Dagur - 30.05.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 30.05.1998, Blaðsíða 2
2 - LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 FRÉTTIR Reykjavík Akureyrí N3 ANA3 NA2 NA2 NNV2 N3 NA3 A3 A3 NNA3 NNA4 ANA3 ANA3 A2 Stykkishólmur NNA4 ANA4 A3 ANA3 Egilsstaðir “9 Sun Mán Þri Mió mm Sun Mán Þri Mið mm_ w U NNA4 NA4 NNA3 N2 NNV2 NA1 NA3 NA3 ANA2 N3 NA4 ANA3 NA3 VNV3 & NNA4 NA5 NA4 ANA2 Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hveijum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Hæg norðaustlæg „ átt og dálítil.súid á annesjum ; norðan og austan til, víða léttskýjað á Suður- og Vesturlandi en annars skýjað með köflum. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast sunnan til. Færð á vegum Greiðfært er á öllum þjóðvegum landsins en enn eru þó þungatakmarkanir á ýmsum útvegum á Norðurlandi og Vestfjörðum. Refsivert að neita samvinnu við loggu Kynnlngu áfátt á nýrri reglugerð um viðurlög við umferðarlagabrotuui. Ökumenn hafa ekkert val við mæliugu á áfengis- magni. Tvö banaslys á mánuði í umferðinni. „Ég tek það alveg til okkar að við þyrft- um að kynna þetta ennþá betur. Við höfum verið að hamra á þessu í útvaij>- inu okkar en það þarf meira,“ segir Oli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Um- ferðarráðs um nýja og ítarlega reglu- gerð um viðurlög við umferðarlaga- brotum. Slæleg kyiming Mörgum ökumönnum finnst yfirvöld hafa komið aftan að þeim með slælegri kynningu á þessari reglugerð. Sérstak- lega þegar þeir eru stöðvaðir, sektaðir um þúsundir króna og missa jafnvel ökuskírteinið fyrir það sem þeir telja kannski vera smávægilega yfirsjón í umferðinni. Þá finnst mörgum einnig óeðlilegt að lögreglan skuli hafa heim- ild til þess að taka af þeim skírteinið ef þeir neita að blása í nýja tölvutæki lög- reglunnar sem mælir áfengismagn í blóði. Þeir hinir sömu telja að þeir eigi að hafa borgaralegt val um það hvort þeir vilja láta taka blóðsýni úr sér eða blása í tölvutækið. „Það er raunverulega verið að refsa mönnum fyrir að neita samvinnu við lögregluna. Sú Iagagrein er nokkuð ótvíræð,11 segir Oli H. Þórðarson. Stillt upp við vegg Hann segir að nýja aðferðin við að mæla áfengismagn í blóði ökumanna sé á allan hátt miklu þægilegri, auð- veldari og fljótlegri fyrir skjólstæðing- inn en blóðsýnataka. I það heila tekið þá sé þetta aðeins spurning um að öku- menn Iæri það í eitt skipti fyrir öll að þessi nýjung sé það albesta fyrir þá og íögregluna. Þar fyrir utan mundi þessi nýji tæknibúnaður ekki koma að til- skildum notum ef ökumenn hefðu val um það hvaða aðferð þeir vildu nota við að mæla áfengismagn í blóði. Síð- ast en ekki sist mundi það ekki flýta meðferð þessara mála eins og tilgang- urinn er með nýja tækinu. I því sam- bandi minnir OIi H. á að ferlið í blóð- sýnatöku getur tekið allt að tveimur tímum í stað 15 mínútna með nýja öndunartækinu. 11 dauðaslys Það sem af er árinu hafa 11 manns lát- ist í umferðinni. Það eru mun fleiri en hefur verið að jafnaði á sama tímabili síðasta áratuginn. Þetta eru starfs- menn Umferðarráðs og aðrir sem sinna forvörnum í umferðinni ekki ánægðir með, enda lætur nærri að tvö dauðaslys hafi orðið í hveijum mánuði frá áramótum. Framkvæmdastjóri Umferðarráðs skorar því á ökumenn að aka eftir að- stæðum og gæta fyllstu varúðar og ör- yggis í umferðinni. Hann minnir á að í hönd fer fyrsta ferðahelgi sumarins. Af þeim sökum á það ekki að koma öku- mönnum á óvart þótt þeir verði varir við aukinn viðbúnað lögreglu um land allt til að fylgjast með umferðinni.-GRH í heita pottinum í Skagafirði voru meim að ræða nýaf- staðnar sveitar- stjórnarkosningar og ekki síst áhrif skoðanakannana. Sauðárkrókur Daginn fyrir kjördag hirtist könnun frá Gallup sem sýndi að eini „austan vatna“ maðurinn í baráttusæti á fram- hoðslistunum í Skagafirði, Ámi Egilsson, odd- viti á Hofsósi, væri úti í kuldanum. Upphófst þá mikil smölun og á laugardag flykktist fjöldi manns sem annars hafði ekki hugsað sér að kjósa Sjálfstæðisflokkinn á kjörstað og setti x við D til að tryggja Áma sæti. Niðurstaðan varð sú að ekki aðeins komst Árni að í 4. sætinu held- ur tók hann með sér 5. mannhm. Þetta telja að- standendur Skagafjarðarlistans eina meginskýr- inguna á heldur dapurlegri útkomu sinni en list- inn fékk aðeins 2 menn og mun minna fylgi en félagshyggjuflokkamir höfðu haft samanlagt á Sauðárkróki í síðustu kosningum. Spennufall varð í pottinum í morgun þegar dyggir lesendur Sverris Hermannssonar, blaða- manns á Morgunblaðinu, flettu upp á margboðaðri afhjúpun Sverrjr hans á vitneskju „endilangrar" Hermannsson ríkisstjómarinnar í Lindarmál- inu. Innihaldið í greininni reyndist í engu samræmi við auglýsinga mennskuna. Leynibréfið mikla var þá bara skammarbréf frá Davlð Oddssyni til Sverris fýr- ir að hafa engin tök á vaxtamálunum! Og í leið- inni minntist Davið á „strákinn“ sem „týndi“ fýrir Landsbankanum 900 milljónum, eins og það er orðað. Er virkilega orðið svona fátæklegt í vopnabúrinu hans Sverris? Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra reynir nýjan áfengismæli lögreglunnar. Ökumenn hafa ekkert borgaralegt val um það hvort þeir vilja láta taka úr sér blóð eða blása í nýja tölvutæki lögreglunnar til að mæla áfengismagn í blóði. Þeir sem neita að blása missa ökuskírteinið á staðnum, óháð því hvort þeir eru öivaðir eða ekki. Bolungarvík Kirkjubæjarklaustur -10 NA3 NA4 ANA3 ■■ NA2 NNA5 NA3 NA3 ANÁ2 NA2 NNA1 ANA2 ANA4 ANA2 N2 NA2 ANA4 ANA2 ■ A3 Blönduós Stórhöfði NNA2 NA3 NA2 NA2 NNA2 NNA2 NA2 NA1 NNA1 ASA3 ASA5 ANA6 A5 N3 S2 ANA5 ANA6 A5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.