Dagur - 14.03.1998, Side 2
r 1
2 — LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
FRÉTTIR
Tryggvi P. Friðriksson og Elínbjört Jónsdóttir i Gaiieri Fold: Ef hiutirnir eru sýnilega i góðu lagi þá er aldeilis óhætt að kaupa myndir eftir gömlu
meistarana.
Gnmsamlegar
myndir sjást ekki
Gallerí Fold efnir til upp-
boðs á verkum gömlu
meistaranna á sunnudag.
Sérfræðiugar telja að fals-
aðar myudir séu horfnar
af markaðnum.
Að halda uppboð á gömlu meisturun-
um í miðri umræðu um umfangsmikl-
ar málverkafalsanir og meðan Ríkislög-
reglustjóri rannsakar tugi málverka - er
það ekki brjálæði? „Nei, þetta er ekki
brjálæði. Þetta er hlutur sem verður að
gera og málið er ekki flóknara en svo
að fólk verður að fara varlega. Ef hlut-
irnir eru sýnilega í góðu lagi þá er al-
deilis óhætt að kaupa myndir eftir
gömlu meistarana," segir Tryggvi P.
Friðriksson í Gallerí Fold, en galleríið
efnir til Iistmunauppboðs á Hótel Sögu
næstkomandi sunnudagskvöld.
„Það á að vera hægt að ganga úr
skugga um að myndir séu ekki falsað-
ar. Við reynum að fá eigendasögu allra
verka sem við fáum inn og sem betur
fer eru flestar myndir auðsjáanlega í
lagi.“
Sðlu tuga falsaðra mynda forðað
Það er mikið talað um að markaðurinn
fyrir myndir gömlu meistaranna hafi
lamast vegna falsanaumræðunnar, sem
meira að segja hefur borist inn í sali Al-
þingis. „Það ætti ekki að vera þannig.
En hitt má segja að nú ætti að vera
góður tími til að kaupa. Og þótt þessi
umræða hafi átt sér stað er enn í lagi
að kaupa góðar myndir. Var ekki verið
að tala um að verðmæti verðbréfa
hefði hrunið um 8 milljarða? Ekki
hætta menn þó að kaupa þau og þessi
markaður er ekki verri en hver annar,“
segir Tryggvi. Hann spáir engu um
mætingu og verslun á uppboðinu.
„Maður rennir blint í sjóinn“
Uppboðsmyndirnar voru til sýnis í gær
og um helgina i galleríinu við Rauðar-
árstíg. Þegar Dagur leit inn fyrir há-
degi í gær var slæðingur af fólki að
skoða. Einn sérfræðinganna óttaðist
ekki að hann lenti í að kaupa falsaða
mynd. „Það er staðreynd að grunsam-
legar myndir og falsaðar eru hættar að
sjást á uppboðunum eftir að þessi um-
ræða fór af stað fyrir ári síðan. Glöggir
menn hafa kannski séð eina eða tvær
grunsamlegar myndir á öllum uppboð-
unum frá þeim tíma og fólk er orðið
mjög meðvitað um þessi mál. Athygli
manna hefur skerpst og glæpastarf-
semin er hætt. Það má með góðum
rökum halda því fram að með því að
þessi umræða kom upp sé búið að
koma í veg fyrir sölu á tugum falsaðra
mynda," segir þessi sérfræðingur. - Ff>G
Davíð fær útsýni.
Reykjavíkurlistinn er
búinn að fá kosninga-
skrifstofu á Lækjartorgi
gegnt stjórnarráðinu,
þar sem voru skrifstofur
Framsóknarflokksins.
Einn stuðningsmanna
Reykjavlkurlistans tók
eftir því að þar sem
hann stóð og talaði í
síxna var beint augnsam-
band við Davlð í Stjóm-
arráðinu. Forsætisráðherra xnun því fylgjast
með baráttumú um borgina úr návigi. Spuming
hvort hann rnurn baka til að bjóða nýju ná-
grannana velkomna?
í heita pottinum
á Akureyri vom
menn enn að
ræða björgun
Dalvíkinganna í
gær og hve erfið
vistin í snjóhús-
inu hlyti að hafa
verið. Einn úr pottinum, sem taldi sig vita sitt-
hvað sem ckki hefði koxnið fraxn í frcttum, sagði
að almenningur hefði enga hugmynd um hve al-
varlegt ástandið hefði verið fyrri nóttina í snjó-
húsinu. Einn ferðalanganna hefði nefnilega ver-
ið mcð flensu og hefði misst meövitund þá nótt.
Dalvíkingamir hefðu hins vegar ekki viljað
valda aðstandcndum auknum áhyggjum og því
hefði þcssi lilið málsins aldrei komið fram í
dagsljósið. Hvort sem heimildarmaður heita
pottsins hefur rétt fyrir sér eða ekki, er ljóst að
hver sem ástæðan var fýrir ógöngum félaganna
era memi almennt sammála því að Dalvíking-
amir knáu hafi bragðist hárrétt við undir erfið-
um kringumstæðum.
V
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Sunnan
stinningskaldi
og síðan all-
hvöss eða hvöss
suðvestanátt
vestanlands.
Yfirleitt
þokusúld eða
rigning sunnan-
og vestanlands
en úrkomulítið
norðaustan- og
austanlands.
Hiti 3 til 10
stig.
Færð á vegum
Hálka og þoka á heiðum á sunnanverðum VestQörðum. Þá er hálka á
Steingrímsfjarðarheiði, Möðrudalsöræfum, Vatnsskarði eystra og
Fjarðarheiði. Einnig er nokkur hálka á leiðinni frá Raufarhöfn og til
Bakkafjarðar. Annars eru allir helstu þjóðvegir landsins færir.
i