá lögregl- unni þessa helgi. Mikið var um ölvun bæði í heimahúsum og við hin fjölmörgu veitingahús borg- arinnar. Eitthvað virðist undir- búningur fyrir hátíð Ijós og frið- ar fara misjafnt í borgarbúa því mikið var um pústra og meiðing- ar milli einstaklinga. Töluvert var um að unglingar söfnuðust saman í hópa víðsvegar um borg- ina og var kvartað undan fram- ferði þeirra í mörgum tilvikum. Eitthvað var um rúðubrot. Karl- maður á miðjum aldri var úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 5. janúar nk. vegna gruns um aðild hans að nokkrum innbrotum í borginni á síðustu vikum. Umferðarmál Mikil og þung umferð hefur ver- ið um helgina, einkum í ná- grenni við verslunarmiðstöðvar. I flestum tilvikum hefur umferðin gengið vel en 39 umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu. Arekstur var með fjórum ökutækjum á Miklubraut við Lönguhlíð á föstudag rétt fyrir klukkan sex. Engin slys urðu á fólki. Að morgni laugardags varð umferðarslys á Miklubraut við Reykjahlíð er þrjú ökutæki rák- ust saman. Flytja varð fimm far- þega á slysadeild en áverkar voru ekki taldir alvarlegir. Það voru 75 ökumenn stöðv- aðir vegna hraðaksturs um helg- ina sem er mjög mikið einkum miðað við árstíma. Einn þeirra sem ók á Breiðholtsbraut var mældur á 145 km hraða. Oku- maðurinn var færður á lögreglu- stöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum. Þá voru 10 öku- menn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur. Stolið úr ktrkju Um hádegi var ekið á rúmlega sjötugan karlmann í Síðumúla. Karlmaðurinn féll í götuna við höggið en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Hann var fluttur á slysadeild af Iögreglu til skoðun- ar. Um miðjan dag var lögreglu tilkynnt um þjófnað á íjármun- um úr fatahengi í einni af kirkj- um borgarinnar. Auk þjófnaðar á fjármunum fyrir um 50 þúsund krónur var tekið kort og tekið út af því í nálægum hraðbanka. Síðla kvölds var ungur piltur þekktur lyrir brotahneigð sína handtekinn af lögreglu í mið- bænum. Hann var færður í fangageymslu grunaður um þjófnað í hinu helga húsi. Réttindalaus með fíkniefni Ráðist var að karlmailni á Lækj- artorgi um klukkan hálf þrjú að morgni laugardags. Maðurinn fékk áverka á andliti og var flutt- ur á slysadeild til aðhlynningar. Arásarmaðurinn var handtekinn og fluttur í fangageymslu. Bifreið var stöðvuð um klukk- an þrjú aðfaranótt laugardags við Hlemmtorg. Við skoðun lög- reglumanna kom í ljós akstur án tilskilinna réttinda auk þess sem hánn er grunaður að hafa verið undir áhrifum áfengis eða lyfja. I ökutækinu fundust ætluð fíkni- efni. Einn aðili var handtekinn og færður í fangageymslur. Sparkað í niaini Um klukkan þrjú að morgni laugardags fannst maður liggj- andi á gangstétt í Tryggvagötu og hafði veriö sparkað í hann. Hann var fyrst fluttur á miðborgarstöð lögreglu og síðan á slysadeild. Tveir karlmenn annar 23 ára og hinn 19 ára voru handteknir og fluttir í fangageymslu vegna gruns um aðild þeirra að árásinni. Rétt fyrir háíf fjögur að morgni laugardags var síðan ráðist á karlmann í Hafnarstræti og hann „skallaður". Maðurinn hneig niður meðvitundarlaus skömmu síðar og var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið. Ekki er vitað um árásaraðila. Rétt fyrir klukkan fjögur var lögreglu tilkynnt um að fertugur karlmaður hefði brotist inn í, íbúð í vesturbænum og áreitt þar stúlkubarn. Ibúar hússins vökn- uðu við öskur barnsins og lagði maðurinn þá á flótta. Hann var síðan handtekinn af íbúunum utan við húsið. Maðurinn var fluttur í fangageymslu. Kókaín í veislu Rúmlega sex að morgni laugar- dags lagði lögreglan hald á ætlað kókaín í heimahúsi í Breiðholts- hverfi. Húsráðandi var handtek- inn og fluttur á lögreglustöð. Þá voru höfð afskipti af 1 5 öðrum veislugestum á staðnum. Rúmlega tíu að morgni laugar- dags var lögreglu tilkynnt um mikinn reyk í stigagangi sambýl- ishúss í Breiðholtshverfi. Slökkvilið kom á staðinn og reyndist vera eldur í barnavagni. Töluverðar sótskemmdir urðu og varð að reykræsta stigaganginn. Skömmu síðar handtók lögregl- an karlmann sem grunaður er um verknaðinn. Hann var fluttur í fangageymslu. Brotist var inn í fyrirtæki í Ar- bæjarhverfi og þaðan stolið tölvu og öðrum rafmagnstækjum að verðmæti á annað hundrað þús- und. Þá var brotist inn í heimahús í austurborginni og þaðan stolið tölvu og öðrum rafeindabúnaði og hljómflutningstækjum. Árás í miðborgiimi Fjórar fimmtán ára stúlkur fóru inn í söluturn í Grafarvogi um klukkan hálf þrjú að morgni sunnudags. Ekki er Ijóst hvort einhverju hafði verið stolið en stúlkurnar sögðust hafa komið að opinni hurð, en verksum- merki á staðnum bentu til inn- brots. Stúlkurnar voru færðar á lögreglustöð. Rúmlega sjö að morgni sunnu- dags kom karlmaður á miðborg- arstöð lögreglu og sagðist hafa orðið fyrir árás. Hann hafði tals- verða áverka á andliti og var fluttur á slysadeild til aðhlynn- ingar. Arásarmenn eru ófundnir. Hrópað inn um bréfalúgu Lögð hefur verið áhersla á að halda bifreiðum frá göngugötunni þannig að engin ónauðsynleg umferð ökutækja sé þar enda mikið af gangandi fólki þar íjólaösinni. Úr dagbók lögregl- minar á Akureyri vik una 15. - 22. desem- ber 1997. Koma jólanna einkenndi störf lögreglunnar í vikunni en síð- ustu tvær vikurnar fyrir jól er lögreglan jafnan með meiri við- búnað en endranær vegna mik- illar umferðar og verslunar í bænum. Miðast störf Iögregl- unnar þá frekar við aðstoð og Ieiðbeiningar en refsingar og sektir og gjarnan litið mildari augum á smáyfirsjónir enda lög- reglumenn sem aðrir farnir að finna nálægð jólanna sem er jú hátíð ljóss og friðar. Lögð hefur verið áhersla á að halda bifreið- um frá göngugötunni þannig að engin ónauðsynleg umferð öku- tækja sé þar enda mikið af gang- andi fólki þar í jólaösinni. Þá hefur verið lögð áhersla á að greiða fyrir umferð þar sem þörf hefur þótt á hverju sinni. Sérstök áhers'Ia hefur verið Iögð á að lög- reglumenn væru gangandi í eftir- liti í miðbænum og ættu bæjar- búar að hafa orðið varir við það. Þrátt fyrir góð akstursskilyrði urðu 12 umferðaróhöpp í vik- unni. Talsvert eignatjón varð í þessum óhöppum og minnihátt- ar meiðsl í 4 þeirra. Fjórir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og átta fyrir, of hraðan akstur. Bréfalúgmnaður Það er ekki laust við að nokkur spenna fylgi nálægð jólanná og verða þá útköll lögreglunnar stundum öðruvísi en vanalega. A þriðjudagskvöldið var þannig hringt úr húsi í bænum og kvart- að yfir nágrannanum sem væri að öskra inn um bréfalúguna. Heyrðust öskur mannsins greini- lega um síma tilkynnanda. Þegar lögreglan kom á staðinn hafði granninn linnt látum og var far- inn til síns heima. Hlaupandi jólaskreyting Sama kvöld var kvartað yfir dökkklæddum manni á hlaupum sem sæist illa í umferðinni til stórrar hættu fyrir hann sjálfan. Fór lögreglan á stúfana vel birg endurskinsmerkjum og fann manninn eftir nokkra leit í myrkrinu og benti honum á þá hættu sem hann væri í að hlaupa nær ósýnilegur í umferðinni. Tók maðurinn því vel og var síð- an skrýddur fjölmörgum endur- skinsmerkjum áður en hann hljóp af stað á ný. Varð nú sú breyting á að því var líkast sem ein hinna fjölmörgu jólaskreyt- inga væri komin af stað svo vel glampaði á endurskinsmerki mannsins og verður ekki of brýnt fyrir gangandi vegfarendum að nota endurskinsmerki enda óvenju dimmt yfir vegna snjó- leysis. Nautgripir á þjódveginum Þá vissu lögreglumenn ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar vegfarandi hringdi og kvartaði undan Iausum nautgripum við þjóðveginn enda ekki að búist við slíkum gripum utan dyra fyrr en með vormánuðum í venjulegu árferði. Hætta af jólaskreytingum Mikið er af alls kyns jólaskreyt- ingum í bænum en þeim getur líka fylgt hætta og þannig varð maður lyrir raflosti á laugardag- inn er hann var að vinnna við rafmagnsskreytingu. Brenndist hann nokkuð á höndum og var fluttur á sjúkrahús. Er ástæða til að hvetja fólk til að fara varlega þegar rafmagnsskreytingar eru annarsvegar og ávallt þarf að hafa í huga eldhættu sem af þeim getur stafað og er sjálfsögð regla að slökkva á öllum inni- skreytingum á nóttunni og þegar farið er að heiman. Jólakveðjur Mikill fjöldi ungmenna var sam- ankominn í miðbænum aðfara- nótt föstudagsins en allt fór þar vel fram. Allmikil ölvun var að- faranótt laugardagsins og þurftu nokkrir að gista fangageymslur sökum ölvunar. Var mikill erill hjá Iögreglunni en engin sérstök mál komu upp. Rólegra var að- faranótt sunnudagsins. Lögreglan á Akureyri sendir svo bæjarbúum og landsmönn- um öllum hugheilar jólakveðjur og vonar að friður jólanna megi ríkja á heimilum þeirra um há- tíðarnar. - DG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.