Dagur - 14.03.1998, Side 11
LAUGARDAGUR li. MARS 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Bandaríkj afor-
seti í lamasessi
Voldugasti maður Bandaríkjanna
er eins og sakir standa ekki forseti
þeirra, heldur maður að nafni
Kenneth Starr. Hann er ekki þjóð-
kjörinn til valda, eins og forset-
inn, heldur hafa dómarar útnefnt
hann á bak við lokaðar dyr. Þessi
valdamikli maður hefur mögu-
Ieika á því að hrekja forsetann frá
völdum, en forsetinn getur ekkert
gert til að draga úr völdum hans.
Hann hefur ótakmarkað fjármagn
og ótakmarkaðan tíma til baráttu
sinnar gegn forsetanum.
A þessa leið metur fréttaskýr-
andi danska blaðsins Weekend-
avisen vígstöðuna í margfrægri
viðureign þeirra Bills Clinton,
Bandaríkjaforseta, og Kenneths
Starr, sérlegs og óháðs rann-
sóknadómara í málum sem snerta
Clinton.
Háskalegt fyrir BandaríMn
I Bandaríkjunum ber á áhyggjum
um að hefðbundin valdaskipting
þess lands sem lýðræðisrfkis sé
komin úr jafnvægi. Dómsvaldið
hafi eflst um of á kostnað fram-
kvæmdavaldsins. Þegar sérlegur
rannsóknadómari, útnefndur af
öðrum dómurum, geti náð þannig
tökum á valdamiklum stjórnarfor-
manni ríkisins og embætti hans,
æðsta valdatákni ríkisins, sé kom-
ið út í ógöngur.
I bandaríska blaðinu Wash-
ington Post var gefið f skyn nýlega
að málsrannsóknir Starrs væru
orðnar að slíku taugastrfði gegn
Clinton, að næstum ómögulegt sé
fyrir hann að gegna starfi sínu.
Vegna þeirra miklu valda og væg-
is, sem bandaríska forsetaemb-
ættið hefur, væri slíkt næsta al-
varlegt mál ekki aðeins fyrir
Bandaríkin sjálf, heldur og stöð-
ugleika í heiminum yfirleitt,
vegna forystuhlutverks þess er
Bandaríkin hafa.
Bannsóknir Starrs á ýmsum
málum sem snerta Clinton hafa
staðið yfir í þrjú ár og kostað
bandaríska skattgreiðendur yfir
40 milljónir dollara. Þetta með
„Mónu litlu“ (eins og eitt blaðið
kallaði hana) Lewinsky er aðeins
það nýjasta af mörgum slíkum
málum. Af þeim er Whitewater-
mál svokallað líldega frægast, en
m.a. á þeim lista er sjálfsvíg
Vincents Foster, náins samstarfs-
manns og vinar Clintons, 1993.
ALmennmgsálit gegn Starr
Herferð Starrs gegn Clinton er
farin samkvæmt reglugerð sem
nefnd er Ethics in Government
Act og gekk í gildi 1978. Þegar
farið var að kreppa að Nixon for-
seta í Watergate-máli, reyndi
hann að gera atlögurnar að sér að
engu með svokölluðum „Iaugar-
dagsnæturvígum", m.a. Þau voru í
því fólgin að forsetinn rak heilan
hóp dómara í dómsmálaráðuneyt-
inu, sem tekið höfðu undir ásak-
anirnar á hendur honum. Nefndri
reglugerð var ætlað að tryggja, að
svo grófar aðfarir framkvæmda-
valdsins gegn dómsvaldinu end-
urtækju sig ekki. Gripið skyldi og
til hennar ef grunur léki á að hátt-
settir menn í ríkisstjórn eða á veg-
um hennar hefðu brotið Iög.
Starr og samstarfsmenn hans
hafa við umrætt verk tekið samtöl
upp í óleyfi, haft í hótunum við
vitni, sem eru þeim miður leiði-
töm, um fangelsisvist og eyðilegg-
ingu efnahags þeirra og því hefur
verið haldið fxam að þeir hafi
laumað til fjölmiðla „upplýsing-
um,“ sem varla séu mikið meira
en tilbúningur þeirra sjálfra.
Baksvió
Málsraimsóknir
Starrs era að sögn
orðnar að slíku tauga-
stríði gegn Clinton
Bandaríkjaforseta að
honum er illmögiilegt
að gegna starfi sínu.
Andstæðux innan
68-kynslóðar
Sífellt fleiri sérfræðingar um lög,
leiðarahöfundar og þingmenn,
bæði vinstri- og hægrisinnaðir,
segja sem svo að fari Starr í öllu
að lögum, sé ljóst að meira en lít-
ið sé athugavert við Ethics in
Government Act. Reglugerð þessi
verður tekin til endurskoðunar á
þingi í sumar og sennilegt er að
henni verði þá eitthvað breytt, t.d.
að óháðu rannsóknadómurunum
verði sett tímamörk. Ekki er held-
ur útilokað að reglugerðin verði
alveg felld úr gildi.
Þeir Clinton og Starr eru jafn-
gamlir, 51 árs. Fleira eiga þeir
sameiginlegt en eru öðrum þræði
andstæður. Báðir eru frá smástöð-
um í Suðurríkjunum og lærðu lög
í virðulegum austurstrandarhá-
skólum. En í æsku samdi Clinton
sig að nokkru að siðum 68-kyn-
slóðarinnar, var hármikill og
skeggprúður, mælti með „frjáls-
um“ ástum og gagnrýndi Banda-
ríkin fyrir hernað þeirra í Ví-
etnam. Starr, sem er innilega trú-
aður, gekk í sunnudagaskóla,
klæddist aldrei nema jakkafötum
ásamt bindi, Iagði þunga áherslu
á að hann tæki hjónabandsheitið
mjög alvarlega, gaf stöðugt til
kynna að hann væri eindreginn
föðurlandsvinur og stóð með
stjórn Iands síns í Víetnammál-
HEIMURINN
Jeltsín kvefast eim
RUSSLAND - Boris Jeltsíns Rússlandsforseti er lagstur í rúmið með
heiftarlegt kvef, og er þetta í þriðja sinn sem hann kvefast alvarlega frá
því hann gekkst undir hjartaaðgerð fyrir 16 mánuðum. Jeltsín afboð-
aði alla fundi sína næstu daga, en ekki er vitað hversu lengi hann verð-
ur frá störfum.
N-Kórea blæs til heræfingar
NORÐUR-KÓREA - Stjórnvöld í Norður-Kóreu létu sírenur hringja
um miðjan dag í höfuðborg landsins til marks um að loftvamaæfing
ætti sér stað. Hlupu borgarbúar í Ioftvarnabyrgi, og fór allt fram með
friðsamlegum hætti. Þá var allsheijarútkall í herinn, en það er hluti af
árlegum heræfingum um land allt og er umfang þeirra nú ekki meira
en venjulega.
Fleiri særast í Jerúsalem
ISRAEL -1 Austur-Jerúsalem kom í gær enn til átaka og særðust fimm
Palestínumenn af völdum sprengju, en ekki var vitað hvort öfgasinn-
aðir Gyðingar bera ábyrgð á henni eða hvort Palestínumennirnir hafi
sjálfir smíðað hana og hún sprungið of snemma. Þá héldu Palestínu-
menn í Hebron áfram að varpa eldsprengjum að ísraelskum hermönn-
um.
Alhanir hafna enn viðræðum
jUGÓSLAVIA - Leiðtogar Kosovo-AIbana neituðu í gær í annað sinn
tilboði serbnesku stjórnarinnar um viðræður. Segjast Albanir ekki vilja
ræða neitt á grundvelli serbnesku stjórnarskrárinnar þar sem í henni
sé ekki gert ráð fyrir þeim möguleika að veita Kosovo-héraði sjálfstæði.
ILEIl
AÐ
NÁMI
NAMSKYNNING
A MORGUN KL. 11:00 TIL 18:00
HALDIN í BYGGINGUM HÁSKÓLA ÍSLANDS
AKUREYRARBÆR
Grunnskólar Akureyrar
Lausar eru til umsóknar:
Stöður skólastjóra og aðstoðarskólastjóra
við Lundarskóla.
í Lundarskóla eru í vetur um 350 nemendur í 1.-7. bekk en
mun á næstu árum fjölga í u.þ.b. 480 nemendur í 1.-10.
bekk vegna breytinga á skólafyrirkomulagi sunnan Glerár.
Jafnframt veður byggt við skólann.
Við leitum að stjórnendum sem eru tilbúnir að taka þátt í að
móta þessa breytingu, helst með reynslu af stjórnun skóla
með 8.-10. bekk. Upplýsingar um starfið gefa skólastjórar í
síma 462 4888.
Staða skólastjóra við Brekkuskóla.
í Brekkuskóla eru í vetur um 700 nemendur í 1.-10. bekk
og er skólinn safnskóli fyrir 8.-10. bekk. Á næstu Árum mun
nemendum fækka í u.þ.b. 500 í 1.-10. bekk vegna breyt-
inga á skólafyrirkomulagi sunnan Glerár. Við skólann er ver-
ið að þróa fjarkennslu á grunnskólastigi.
Við leitum að stjórnanda sem er tilbúinn að halda áfram
uppbyggingu einnar stofnunar á hefðum tveggja eldri, þ.e.
Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar. Upp-
lýsingar um starfið gefa skólastjórar í síma 462 4241.
Á vegum skólanefndar Akureyrar er nú verið að vinna að
heildstæðri stefnumótun fyrir málefni Grunnskóla Akureyrar.
Stefnumótunin er unnin eftir leiðsögn Rannsóknarstofnunar
Háskólans á Akureyri. í vetur er sjónum einkum beint að
starfsmannastefnu, fjárveitingum og fjármálastjórnun, stoð-
þjónustu og úrræðum, skólahúsnæði og aðbúnaði og mati á
skólastarfi.
Einnig veitir skólafulltrúi Akureyarbæjar upplýsingar um
störfin í síma 460 1450. Upplýsingar um kaup og kjör veitir
starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma 462 1000.
Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar á eyðublöðum
sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 8. apríl 1998.
Starfsmannastjóri.