Dagur - 23.12.1997, Page 16
VEÐUR-
HORFUR
Línuritin sýna fjögnrra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan
sýnir hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu en vin-
dáttir og vindstig eru
tilgreind fyrir neðan.
Reykjavík
°C Mið
10-
5-
0
-5
FÖS
Lau mi^_
-10
5
0
NA3 NNA3 NA5 N4 A3
N3 NNA4 NNA4 NNA2
Stykkishólmur
”? Mið Fim Fös Lau mm
101--- ---- ---- -----M5
NA4 NNA5 NA5 N4
NNA5 NNA6 NNA5
Blönduós
Egilsstaðir
°9 Mið Fim Fös Lau mm_
A3 V3 NNV3 NNV3 VNV1
NA3 V3 NNV3 NV3
Kirkjubæjarklaustur
ANA2 VSV2 NS2 NA2 A2
NNV3 VSV2 NA3 NNA2
Stórhöfði
NA6 VSV5 NA5 N5 A5
NV6 NV3 NA6 N5
Vedrið í dag...
Austlæg átt, gola eða kaldi, en norðaustlægur á
Vestjförðum. Dálítil rigning verður sunnan- og suðaustan-
lands og eins sums staðar suðvestan til, en á Norðurlandi
og Vestfjörðum verður að mestu úrkomulaust.
Hiti 3 til 7 stig.
ÍÞRÓTTIR
Besta
jolagjofm
Haukur Ingi Guönason orðinn leikmaöur á Anfield.
Híiukur Ingi Guðna-
son fékk sína bestu
jólagjöf um helgina.
Samningur við Liver-
pool er klár til undir-
ritunar. Draumur
unga knattspyrnu-
mannsins er orðinn
að veruleika.
Það er engum blöðum um það
að fletta að Haukur Ingi Guðna-
son er genginn til liðs við fræg-
asta lið sem íslenskur leikmaður
hefur samið við til þessa. Eins og
fram kom í Degi fyrr í haust voru
forráðamenn Liverpool ánægðir
með Keflvíkinginn eftir vikudvöl
hans hjá félaginu í október.
Haukur var ekki síður ánægður
hjá félaginu og nú er draumur-
inn orðinn að veruleika.
„Samningarnir gengu mjög
fljótt fyrir sig eftir að Birgir Run-
ólfsson, stjórnarmaður frá Kefla-
vík, fór út á föstudaginn,“ sagði
Haukur Ingi. „Samningurinn var
tilbúinn á laugardaginn. Annars
var mér haldið utan við allar við-
ræður svo ég gæti einbeitt mér
að náminu. Nú er því lokið og þá
fékk ég fréttirnar. Þetta hefur
farið mest í gegnum umboðs-
mann minn, Norðmanninn Erik
Soler, og hann hafði síðan sam-
bandi við Keflvfkingana."
Haukur Ingi lék með varaliði
Liverpool í haust svo hann veit
að hverju hann gengur.
Héðinn Gilsson fór vel af stað
með liði sínu Bayer Dormagen í
þýsku 1. deildarkeppninni í
handknattleik um síðustu helgi.
Héðinn skoraði sjö af mörkum
Dormagen, þar af sex þeirra í
fyrri hálfleik, þegar heimamenn
lögðu eitt af toppliðunum,
Wallau Massenheim, að velli,
31:30, og lyftu sér þar með upp
af mesta fallhættusvæðinu. Ró-
bert Sighvatsson, lék einnig með
Doramagen, en náði ekki að
skora í leiknum.
Ólafur Stefánsson skoraði
„Jú ég hlakka til að fara út.
Það verður ekki fyrr en 2. janúar
og byrja þá væntanlega að spila
með varaliðinu. Eg þekki þessa
stráka ekki þó ég kannist aðeins
við þá eftir dvölina í haust. Þetta
eru allt ljúfir strákar og tóku mér
mjög vel þá. Það er svo mikill
Ijölskyldubragur á öllu hjá félag-
inu að maður þarf held ég engu
að kvíða.“
Þá er ekki neitt annað fyrir
fimm mörk fyrir Wuppertal sem
mátti sætta sig við jafntefli,
23:23, gegn botnliðinu Rhein-
hausen.
Patrekur Jóhannesson skoraði
sex af mörkum Tusem Essen,
sem mátti þola eins marks tap,
26:27, á heimavelli sínum gegn
Magdeburg. Lið Alfreðs Gísla-
sonar, Hameln, tapaði sínum
fimmta leik í röð, gegn Niederw-
urzbach 29:34, en Konráð Olav-
son var ekki á meðal markaskor-
ara síðarnefnda liðsins.
Róbert Julian Duranona skor-
Keflvíkinginn unga en að nota
tímann sinn vel með varaliðinu
og stefna ótrauður að sæti í aðal-
leikmannahópi Rauða hersins.
Dagur óskar Hauki lnga og fjöl-
skyldu hans til hamingju með
áfangann. Stúdentspróf og
samningur við Liverpool er
nokkuð sem ekki allir fá eina og
sömu helgina. — GÞÖ
aði fimm af mörkum Eisenach,
sem náði stigi gegn Lemgo. Jafn-
tefli varð í leiknum, 24:24.
Eftir fjórtán umferðir hefur
THW Kiel 22 stig, Lemgo er
með 21 og næstu lið eru Flens-
burg og Magdeburg með 18 stig.
Niederwurzbach stendur hæst
Islendingaliðanna með 15 stig,
Wuppertal er með 13, Eisenach
11, Hameln 10, Dormagen 8 og
Essen 7. Eisenach er í botnsæti
deildarinnar með sex stig.
Hermann hættur
í markinu hjá KA
Hermann
Karlsson, mark-
vörður hjá KA-
liðinu í hand-
knattleik, hefur
lagt skóna á
hilluna, vegna
anna. Hermann
hefur verið
varamaður Sig-
tryggs Alberts-
sonar í vetur, en
búast má við
því að 2. flokks markvörður taki
sæti Hermanns í KA-liðinu þeg-
ar keppni hefst að nýju á næsta
ári.
Klmsmann til
Tottenham
Iottenham bætist góður liðs-
styrkur í vikunni. Jurgen Klins-
mann, sem leikið hefur með
Sampdoria á Ítalíu í vetur, er
aftur á Ieiðinni á White Hart
Lane. Klinsmann mun leika
með Tottenham það sem eftir er
vetrar og síðan hugsanlega ger-
ast tæknilegur ráðgjafi eftir að
keppnistímabilinu lýkur. Með
þessu vonast forráðamenn
Tottenham til þess að liðið rétti
úr kútnum og komist á þann
stað í deildinni sem stórliði
sæmir. Tottenham greiddi innan
við 200 þúsund pund fyrir þýsku
stjörnuna sem enn er goð á
White Hart Lane eftir að hann
lék þar fyrir nokkrum árum.
Annað stórlið í fallbaráttunni,
Everton, fær væntanlega góðan
liðsstyrk á næstu dögum. Franski
landsliðsframherjinn, Mickael
Madar, er á leið til liðsins. Mad-
ar, sem leikur með spænska lið-
inu Deportivo La Coruna, fót-
brotnaði illa fyrir ári síðan og
hefur því lítið leikið með það
sem af er leiktíðinni. Howard
Kendall brá sér til Spánar í síð-
ustu viku og nældi í Fransmann-
inn sem fékk frjálsa sölu frá
Deportivo. Þá er Kendall á hött-
unum eftir vandræðamanninum
hjá Arsenal, Ian Wright, sem
mun vera falur þessa dagana eft-
ir að hafa móðgað stuðnings-
menn Lundúnaliðsins. Það er
því margt sem bendir til þess að
Kendall hafi forðað því að þurfa
að selja Duncan Ferguson til að
fjármagna kaup stjörnuleik-
manna til Goodison Park. — GÞÖ
Héðlim byrjar vel